09. ágú. 2011 - 10:00Vilhjálmur Steinarsson

Vöðvarnir okkar og hvernig þeir vinna!

Hversu margir halda að þeir séu að æfa hendur þegar þeir eru að framkvæma æfingu fyrir efri líkamann? Ég heyri það ansi oft að fólk kalli bakæfingar handaæfingar t.d. Ég ætla að fara aðeins í einfalda vöðvafræði þar sem ég fer út í hvaða vöðvar framkvæma vissar hreyfingar, engar áhyggjur samt, það verður engin latína.

Æfingar fyrir hendur (tví- og þríhöfða)
Til þess að þjálfa þessa vöðva á upphandlegg, þá eru aðeins tvær hreyfingar sem koma til greina. Til þess að þjálfa tvíhöfðann (framan á upphandlegg) þá þarftu að beygja hendur.  Þríhöfðinn sér hins vegar um að rétta úr höndum og því þarft þú að framkvæma einhvers konar armréttur til þess að þjálfa þríhöfðann.

Æfingar fyrir axlavöðva
Ef þú vilt þjálfa á þér axlirnar, þá getur þú framkvæmt nokkrar mismunandi hreyfingar. Þú getur pressað lóð eða aðra mótstöðu upp fyrir ofan höfuð. Þú getur lyft beinum höndum fram og til hliðar og þú getur einnig framkvæmt alls konar snúninga á höndum til þess að þjálfa litla vöðva í kringum axlaliðinn og þjálfað þannig upp stöðugleika. Það er mjög mikilvægt að þjálfa upp stöðugleika axla, þar sem axlaliðurinn er bæði hreyfanlegasti liður líkamans og sá óstöðugasti og því auðvelt að verða fyrir meiðslum, ef æfingarnar eru ekki gerðar rétt.

Æfingar fyrir brjóstvöðva
Þá eru það sundlaugarvöðvarnir, fyrir okkur karlmennina allavega. Til þess að þjálfa brjóstvöðva pressar þú mótstöðuna frá líkamanum úr liggjandi stöðu til dæmis. Armbeygjur er frábær æfing fyrir brjóstvöðva en það eru einnig til fjöldinn allur af æfingum fyrir þennan vöðvahóp. Til eru útfærslur af þessum pressuæfingum og ætla ég ekki að fara nánar út í þær.

Æfingar fyrir bakvöðva
Bakið er stórt og margir vöðvar sem hægt er að þjálfa með mismunandi hreyfingum og æfingum, þannig ég ætla að hafa þetta einfalt. Til að þjálfa bakvöðva, þá þarftu að framkvæma einhvers konar tog hreyfingu. Þú getur togað niður að líkama eða togað að þér. Það eru margar útfærslur sem þjálfa mismunandi hluta vöðvanna. Þegar þú þjálfar vöðva í mjóbaki, þá getur þú framkvæmt einhverskonar bakfettur eða stöðugleikaæfingar eins og t.d. planka.

Æfingar fyrir fætur
Sömu lögmál gilda um hendur og fætur. Ef þú vilt einangra aftanlæris vöðva, þá verður þú að beygja fætur. Ef þú vilt þjálfa vöðva framan á læri, þá verður þú að rétta úr fótum á móti. Ef þú vilt þjálfa rassvöðva, þá getur þú framkvæmt einhvers konar hnébeygjur og framstig. Þetta eru stórir vöðvar heill hafsjór af æfingum sem hægt er að velja og margar þeirra reyna á flesta fótavöðva í einu.

Ég vona að þetta hafi verið gagnlegt fyrir þá sem eru vanir að gera bara eitthvað þegar kemur að lyftingum og hafa ekki hugmynd um það hvaða vöðva er verið að þjálfa. Að sjálfsögðu vinna margir vöðvar í hreyfingum sem líst er hér að ofan en ég ætla ekki að fara dýpra í það að þessu sinni.




22.maí 2012 - 15:00 Fannar Karvel

Basic hnébeygja eða hvað...

