08. maí 2012 - 10:30
Það er við hæfi að fjalla einnig um skuggahliðar ferðalaga en við rákumst á þennan snilldarlista inn á vefsíðunni 501.com. Meðfylgjandi er semsagt þessi bráðfyndni listi sem tiltekur helstu ástæður þess að ferðalög eru bölvuð vitleysa og það sé best að hætta þeim.
1. Ferðalög eru dýr: Þetta segir sig sjálft!
2. Ferðalög rústa frama þínum: Hver hefur áhuga á að ráða villuráfandi heimshornaflakkara í vinnu. Þú rústar ímynd þinni sem alvörugefinn og ábyrgðarfullur einstaklingur.
3. Ferðalög eyðileggja umhverfið: Mengun, mengun og aftur mengun. Flugvélar eru hrikalegir mengunarvaldar, sem og bílar. Hugsaðu um umhverfið – haltu þig heima.
4. Þú lærir ekki neitt á ferðalögum: Ekki sjens að þú sért að fara að rekast á einhvern vitring á Costa del Sol sem kenni þér mikilvæg lífgildi… nema kannski á barnum eftir miðnætti en þú manst hvort eð er ekki neitt daginn eftir.
5. Ferðalög þjóna engum tilgangi: Langar þig að sjá Taj Mahal? Það er til forrit til að skoða það – meira að segja forboðnu staðina sem hinn almenni ferðamaður fær ekki að sjá. Miklu betra að nota netið og fjárfesta frekar í góðum flatskjá eða laz-y-boy stól fyrir peninginn.
6. Ferðalög eru hættuleg: Mannrán, flugslys, eldgos eru daglegt brauð út hinum stóra heimi. Maður er langtum öruggari heima.
7. Ferðalög eru óþægileg: Þröngar flugvélar, tafir á flugvöllum, skordýrabit, skítug hótelherbergi…
8. Þú veist aldrei hvað þú ert að borða erlendis: Hundakjöt, orma eða hákarlaugga. Oft hefur þú ekki hugmynd um hvað er í matnum…
9. Það talar enginn íslensku í útlöndum: Til hvers að blanda geði við heimamenn ef þeir tala ekki einu sinni sama mál og þú. Það er nákvæmlega ekkert sjálfgefið við að allir Íslendingar tali húrrandi góða ensku, dönsku, flæmsku eða hvað það nú er…
10. Ferðalög eru bara of mikið vesen! Öryggisleitin, öskufall, gjaldeyrisvesen, vegabréf og áritanir… það er miklu skárra að hanga bara heima.