13.mar. 2010 - 20:29
Aðsend grein
Vegna fréttar í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 13. mars tel ég rétt að undirstrika að í þeirri umsögn eldri samtaka um vaxtalögin sem vísað er til í fréttinni, er kallað eftir breytingum á frumvarpinu til að auka skýrleika laganna. Komið er á daginn að þar hafa eldri samtök haft nokkuð til síns máls. Ljóst er þó að löggjafinn deildi ekki áhyggjum samtakanna af þessu á sínum tíma.
11.mar. 2010 - 15:35
Aðsend grein
Úr fyrirsögn í frétt Pressunnar frá því fyrr í dag má lesa þau skilaboð að ég sé að beina spjótum mínum að auglýsingum Viðskiptablaðsins, þar sem varað er við áhrifum fyrningarleiðar í sjávarútvegi.
10.mar. 2010 - 18:39
Aðsend grein
Vegna yfirlýsingar Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Byrs, sem birtist hér á vef Pressunnar í dag, finn ég mig knúinn til að koma eftirfarandi á framfæri.
02.mar. 2010 - 13:22
Aðsend grein
Herbalife er ósammála neikvæðum fullyrðingum um vörur fyrirtækisins sem haldið var fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag, enda hefur fyrirtækið fullt traust á öryggi Herbalife vara. Innihaldsefnin í vörum Herbalife eru öll vel þekkt og notuð í ýmsar matvörur víða um heim.
28.feb. 2010 - 09:30
Aðsend grein
Í Morgunblaðinu í gær er enn einu sinni vegið að mannorði mínu. Í þetta sinn eru það dylgjur
um að ég sé að skjóta undan eignum og á flótta undan skuldheimtumönnum.
25.feb. 2010 - 22:40
Aðsend grein
Í ljósi umræðu um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram:
25.feb. 2010 - 11:00
Aðsend grein
Hér mun ég svara fyrir mig og bendi á að þetta næringarbull sem Geir Gunnar talar um hefur hjálpað fleiri hundruðum Íslendinga. Að auki fnnst mér þetta tal um hætta þessu næringarbulli koma úr hörðustu átt, þar sem Geir Gunnar er ráðgjafi hjá EAS sem er einmitt með kúrinn líkami fyrir lífið. Og ætlast er til þess að þátttakendur noti mjólkurpróteinduft, brennslutöflur og önnur vinsæl og mikið auglýst fæðubótaefni.
24.feb. 2010 - 14:27
Aðsend grein
Í uppsláttarfrétt í aðalfréttatíma Ríkissjónvarpsins í gærkvöld, þar sem fjallað var um Fjárfestingarfélagið Gaum, var ekki gerð tilraun til að ná í stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félagsins. Fyrir vikið var fréttin villandi og sumt var beinlínis rangt.
23.feb. 2010 - 15:25
Aðsend grein
Hannes H. Gissurarson, prófessor, vill alltaf eiga síðasta orðið. Það hafði ég ætlað mér að gefa honum eftir ef hann kynni með það að fara, en það getur hann greinilega ekki. Í nýrri Pressugrein dregur hann upp niðurstöður sínar af skeytasendingum okkar og fer þar frjálslega með staðreyndir. Ég neyðist því til að svara honum einu sinni enn.
22.feb. 2010 - 14:40
Aðsend grein
Hannes H. Gissurarson, prófessor, dregur upp þá mynd af mér í nýrri Pressugrein, að ég sitji vansæll við tölvuna mína á kvöldin og semji óhróður um Davíð og „náhirðina”. Þá fullyrðir hann, að ég hafi daglega afskipti af ritstjórn DV og skrifi margt af því, sem birtist nafnlaust í blaðinu. Hefur hann Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóra, fyrir þessum ósannindum.
21.feb. 2010 - 17:00
Aðsend grein
Hannes H. Gissurarson, prófessor, staðfestir í Pressugrein sinni efnisatriði frásagnar minnar frá því á föstudag um þá geðshræringu, sem fylgir óttanum við höfnun eða útskúfun hjá fórnarlömbum þöggunar. Áður hafði hann sagt að frásögnin væri skáldskapur. Nú viðurkennir hann meira að segja, að hann kunni að hafa sagt mér frá þessu.
