18. feb. 2010 - 08:00Snæfríður Ingadóttir

25 atriði sem pirra Íslendinga við ferðalög innanlands: Hvar er nektarnýlendan?

Íslendingar kvarta m.a. yfir verðlagi úti á landi, skorti á nektarnýlendum og of fáum tjaldstæðum sem leyfa hunda.

Íslendingar kvarta m.a. yfir verðlagi úti á landi, skorti á nektarnýlendum og of fáum tjaldstæðum sem leyfa hunda. Mynd:Getty

Í nýrri könnun Ferðamálastofu um ferðalög Íslendinga innanlands kvarta margir yfir vondum mat í vegasjoppum, skítugum salernum og háu verðlagi. Þrátt fyrir óánægju með ýmis atriði ferðuðust landsmenn samt óvenju mikið um landið á síðasta ári.

Könnun Ferðamálastofu var framkvæmd í janúar síðastliðnum og þar kemur fram að níu Íslendingar af hverjum tíu ferðuðust innanlands á árinu 2009. Það er nokkuð hærra hlutfall en fyrri kannanir Ferðamálastofu hafa sýnt.

Þrátt fyrir að það séu vissulega góðar fréttir að Íslendingar séu duglegri við að ferðast innanlands er ekki þar með sagt að þeir séu ánægðir með það sem í boði er. Það kemur berlega í ljós í svörum þeirra við spurningu Ferðamálastofu um það hvað mætti bæta í íslenskri ferðaþjónustu.

Hér eru 25 dæmi um það sem pirrar Íslendinga á ferð um landið:

- Það vantar fleiri tjaldstæði og gististaði þar sem má hafa hunda.

- Það vantar fleiri skilti og göngustíga.

- Það vantar íslenska nektarnýlendu.

- Auglýsa þarf betur það sem hægt er að gera og sjá. Oft fær maður upplýsingar um eitthvað áhugavert og skemmtilegt of seint.

- Það vantar meiri þjónustulund og lipurð í þjónustuaðila. Fólk í þjónustustörfum á að tala íslensku og brosa. Afgreiðslufólk þarf að læra kurteisi.

 - Það mætti bjóða fjölskyldum upp á fleiri fjölskyldupakka varðandi afþreyingu.  Það er óþolandi að þurfa að tæma veskið ef fjölskyldan ætlar sér að gera eitthvað saman.

- Húsbíla- og hjólhýsaeigendur ættu ekki að greiða  fullt gjald á tjaldsvæðum, þar sem að þeir parkera bara bílnum og nota  ekkert af þjónustunni.

 - Það vantar fleiri skjólbelti á tjaldstæðin.

- Sundlaugar úti á landi mættu hafa lengri opnunartíma.

 - Ferðamenn ættu að greiða fyrir að skoða náttúruperlur Íslands, samanber víða erlendis. Rukka mætti inn á staði eins og Geysi og Djúpalónssand. Peningana  ætti að nota til þess að bæta aðstöðuna á staðnum.

- Auka þarf eftirlit á tjaldstæðum varðandi almenna umgengni og næturró.

 - Of mikil græðgi er í gangi í íslenskri ferðaþjónustu. Um leið og komið er út fyrir borgina þá tvöfaldast verðið.

- Það vantar meira framboð af íslenskum mat á borð við skyr, rúgbrauð og kjötsúpu. Óskað er eftir meira úrvali af hollum mat í vegasjoppurnar. Það vilja ekki allir sveitta hamborgara, pylsur og franskar.

 - Ferðasumarið byrjar of seint. Á mörgum stöðum er ekki búið að opna í byrjun júní.

- Það vantar fleiri tjaldstæði fyrir aldurshópinn 18-30 ára sem víða er óvelkominn.

- Stéttarfélögin mættu greiða niður leigu á sumarhúsum í einkaeign.

-  Aðgangur að salernum þarf að vera betri og þau verða að vera snyrtileg og hrein.

 - Auka þarf pláss fyrir húsbíla á tjaldstæðum eða hafa sérstæði fyrir húsbíla.

- Aðgangur að ferðamannastöðum ætti að vera ódýrari fyrir Íslendinga, eins og t.d. í Bláa lónið. Það ætti að vera nóg að sýna íslenskt vegabréf.

 - Ekki ætti að  loka almennum tjaldstæðum vegna ættarmóta og slíks. Fólk á að geta gengið að tjaldstæðunum vísum.

- Leiksvæði fyrir börn á tjaldsvæðum mættu vera betri.

 - Áhugaverðir staðir eru  líka fyrir fatlaða, víða þarf að bæta aðgengi fyrir þá.

