28. maí 2012 - 13:30

Loft að hlýna verulega yfir Íslandi: Má búast við hitabylgju nái það niður

Hiti í 3ja km hæð yfir landinu í gær var 4 stig sem er hærri hiti en finnst í maí á háloftametalistum. Raunhæfara er samt að landsmenn njóti hita úr svokölluðum hPa-fleti sem í gær var í 1.530 metra hæð yfir landinu. Næði þessi hiti niður á landið væri hitabylgja við Reykjanesið.

Þetta kemur fram í fróðlegum pistli Trausta Jónssonar veðurfræðings á Moggablogginu.

Trausti segir að næðist loftið í 3ja km hæð niður til jarðar fengjum við 35 stiga hita.

Það gerist auðvitað aldrei, fjallabylgjur geta þó blandað lofti úr þessari hæð niður í það sem neðar er. Blandan verður þó auðvitað talsvert kaldari - rétt eins og þegar köldu vatni er bætt í heitt.

Hann segir raunhæfara að beina vonum sínum að 850 hPa-fletinum sem var í 1.530 metra hæð yfir landinu.  

Í þeirri hæð var hiti yfir Keflavík í dag +3 stig - aðeins lægri heldur en uppi í 3 kílómetrum og langt frá maímeti en það er um +11 stig. En nú á að hlýna um nokkur stig í 850 hPa þar til hámarki í bili verður náð aðfaranótt þriðjudags. Þegar þetta er skrifað (seint á sunnudagskvöldi) á hámarkið að verða +10 stig. Væri það loft dregið niður í 1000 hPa yrði hiti þess þar +24 stig, við segjum að mættishiti þess sé +24 stig.

Pistli Trausta fylgir kort frá Evrópureiknimiðstöðinni með litaflötum sem sýna þann hita sem loftið hefði væri það dregið niður í 1000 hPa þrýsting. Á dekksta svæðinu (við gulbrúnu örina) er hann meiri en 25 stig. Örin bendir á tölu við Reykjanes, 22,9 stig.

Við skulum vona að við fáum að sjá mikið af dökkrauðum litum yfir landinu í sumar.




14.jún. 2013 - 10:51

Flugfélag Íslands býður fargjöld án skatta og gjalda í sumar

Tilboðið verður í gildi frá 14. – 18. júní en ferðatímabilið er hásumarið eða 18.júní – 18.ágúst. Dagana 14. – 18. júní mun Flugfélag Íslands bjóða öll fargjöld innanlands án skatta og gjalda sé bókað á netinu.  Eina sem þarf að gera er að fara inná vef félagsins og slá inn flugsláttinn SUMAR.  Þetta er gert til að koma til móts við landsmenn sem vilja nýta sér flugið innanlands í sumar.
04.jún. 2013 - 19:20

Eru Íslendingar að flýja veðrið? 20% aukning í sölu sólarlandaferða

Vorið í apríl og maí var kalt og meðalhiti hefur ekki verið lægri síðan 1989. Frá 1870 hafa einungis 34 vor verið kaldari en nú. Ekkert bólar á sumrinu og engu líkara en að haustið sé komið eða eins og skáldið Andri Snær Magnason sagði á Facebook-síðu sinni nú í morgun: „Veit að það er komið haust, húsin eru orðin gul og rauð, farin að fella bárujárnið.“
14.apr. 2013 - 09:00

Viltu kenna börnum ensku í Brasilíu í sumar eða hugsa um dýr í Indlandi?

Ef þú ert háskólanemi eða nýútskrifaður stúdent geturðu valið á milli fjölda spennandi starfa í gegnum AIESEC. Hvernig væri t.d. að kenna börnum ensku í Brasilíu í sumar?  Eða hugsa um dýr í Indlandi. Gríptu tækifærið! Nýttu sumarið og öðlastu ómetanlega lífsreynslu.
12.feb. 2013 - 21:00

Undirskriftalisti afhentur gegn skertu ferðafrelsi á Íslandi

Í dag, þriðjudaginn 12. febrúar, afhenti Áhugahópur um ferðafrelsi forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, undirskriftir sem safnast hafa á vefsíðunni www.ferdafrelsi.is, undanfarnar vikur. Afhentar voru rúmlega 14 þúsund undirskriftir en vefsíðan verður áfram opin um óákveðinn tíma og hafa nú nær 16 þúsund manns skrifað undir mótmælin.
12.nóv. 2012 - 12:20

Flóð í Feneyjum: Magnaðar myndir

Gríðarleg flóð hafa orðið í Feneyjum en borgin er nánast á kafi. Fólk fer ekki út úr húsi nema í háum stígvélum eða íklætt ruslapokum. Fáir eru á ferli á hinu þekkta Markúsartorgi nema þá kannski fólk á sundfötum, þó ekki sé mælt með að synda í þessu vatni af heilsufarslegum ástæðum.
23.okt. 2012 - 18:00

Ferðamenn falla fyrir gestrisni Íslendinga: Ísland ofarlega á lista Lonely Planet

Ísland er á topplista hinnar heimsþekktu ferðasíðu Lonely Planet sem áfangastaður ársins 2013. Í umsögn síðunnar segir að þeir ferðamenn sem sæki landið heim kolfalli fyrir stórbrotinni náttúru landsins, dýrindis lambakjöti og einlægri gestrisni fólksins.
15.ágú. 2012 - 14:00

Þarna vilt þú ekki lenda í seinkun: Tíu verstu flugvellir heims

Flestir flugvellir eru hræðilegir, að mati ferðatímaritsins Frommer's. Ritið hefur tekið saman tíu verstu flugvelli heims og þar trónir efst á listanum JFK Airport, flugstöðvarbygging 3, í New York.


21.júl. 2012 - 21:32

Skytturnar og það besta sem Norðurland hefur gefið frá sér í Hip-Hop heiminum.

Með fyrstu hljómsveitum sem létu á sér kræla í íslensku Hip Hopi voru Skytturnar frá Akureyri. Þær voru frumkvöðlar í að senda frá sér efni, þær gáfu út kynningardiskinn SP 2001 sem innhélt meðal annars slagarann "ég geri það sem ég vil".
20.júl. 2012 - 17:00

Börn ferðast frítt með foreldrum í fyrsta sinn í íslenskri flugsögu: Frítt fyrir börn til þriggja borga

Í þessari viku og þeirri næstu fljúga börn frítt með foreldrum sínum hjá flugfélaginu WOW air. Ekki þarf að greiða krónu fyrir börn 11 ára á yngri til þriggja borga í Þýskalandi, sem eru Berlín, Köln og Stuttgart. Í tilboðinu felst að eitt barn ferðast á hvern fullorðinn.
09.júl. 2012 - 14:10

Baðströndum lokað í Bandaríkjunum vegna hákarlaárása

Mörgum baðströndum hefur verið lokað í Bandaríkjunum eftir hákarlaárásir og tilkkynningar um hákarla. Hurð skall nærri hælum á laugardaginn þegar Walter Szulc var eltur af hákarli þegar hann réri kajak sínum úti fyrir ströndinni Nauset Beach í Massachusetts.