05. feb. 2012 - 07:00Elín Helga Egilsdóttir
Hafraklattar sem ekki þarf að baka

Ella Helga
Fyrir utan þá ægilega mikilvægu staðreynd að hafrar eru ekkert nema hamingjunnar Herkúles í sinni einföldustu mynd, þá eru hafrar, blandaðir saman við t.d. sólblómafræ, kókosmjöl, hunang... smjörklípu!!!
Usss... ég fæ gæsahúðarhroll af einskærri matarpervisku og brosi í gegnum tárin!
Uppskriftin hér að neðan kallar líka á smjör. Alvöru ekta al-íslenskt smjer!
Þú deyrð ekki. Ég lofa.
En ef þú færð í tærnar við smjörhugsunina geturðu prófað að nota eplamauk/kókosolíu í staðinn. Athugaðu þó að ef þú notar eplamauk er ekki víst að stangirnar haldist alveg jafn vel saman.
Klattana er svo hægt að brúka sem:
- Millimál, viðbit... biðvit?
- Krums út á skyr og grauta.
- Sykurpúkafælu.
- Eitthvað annað sem mér dettur ekki í hug ákkúrat núna!
Einn... tveir... og.... inn í eldhús með þig!
Hafraklattar, segjum 8, ákkúrat mátulega stórir bitar
- 1 bolli hafrar
- 1/2 bolli kókosmjöl
- 1/2 bolli sólblómafræ (mikið sem ég svoleiðis elska sólblómafræ - ristaðu þau fyrst ef þú vilt, skemmir ekki)
- 1/4 bolli hveitikím
- 1/4 bolli uppáhalds múslí eða t.d. sesamfræ. (chia, chia)
- 1/4 bolli niðurskornar þurrkaðar aprikósur
- 1/4 bolli niðurskornar þurrkaðar döðlur
- 1/3 bolli hunang
- 1,5 msk smjör (kókosolía/eplamauk)
- 1/2 tsk vanilludropar
- Salt eftir smekk
Hræra saman höfrum, kókosmjöli, sólblómafræjum, salti og hveitikími í stórri skál. Setja döðlur, aprikósur, hunang, smjör og vanilludropa saman í pott, yfir meðalhita, og hræra saman þangað til döðlur og apríkósur eru farnar að bráðna saman við hunangsblönduna og hunangið rétt farið að bubbla. Færa þá pott af hita og byrja á því að skófla þurrefnum ofan í hunangspottinn þangað til áferðin er orðin að þínu skapi.
Það var smá eftir af þurrefnum í mínum skammti. Rúmlega 1/2 bolli kannski? Fínt að rista það og nota út á næsta skyrskammt!

Hella blöndunni á smjörpappír og móta í ferhyrning. Leggja smjörpappír ofan á blönduna og þrýsta á með t.d. skurðabretti. Móta aftur, þrýsta hliðum saman og aftur þrýsta á með skurðabrettinu, eða þangað til blandan er orðin þétt og helst vel saman.
Getur líka gert þér lífið auðveldara og hreinlega skúbbað öllu ofurdrallinu ofan á smjerpappír sem komið hefur verið fallega fyrir ofan í þartilgerðu móti. Þá þarftu bara að sjá um að þrýsta... ekki móta.
Eftir kram, fnas og púst setja hamingjuna inn í ísskáp og bíða eftir að kólni vel. Taka þá út úr kælikvikindinu og skera í viðráðanlegar átstærðir, allt eftir småg og behåg.

Virkilega þéttir og góðir bitar. Haldast vel saman við stofuhita og bragðið og áferðin meiriháttar flott. Munið bara að hunangið sem þið notið kemur vel fram. Svo veljið hunangið ykkar vel!
Takk fyrir og amen eftir efninu!
Verð ykkur að eðalofurgóðu strumparnir mínir.
18.maí 2012 - 09:21
Ragga Nagli
Hvað gera bændur þegar löngunin ætlar holdið lifandi að éta?
Nú þá skellir maður í bráðholla og löglega súkkulaðiköku.
15.maí 2012 - 09:08
Ragga Nagli
Margir klóra sér í skallanum yfir hvers vegna þeir ná ekki árangri þrátt fyrir blóðsúthellingar og tárvota hvarma. Þá er ráð að endurskoða aðferðirnar, leita ráða og læra af feilsporum annarra.
14.maí 2012 - 17:00
Þetta syndsamlega gott og þarf enga eldun. Matvinnsluvél og iceberg salat og maturinn klár.
14.maí 2012 - 09:00
Ert þú komin/nn með leið á gamla góða hafragrautnum sem ekkert bragð er af? Bættu eplum, perum, kanil og agavesýrópi út í, ótrúlega gott svona í morgunsárið!
14.maí 2012 - 07:00
Bláber eru einstaklega holl, þau eru ekki bara stútfull af andoxunarefnum sem vinna gegn hrörnum líkamans heldur eru þau einnig holl hjartanu og meltingarveginum. Þessi bláberjaboost gerir þér ekkert nema gott og er að sjálfsögðu ansi litríkur.
