05. júl. 2012 - 11:43
Shard-turninn í London verður opinberlega afhjúpaður í kvöld í miklu ljósabaði. Shard-turninn er hæsta bygging í Evrópu ef frá er talinn sjónvarpsturninn í Berlín. Skýjakljúfurinn, sem er 309,6 metrar á hæð, verður lýstur upp með tólf leysikösturum og 30 leitarjósum. Meðan afhjúpunin fer fram verður leikin klassísk tónlist en turninn stendur við ána Thames við Southwark.
Óvenjulegt form turnsins og gleryfirborð hafa nú þegar gert bygginguna að kennileiti í London. Í turninum verða skrifstofur, lúxusíbúðir, lúxushótel, veitingastaðir og listagallerí. Í turninum eru 72 nýtanlegar hæðir.
Til viðbótar eru aðrar 15 hæðir sem eru hluti af sjálfri spírunni. Sex af þeim verður hægt að taka í notkun en hinar níu munu standa auðir. Á húsinu 11.000 glerflekar og í því er að finna 44 lyftur. 95% alls efnis sem notað er í bygginguna er endurunnið efni.
Skýjakljúfurinn er í eigu Qatar-ríkis og Sellar fasteignafélagsins. Byggingin var fjármögnuð af þjóðarbankanum í Qatar.
Viðburðurinn í kvöld er til þess að fagna því að vinnu á utanverðri byggingunni er lokið. Vinna innandyra mun standa langt fram á árið 2013.
Shard er nýjasta kennileiti London og til marks um þrautseigju og vöxt London þrátt fyrir aðsteðjandi efnahagserfiðleika. Turninn er tákn um trú og staðfestu Qatar í garð London í nútíð og framtíð,
segir Abdullah Saoud Al-Thani, forstjóri þjóðarbankans í Qatar.
Skýjakljúfurinn er hluti af 610.000 fermetra skipulagi í Southwark sem kallað er London Bridge hverfið.
Shard-turninn verður ekki lengi hæsta bygging Evrópu því í lok þessa árs lýkur byggingu Mercury City turnsins í Moskvu. Hann verður 332 metrar á hæð. Shard er 59. hæsta bygging heims og 2,7 sinnum lægri en hæsta bygging heims, Burj Khalifa í Dubai, sem er 828 metrar á hæð.