18. jún. 2012 - 07:00
Ingibjörg Reynisdóttir lærði leiklist í Danmörku en kom aftur til Íslands árið 1999. Hún hefur síðan þá starfað sem leikari og m.a. farið með hlutverk í kvikmyndunum, Maður eins og ég, Strákarnir okkar, R.WW.M og nú síðast Óróa sem byggð var á unglingabókum hennar. Órói hefur notið gífurlegra vinsælda og er kvikmyndin enn að hljóta viðurkenningar úti í hinum stóra heimi.
En mun Ingibjörg ferðast eitthvað í sumar.
Ekkert af viti. Ég hef ferðast mikið um landið undanfarin ár og nenni ekki miklum þvælingi þetta árið. Ég fer árlega í tvö ættargrill hjá sitthvorri fjölskyldunni, annað á Möðruvöllum í Kjós þar sem móðurfólkið mitt er með ættaróðal og hitt á Hjálmstöðum í Laugardal þar sem föðuróðalið stendur. Maður er ríkur og af bændum komin. Svo verða einhverjar hefðbundnar útilegur teknar.
Á að kíkja til útlanda?
Ekkert til útlanda í ár. Var að skipta um húsnæði og það verður að lúffa fyrir utanlandsreisu. Ferlega fúlt að hafa ekki fengið Lottópottinn á laugardaginn var.
Ef þú mættir velja stað til þess að eyða sumrinu án tillits til kostnaðar?
Það er ómögulegt að nefna einhvern einn stað. Mér finnst voða gaman að fara í borgarferðir. Elska París og Barcelona og New York. Svo er dásamlegt að liggja á suðrænni strönd. Ísland er líka perla.
Hvað annað á að gera í sumar?
Ég tek á móti danskri vinkonu minni í sumar sem er reyndar að koma hingað í fimmta sinn. Ég er búin að fara með hana vítt og breitt um landið og því verður minna um langferðir að þessu sinni. Við förum nú samt eitthvað á rúntinn hér sunnanlands með tjaldið. Svo fer sumarið í að mála að utan og stússa í einu og öðru sem viðkemur fasteigninni.