21.feb. 2010 - 11:05
Aðsend grein
Undanfarna mánuði hefur hópur fyrrum félaga minna úr Sjálfstæðisflokknum reynt að kasta rýrð á trúverðugleika minn sem eiganda Birtings ehf. útgáfufélags DV. Þar fer fremstur Hannes H. Gissurarson, prófessor, en flögrandi í kringum hann eru smáfuglarnir á AMX. Málflutningur þeirra hefur einkennst af dylgjum og ósannindum.
18.feb. 2010 - 10:27
Aðsend grein
02.feb. 2010 - 17:27
Aðsend grein
Starfsmenn Fjármálaeftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármálaeftirlitsins er vísað á bug, en þar lagði fólk sig fram um að sinna starfi sínu af fagmennsku og heiðarleika.
29.jan. 2010 - 14:50
Aðsend grein
Í dag er aðalfundur Ríkisútvarpsins ohf. Verður fróðlegt að sjá hvort útvarpsstjóri, forstjóri fyrirtækisins, verði kallaður á teppið. Varla geta Alþingi (sem skipaði stjórnina), fjármálaráðherra (sem fer með hlutabréfið eina) og menntamálaráðherra sætt sig við ákvörðun hans um að veita ekki þá þjónustu sem RÚV er uppálagt í lögum, með því að hætta að mestu kaupum á innlendu dagskrárefni.
28.jan. 2010 - 11:53
Aðsend grein
Vegna skrifa Sölva Tryggvasonar vill Guðmundur Örn Gunnarsson forstjóri VÍS koma eftirfarandi á framfæri:
26.jan. 2010 - 14:00
Aðsend grein
Í grein sinni „Áfallastreita og misskilningur" vitnar hæstaréttarlögmaðurinn Brynjar Níelsson í orð mín úr fyrri grein þar sem segir að að formaður Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna hefði mælt með því að stuðst væri við álit sálfræðinga. Hér skal lögð áhersla á sögnina „að styðjast” við álit sálfræðinga (ekki „alhæfa um sekt sakbornings”). Ég benti á að þessi ráðlegging formannsins gengi þvert gegn yfirlýstu viðhorfi Jóns Steinars hæstaréttardómara.
23.jan. 2010 - 14:08
Aðsend grein
Þann 22. janúar birtist greinin "Áfallastreituröskun og sönnun" eftir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmann á pressunni.is. Í greininni telur Brynjar mig hafa hneykslast á því að “mat sálfræðings á áfallastreitu brotaþola dygði ekki eitt og sér til sakfellingar í kynferðisbrotamálum.” Því næst hneykslast hann í löngu máli á þessari ætluðu afstöðu minni. Hér veður Brynjar í villu.
22.jan. 2010 - 08:50
Aðsend grein
Í frétt sem birtist á pressan.is í gær er fullyrt að formaður efnahags- og viðskiptanefndar hafi ekkert vit á sértækri skuldaaðlögun og vitnað í grein Brynjars Nielssonar, hæstaréttarlögmanns því til sönnunnar. Þetta eru stór orð sem slegið er upp sem forsíðufrétt og miður að ekki hafi verið haft samband við formanninn, sem er reyndar aðeins formaður viðskiptanefndar, til að bera fullyrðinguna undir hann, þannig að hægt hefði verið að leiðrétta misskilning Brynjars strax en ekki í aðsendri athugasemd. Það má segja Brynjari og fjölmiðlinum pressan.is til vorkunnar að sú ákvörðun stjórnvalda að aðeins eigi að hjálpa þeim skuldurum sem þurfa aðstoð, hafi getið af sér ótal skuldaúrræði sem fáir hafa yfirsýn yfir og enn færri skilja.
18.des. 2009 - 16:50
Aðsend grein
Í kjölfar fréttar á Pressunni um að bílaumboðin hafi ekki staðið sig við uppfærslu raunverðs notaðra bíla þá vill Brimborg taka eftirfarandi fram.