13.maí 2012 - 08:35
Þessi er æðislega góður á sunnudegi, sérstaklega eftir amstur helgarinnar. Þessi er með brómberjum sem eru bara bragðgóð og holl, mintulaufum og bönönum.
11.maí 2012 - 07:00
Daði Hendricusson og Þóra Margrét unnusta hans sem þjálfa bæði hjá World Class ljá okkur þessa frábæru uppskrift af heilsudrykk dagsins. Þau byrja alla daga á þessari grænu bombu. Enda eru þau í stöðugri þjálfun og útivist.
10.maí 2012 - 10:00
Italiano fer að fagna 2 ára afmæli um þessar mundir. Allir geta séð hvaða kaloríufjöldi er í pizzunni sem þeir panta og það kom okkur virkilega óvart hvað það eru í rauninni fáar í flestum tilfellum. Inná heimasíðu þeirra er hægt að sjá fjöldann í sinni uppáhalds pizzu. Högni eigandi Italiano lét okkur fá þessa girnilegu uppskrift til að gera heima.
08.maí 2012 - 09:00
Ragga Nagli
Bláber, hindber, rifsber, blæjuber, brómber, jarðarber... og Naglinn bíður með fiðrildi í maganum eftir kirsuberjunum sem eru algjörlega uppáhalds.
25.apr. 2012 - 10:00
Ragga Nagli
Það er eitt sem Naglanum leiðist alveg stórkostlega og það er þegar sárasaklausum almúganum er talin trú um að aðhyllast þurfi öfgastefnur í ætt við manifestasjón Hamas-liða til að fá "flatan maga" eða "stinnan rass".
20.apr. 2012 - 19:00
Ragga Nagli
Hver fær ekki nostalgíu hroll niður hryggjarsúluna við að sökkva tönnunum í heita vöfflu?
Þá getur nú verið gott að eiga hauk í horni með súper fljótlegar Heilsuvöfflur. Þessar eru unaðslegar í morgunsárið, í hádeginu, já eða bara í desa eftir kvöldmat.
12.apr. 2012 - 11:15
Ragga Nagli
Gulrótakaka fyrir einstæðing á undir fimm mínútum…. og ekki nema skitnar 140 karólínur í kvikindinu. Svo það má vel slátra alle sammen með góðri samvisku og frábær kostur eftir átökin við járnið.
04.apr. 2012 - 13:00
Ragga Nagli
Það er ekki gaman þegar við erum í sorg og sút að neita okkur um lífsins gúrmeti.
Þess vegna sker það í hjartað þegar fólk velkist í vafa hvort það eigi að fá sér páskaegg.
11.mar. 2012 - 16:00
Ragga Nagli
Hér er uppskrift af sykurlausu peru og döðlu chutney sem er guðdómlegt hrært út í tilbúinn hafragraut. Búðu þig undir að sleikja skálina.
08.mar. 2012 - 09:00
Ragga Nagli
Nú er illt í efni, ekkert tyggja má. Ef marka má miðlana þarf sótsvartur almúginn að vara sig á mýmörgum matvælum því krabbameinið og fitan lúra handan við hornið.
24.feb. 2012 - 09:00
Ragga Nagli
“Ekki borða neitt eftir kvöldmat” “Alls ekki borða þremur tímum fyrir svefn.”
Margir fá gyllinæð af stressi yfir að borða rétt fyrir svefn því þeirri firru hefur verið troðið í sárasaklausan pöpulinn að allt sem þú borðar eftir kvöldmat breytist í fitu á núll einni yfir nóttina.
21.feb. 2012 - 09:30
Ragga Nagli
Í gær var bolludagur.
Fréttamenn sem fara í bakarí landsins og spyrja um nýjustu bragðtegundir ársins og söluhæstu bollurnar er orðið náttúrulögmál. Vatnsdeigs versus gerbollur, súkkulaði versus bleikur glassúr.
20.feb. 2012 - 09:00
Ragga Nagli
Besti vinur aðal er aftur á stjá og nú með holla útgáfu af brownies... er hægt að biðja um meira í þessu lífi?
08.feb. 2012 - 12:00
Ragga Nagli
Þið sem haldið að hollusta sé eingöngu kjúlli og brokkolí eruð svo langt aftur á svörtustu miðöldum að þið megið búast við heimsókn frá Hróa Hetti, enda mataræði ykkar líklega svipað spennandi.
02.feb. 2012 - 09:00
Ragga Nagli
Grunnbrennsluhraði (basal metabolic rate (BMR)) er sú orkuþörf sem líkaminn þarf til að lifa af án þess að hreyfa legg né lið.