Þegar kemur að fótaæfingum er hnébeygjan kóngur allra annarra æfinga, punktur!
22.maí 2012 - 10:40 Ragga Nagli

Rútínurask

Það þarf ekki að þýða skipulagningu á G8 fundi að ætla að hreyfa sig í fríinu.
19.maí 2012 - 11:58 Vilhjálmur Steinarsson

6 verstu mistökin

Svona árangur næst ekki með því að hamast einungis í hundruðum kviðæfinga á dag! Að gera æfingu sem einangrar einn vöðva í einu, eins to t.d. tvíhöfðakreppur (bicep curls) mun ekki skila þér miklu. Þær Ef þú vilt byggja upp almennilegan vöðvamassa og hafa fitubrennsluna í botni á meðan, þá þarftu að framkvæma stórar æfingar sem örva marga vöðva og vöðvahópa í einu ásamt því auðvitað að nota sem mesta orku á sama tíma.
18.maí 2012 - 09:21 Ragga Nagli

Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT

Hvað gera bændur þegar löngunin ætlar holdið lifandi að éta?
Nú þá skellir maður í bráðholla og löglega súkkulaðiköku.
15.maí 2012 - 09:37 Fannar Karvel

Árangur í einu orði

Árangur í einu orði; Stöðugleiki.
Þetta hljómar ofsalega einfalt og það er það líka, allur þessi hópur í raunheimum sem er að berjast við vigtina á hverjum degi og stekkur á hverja töfrapilluna, hvert ofurprógrammið þarf ekki að vita meira.
15.maí 2012 - 09:08 Ragga Nagli

Grýttur jarðvegur

Margir klóra sér í skallanum yfir hvers vegna þeir ná ekki árangri þrátt fyrir blóðsúthellingar og tárvota hvarma. Þá er ráð að endurskoða aðferðirnar, leita ráða og læra af feilsporum annarra. 
11.maí 2012 - 16:15 Ragga Nagli

Blæðandi steinar

Það getur verið auðveldara að draga blóð úr grjóthnullungi með ryðgaðri saumnál en að breyta venjum sínum. 
Vani er eitthvað sem við gerum á ómeðvitaðri sjálfsstjórn – líka fæðuval – líka óhollt fæðuval. 
10.maí 2012 - 11:55 Ragga Nagli

Maggi Sam - Hrrriikalegur

Maggi Sam, eins og drengurinn er kallaður í daglegu tali, er sannarlega að stimpla sig inn í alþjóðlegu vaxtarrræktarsenuna.
Kynnumst kauða nánar.
10.maí 2012 - 10:00

Heilsupizza: Ótrúlega fáar hitaeiningar í pizzu - Uppskrift

Italiano fer að fagna 2 ára afmæli um þessar mundir. Allir geta séð hvaða kaloríufjöldi er í pizzunni sem þeir panta og það kom okkur virkilega óvart hvað það eru í rauninni fáar í flestum tilfellum. Inná heimasíðu þeirra er hægt að sjá fjöldann í sinni uppáhalds pizzu. Högni eigandi Italiano lét okkur fá þessa girnilegu uppskrift til að gera heima. 
08.maí 2012 - 09:00 Ragga Nagli

Hollar hindberjapönnsur - UPPSKRIFT

Bláber, hindber, rifsber, blæjuber, brómber, jarðarber... og Naglinn bíður með fiðrildi í maganum eftir kirsuberjunum sem eru algjörlega uppáhalds. 
07.maí 2012 - 22:13 Fannar Karvel

Afsakanir eru ekki gildar lengur

Veldu eina afsökun;
- “Það er svo erfitt að byrja!”
- “Mér verður svo illt í hnjánum af öllum hlaupum!”
- “Ég vil ekki svitna!”
- “Ég verð svo þreytt/-ur!”

Svo máttu henda henni í ruslið og hunskast út að hreyfa þig!

07.maí 2012 - 12:26

Ertu með uppþembu eða óstjórnlega sykurlöngun? Þú gætir verið með Candida sveppasýkingu

Ertu með meltingartruflanir, uppþembu, vindgang eða brjóstsviða? Langar þig stöðugt í eitthvað gúmmulaði eins og deserta, hvítt brauð eða kökur? Er minnið lélegt og færðu oft mígreni og höfuðverk? Ertu með ofnæmi fyrir kemískum efnum eða ertu með húðvandamál? Eru augun þrútin eða þurr?
05.maí 2012 - 18:28 Ragga Nagli

Gjemli gjemli

Naglinn hefur sagt það áður og segir það aftur.... aldur er bara númer. 
Þú ræður hvað þú ert gamall/gömul útfrá hvernig þú velur að lifa lífinu.
03.maí 2012 - 09:56

Heilsubókin fyrir fjölskylduna sem beðið hefur verið eftir!

Hvernig eigum við að draga úr sykurneyslu barna og ungmenna? Hvernig eigum við að fá þau til að borða heilsusamlegan mat og bæta lífsstílinn?
02.maí 2012 - 09:05 Ragga Nagli

Bleyta bakvið sneplana?

Naglinn gefur nýgræðingum á hollustubrautinni sem og þeim sem eru að byrja aftur eftir langt hlé, góð ráð til að halda sig við efnið og gera þetta að lífsstíl.