03.mar. 2010 - 15:20 Björgvin G. Sigurðsson

400 milljarðar í nýfjárfestingar

Í dag gerði ég að umtalsefni undir liðnum störf þingsins þau fjölmörgu verkefni í orkunýtingu sem nú eru að nálgast framkvæmdastig. Gangi þau eftir hefur það veruleg áhrif á atvinnustigið sem hækkar hratt og örugglega og aukið innstreymi gjaldeyris í landið.
01.mar. 2010 - 11:10 Björgvin G. Sigurðsson

Landsvirkjun og umframorkan

Helguvík Nýfjárfestingar í orkuvinnslu skipta sköpum til þess að koma atvinnulífinu aftur af stað. Gangi áætlanir eftir um að framkvæmdir við álver í Helguvík og gagnaver á Vallarheiðinni verði komnar á fullt í vor hefur það mikil áhrif á atvinnustigið í mannvirkjagerðinni og langt út fyrir það.
01.feb. 2010 - 19:00 Björgvin G. Sigurðsson

Orkan og endurreisnin

Fjöldi tækifæra blasir nú við okkur í hagkvæmri nýtingu endurnýjanlegra orkulinda Íslands. Ákvörðun umhverfisráðherra um að Suðvesturlína fari ekki í sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum markar þáttaskil við uppbygging atvinnutækifæra á Suðurnesjum og orkunýtingu á svæðinu. Með henni er óvissunni eytt um horfur í stærstu uppbyggingarverkefnum sem áætlanir eru uppi um.
20.jan. 2010 - 14:10 Björgvin G. Sigurðsson

Breikkun Suðurlandsvegar í útboð

Átta mánaða útboðsbann í vegagerð er senn á enda einsog fram kom að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Kristján Möller ,samgönguráðherra, kynnti þar áform sín um að bjóða út tvöföldun Suðurlandsvegar um Sandskeið, verk sem kostar einn og hálfan milljarð króna og hefur verið unnið að síðustu misseri. Ráðherra segir að verið sé að skoða hvort unnt sé að koma þessum verkefnum í útboð sem fyrst og stefnt er að því að hefja framkvæmdir við tvöföldun Suðurlandsvegar í maí.

15.des. 2009 - 09:30 Björgvin G. Sigurðsson

Skynsemi við breikkun Suðurlandsvegar

Nú nýverið var ákveðið að bjóða út fyrsta áfanga breikkunar og tvöföldunar Suðurlandsvegar. Um er að ræða vegkaflann á milli Lögbergsbrekku og Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna sem 2+2 veg. Vestari kaflinn tengist núverandi þriggja akreina vegi um Lögbergsbrekku og að austan tengist hann núverandi 2+1 vegi um Svínahraun. Gerð útboðsgagna er langt komin en auglýsa þarf verkið á Evrópska efnahagssvæðinu. Það er mikill áfangi eftir margra ára baráttu fjölda fólks fyrir bættu umferðaröryggi á Suðurlandsvegi með aðskilnaði akreina á veginum.
06.nóv. 2009 - 12:56 Björgvin G. Sigurðsson

Græna stóriðjan

Í vikunni vöktu garðyrkjubændur athygli á versnandi stöðu garðyrkjunnar, sem stundum er nefnd gjaldeyrissparandi hollustugrein. Á þeim 20 árum sem garðyrkjan hefur verið stunduð árið um kring hefur hún margfaldast að burðum þannig að nú starfa á annað þúsund manns við greinina, hún veltir milljörðum, sparar háar fjárhæðir í heilbrigðiskerfið og eykur hirslur gjaldeyris umtalsvert þar sem ekki þarf að flytja góðmetið inn frá útlöndum. Nú kreppir að vegna hækkandi raforkuverðs en greinin bókstaflega grundvallas á aðgangi að raforku á hóflegu verði.
22.okt. 2009 - 13:55 Björgvin G. Sigurðsson

Orkunýting og endurreisn

Skynsamleg og sjálfbær orkunýting er forsenda og aflvél endurreisnar samfélagsins. Endurnýjanlegar orkulindir eru sóknarfæri okkar og sérstaða sem þjóðar til þess fá hingað nauðsynlega erlenda fjárfestingu. Slíkar fjárfestingar geta breytt samdrætti í vaxtarskeið og unnið gegn atvinnuleysi og framkvæmdafalli í byggingariðnaði og orkugeira.
29.sep. 2009 - 14:31 Björgvin G. Sigurðsson