26.jan. 2012 - 14:30
Ragga Nagli
Það vita allir og amma þeirra að Naglinn er með grautar-blæti á alvarlegu stigi. Svo langt nær pervertisminn að það hefur ekki liðið dagur í mörg herrans sem ekki byrjaði á grautarslafri.
03.jan. 2012 - 09:00
Ragga Nagli
Eru ekki allir komnir með upp í kok af waldorfsalati, rjómasósum og frómas?
Kjötsviti og sykurtremmi ríður eflaust húsum í dag og mörgum finnst eins og þeir þurfi aldrei að borða aftur.
Eina sem útfyllt magaholið kallar á er eitthvað ofur létt, hollt og hreint takk för....
14.des. 2011 - 09:00
Ragga Nagli
Það eru til svo ótal möguleikar á hollum einföldum og fljótlegum sósum sem eru ekki sprengfullar af mettaðri fitu og milljón einingum af varma.
22.nóv. 2011 - 19:00
Svava Rán Karlsdóttir
Ein af tískubylgjunum í mataræði er að borða að hætti hellisbúa.
16.nóv. 2011 - 14:30
Ragga Nagli
Hvernig getur það farið saman við hollustulífið að vera sætindamelur inni í sér?
Jú ef höfuðleðrið er bleytt allrækilega í skúringafötunni til að finna gúmmulaðiskombó sem jafnframt eru innan hollusturammans, þá töltum við himinsæl eftir beinu brautinni.
08.nóv. 2011 - 21:00
Svava Rán Karlsdóttir
Með því að nota lyftiduft er minnsta mál að baka hollt og gott brauð á rétt rúmum hálftíma.
27.okt. 2011 - 18:40
Svava Rán Karlsdóttir
Maður verður að læra að bjarga sér.
23.okt. 2011 - 20:20
Svava Rán Karlsdóttir
Flestir myndu nú reyna að forðast carbonara sósu ef hollusta og hitaeiningaþurrð er keppikeflið.
18.okt. 2011 - 20:30
Svava Rán Karlsdóttir
Ég á það voða mikið til að elda alltaf sama matinn. Það er svo þægilegt svona fyrir rútínu og plan, sérstaklega þegar maður er að reyna að lifa heilsusamlegu líferni
12.okt. 2011 - 21:45
Svava Rán Karlsdóttir
Nú þegar það er aðeins farið að kólna er hægt að fara aftur að huga að heitari réttum.
05.okt. 2011 - 09:00
Svava Rán Karlsdóttir
Sveppir eru algjört æði og þau okkar sem erum að huga að því að borða mat sem gefur sem mesta næringu fyrir sem fæstar hitaeiningar ættum sérstaklega að nota sveppi í matargerð.
25.sep. 2011 - 11:30
Svava Rán Karlsdóttir
Ég varð forvitin þegar ég sá uppskrift á BBC Food að bragðmiklum en ósætum múffum bökuðum með graskerskubbum. Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég átti ekkert grasker en það voru hinsvegar fullt af sætum kartöflum í búrinu og ég ákvað að prófa.
18.sep. 2011 - 12:00
Svava Rán Karlsdóttir
Það yljar að sjálfsögðu hjartarætur hvers þeim sem hefur gaman að góðum mat að fá köku í morgunmat.
14.sep. 2011 - 20:15
Svava Rán Karlsdóttir
Ég ætla að halda aðeins áfram í morgunverðaruppskriftum og í dag er komið að morgunkorni eða “granola”.
11.sep. 2011 - 12:30
Svava Rán Karlsdóttir
Ég reyni eftir fremsta megni að borða hreint. Og til að borða hreint er best að útbúa matinn sinn sjálfur. Þar sem morgunmatur er mikilvægasta máltíð dagsins er sérlega mikilvægt að leggja alúð við hann.
07.sep. 2011 - 12:30
Svava Rán Karlsdóttir
Það fara að verða síðustu forvöð á sumarlega rétti núna þegar maður finnur haustið svona handan við hornið. Í tilraun til að halda í síðustu dreggjar sumarsins skellti ég þessum rétti á borð í gærkveldi og kvaddi svo þessa árstíð.
29.ágú. 2011 - 15:18
Svava Rán Karlsdóttir
Kúrbítur fellur undir sama hatt hjá mér og blómkálið. Ég nota kúrbít sem staðgengil fyrir annað efni til að spara mér hitaeiningar. Þetta er bráðsniðug aðferð til að fá meira grænmeti í daglegt mál ásamt því að minnka aðeins við sig kolvetni
26.ágú. 2011 - 09:30
Svava Rán Karlsdóttir
Sætur quinoa grautur er góður hvort sem er heitur eða kaldur og veitir smávegis tilbreytingu í tilveruna.
24.ágú. 2011 - 14:00
Ragga Nagli
Hafragrautur er eins og auður strigi málarans - krydd, kanill, ávextir, bragðdropar, síróp, hnetur og fleira gúmmulaði eru pensillinn sem heilsumelir beita á hann til að gera að úrvals gúrmeti.