16. jún. 2012 - 08:30
Það stefnir í Íslandsmet í komu ferðamanna um Reykjavíkurhöfn á mánudaginn en þá munu fjögur stór skemmtiferðaskip leggjast við bryggju. Óhætt er að tala um flóðbylgju ferðamanna en sjö þúsund manns eru farþegar með þessum skipum.
Það er ekki eingöngu Reykjavíkurhöfn sem nýtur sífellt meiri vinsælda. Akureyri, Ísafjörður, Grundarfjörður, Vestmannaeyjar og Seyðisfjörður eru á meðal áfangastaða sem mörg skemmtiferðaskip heimsækja.
Undanfarin ár hefur fjöldi skemmtiferðaskipa sem sækir Ísland heim vaxið jafnt og þétt. Í sumar sigla hátt í 80 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur og heildarfarþegafjöldinn verður um hundrað þúsund manns. Það gerist ekkert af sjálfu sér og að baki þessum fjölda er markvisst kynningar og markaðsstarf Reykjavíkurhafnar sem hefur sem hefur meðal annars beinst að því að fjölga skipunum og lengja jafnframt þann tíma sem þau stoppa.
Um 20 skip munu liggja yfir nótt við bryggju. Þetta þýðir vitanlega meiri tekjur fyrir höfnina. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafsögumaður, hjá Reykjavíkurhöfn sagði í samtali við Pressuna að stefnt væri að því að stækka höfnina svo hægt væri að taka við fleiri skipum næsta sumar. Tekjurnar af skipunum hlaupa á hundruðum milljóna en stærstu skipin eru að borga um fimm milljónir í komugjöld og aðrar fimm í vitagjöld. Ótal aðrir njóta síðan góðs af, s.s. bílstjórar, veitingahúsaeigendur og verslunarmenn.