Vefurinn mikli og lygin lífseiga

Kostulegt er hvað hægt er að spinna sömu ósannindarulluna aftur og   aftur til þess að gera fólk tortryggilegt. Því hefur ítrekað verið haldið fram af pólitískum andstæðingum mínum að ég hafi lokað vef   mínum eftir bankahrunið til að „fela“ greinar um bankana og útrásina.
28.sep. 2009 - 08:23 Björgvin G. Sigurðsson

Stærsti lærdómurinn

Pólitíski veruleikinn eftir fall bankanna var kaldur. Frá hruni krónunnar í mars og fram að falli bankanna hafði fasteignamarkaðurinn frosið, atvinnuleysi aukist, verðbólgan jókst stjórnlaust vegna gengiskreppunnar og höfuðstóll lána hækkaði jafnt og þétt.
26.sep. 2009 - 08:42 Björgvin G. Sigurðsson

Aðalvandinn er enn óleystur

Hlutur stjórnvalda og eftirlitsstofnana í aðdraganda gengishruns og bankafalls er meðal þess sem helst má læra af þegar litið er til baka.
25.sep. 2009 - 09:37 Björgvin G. Sigurðsson

Lærdómar að liðnu ári

Nú er rétt um ár liðið frá því að gengi krónunnar hrundi og íslensku bankarnir féllu. Viðburðaríkara ár hefur líklega ekkert okkar lifað og mun varla lifa. Þetta hefur verið ár óvissu, ótta, undrunar, oft hneykslunar og reiði. Sú örlagasaga verður seint sögð með fullnægjandi hætti, en ég hyggst í þremur greinum reifa hluta atburðarásarinnar eins og hún blasir við af mínum sjónarhóli sem viðskiptaráðherra í rúmt ár fyrir hrun krónunnar og fall bankanna.
06.sep. 2009 - 12:55 Björgvin G. Sigurðsson

Níð í skjóli nafnleysis – hver er ábyrgur?

Eftirminnilegasti kúrs sem ég tók á háskólaárum mínum í heimspeki og sögu var málstofa Þorsteins Gylfasonar um réttlætið. Þorsteinn heitinn var þau misserinn á kafi í rannsóknum á kenningum um réttlæti og setti sem frægt varð sína eigin. Þorsteinn meðal annars að mesta ranglæti sem til væri sé að gagnvart nokkurri manneskju væri rógburður. Að bera á manneskju rangar sakir til þess að rægja hana, draga úr og laska mannorð viðkomandi með ósannindum og ófrægingum hverskonar. Ekki væri til meira óréttlæti en mannorðsníð og rógburður hverskonar.
12.ágú. 2009 - 15:09 Björgvin G. Sigurðsson

Sundurlyndisfjandinn og Sjálfstæðisflokkur

Þegar Reykjavíkurlistinn vann sögulegan sigur í borginni árið 1994 hrikti í fyrsta sinn í hálfa öld fyrir alvöru í stoðum valdakerfis Sjálfstæðisflokksins. Hægri sinnaði íhaldsflokkurinn sem hafði miskunnarlaust deilt og drottnað missti miðstöð valda sinna og helsta stolt; meirihlutann í Reykjavík. Samstaða vinstri manna í einni breiðfylkingu var veruleiki sem kostaði íhaldið völdin.
14.júl. 2009 - 16:12 Björgvin G. Sigurðsson

Bandalagið, byggðirnar og finnska fordæmið

Nú styttist í að ein af sögulegri atkvæðagreiðslum þingsögunnar fari fram: Atvæðagreiðslan um hvort sækja skuli um aðild að Evrópusambandinu. Gangi hún fram markar umsóknin upphaf nýrra tíma á Íslandi eftir þá mikla erfiðleika sem fylgdu hruni samfélagsgerðar haftalítillar markaðshyggju og græðgi. Umsókn um aðild að ESB er tákn um nýja tíma, líflína út í heim. Sáttargjörð við samfélag þjóðanna og stórt skerf í þá átt að byggja upp samfélag sem hvílir á traustum undirstöðum öflugs gjaldmiðils, afnámi verðtryggingar og stöðugu aðgengi að lánsfé á hóflegum kjörum.
28.maí 2009 - 14:58 Björgvin G. Sigurðsson

