10. mar. 2010 - 15:00Snæfríður Ingadóttir

Heimshornaflakkarinn Einar Örn: Stöðvar tímann með ferðalögum

„Þegar þú ert á ferðalagi ertu að gera allt aðra hluti en í hversdeginum og tíminn líður hægar,”  segir Einar sem hefur ferðast til meira en 50 landa. Lesið nánar um ferðalög hans á heimasíðunni: eoe.is/ferdalog

„Þegar þú ert á ferðalagi ertu að gera allt aðra hluti en í hversdeginum og tíminn líður hægar,” segir Einar sem hefur ferðast til meira en 50 landa. Lesið nánar um ferðalög hans á heimasíðunni: eoe.is/ferdalog Mynd:Úr einkasafni

Einar Örn Einarsson, annar eigandi Serrano veitingakeðjunnar, er sannkallaður heimshornaflakkari. Hann elskar ferðalög og hefur nú þegar ferðast til eins fjórða af löndum heimsins.  Á hverju ári fer hann í margra vikna ferðalag og hefur hingað til að mestu  ferðast einn.

Það finnast alls 195 lönd í heiminum (sjálfstæð ríki) og hefur Einar komið til 51 þeirra. Frá því að hann kláraði háskólanám sitt, en hann er menntaður hagfræðingur frá Northwestern háskóla í Chicago, hefur hann haft það markmið að fara í eitt stórt ferðalag á ári (4-8 vikur). Þetta markmið hefur m.a. leitt hann til landa á borð við Líbanon, Sýrlands, Ísraels,  Póllands, Víetnam og Indónesíu. Sjá nánar hér

Ferðapressan skaut nokkrum spurningum á Einar sem undirbýr ferð til Egyptalands um páskana.

 

 - Nú hefurðu farið einn í flestar þínar ferðir, hversvegna og hvernig hefur það gengið?
„Það var ekki endilega meðvituð ákvörðun í upphafi. Þegar ég lauk háskólanámi og vildi fara af stað var erfitt að finna ferðafélaga fyrir fimm vikna ferðalag þar sem flestir vina minna voru komnir í fast samband. Í stað þess að hætta við lagði ég einn af stað, enda finnst mér alls ekki leiðinlegt að vera einn á ferð og sérstaklega fyrir stráka er það ótrúlega lítið mál. Þegar þú ert á bakpokaferðalagi ertu aldrei alveg einn því þú kynnist alltaf öðrum ferðalöngum sem eru að þræða sömu staði og eru í sömu stöðu og þú. En auðvitað þarftu líka að vera sjálfum þér nógur  og kunna að njóta þess að lesa góða bók. Þó það hafi vissulega sína kosti að ferðast einn t.d. hvað varðar alla skipulagningu, þá finnst mér líka gaman að ferðast með öðrum. Ég fór t.d. síðasta sumar með kærustunni minni til Indónesíu.  Það var frábær ferð en sem par kynnist maður vissulega ekki eins miklu fólki og þegar maður ferðast einn. Ferðaupplifunin verður allt öðruvísi.”

- Hvernig undirbýrðu ferðalögin þín og kostar þetta ekki gríðarlega mikla peninga?
„Yfirleitt skipulegg ég aðeins hvert ég ætla að fara og hve miklu ég ætla að eyða. Aðra hluti ákveð ég  á staðnum. Hvað peningamálin varðar þá halda margir að það sé ægilega dýrt að ferðast til framandi landa en það er ekki mín reynsla. Ég hef alveg eitt jafnmiklum pening í helgarferð til London og á margra vikna ferðalagi um Mið-Austurlönd. Það er staðreynd að þegar þú ert komin til London þá geturðu fengið ódýrt flug eiginlega hvert sem er í heiminum, t.d. til Tælands á 60 þúsund krónur. Og ef þú lifir rétt, a.m.k. í þessum löndum sem ég hef verið að heimsækja, þá geturðu auðveldlega lifað á 100 þúsund krónum í mánuð.“

- Þú hefur ferðast til allra heimsálfanna nema Ástralíu og Afríku.  Hvaða ferðalag stendur upp úr?
„Þau eru nokkur ferðalögin sem standa upp úr og af ólíkum ástæðum. Ef ég á að velja eitt ferðalag fram yfir annað þá held ég að ég verði að velja hálfs árs ferð um Suður- Ameríku sem ég fór í með þremur vinum mínum hálfu ári eftir stúdentinn.  Að fara með vinum sínum í svona langt ferðalag er upplifun sem ekki verður endurtekin. Þú ferð ekkert í slíkt ferðalag þegar þú ert fertugur.“

