17.jan. 2010 - 13:00

Netvarp Pressunnar: Stefna ríkisstjórnarinnar veikir samningsstöðuna gagnvart ESB

Í síðari hluta Netvarpsviðtalsins ræðir Þorsteinn Pálsson, fyrrum ráðherra og ritstjóri, fyrirhugaðar aðildarviðræður við Evrópusambandið og efnahagsmál. Hann segir meðal annars að stefna ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum veiki samningsstöðu Íslands gagnvart ESB.
16.jan. 2010 - 12:00 Magnús Geir Eyjólfsson

Netvarpsviðtalið við Þorstein Pálsson: Lætur nærri að landið sé stjórnlaust

Í Netvarpsviðtali Pressunnar að þessu sinni er rætt við Þorstein Pálsson, fyrrum forsætisráðherra og ritstjóra. Þar lýsir hann meðal annars þeirri skoðun sinni að landið sé nærri stjórnlaust þegar forsetinn taki fram fyrir hendurnar á ríkisstjórninni og tali gegn henni á alþjóðavettvangi.
12.nóv. 2009 - 15:35

Bjarni Benediktsson: Verður skattprósentan orðin 55% hjá þeim tekjuhærri? - NETVARP

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það óásættanlegt að sex vikum fyrir ármót hafi stjórnvöld ekki enn útfært tekjuhlið ríkissjóðs og fjölmörg mál óafgreidd. Hátekjuskattur sé stórt spurningamerki og verði hann áfram með nýjum skattahækkunum stefni í að skattprósentan verði 55% í hæsta skattþrepi sem þýði í raun að meir en önnur hver króna fari í skatta.
16.okt. 2009 - 09:00

Netvarp Pressunnar: Fékk hjartastopp í World Class og dó fjórum sinnum

Í síðustu viku var Pétur Guðjónsson staddur í World Class þar sem hann æfir reglulega. Í miðjum æfingum fær hann hjartastopp en sem betur fer voru læknir og hjúkrunarfræðingar á staðnum sem björguðu lífi hans. Pétur segist hafa dáið fjórum sinnum á þeim tíu mínútum sem lífgunartilraunir stóðu yfir.
24.sep. 2009 - 09:00

Gunnar I. Birgisson: Sný aftur í bæjarstjórn og sækist eftir endurkjöri sem oddviti

Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, segist ætla að snúa aftur úr leyfi þegar rannsókn á málefnum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs lýkur, sama hvað framsóknarmönnum finnist. Hann ætlar jafnframt að sækjast eftir endurkjöri sem oddviti sjálfstæðismanna fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.

 


23.sep. 2009 - 09:00

Gunnar I. Birgisson: Skil vel að menn vilji fá Davíð Oddsson aftur fram á sjónarsviðið

Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi skilur vel að menn vilji fá Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, aftur fram á sjónarsviðið. Eftirspurn sé eftir leiðtogum með skýra framtíðarsýn, menn sem þori að taka ákvarðanir.  Hann segir að núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins þurfi að gyrða sig í brók og segja fólki hvað hún vilji gera.
30.ágú. 2009 - 10:29

Seinni hluti viðtalsins við Gunnar Smára Egilsson: Bjuggum til stærstu bólu sögunnar

Ástandinu á Íslandi má líkja við kvikmyndina Groundhog Day þar sem þjóðin hjakkar í sama farinu dag eftir dag, segir Gunnar Smári Egilsson í síðari hluta viðtalsins við Netvarp Pressunnar. Í viðtalinu lýsir hann því hvernig Íslendingum tókst að byggja upp eina stærstu bólu í heimi.
29.ágú. 2009 - 09:15

Netvarp Pressunnar: Gefum út færri ákæruliði og sendum þessa menn á Kvíabryggju

Fjölmiðlamaðurinn Gunnar Smári Egilsson vill að ákæruvaldið einbeiti sér að því að gefa út fáa en örugga ákæruliði á hendur þeim sem gerðust brotlegir í bankahruninu og senda þá á Kvíabryggju í stað þess að reyna að skrifa söguna í gegnum réttarkerfið.

Pressupennarnýjast
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Engin afskipti lögreglu
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 12.3.2010
Hvað kosta íslenskar konur?
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit