09. júl. 2012 - 14:10
Mörgum baðströndum hefur verið lokað í Bandaríkjunum eftir hákarlaárásir og tilkkynningar um hákarla. Hurð skall nærri hælum á laugardaginn þegar Walter Szulc var eltur af hákarli þegar hann réri kajak sínum úti fyrir ströndinni Nauset Beach í Massachusetts.
Skyndilega birtist uggi á hvítum hákarli upp úr vatnsyfirborðinu aðeins fáeina metra fyrir aftan Szulc. Atvikið náðist á ljósmynd en betur fór en á horfðist því hákarlinn lét ekki til skarar skríða.
Það gerði hins vegar hákarl við strönd í Kaliforníu sem réðist á kajak 52 ára manns. Einnig var um hvítan hákarl að ræða, fjögurra til fimm metra langan. Hákarlinn beit í kajakinn en maðurinn komst óskaddaður í land.
Að sögn hákarlasérfræðinga eru hvítir hákarlar einstaklega forvitin rándýr sem rannsaka gaumgæfilega hvaða hlutir eru á yfirborði sjávar.
Almenningur er áhyggjufullur vegna þessa og mörgum ströndum hefur verið lokað því munu fleiri hákarlar virðast við strendur landsins en áður.
Hákarlar eru þó algengir í sjónum víða í Bandaríkjunum og það eru eðlilegar skýringar á því að þeir leita inn til strandanna þar sem þeir veiða seli og sæljón. Fjöldi þessara spendýra hefur margfaldast við strendur Bandaríkjanna undanfarin ár. Ástæðan er sú að þessi dýr eru friðuð en einnig hefur ofveiði á hákörlum stuðlað að fjölgun þeirra.