16.des. 2009 - 12:32
Aðsend grein
Hannes Hólmsteinn Gissurarson heldur áfram að þrástagast á þeirri sannfæringu sinni í Pressupistli í dag að skjal sem ég fjalla um og dreg ályktanir af í grein í tímaritinu Sögu árið 2007 hafi aðra merkingu en þá sem ég held fram. Þó geri ég ekki annað en að lesa skjalið bókstaflega og veita því athygli frá hverjum það er og til hvers. Þór Whitehead hefur einnig gert tilraun til að sýna fram á að skjalið merki ekki það sem það segir (Saga XLVI:2 2008).
15.des. 2009 - 15:48
Aðsend grein
Hannes Hólmsteinn Gissurarson telur að afrit af bréfi til Æskuýðsfylkingarinnar frá Alþjóðasambandi ungra kommúnista (AUK), sent 1939, með heillaóskum vegna stofnunar hennar sýni að Alþjóðasamband kommúnista / Komintern (AK) hafi samþykkt stofnun Sósíalistaflokksins árið áður.
12.des. 2009 - 16:55
Aðsend grein
Þingflokksformenn VG og Samfylkingarinnar hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirra skattahækkana sem ríkisstjórnin boðar. Vegna þessa er rétt að taka fram:
12.des. 2009 - 12:38
Aðsend grein
Öll framsetning í auglýsingunni er vafasöm. Ekki er verið að bera tillögur ríkisstjórnarinnar saman við neinn raunveruleika eða raunverulega valkosti. Sjálfstæðisflokkurinn heldur að lesandanum þeirri tálsýn að óbreyttar skattareglur og áður fyrirhugaðar breytingar sé eitthvað sem raunhæft sé eftir að hann sigldi þjóðarbúinu í þrot og braut niður tekjuöflun ríkisins. Raunhæfur samanburður verður aðeins gerður á raunverulegum forsendum.
09.des. 2009 - 09:00
Aðsend grein
Sannleikurinn er sá að ég hef haft samskipti við tónlistarstjóra safnaðarins varðandi tónlistarflutning með kórnum en þau sjá um skipulagningu tónleikanna. Árið 2007 ræddi ég við tónlistarstjóra í tengslum við að ég kæmi fram með kór safnaðarins. Á þeim tíma var mér tjáð af tónlistarstjórunum að mín samkynhneigð “gæti farið fyrir brjóstið á fólki innan safnaðarins, hneykslað einhverja” og þess vegna gæti ekki af því orðið. Þótti mér það miður.
30.nóv. 2009 - 11:06
Aðsend grein
Stjórn Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu harmar rangfærslur fjölmiðla þess efnis að Friðrik Ómari hafi verið meinað að koma fram á jólatónleikum Fíladelfíu. Það skal áréttað að beiðni þess efnis hefur aldrei komið inn á borð stjórnar Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu.
24.nóv. 2009 - 20:05
Aðsend grein
Í ljósi fréttaflutnings af afskiptum sérstaks saksóknara á málefnum stjórnenda Byrs vegna sölu stofnbréfa í sparisjóðnum, þar sem nafn mitt og félagsins Exeter Holdings, hefur verið í umræðunni vil ég taka fram eftirfarandi:
21.nóv. 2009 - 20:23
Aðsend grein
Nú er verið að ganga frá Icesave málum þannig það er ljóst að Íslenska þjóðin þarf að borga næstu áratugina ævintýragang Landsbankamanna uppá hundruði milljarða.
21.nóv. 2009 - 07:00
Aðsend grein
Fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp til breytinga á lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og lögum nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis. Í frumvörpunum felast umtalsverðar breytingar á röðun frambjóðenda. Lagt er til að tekið verði upp svokallað „persónukjör“ sem stjórnmálamenn slá um sig með því að vísa til þess sem mikilar lýðræðisumbótar.
19.nóv. 2009 - 13:33
Aðsend grein
Mikil umræða hefur spunnist um kröfur mínar og annarra fyrrverandi starfsmanna Landsbankans í þrotabú Landsbanka Íslands hf. Um er að ræða lögvarðar kröfur samkvæmt ráðningar-samningnum og eru þær aðallega til komnar vegna kauprétta sem voru í vanskilum af hálfu bankans frá árinu 2007. Óvíst er hvort þær verða samþykktar.