Birgir Ármannsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir málefnaþurrð stjórnarandstöðunnar átakanlegar og að spurningar um fjarveru stjórnarþingmanna um skýrslumálið væri ein kolvitlausasta fýlubomba stjórnarandstöðu sem hann hefði séð á sínum 14 ára ferli sem þingmaður. Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna kvörtuðu í dag undan því að þingmenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hefðu ekki tekið þátt í umræðum á þingi í gær um skil Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra á skýrslum um leiðréttinguna og eignir Íslendinga í skattaskjólum. Það mál hefur undið upp á sig en í gær kallaði þingmaður stjórnarandstöðunnar eftir því að Bjarni segði af sér vegna málsins.
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins vakti athygli á fjarveru þingmanna Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í dag, benti hann einnig á að engin mál frá ríkisstjórninni væru á dagskrá þingsins. Spurði hann hvort þetta væru þessi nýju stjórnmál sem hefðu verið boðuð. Ásta Guðrún Helgadóttir þingflokksformaður Pírata tók undir með Sigurði Inga og sagði gott að fá svör frá hinum stjórnarflokkunum á málinu:
Það hefði verið gott yfirhöfuð að fá svör frá þessum tveimur flokkum hver afstaða þeirra væri á skilum fjármálaráðherra á skattaskjólsskýrslunni,
sagði Ásta Guðrún. Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG sagði þetta ekki góð vinnubrögð og undir það tók formaður Samfylkingarinnar. Birgir Ármannsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sagði að á sínum fjórtán ára ferli sem þingmaður væri þetta ein „kolvitlausasta fýlubomba sem stjórnarandstaðan hefði reynt að sprengja í þingsalnum“:
Ef málefnaþurrð stjórnarstöðunnar er með þessum hætti þá er það átakanlegt.
Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem hefur varið forsætisráðherra í málinu, steig í pontu þar sem talað hefði verið um fýlubombu:
Ég hef ekki séð þingflokksformann minn á slíku flugi síðan að hann settist á þing.