 - Hefurðu lent í einhverju veseni á ferðum þínum?
„Ég var einu sinni laminn af lögreglu í Rússlandi. Ég var að skemmta mér á bar í. St. Pétursborg og var ekki búinn að vera inni á staðnum nema í klukkustund þegar mér er hent út. Dyraverðirnir snéru mig niður,  handjárnuðu mig og ég var dreginn inn í lögreglubíl með fjórum löggum. Á lögreglustöðinni var ég settur í yfirheyrslu og kýldur í framan af einni löggunni. Ég var auðvitað skíthræddur og hafði ekki hugmynd um hvað ég hafði gert af mér, en þeim virtist bara finnast þetta voða fyndið. Þeir tóku allar eigur mínar og fóru í gegnum þær. Eftir heillanga stund var mér svo kastað út og þá var búið að hirða alla peningana úr veskinu mínu. Sem betur fer hafði ég sett eitthvað af seðlum í skóna mína áður en ég fór á djammið kvöldið áður, þannig að ég átti fyrir leigubíl til að koma mér upp á hótel. Fyrir utan þetta atvik þá hef ég ekki lent í neinum leiðindum eða veseni, ef frá er talið að það hefur alveg verið stolið af mér einhverju smá dóti. Mér finnst fólk oft gera of mikið úr svona áhættuþáttum.  Það eru  í raun afar litlar líkur á því að eitthvað komi  fyrir akkúrat þig akkúrat þarna. Það héldu t.d. allir að ég yrði sprengdur í loft upp þegar ég fór til Mið-Austurlanda.“

- Hvað finnst þér þú hafa grætt á öllum þessum ferðalögum?
„Ég get náttúrulega alveg komið með einhverjar svona klisjur eins og að það sé gefandi að læra um mismunandi menningu og siði,  sem það vissulega er, en mér finnst ferðalög líka stoppa tímann. Þegar þú ert á ferðalagi ertu að gera allt aðra hluti en í hversdeginum og tíminn líður hægar.  Ég næ að  hugsa meira og kem endurnærður til baka til vinnu og það finnst mér mjög mikilvægt. Annars kemur það mér ennþá alltaf jafn mikið á óvart hversu auðvelt það er að ferðast til framandi staða. Þú ferð bara upp í flugvél og eftir nokkra klukkutíma ertu kominn í alveg nýjan heim. Það er alveg ótrúlegt. “

- Eftir því sem þú sérð meira af heiminum fækkar þá ekki þessum “vá! upplifunum” sem fólk fær þegar það sér eitthvað nýtt?

„Það þarf kannski meira til með árunum. Kirkjur eru t.d. alveg hættar að hafa nokkuð aðdráttarafl. Það sem  hefur líka breyst hjá mér eftir því sem ég ferðast meira er hvað ég geri á ferðalögunum. Áður þræddi ég alltaf borgirnar en núna eyði ég meiri tíma í smábæjum og við náttúruperlur. Þar sem ég fæ alltaf góða hvíld á milli ferðalaga þá endurnýjast ferðalöngunin alltaf, maður er alltaf jafn sólginn í það að sjá nýja staði og reyna eitthvað nýtt. Ég get ekki ímyndað mér að einn daginn hafi ég hreinlega fengið nóg og hætti að vilja ferðast.“

 

Þessi lönd hefur Einar heimsótt:  Bandaríkin, Kanada, Mexíkó, Bahamas, Belize, Kúba, El Salvador, Gvatemala, Hondúras,Argentína, Bólivía, Brasilía, Chile, Kólumbía, Ekvador, Paragvæ, Perú, Úrúgvæ, Venzuela, Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, Frakkland, Færeyjar Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Liechtenstein, Lúxembúrg, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Rússland, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Bretland. Tyrkland, Líbanon, Sýrland, Jórdanía, Ísrael, Kambódía, Laos, Tæland, Víetnam, Indónesía.

 

Topp 5 áfangastaðir Einars  - hingað til.

Jerúsalem, Ísrael

„Jerúsalem er stórkostleg borg og einn helgasti staður kristinna manna, gyðinga og múslíma.  Hvort sem þú ert trúaður eða ekki, þá er ótrúleg upplifun  að sjá allt þetta fólk og þá trúaratburði sem þarna fara fram. Borgin er afar lifandi og skemmtileg. Ekki síst vegna þess að hún er alvöru borg sem fólk býr í en ekki safn.“

Iguazu fossarnir, Argentína
„Þetta eru ótrúlegustu fossar í heimi. Þeir eru gríðarlega stórir og hægt að fara að þeim bæði frá Brasilíu og Argentínu. Ég eyddi tveimur dögum í það að skoða þessa fossa en hefði hæglega getað verið þarna mun lengur.“

Machu Picchu, Perú

„Ég og þrír vinir mínir úr Verzló fórum í sex mánaða ferðalag um S-Ameríku eftir stúdentinn. Meðal annars  gengum við í þrjá daga eftir gamalli inkaslóð til þess að komast upp að Machu Picchu í Perú, hinni týndu borg Inkanna. Þetta var áður en maður þurfti að leigja sér leiðsögumann í ferðina og því löbbuðum við þetta einir, sem var ógleymanlegt. Það er ástæða fyrir því að Machu Picchu er vinsæll ferðamannastaður. Þetta er einfaldlega stórkostlegur staður og alls ekki ofmetinn.“

