28. maí 2012 - 13:30
Hiti í 3ja km hæð yfir landinu í gær var 4 stig sem er hærri hiti en finnst í maí á háloftametalistum. Raunhæfara er samt að landsmenn njóti hita úr svokölluðum hPa-fleti sem í gær var í 1.530 metra hæð yfir landinu. Næði þessi hiti niður á landið væri hitabylgja við Reykjanesið.
Þetta kemur fram í fróðlegum pistli
Trausta Jónssonar veðurfræðings á Moggablogginu.
Trausti segir að næðist loftið í 3ja km hæð niður til jarðar fengjum við 35 stiga hita.
Það gerist auðvitað aldrei, fjallabylgjur geta þó blandað lofti úr þessari hæð niður í það sem neðar er. Blandan verður þó auðvitað talsvert kaldari - rétt eins og þegar köldu vatni er bætt í heitt.
Hann segir raunhæfara að beina vonum sínum að 850 hPa-fletinum sem var í 1.530 metra hæð yfir landinu.
Í þeirri hæð var hiti yfir Keflavík í dag +3 stig - aðeins lægri heldur en uppi í 3 kílómetrum og langt frá maímeti en það er um +11 stig. En nú á að hlýna um nokkur stig í 850 hPa þar til hámarki í bili verður náð aðfaranótt þriðjudags. Þegar þetta er skrifað (seint á sunnudagskvöldi) á hámarkið að verða +10 stig. Væri það loft dregið niður í 1000 hPa yrði hiti þess þar +24 stig, við segjum að mættishiti þess sé +24 stig.
Pistli Trausta fylgir kort frá Evrópureiknimiðstöðinni með litaflötum sem sýna þann hita sem loftið hefði væri það dregið niður í 1000 hPa þrýsting. Á dekksta svæðinu (við gulbrúnu örina) er hann meiri en 25 stig. Örin bendir á tölu við Reykjanes, 22,9 stig.
Við skulum vona að við fáum að sjá mikið af dökkrauðum litum yfir landinu í sumar.