- Huga mætti betur að því að hafa kynningarefni á íslensku en ekki bara á ensku.

 - Það vantar aukinn íslenskan sjarma og alúð í gistiumhverfi.

- Það vantar betri aðgang að rafmagni á tjaldstæðum og gjaldtakan mætti vera sanngjarnari. Ekki rukka fyrir heilan dag þegar rafmagnið er bara notað í hálfan.



17.maí 2012 - 16:00

Öðruvísi mér áður brá: Iceland Express alltaf á réttum tíma með tékknesku leiðinni

Svo virðist sem brandarar um óstundvísi Iceland Express eigi ekki lengur við, því ferðum félagsins til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar.
16.maí 2012 - 09:00

Hvert fara stjörnurnar í frí? Nokkrir heitustu áfangastaðir heims - MYNDIR

Denise Richards skellti sér til Nassau á Bahama-eyjum ásamt dætrum sínum tveimur á dögunum.

Það er kunnara en frá því þurfi að segja að stjörnurnar setja standardinn þegar að kemur að ansi mörgu – meðal annars ferðalögum. Því er ekki úr vegi að kanna hvert blessaðar stjörnurnar eru að flykkjast þessa dagana þannig að sauðsvartur almúginn geti fylgt í fótspor þeirra.

15.maí 2012 - 10:00

Striplast á ströndinni: Það gilda reglur á nektarnýlendum – ekki bara perraparadís!

Nektarnýlendur – eða nektarstrendur öllu heldur má finna víða um heim – mörgum til mikillar gleði. Kostirnir eru ótvíræðir en það eru ákveðnar reglur í gildi sem er eins gott að virða. Og hverjar eru þær…

14.maí 2012 - 22:00

Las Vegas leyndardómanna: 10 góð ráð til að hafa í huga en borg syndanna er heimsótt!

Það sem gerist í Vegas er best geymt í Vegas! Þetta er einn frægasti frasi borgarinnar þar sem allt getur gerst enda eru ævintýrin á hverju horni - bókstaflega. Fyrir alla þá sem þrá að berja borgina eigin augum er nauðsynlegt að hafa nokkur atriði í huga til að fá sem mest út úr ferðinni.

 


14.maí 2012 - 14:35

Kortanotkun erlendra ferðamanna upp á 14,6 milljarða króna: Hefur ekki aukist í takt við fjölgun ferðamanna

Erlendir ferðamenn notuðu greiðslukort til kaupa á vöru og þjónustu fyrir 14,6 milljarða króna fyrstu fjóra mánuði ársins.


09.maí 2012 - 07:00

Á bikiní í Brussel: Baðströnd í miðri borg

Brussel er borg sem hefur allt – líka sólarströnd með pálmatrjám þó borgin liggi ekki að sjó. Belgar deyja ekki ráðalausir og skella sér á ströndina í höfuðborginni þó hún liggi ekki að sjó. Í Brussel er hreinlega búin til baðströnd með hvítum sandi og pálmatrjám á sumrin.
08.maí 2012 - 10:30

10 ástæður þess að ferðalög eru algjör tímasóun og vitleysa!

Það er við hæfi að fjalla einnig um skuggahliðar ferðalaga en við rákumst á þennan snilldarlista inn á vefsíðunni 501.com. Meðfylgjandi er semsagt þessi bráðfyndni listi sem tiltekur helstu ástæður þess að ferðalög eru bölvuð vitleysa og það sé best að hætta þeim.

07.maí 2012 - 14:25

Heimsmet í ferðagleði?: Nærri þriðjungur þjóðarinnar fór til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins

Um 100 þúsund Íslendingar fóru til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins sem er 6% aukning frá fyrra ári. Það er því næstum þriðja hvert mannsbarn sem hefur farið til útlanda á þessu tímabili og líklegt að um heimsmet í ferðagleði sé að ræða.

04.maí 2012 - 12:00

Bresk fjölskylda: Fékk bætur vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli: Voru 4 daga á leiðinni heim

Breskri fjölskyldu, sem varð innlyksa á Spáni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli árið 2010, hafa verið dæmdar bætur frá spænska flugfélaginu Iberia. Það tók fjölskylduna fjóra daga að komast heim til Englands með tilheyrandi kostnaði vegna bílaleigubíla, lestarferða og gistingar.



02.maí 2012 - 09:30

Bjart og fallegt fjölskyldukaffihús í Búkarest - Eitthvað fyrir alla - MYNDIR

Það eru ekki mjög mörg kaffihús í heiminum sem henta allri fjölskyldunni. Þetta kaffihús heitir Phill og er í Búkarest og er alveg kjörið fjölskyldukaffihús.