16. feb. 2010 - 15:00Snæfríður Ingadóttir

Siv Friðleifsdóttir útskrifast sem leiðsögumaður: Ísland einstakt land

Siv er ekki hætt þingstörfum þó hún sé nú komin með leiðsögumenntun.

Siv er ekki hætt þingstörfum þó hún sé nú komin með leiðsögumenntun.

Á föstudaginn útskrifuðust fyrstu leiðsögumennirnir úr leiðsögunámi á háskólastig frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Þeirra á meðal var Siv Friðleifsdóttir, fyrrum ráðherra, sem hyggst leiðsegja ferðamönnum á norsku og ensku.

„Ég mæli hiklaust með þessu námi. Það er bæði áhugavert og skemmtilegt. Ég hafði sérstaklega gaman af því að rifja jarðfræðina upp og kafa enn dýpra í hana, enda Íslands einstakt land út frá jarðfræðilegu sjónarhorni,“ segir Siv.

Aðspurð að því hvernig hún hyggist nýta námið þá segist hún halda öllum möguleikum opnum. Hún ætli sér ekki að gerast leiðsögumaður í fullu starfi, eins og er, en sjái jafnvel fyrir sér að leiðsegja eitthvað í sumarfríi sínu í sumar.

Leiðsögustörf eru Siv ekki alveg ókunn því hún hefur margoft aðstoðað erlenda gesti sem átt hafa leið um alþingishúsið og einnig hefur hún leiðsagt erlendum ferðamönnum um Reykjavík.  Það er svo mikið sem hægt er að sýna erlendum ferðmönnum hér á landi og þegar maður sér hvað landið kemur gestunum mikið á óvart og hversu ánægðir þeir eru þá verður maður afar stoltur af landinu. Leiðsögunámið hefur einnig nýst Siv í starfi hennar sem þingmaður, enda kemur námið inn á öll þau svið sem snerta land og þjóð. Þannig var Siv nýlega fyrsti fluttningsmaður tillögu um landnýtingu fyrir ferðamennsku á miðhálendinu. Sjá nánar hér.

Alls voru 24 leiðsögumenn í útskriftarhópnum, 16 konur og 9 karlar (sjá myndina hér fyrir neðan) en annar hópur hóf nám síðastliðið haust og eru 40 nemendur í honum. Það er því ljóst að fagmenntuðum leiðsögumönnum mun fjölga til muna á næstunni.

Þeir sem hafa áhuga á því að kynna sér leiðsögunámið nánar geta lesið sér til hér.


Left Right



17.maí 2012 - 16:00

Öðruvísi mér áður brá: Iceland Express alltaf á réttum tíma með tékknesku leiðinni

Svo virðist sem brandarar um óstundvísi Iceland Express eigi ekki lengur við, því ferðum félagsins til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar.
16.maí 2012 - 09:00

Hvert fara stjörnurnar í frí? Nokkrir heitustu áfangastaðir heims - MYNDIR

Denise Richards skellti sér til Nassau á Bahama-eyjum ásamt dætrum sínum tveimur á dögunum.

Það er kunnara en frá því þurfi að segja að stjörnurnar setja standardinn þegar að kemur að ansi mörgu – meðal annars ferðalögum. Því er ekki úr vegi að kanna hvert blessaðar stjörnurnar eru að flykkjast þessa dagana þannig að sauðsvartur almúginn geti fylgt í fótspor þeirra.

15.maí 2012 - 10:00

Striplast á ströndinni: Það gilda reglur á nektarnýlendum – ekki bara perraparadís!

Nektarnýlendur – eða nektarstrendur öllu heldur má finna víða um heim – mörgum til mikillar gleði. Kostirnir eru ótvíræðir en það eru ákveðnar reglur í gildi sem er eins gott að virða. Og hverjar eru þær…

14.maí 2012 - 22:00

Las Vegas leyndardómanna: 10 góð ráð til að hafa í huga en borg syndanna er heimsótt!

Það sem gerist í Vegas er best geymt í Vegas! Þetta er einn frægasti frasi borgarinnar þar sem allt getur gerst enda eru ævintýrin á hverju horni - bókstaflega. Fyrir alla þá sem þrá að berja borgina eigin augum er nauðsynlegt að hafa nokkur atriði í huga til að fá sem mest út úr ferðinni.

 


14.maí 2012 - 14:35

Kortanotkun erlendra ferðamanna upp á 14,6 milljarða króna: Hefur ekki aukist í takt við fjölgun ferðamanna

Erlendir ferðamenn notuðu greiðslukort til kaupa á vöru og þjónustu fyrir 14,6 milljarða króna fyrstu fjóra mánuði ársins.


09.maí 2012 - 07:00

Á bikiní í Brussel: Baðströnd í miðri borg

Brussel er borg sem hefur allt – líka sólarströnd með pálmatrjám þó borgin liggi ekki að sjó. Belgar deyja ekki ráðalausir og skella sér á ströndina í höfuðborginni þó hún liggi ekki að sjó. Í Brussel er hreinlega búin til baðströnd með hvítum sandi og pálmatrjám á sumrin.
08.maí 2012 - 10:30

10 ástæður þess að ferðalög eru algjör tímasóun og vitleysa!

Það er við hæfi að fjalla einnig um skuggahliðar ferðalaga en við rákumst á þennan snilldarlista inn á vefsíðunni 501.com. Meðfylgjandi er semsagt þessi bráðfyndni listi sem tiltekur helstu ástæður þess að ferðalög eru bölvuð vitleysa og það sé best að hætta þeim.

07.maí 2012 - 14:25

Heimsmet í ferðagleði?: Nærri þriðjungur þjóðarinnar fór til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins

Um 100 þúsund Íslendingar fóru til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins sem er 6% aukning frá fyrra ári. Það er því næstum þriðja hvert mannsbarn sem hefur farið til útlanda á þessu tímabili og líklegt að um heimsmet í ferðagleði sé að ræða.

04.maí 2012 - 12:00

Bresk fjölskylda: Fékk bætur vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli: Voru 4 daga á leiðinni heim

Breskri fjölskyldu, sem varð innlyksa á Spáni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli árið 2010, hafa verið dæmdar bætur frá spænska flugfélaginu Iberia. Það tók fjölskylduna fjóra daga að komast heim til Englands með tilheyrandi kostnaði vegna bílaleigubíla, lestarferða og gistingar.



02.maí 2012 - 09:30

Bjart og fallegt fjölskyldukaffihús í Búkarest - Eitthvað fyrir alla - MYNDIR

Það eru ekki mjög mörg kaffihús í heiminum sem henta allri fjölskyldunni. Þetta kaffihús heitir Phill og er í Búkarest og er alveg kjörið fjölskyldukaffihús.