24.ágú. 2010 - 16:00
Ágústa Johnson
Heilsuræktargeirinn er síður en svo laus við tískusveiflur. Ýmsum aðferðum og æfingum hefur verið slegið fram í gegnum tíðina, hinu fullkomna sem allt á að leysa en flestar þessara galdralausna hafa horfið fljótt af sjónarsviðinu.
06.ágú. 2010 - 10:43
Ágústa Johnson
Oft og iðulega verð ég vör við að ranghugmyndir um eitt og annað varðandi líkamsþjálfun lifa enn góðu lífi á meðal fólks. Dæmi um slíkar eru eftirfarandi fullyrðingar.
27.apr. 2010 - 12:00
Ágústa Johnson
Ertu komin yfir fertugt og finnst líkamsástandið vera á niðurleið? Ekki örvænta! Þú getur verið í þínu besta formi einmitt á 40 árunum eftir fertugt. Konur sem komnar eru yfir fertugt búa yfir þroska og ró sem eykur á innri og ytri fegurð þeirra og útgeislun.
08.apr. 2010 - 14:00
Ágústa Johnson
Stöðugt eykst framboðið af vörum sem haldið er fram að muni auka brennslu líkamans. Fæðubótaefni, töflur eða annað, allt á þetta að auka hitann í líkamanum svo að þú brennir fleiri hitaeiningum jafnvel í hvíld. Margir hlaupa til og kaupa sér „draum í dós“ en lyfjafræðingar og læknar hafa dregið árangur slíkra efna í efa og varað fólk við notkun þeirra vegna möguleika á því að neysla þeirra skaði heilsuna.
En hvað er "brennsla" og hverjar eru raunverulegar leiðir til að auka hana?
27.mar. 2010 - 18:00
Ágústa Johnson
Ef þú vilt halda efnaskiptahraða líkama þíns í hámarki þarftu að lyfta lóðum. Það má segja að líkaminn líti á vöðva líkamans sem lúxus en fitu sem nauðsyn. Ef þú neytir of fárra hitaeininga mun líkaminn spara fituna eins og kostur er en ganga á vöðvaforða þinn til að búa til orku og vöðvamassinn þinn rýrnar. Rýrari vöðvar þýðir að þú brennir færri hitaeiningum og erfiðara verður að losna við aukakílóin.
09.mar. 2010 - 17:00
Ágústa Johnson
Stutt æfing er betri en engin. Öll þjálfun skiptir máli. Það koma dagar þegar þér finnst þú ekki finna tíma fyrir líkamsræktina. Ekki detta í „allt eða ekkert“ hugsunina . Finndu 15 mínútur á þessum annasömu dögum til að hreyfa þig. Ef þú ert efins um að hægt sé að ná einhverri þjálfun sem skiptir máli á þessum tíma þá get ég fullvissað þig um að allt telur.
24.feb. 2010 - 21:00
Ágústa Johnson
Þegar þú hefur tekið ákvörðun um að losna við aukakílóin þá viltu sjá árangur strax! Hér eru 10 ráð hvernig hægt er að léttast hraðar.
14.feb. 2010 - 11:15
Ágústa Johnson
Undirrituð heimsótti Los Angeles nýverið til að fá beint í æð nýjustu strauma og stefnur í heilsuræktargeiranum. Kröfurnar til heilsuræktargeirans eru vafalaust hvergi meiri en í Los Angeles í Kaliforníu. Kvikmynda- og sjónvarpsstjörnurnar og mikill fjöldi af „wannabe´s“ æfa þar stíft og halda sér í súper góðu formi. Nýjustu æfingakerfin verða gjarnan til þar sem eftirspurnin er mest og þangað laðast einnig mikill fjöldi hæfasta fólksins í heilsuræktinni.
31.jan. 2010 - 16:30
Ágústa Johnson
Nýleg vísindi færa okkur þau ánægjulegu tíðindi með sanni að auk þeirra ótal kosta sem fylgja þjálfun líkamans er nú staðfest að við getum aukið hamingju okkar og lífsgleði með hverskonar reglubundinni hreyfingu.
24.jan. 2010 - 17:30
Ágústa Johnson
Þegar þú finnur að þörfin fyrir að læsa tönnunum í eitthvað sætt er að hellast yfir þig, finndu þér þá eitthvað að gera. T.d. að hringja í vin, gera nokkrar æfingar, fara í göngutúr (með hundinn), fara í notalegt freyðibað, eða hvað sem þér dettur í hug sem dreifir huga þínum frá sætindaþörfinni.