Angkor Wat, Kambódía

„Angkor er samansafn af musterisleifum frá 12.öld.  Á gríðarlega stóru svæði eru alls um 1.000 hof.  Ég tók þrjá daga í það að fara um svæðið. Þarna er allt frá hinu stórfenglega Angkor Wat hofi, þar sem þúsundir túrista mæta daglega til þess að sjá sólarupprás, til lítið heimsóttra mustera þar sem maður getur labbað einn um og liðið eins og Indiana Jones.“

Grand Canyon, Bandaríkin

„Það er dálítið erfitt að lýsa Grand Canyon.  Allir hafa séð bíómyndir sem sýna eða lýsa þessu ótrúlega gljúfri.  Það að standa í fyrsta skipti fyrir framan það er dálítið einsog að koma til New York í fyrsta skipti - maður kannast við allt eftir að hafa séð hlutina í ótal kvikmyndum en samt er upplifunin ógleymanleg.“

Left Right



17.maí 2012 - 16:00

Öðruvísi mér áður brá: Iceland Express alltaf á réttum tíma með tékknesku leiðinni

Svo virðist sem brandarar um óstundvísi Iceland Express eigi ekki lengur við, því ferðum félagsins til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar.
16.maí 2012 - 09:00

Hvert fara stjörnurnar í frí? Nokkrir heitustu áfangastaðir heims - MYNDIR

Denise Richards skellti sér til Nassau á Bahama-eyjum ásamt dætrum sínum tveimur á dögunum.

Það er kunnara en frá því þurfi að segja að stjörnurnar setja standardinn þegar að kemur að ansi mörgu – meðal annars ferðalögum. Því er ekki úr vegi að kanna hvert blessaðar stjörnurnar eru að flykkjast þessa dagana þannig að sauðsvartur almúginn geti fylgt í fótspor þeirra.

15.maí 2012 - 10:00

Striplast á ströndinni: Það gilda reglur á nektarnýlendum – ekki bara perraparadís!

Nektarnýlendur – eða nektarstrendur öllu heldur má finna víða um heim – mörgum til mikillar gleði. Kostirnir eru ótvíræðir en það eru ákveðnar reglur í gildi sem er eins gott að virða. Og hverjar eru þær…

14.maí 2012 - 22:00

Las Vegas leyndardómanna: 10 góð ráð til að hafa í huga en borg syndanna er heimsótt!

Það sem gerist í Vegas er best geymt í Vegas! Þetta er einn frægasti frasi borgarinnar þar sem allt getur gerst enda eru ævintýrin á hverju horni - bókstaflega. Fyrir alla þá sem þrá að berja borgina eigin augum er nauðsynlegt að hafa nokkur atriði í huga til að fá sem mest út úr ferðinni.

 


14.maí 2012 - 14:35

Kortanotkun erlendra ferðamanna upp á 14,6 milljarða króna: Hefur ekki aukist í takt við fjölgun ferðamanna

Erlendir ferðamenn notuðu greiðslukort til kaupa á vöru og þjónustu fyrir 14,6 milljarða króna fyrstu fjóra mánuði ársins.


09.maí 2012 - 07:00

Á bikiní í Brussel: Baðströnd í miðri borg

Brussel er borg sem hefur allt – líka sólarströnd með pálmatrjám þó borgin liggi ekki að sjó. Belgar deyja ekki ráðalausir og skella sér á ströndina í höfuðborginni þó hún liggi ekki að sjó. Í Brussel er hreinlega búin til baðströnd með hvítum sandi og pálmatrjám á sumrin.
08.maí 2012 - 10:30

10 ástæður þess að ferðalög eru algjör tímasóun og vitleysa!

Það er við hæfi að fjalla einnig um skuggahliðar ferðalaga en við rákumst á þennan snilldarlista inn á vefsíðunni 501.com. Meðfylgjandi er semsagt þessi bráðfyndni listi sem tiltekur helstu ástæður þess að ferðalög eru bölvuð vitleysa og það sé best að hætta þeim.

07.maí 2012 - 14:25

Heimsmet í ferðagleði?: Nærri þriðjungur þjóðarinnar fór til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins

Um 100 þúsund Íslendingar fóru til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins sem er 6% aukning frá fyrra ári. Það er því næstum þriðja hvert mannsbarn sem hefur farið til útlanda á þessu tímabili og líklegt að um heimsmet í ferðagleði sé að ræða.

04.maí 2012 - 12:00

Bresk fjölskylda: Fékk bætur vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli: Voru 4 daga á leiðinni heim

Breskri fjölskyldu, sem varð innlyksa á Spáni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli árið 2010, hafa verið dæmdar bætur frá spænska flugfélaginu Iberia. Það tók fjölskylduna fjóra daga að komast heim til Englands með tilheyrandi kostnaði vegna bílaleigubíla, lestarferða og gistingar.



02.maí 2012 - 09:30

Bjart og fallegt fjölskyldukaffihús í Búkarest - Eitthvað fyrir alla - MYNDIR

Það eru ekki mjög mörg kaffihús í heiminum sem henta allri fjölskyldunni. Þetta kaffihús heitir Phill og er í Búkarest og er alveg kjörið fjölskyldukaffihús.