17. feb. 2012 - 09:50
Denver drottningin frá Colarado á Kolabrautinni á Food & Fun

Jennifer Jasinski.
Ein þekktasti matreiðslumeistari Denver, Jennifer Jasinski verður gestakokkur á Kolabrautinni á Food & Fun 2012.
Jennifer er eigandi þriggja veitingastaða í Denver, Colarado í Bandaríkjunum. Einn þessara veitingastaða,
Rioja, hefur verið valinn besti veitingastaður í Denver margoft og fær hæstu einkunn í stjörnugjafabókinni
Zagat.
Denver er nýjasti áfangastaður Icelandair í Ameríku og er mikil áhugi náttúru- og fjallfylkisins Colarado á samstarfinu við Ísland sem fer vel af stað með komu Denver drottingarinnar,
Frekari upplýsingar um Jennifer Jasinski og fleiri heimsþekkta kokka sem koma á hátíðina eru
hér.
14.apr. 2013 - 09:00
Ef þú ert háskólanemi eða nýútskrifaður stúdent geturðu valið á milli fjölda spennandi starfa í gegnum AIESEC. Hvernig væri t.d. að kenna börnum ensku í Brasilíu í sumar? Eða hugsa um dýr í Indlandi. Gríptu tækifærið! Nýttu sumarið og öðlastu ómetanlega lífsreynslu.
12.feb. 2013 - 21:00
Í dag, þriðjudaginn 12. febrúar, afhenti Áhugahópur um ferðafrelsi forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, undirskriftir sem safnast hafa á vefsíðunni www.ferdafrelsi.is, undanfarnar vikur. Afhentar voru rúmlega 14 þúsund undirskriftir en vefsíðan verður áfram opin um óákveðinn tíma og hafa nú nær 16 þúsund manns skrifað undir mótmælin.
12.nóv. 2012 - 12:20
Gríðarleg flóð hafa orðið í Feneyjum en borgin er nánast á kafi. Fólk fer ekki út úr húsi nema í háum stígvélum eða íklætt ruslapokum. Fáir eru á ferli á hinu þekkta Markúsartorgi nema þá kannski fólk á sundfötum, þó ekki sé mælt með að synda í þessu vatni af heilsufarslegum ástæðum.
23.okt. 2012 - 18:00
Ísland er á topplista hinnar heimsþekktu ferðasíðu
Lonely Planet sem áfangastaður ársins 2013. Í umsögn síðunnar segir að þeir ferðamenn sem sæki landið heim kolfalli fyrir stórbrotinni náttúru landsins, dýrindis lambakjöti og einlægri gestrisni fólksins.
15.ágú. 2012 - 14:00
Flestir flugvellir eru hræðilegir, að mati ferðatímaritsins Frommer's. Ritið hefur tekið saman tíu verstu flugvelli heims og þar trónir efst á listanum JFK Airport, flugstöðvarbygging 3, í New York.
21.júl. 2012 - 21:32
Með fyrstu hljómsveitum sem létu á sér kræla í íslensku Hip Hopi voru Skytturnar frá Akureyri. Þær voru frumkvöðlar í að senda frá sér efni, þær gáfu út kynningardiskinn SP 2001 sem innhélt meðal annars slagarann "ég geri það sem ég vil".
20.júl. 2012 - 17:00
Í þessari viku og þeirri næstu fljúga börn frítt með foreldrum sínum hjá flugfélaginu WOW air. Ekki þarf að greiða krónu fyrir börn 11 ára á yngri til þriggja borga í Þýskalandi, sem eru Berlín, Köln og Stuttgart. Í tilboðinu felst að eitt barn ferðast á hvern fullorðinn.
09.júl. 2012 - 14:10
Mörgum baðströndum hefur verið lokað í Bandaríkjunum eftir hákarlaárásir og tilkkynningar um hákarla. Hurð skall nærri hælum á laugardaginn þegar Walter Szulc var eltur af hákarli þegar hann réri kajak sínum úti fyrir ströndinni Nauset Beach í Massachusetts.
08.júl. 2012 - 19:00
Árlega leggja blaðamenn tímaritsins Monocle mat á hvaða borgir eru bestar til búsetu. Í fyrra var það Helsinki sem þótti standa fremst þegar litið var til þátta eins og heilbrigðismála, menntakerfisins, samgangna og sambands launa og verðlags.
05.júl. 2012 - 11:43
Shard-turninn í London verður opinberlega afhjúpaður í kvöld í miklu ljósabaði. Shard-turninn er hæsta bygging í Evrópu ef frá er talinn sjónvarpsturninn í Berlín. Skýjakljúfurinn, sem er 309,6 metrar á hæð, verður lýstur upp með tólf leysikösturum og 30 leitarjósum. Meðan afhjúpunin fer fram verður leikin klassísk tónlist en turninn stendur við ána Thames við Southwark.