Sögulegur dagur á Alþingi - dýrkeypt bið á enda

Dagurinn 28. maí er sögulegur dagur á Alþingi. Þá ræðum við í fyrsta sinn tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Með þessum hætti er stærsta einstaka hagsmunamáli þjóðarinnar vísað til þings og þjóðar til úrlausnar. Það er að mínu mati besta og sanngjarnasta leiðin og sú lýðræðislegasta til þess að leiða málið til lykta. Mál sem þrasað og þráttað hefur verið um lengi. Enginn botn kemst í þá umræðu fyrr en sótt er um aðild og síðan kosið um niðurstöðuna í þjóðaratkvæðagreiðslu.
07.maí 2009 - 11:19 Björgvin G. Sigurðsson

Alþingi og Evrópumálin

Rétt eftir kosningar lagði ég það til í grein hér á Pressunni að Alþingi hefði síðasta orðið um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Þingið afgreiddi tillögu ríkisstjórnarinnar um að sótt verði um aðild að bandalaginu á ákveðnum forsendum. Þetta er að mínu mati lýðræðislegasta og eðlilegasta leiðin að þessu umfangsmikla máli. Þá má snúa því við og spyrja hvort einhvern tímann kæmi í rauninni til greina í raun að sækja um aðild án þess að þingið fjallaði um málið? Talandi um virðingu og stöðu Alþingis á meðal þjóðarinnar.
27.apr. 2009 - 12:30 Björgvin G. Sigurðsson

Vinstra vor

Árangur jafnaðarmanna og félagshyggjufólks í kosningunum á laugardag markar mörg tímamót. Sjálfstæðisflokkur er lítill og einangraður jaðarflokkur lengst til hægri eftir mikið tap. Framsókn nær vopnum sínum og aldrei áður hefur stuðningur við aðildarumsókn að ESB verið jafn afgerandi.
16.apr. 2009 - 14:31 Björgvin G. Sigurðsson

Það verður kosið um krónu og Evru

Aðildarumsókn að Evrópusambandinu er ekki lausn á öllum okkar vanda en það er engin lausn til lengri tíma án aðkomu ESB og umsóknar um aðild. Styrking gengis og trúverðugleiki í samfélagi þjóðanna skipta sköpum í endurreisninni og því er kosið um þetta gríðarlega mikilvæga mál í vor. Stærstu mistök síðustu stjórnar var að skjóta þessu stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar á frest. Því fór sem fór. Það mun ekki gerst aftur. En kjósendur hafa um það síðasta orðið eftir rúma viku.
14.apr. 2009 - 13:17 Björgvin G. Sigurðsson

Það verður ekkert hik á Helguvík

Allt bendir til þess að í dag eða á morgun afgreiði Alþingi fjárfestingasamning um álver í Helguvík. Hann samdi Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, og Katrín Júlíusdóttir, formaður iðnaðarnefndar og þingmaður Samfylkingar, leiddi úr nefnd til þingsins. Fyrir liggur að Vinstri grænir standa ekki að málinu en  aðrir flokkar á þingi styðja málið og mun það því fram ganga.
06.apr. 2009 - 13:14 Björgvin G. Sigurðsson

Réttlæti í auðlindanýtingu

Frjáls framsal veiðiheimilda og leiga á óveiddum afla markar upphafið að einu mesta óréttlæti Íslandssögunnar. Ekki einungis að sáru óréttlæti heldur upphafið að því samfélagi sem hér varð til og féll með braki og brestum í fyrra. Kerfið sem stýrir fiskveiðum sniðgekk að mestu jafnræði og sanngirni enda hefur íslenska ríkið fengið á sig þungan dóm frá Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna. Veð í óveiddum fiski og brask með heimildirnar eru inntakið í óréttlætinu og skilur nú við greinina hrikalega skuldsetta eftir verslun og viðskipti með veiðiheimildir í tvo áratugi.

PressupennarÍ stafrófsröð

Björgvin G. Sigurðsson
Alþingismaður og formaður Þingflokks Samfylkingarinnar.
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 12.3.2010
Ákvörðun forsetans breytti stöðunni
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 11.3.2010
VBS fallinn ári eftir ríkisstyrk
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit