08. jún. 2012 - 18:00
Munið að hafa áfengismæli meðferðis ef leiðin liggur til Frakklands í sumarfríinu
Íslendingar sem hyggjast ferðast til Frakklands í sumar og aka í landi vínþrúgunnar þurfa að hafa það í huga að frá og með 1. júlí nk. er skylt að hafa áfengismæli í bílum þar í landi.
Áfengismælirinn er ekki einungis skylt að hafa í bílum sem eru skráðir í Frakklandi heldur alla sem ferðast um vegi í landinu. Sagt er frá þessu á fréttavef FÍB.
Miklar breytingar hafa orðið á viðhorfi til áfengisneyslu og aksturs í þessu höfuðvígi vínframleiðslu í heiminum. Mikið átak hefur verið gert í öryggismálum umferðarinnar sem borið hefur þann mikla árangur að dauðaslysum og alvarlegum slysum í umferðinni hefur fækkað mjög.
Frakkland sem áður var með einna hæstu dauðaslysatíðni í Evrópu er nú meðal þeirra ríkja þar sem hún er lægst. Hinn lögbundni áfengismælir nú er hugsaður til þess að ökumenn sem hafa ánægju af frönskum vínum og mat og eru ekki fullkomlega vissir um ástand sitt, geti sjálfir mælt það hvort og hvenær þeim sé óhætt að setjast undir stýri og aka.
14.apr. 2013 - 09:00
Ef þú ert háskólanemi eða nýútskrifaður stúdent geturðu valið á milli fjölda spennandi starfa í gegnum AIESEC. Hvernig væri t.d. að kenna börnum ensku í Brasilíu í sumar? Eða hugsa um dýr í Indlandi. Gríptu tækifærið! Nýttu sumarið og öðlastu ómetanlega lífsreynslu.
12.feb. 2013 - 21:00
Í dag, þriðjudaginn 12. febrúar, afhenti Áhugahópur um ferðafrelsi forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, undirskriftir sem safnast hafa á vefsíðunni www.ferdafrelsi.is, undanfarnar vikur. Afhentar voru rúmlega 14 þúsund undirskriftir en vefsíðan verður áfram opin um óákveðinn tíma og hafa nú nær 16 þúsund manns skrifað undir mótmælin.
12.nóv. 2012 - 12:20
Gríðarleg flóð hafa orðið í Feneyjum en borgin er nánast á kafi. Fólk fer ekki út úr húsi nema í háum stígvélum eða íklætt ruslapokum. Fáir eru á ferli á hinu þekkta Markúsartorgi nema þá kannski fólk á sundfötum, þó ekki sé mælt með að synda í þessu vatni af heilsufarslegum ástæðum.
23.okt. 2012 - 18:00
Ísland er á topplista hinnar heimsþekktu ferðasíðu
Lonely Planet sem áfangastaður ársins 2013. Í umsögn síðunnar segir að þeir ferðamenn sem sæki landið heim kolfalli fyrir stórbrotinni náttúru landsins, dýrindis lambakjöti og einlægri gestrisni fólksins.
15.ágú. 2012 - 14:00
Flestir flugvellir eru hræðilegir, að mati ferðatímaritsins Frommer's. Ritið hefur tekið saman tíu verstu flugvelli heims og þar trónir efst á listanum JFK Airport, flugstöðvarbygging 3, í New York.
21.júl. 2012 - 21:32
Með fyrstu hljómsveitum sem létu á sér kræla í íslensku Hip Hopi voru Skytturnar frá Akureyri. Þær voru frumkvöðlar í að senda frá sér efni, þær gáfu út kynningardiskinn SP 2001 sem innhélt meðal annars slagarann "ég geri það sem ég vil".
20.júl. 2012 - 17:00
Í þessari viku og þeirri næstu fljúga börn frítt með foreldrum sínum hjá flugfélaginu WOW air. Ekki þarf að greiða krónu fyrir börn 11 ára á yngri til þriggja borga í Þýskalandi, sem eru Berlín, Köln og Stuttgart. Í tilboðinu felst að eitt barn ferðast á hvern fullorðinn.
09.júl. 2012 - 14:10
Mörgum baðströndum hefur verið lokað í Bandaríkjunum eftir hákarlaárásir og tilkkynningar um hákarla. Hurð skall nærri hælum á laugardaginn þegar Walter Szulc var eltur af hákarli þegar hann réri kajak sínum úti fyrir ströndinni Nauset Beach í Massachusetts.
08.júl. 2012 - 19:00
Árlega leggja blaðamenn tímaritsins Monocle mat á hvaða borgir eru bestar til búsetu. Í fyrra var það Helsinki sem þótti standa fremst þegar litið var til þátta eins og heilbrigðismála, menntakerfisins, samgangna og sambands launa og verðlags.
05.júl. 2012 - 11:43
Shard-turninn í London verður opinberlega afhjúpaður í kvöld í miklu ljósabaði. Shard-turninn er hæsta bygging í Evrópu ef frá er talinn sjónvarpsturninn í Berlín. Skýjakljúfurinn, sem er 309,6 metrar á hæð, verður lýstur upp með tólf leysikösturum og 30 leitarjósum. Meðan afhjúpunin fer fram verður leikin klassísk tónlist en turninn stendur við ána Thames við Southwark.