10.jan. 2010 - 19:00
Ágústa Johnson
Líkaminn er gæddur þeim eiginleika að hann leitast stöðugt við að ná jafnvægi. Þegar hann verður fyrir auknu álagi, leitast hann við að aðlagast hið fyrsta. Þetta þýðir að við þurfum stöðugt að leita nýrra leiða til að bæta líkamsástand okkar og koma í veg fyrir stöðnun í líkamsræktinni. Hér eru fjögur góð ráð til þess.
01.jan. 2010 - 12:06
Ágústa Johnson
Nú er tíminn til að setjast niður og setja sér skrifleg markmið um að bæta heilsuna og setja hreyfingu í forgang á nýju ári.
21.des. 2009 - 14:10
Ágústa Johnson
Jól og áramót nálgast. Nýtt ár handan við hornið og því fylgja ný tækifæri.
Það er ekki úr vegi að huga nú að heilsuræktar áformum fyrir nýja árið - hefja að skipuleggja og setja sér markmið.
Á nýja árinu ætla “allir” að taka sig í gegn. Lærin, ístran og fleiri líkamspartar hafa e.t.v. stækkað óskemmtilega eftir leti- og nautnalíf jólafrísins.
16.des. 2009 - 10:00
Ágústa Johnson
Pizzur eru afar vinsælar á mínu heimili og okkur þykir gaman að stunda tilraunastarfsemi í pizzugerð og margar góðar komið út úr því sem festast í sessi og eldaðar reglulega á heimilinu. Það er um að gera að prófa sig áfram og sleppa sér aðeins og hugsa út fyrir kassann. Pizzur er hægt að gera á skömmum tíma t.d. með tilbúnu deigi (fæst t.d. í Bónus og Hagkaupum og víðar) og þær eru ódýrar og góðar. Mér finnst skemmtilegt að bjóða gestum í „öðruvísi“ pizzur, það er einfalt, lítil fyrirhöfn og afslappað og slær alltaf í gegn.
23.nóv. 2009 - 14:23
Ágústa Johnson
Eru jólin eingöngu til þess að reyna hve miklar freistingar við getum staðist? Það skal engan undra þótt við bætum á okkur að meðaltali þrem kílóum yfir hátíðarnar. Jólahlaðborð, smákökubakstur, konfektgerð, laufabrauð og svo auðvitað sjálf jólasteikin, jólaboðin, heimalagaði rjómaísinn, áramótin og allt sem hátíðinni tilheyrir. Jólin hafa þróast í það að verða ein allsherjar neysluveisla. En við skulum líta á björtu hliðarnar, jólin eru ekki komin og það er enn tími til að sporna við þessum „jólakílóum”.
11.nóv. 2009 - 21:23
Ágústa Johnson
Fátt fæst í eins miklu úrvali og sælgæti. Það er varla til sú verslun sem selur matvörur sem ekki er með mikið framboð af sætindum iðulega stillt upp á nokkrum stöðum svo fólk nái nú örugglega ekki að standast freistinguna þó það gangi framhjá fyrsta og öðrum rekka.
02.nóv. 2009 - 13:00
Ágústa Johnson
Superfoods er afar athyglisverð bók að mínu mati. Hún er byggð á mjög einföldum en hnitmiðuðum forsendum: sumar fæðutegundir eru framúrskarandi betri en aðrar hvað varðar heilsu okkar og langlífi. Höfundar eru Steven Pratt, næringarfræðingur og Kathy Matthews.
27.okt. 2009 - 19:00
Ágústa Johnson
Gott líkamlegt form byggist upp á fimm lykilþáttum. Inniheldur æfingakerfið þitt alla fimm þættina?
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í reglubundinni þjálfun eða hefur æft í mörg ár og telur þig vera í topp formi er vel útfært alhliða æfingakerfi grundvöllur þess að þú náir toppárangri.
21.okt. 2009 - 16:26
Ágústa Johnson
A.m.k. 124.000 ný krabbameinstilfelli sem upp komu í Evrópu á árinu 2008 má mögulega rekja til ofþyngdar/offitu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem kynnt var á stærsta evrópuþingi krabbameina (ECCO 15-ESMO 34) í Berlín nýverið. Eftir því sem fleiri hætta að reykja og hormónameðferðum kvenna fækkar má telja líklegt að ofþyngd verði helsta rekjanlega ástæða krabbameina á meðal kvenna á komandi árum skv. könnuninni.
14.okt. 2009 - 13:58
Ágústa Johnson
Margir kannast við það að hafa byrjað af fullum krafti að æfa en síðan hætt af einhverri ástæðu. Oft vegna þess að þeim leiddist æfingarnar eða fannst árangurinn skila sér hægt.