23. feb. 2011 - 08:00Snæfríður Ingadóttir

Gjáin Silfra á Þingvöllum er talin einn besti köfunarstaður heims. Vatnið í gjánni er afar tært og skyggnið þar af leiðandi meira en fullkomið. Mynd: Héðinn Ólafsson
Kafarinn Héðinn Ólafsson fór með hóp ferðamanna að kafa í gjánni Silfru á Þingvöllum á sunnudag. Það væri svo sem ekki í frásögu færandi nema vegna þess að hann tók ljósmynd í ferðinni sem sýnir hversu tært vatnið í gjánni er í raun og veru.
Héðinn, sem rekur köfunarskólann
Kafarinn.is, kafar í Silfru að meðaltali 1-2 í viku yfir vetrartímann og nánast daglega á sumrin. Á sunnudaginn fór hann með fimm erlenda ferðamenn í gjána og tók þá ljósmyndina hér fyrir neðan.
Það sem er sérstakt við þessa mynd er að hún er tekin úr gjánni og beint upp í himininn á 7,4 metra dýpi. Á myndinni er alls ekki að sjá að vatn sé á linsunni, enda vatnið í Silfru ótrúlega tært eða hreinlega ósýnilegt ef marka má myndina.
Það er hvergi í heiminum betra skyggni en í Silfru,
fullyrðir Héðinn og bætir við að hann geti talið á annarri hendi þau fáu skipti sem skyggni í gjánni hefur ekki verið fullkomið.
Hann nefnir sem dæmi að eftir jarðskjálftana í Henglinum árið 2008 hafi gjáin verið koldökk og full af drullu en annars er skyggnið í gjánni yfirleitt 150 metrar. Til samanburðar má nefna að gott skyggni í Rauða hafinu, sem er einn vinsælasti köfunarstaður heims er 20-50 metrar.
Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir frá Silfru, þessari einstöku náttúruperlu á Þingvöllum. Allar myndirnar eru teknar á sunnudaginn síðasta í umræddri köfunarferð á vegum Kafarinn.is.
Er þessi mynd virkilega tekin á 7,4 metra dýpi? Já segir kafarinn Héðinn Ólafsson sem smellti af þar sem gjáin er hvað víðust. Vatnsflöturinn var spegilsléttur og engar vatnsgárur eða loftbólur sem trufluðu útsýnið upp í skýjaðan himininn.