03. jún. 2012 - 07:00

Stjórn Icelandair Group samþykkir umhverfisstefnu og rannsóknarstyrki á hátíðarfundi

Frá undirritun samninga í gær.

Frá undirritun samninga í gær.

Stjórnarfundur Icelandair Group var haldinn á Akureyri í gær í tilefni af 75 ára afmæli félagsins. Það var stofnað á Akureyri þann 3. júní 1937 og hét upphaflega Flugfélag Akureyrar. Með starfsemi í nafni Flugfélags Íslands og Loftleiða og síðan Flugleiða hefur fyrirækið gegnt lykilhlutverki í flugsamgöngum og ferðamálum þjóðarinnar frá upphafi. Á þessu ári er starfsemin umfangsmeiri en nokkru sinni fyrr í sögu þess.

Á stjórnarfundinum í gær voru tímamótin mörkuð með tveimur stefnumótandi verkefnum:

Leiðakerfi Icelandair milli Íslands og annarra landa er kjarninn í starfsemi Icelandair Group, og landið sjálft, staðsetning þess og náttúra er undirstaða leiðakerfisins. Icelandair Group hefur í dag mótað þá stefnu að öll fyrirtæki innan samstæðunnar verði umhverfisvottuð ekki síðar en árið 2016 og undirstriki þannig þá sýn félagsins að náttúran er helsta aðdráttarfl ferðamanna sem koma til landsins, og verndunar- og endurnýjunarstarf gagnvart nátttúru og auðlindum landsins er forsenda fyrir vexti og viðgangi Icelandair Group. Nú þegar hafa einstök félög innan samstæðunnar verið vottuð eða eru í vottunarferli, en í dag hefur stjórnin ákveðið að öll félögin ljúki þeirri vinnu fyrir 2016.

Til að undirstrika stefnu og sýn félagsins enn frekar, þá hefur stjórn Icelandair Group einnig samþykkt að efna til samstarfs við Háskólann á Akureyri, sem um þessar mundir fagnar 25 ára afmæli, um rannsóknir á sviði ferðamála. Icelandair Group mun veita til þess starfs styrk að upphæð 5 milljónir króna árlega næstu þrjú árin eða samtals 15 milljónum króna.

Margoft hefur verið bent á að ferðaþjónustan á Íslandi er ung grein og að nokkuð skorti á þekkingu á ýmsum þáttum hennar, rannsóknir og betri upplýsingar um markaði, gangverk og þróun greinarinnar svo tryggja megi framfarir og draga úr áhættu þeirra sem í henni starfa. Icelandair Group vill með þessu framlagi efla og styðja við mikilvægt rannsóknarstarf Háskólans á Akureyri á þessu sviði. Sigurður Helgason, stjórnarformaður, Björgólfur Jóhannsson, forstjóri og Stefán B. Sigurðsson, háskólarektor undirrituðu samkomulag þessa efnis við athöfn að loknum fundinum í gær.

Stjórnarfundurinn var haldinn á Icelandair Hótel Akureyri sem var opnað á síðasta ári, en nú um mánaðamótin er það stækkað um 37 herbergi og býður nú upp á alls 100 herbergi.  Í máli Björgólfs Jóhannssonar, forstjóra Icelandair Group, að loknum stjórnarfundinum kom einnig fram að fjölmargir erlendir ferðamenn munu nýta sér beint tengiflug Icelandair milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar sem boðið er upp á í sumar. Þá gat hann þess að eftir góða reynslu á síðasta vetri hefur nú komið í ljós á vormánuðum að mjög mikill áhugi er erlendis í ferðir sem samanstanda af dvöl í Reykjavík og Akureyri og dagsferð að Mývatni í leit að norðurljósum. Má gera ráð fyrir að margfalt fleiri muni njóta þessara ferða á næsta vetri en á þeim síðasta.



14.apr. 2013 - 09:00

Viltu kenna börnum ensku í Brasilíu í sumar eða hugsa um dýr í Indlandi?

Ef þú ert háskólanemi eða nýútskrifaður stúdent geturðu valið á milli fjölda spennandi starfa í gegnum AIESEC. Hvernig væri t.d. að kenna börnum ensku í Brasilíu í sumar?  Eða hugsa um dýr í Indlandi. Gríptu tækifærið! Nýttu sumarið og öðlastu ómetanlega lífsreynslu.
12.feb. 2013 - 21:00

Undirskriftalisti afhentur gegn skertu ferðafrelsi á Íslandi

Í dag, þriðjudaginn 12. febrúar, afhenti Áhugahópur um ferðafrelsi forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, undirskriftir sem safnast hafa á vefsíðunni www.ferdafrelsi.is, undanfarnar vikur. Afhentar voru rúmlega 14 þúsund undirskriftir en vefsíðan verður áfram opin um óákveðinn tíma og hafa nú nær 16 þúsund manns skrifað undir mótmælin.
12.nóv. 2012 - 12:20

Flóð í Feneyjum: Magnaðar myndir

Gríðarleg flóð hafa orðið í Feneyjum en borgin er nánast á kafi. Fólk fer ekki út úr húsi nema í háum stígvélum eða íklætt ruslapokum. Fáir eru á ferli á hinu þekkta Markúsartorgi nema þá kannski fólk á sundfötum, þó ekki sé mælt með að synda í þessu vatni af heilsufarslegum ástæðum.
23.okt. 2012 - 18:00

Ferðamenn falla fyrir gestrisni Íslendinga: Ísland ofarlega á lista Lonely Planet

Ísland er á topplista hinnar heimsþekktu ferðasíðu Lonely Planet sem áfangastaður ársins 2013. Í umsögn síðunnar segir að þeir ferðamenn sem sæki landið heim kolfalli fyrir stórbrotinni náttúru landsins, dýrindis lambakjöti og einlægri gestrisni fólksins.
15.ágú. 2012 - 14:00

Þarna vilt þú ekki lenda í seinkun: Tíu verstu flugvellir heims

Flestir flugvellir eru hræðilegir, að mati ferðatímaritsins Frommer's. Ritið hefur tekið saman tíu verstu flugvelli heims og þar trónir efst á listanum JFK Airport, flugstöðvarbygging 3, í New York.


21.júl. 2012 - 21:32

Skytturnar og það besta sem Norðurland hefur gefið frá sér í Hip-Hop heiminum.

Með fyrstu hljómsveitum sem létu á sér kræla í íslensku Hip Hopi voru Skytturnar frá Akureyri. Þær voru frumkvöðlar í að senda frá sér efni, þær gáfu út kynningardiskinn SP 2001 sem innhélt meðal annars slagarann "ég geri það sem ég vil".
20.júl. 2012 - 17:00

Börn ferðast frítt með foreldrum í fyrsta sinn í íslenskri flugsögu: Frítt fyrir börn til þriggja borga

Í þessari viku og þeirri næstu fljúga börn frítt með foreldrum sínum hjá flugfélaginu WOW air. Ekki þarf að greiða krónu fyrir börn 11 ára á yngri til þriggja borga í Þýskalandi, sem eru Berlín, Köln og Stuttgart. Í tilboðinu felst að eitt barn ferðast á hvern fullorðinn.
09.júl. 2012 - 14:10

Baðströndum lokað í Bandaríkjunum vegna hákarlaárása

Mörgum baðströndum hefur verið lokað í Bandaríkjunum eftir hákarlaárásir og tilkkynningar um hákarla. Hurð skall nærri hælum á laugardaginn þegar Walter Szulc var eltur af hákarli þegar hann réri kajak sínum úti fyrir ströndinni Nauset Beach í Massachusetts.

 

08.júl. 2012 - 19:00

25 byggilegustu borgir heims - Reykjavík kemst ekki á blað

Árlega leggja blaðamenn tímaritsins Monocle mat á hvaða borgir eru bestar til búsetu. Í fyrra var það Helsinki sem þótti standa fremst þegar litið var til þátta eins og heilbrigðismála, menntakerfisins, samgangna og sambands launa og verðlags.

 

05.júl. 2012 - 11:43

Hæsta bygging Evrópu afhjúpuð í kvöld: 87 hæðir og 44 lyftur

Shard-turninn í London verður opinberlega afhjúpaður í kvöld í miklu ljósabaði. Shard-turninn er hæsta bygging í Evrópu ef frá er talinn sjónvarpsturninn í Berlín. Skýjakljúfurinn, sem er 309,6 metrar á hæð, verður lýstur upp með tólf leysikösturum og 30 leitarjósum. Meðan afhjúpunin fer fram verður leikin klassísk tónlist en turninn stendur við ána Thames við Southwark.