13. mar. 2010 - 15:00Snæfríður Ingadóttir

Öðruvísi baðströnd: Sól, sandur og skúlptúrar - MYNDIR

Mynd: Getty

Baðgestir á Cottsloe beach í Ástralíu geta nú notið listagyðjunnar um leið og þeir sóla sig. Í sjötta sinn hefur sýning á útilistaverkum verið komið fyrir á ströndinni en uppátækið laðar um 110 þúsund gesti til sín árlega.

Í ár taka um 60 listamenn þátt í Sculpture by the Sea sýningunni sem sett hefur verið upp á Cottsloe ströndinni við Perth. Eins og sést á meðfylgjandi myndum eru listaverkin afar fjölbreytt og lífga mikið upp á strandlengjuna. 

Frítt er inn á sýninguna sem stendur til 23. mars og geta gestir notið þessara fjölbreyttu listaverka á meðan þeir maka á sig sólarolíu.

Lesið nánar um fleiri skemmtilega hluti í Perth hér.  Kynfræðineminn Sigga Dögg, sem hefur verið búsett í borginni, gaf lesendum Ferðapressunnar nýlega nokkur meðmæli frá borginni.

Left Right



02.sep. 2010 - 21:33

Vetur vofir yfir alls staðar... Nema á Íslandi: Útlendingur safnar íslenskum sundlaugum

Er smá haustlykt í loftinu? Eða hugsanir um vetur og kulda allsráðandi? Ekki á Íslandi, því á Íslandi eru heitar sundlaugar opnar allt árið, skrifar maður sem safnar íslenskum laugum.
02.sep. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Nýtt á Íslandi: Fyrsta hjálp fyrir ferðalanga

Glæný íslensk vara frá hómópatanum Svönu Ingvaldsdóttur: remedíublöndur fyrir ferðamenn í vanda. Blöndurnar eru seldar í handhægum umbúðum og henta því vel í ferðalagið. Hómópatinn Svana Ingvaldsdóttir hefur sett á markað sérstakar remedíublöndur sem hjálpa ferðalöngum að takast á við ýmsa kvilla sem fylgja ferðalögum. Blöndurnar taka á vandamálum á borð við flughræðslu, matareitrun, flugnabiti, sólbruna og fótapirringi.
01.sep. 2010 - 14:00 Snæfríður Ingadóttir

Úlpa utan um vínið: Smart í lautarferðina

Töff í göngutúrinn, húsbílinn, lautarferðina eða matarboðið. Þó farið sé að hausta er alls ekki of seint að skella sér í lautarferð. Munið bara að klæða ykkur eftir veðri og ekki er verra ef nestið er einnig í „rétta dressinu“.
01.sep. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Mávar herja á ferðamannaiðnaðinn: Ýta lundanum út?

Til minningar um Ísland. Má bjóða þér máv á ísskápinn? Eins og höfuðborgarbúar hafa orðið varir við hefur mávum fjölgað mjög í borginni. Þeir hafa ekki einungis náð að hrekja endurnar burt af Tjörninni heldur reyna þeir nú einnig að hrekja lundann úr minjagripaverslunum.
01.sep. 2010 - 07:02

Er þetta versta uppfinning sögunnar eða tímalaus snilld? Alla vega aðeins fyrir þá huguðu

Hver kannast ekki við að reyna að sofa í flugvél eða rútu, en ná ekki að festa svefn vegna birtunnar eða annarra óþæginda? Nú er komin lausn á þessu hvimleiða vandamáli, en því miður hefur hún hlotið misjafnar móttökur.
31.ágú. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Belgískar vöfflur á Þingeyri: Eru þetta bestu vöfflur landsins? – MYNDIR

Belgísku vöfflurnar í Simbahöllinni eru gerlausar og án sykurs. Þær þykja afar bragðgóðar. Í reisulegasta húsi Þingeyrar rekur ungt par kaffihúsið Simbahöllina. Þar er hægt að fá ekta belgískar vöfflur, risastórar og hnausþykkar. Margir telja þetta vera bestu vöfflur landsins
30.ágú. 2010 - 14:00 Snæfríður Ingadóttir

Brúnkufarsbikiní – flippað á ströndina

Skin er heitið á þessu bikiní sem gefur broslegt brúnkufar á bossann. Sólardýrkendur sem sækjast eftir lit á kroppinn hafa flestir mjög gaman af því að skoða sundfatafarið eftir dag á ströndinni. Nú geta flipphausarnir gengið skrefinu lengra og nýtt sólargeislana til þess að búa til tákn á bossann.
30.ágú. 2010 - 09:10

Þetta er bannað í Leifsstöð: Reglur hússins segja skilti bílstjóra vera ólöglega auglýsingu

Skiltið sem maðurinn ber á myndinni myndi flokkast sem óheimil auglýsing í Leifsstöð. Samkvæmt staðarreglum Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar mega þeir sem sækja flugfarþega ekki halda á skiltum sem bera nafn og merki fyrirtækja. Litið er á slíkt sem auglýsingu. Ósáttur leigubílstjóri hefur kvartað undan þessum reglum til Samkeppniseftirlitsins.
30.ágú. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Fantagóðir flóamarkaðir á haustin í Kaupmannahöfn

Haustið er góður tími fyrir gramsara í Kaupmannahöfn. Á haustin er hægt að gera góð kaup á flóamörkuðum í Kaupmannahöfn sem spretta þá upp eins og gorkúlur í borginni. Föt,  skartgripir og húsgögn er meðal þess sem finna má á þessum mörkuðum en markaðsstemmingin nær hámarki um miðjan september. 
29.ágú. 2010 - 14:00 Snæfríður Ingadóttir

Í heimsókn hjá Tinna og Lukku Láka

Ertu aðdáandi Tinna bókanna? Þá ættirðu að heimsækja Belgian Comic Strip Center í Brussel. Þar ræður Tinni ríkjum ásamt fleiri pappírshetjum. Ef þú ert hrifinn af pappírshetjum á borð við Lukku Láka, Tinna og Strumpunum þá er Belgian Comic Strip Center í Brussel rétti áfangastaðurinn fyrir þig.



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit