25. sep. 2011 - 11:30Svava Rán Karlsdóttir
Grófar múffur með sætum kartöflum og rósmarín

Svava Rán
Ég er nú vön að baka múffur þannig að þær séu sætar og henti frekar sem sætabrauð. Pekanhnetu og súkkulaði og trönuber og hvítt súkkulaði í algeru uppáhaldi hjá mér. Ég varð þessvegna forvitin þegar ég sá uppskrift á BBC Food að bragðmiklum en ósætum múffum bökuðum með graskerskubbum. Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég átti ekkert grasker en það voru hinsvegar fullt af sætum kartöflum í búrinu og ég ákvað að prófa. Ég breytti líka hinu og þessu til að gera þær aðeins hollari, með heilhveiti, kókósolíu og hunangi.
Aðlagað frá BBC Food
50 ml kókóshnetuolía
340 g heilhveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk matarsódi
Salt
1 msk rósmarín
2 egg, létt slegin
3 msk fitulaust grískt jógúrt
250 ml sojamjólk (eða önnur mjólk)
3 msk hunang
50 g rifinn parmesan ostur eða fetaostur í litlum bitum
240 g bakaðar sætar kartöflur, skornar í litla bita.
¼ bolli graskersfræ
¼ bolli sólblómafræ
Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti og rósmarín. Í annarri skál blandið saman eggjum, jógúrti, sojamjólk, hunangi, osti og kókósolíu.
Hellið blautu út í þurrt ásamt bökuðum eða soðnum sætu kartöflubitunum og blandið létt saman. Passið að hræra alls ekki of mikið. Setjið í sílíkón muffins form eða í smurt muffins form og stráið graskersfræjum og sólblómafræjum yfir múffurnar. Bakið við 190 gráður í 25-30 mínútur.
Þessar eru alveg hrikalega góðar til að bera fram með húmmús eða pestó og bráðskemmtilegar með sterkum osti og algjört æði sem meðlæti með góðu salati. Þær eru þéttar í sér og dálítið blautar og eru þessvegna ekki hentugar til að bera fram með súpu. Þær eru hinsvegar eitthvað sem maður ber fram fyrir gesti og slær í gegn.
22.maí 2012 - 15:00
Fannar Karvel
Þegar kemur að fótaæfingum er hnébeygjan kóngur allra annarra æfinga,
punktur!
22.maí 2012 - 10:40
Ragga Nagli
Það þarf ekki að þýða skipulagningu á G8 fundi að ætla að hreyfa sig í fríinu.
19.maí 2012 - 11:58
Vilhjálmur Steinarsson
Að gera æfingu sem einangrar einn vöðva í einu, eins to t.d. tvíhöfðakreppur (bicep curls) mun ekki skila þér miklu. Þær Ef þú vilt byggja upp almennilegan vöðvamassa og hafa fitubrennsluna í botni á meðan, þá þarftu að framkvæma stórar æfingar sem örva marga vöðva og vöðvahópa í einu ásamt því auðvitað að nota sem mesta orku á sama tíma.
18.maí 2012 - 09:21
Ragga Nagli
Hvað gera bændur þegar löngunin ætlar holdið lifandi að éta?
Nú þá skellir maður í bráðholla og löglega súkkulaðiköku.
15.maí 2012 - 09:37
Fannar Karvel
Árangur í einu orði; Stöðugleiki.
Þetta hljómar ofsalega einfalt og það er það líka, allur þessi hópur í raunheimum sem er að berjast við vigtina á hverjum degi og stekkur á hverja töfrapilluna, hvert ofurprógrammið þarf ekki að vita meira.
15.maí 2012 - 09:08
Ragga Nagli
Margir klóra sér í skallanum yfir hvers vegna þeir ná ekki árangri þrátt fyrir blóðsúthellingar og tárvota hvarma. Þá er ráð að endurskoða aðferðirnar, leita ráða og læra af feilsporum annarra.
11.maí 2012 - 16:15
Ragga Nagli
Það getur verið auðveldara að draga blóð úr grjóthnullungi með ryðgaðri saumnál en að breyta venjum sínum.
Vani er eitthvað sem við gerum á ómeðvitaðri sjálfsstjórn – líka fæðuval – líka óhollt fæðuval.
10.maí 2012 - 11:55
Ragga Nagli
Maggi Sam, eins og drengurinn er kallaður í daglegu tali, er sannarlega að stimpla sig inn í alþjóðlegu vaxtarrræktarsenuna.
Kynnumst kauða nánar.
10.maí 2012 - 10:00
Italiano fer að fagna 2 ára afmæli um þessar mundir. Allir geta séð hvaða kaloríufjöldi er í pizzunni sem þeir panta og það kom okkur virkilega óvart hvað það eru í rauninni fáar í flestum tilfellum. Inná heimasíðu þeirra er hægt að sjá fjöldann í sinni uppáhalds pizzu. Högni eigandi Italiano lét okkur fá þessa girnilegu uppskrift til að gera heima.
08.maí 2012 - 09:00
Ragga Nagli
Bláber, hindber, rifsber, blæjuber, brómber, jarðarber... og Naglinn bíður með fiðrildi í maganum eftir kirsuberjunum sem eru algjörlega uppáhalds.
07.maí 2012 - 22:13
Fannar Karvel
Veldu eina afsökun;
- “Það er svo erfitt að byrja!”
- “Mér verður svo illt í hnjánum af öllum hlaupum!”
- “Ég vil ekki svitna!”
- “Ég verð svo þreytt/-ur!”
Svo máttu henda henni í ruslið og hunskast út að hreyfa þig!
07.maí 2012 - 12:26
Ertu með meltingartruflanir, uppþembu, vindgang eða brjóstsviða? Langar þig stöðugt í eitthvað gúmmulaði eins og deserta, hvítt brauð eða kökur? Er minnið lélegt og færðu oft mígreni og höfuðverk? Ertu með ofnæmi fyrir kemískum efnum eða ertu með húðvandamál? Eru augun þrútin eða þurr?
05.maí 2012 - 18:28
Ragga Nagli
Naglinn hefur sagt það áður og segir það aftur.... aldur er bara númer.
Þú ræður hvað þú ert gamall/gömul útfrá hvernig þú velur að lifa lífinu.
03.maí 2012 - 09:56
Hvernig eigum við að draga úr sykurneyslu barna og ungmenna? Hvernig eigum við að fá þau til að borða heilsusamlegan mat og bæta lífsstílinn?
02.maí 2012 - 09:05
Ragga Nagli
Naglinn gefur nýgræðingum á hollustubrautinni sem og þeim sem eru að byrja aftur eftir langt hlé, góð ráð til að halda sig við efnið og gera þetta að lífsstíl.