27. ágú. 2011 - 07:00Ásdís Björg Jóhannesdóttir

Myndin tengist ekki fréttinni.
Laugardaginn 27. ágúst fer fram opnun skógarins að Fossá í Hvalfirði, þar sem hann verður formlega tekinn inn í verkefnið Opinn skóg. Af því tilefni er boðað til hátíðar í skóginum og hefst hún kl. 14:00.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun opna skóginn formlega. Auk þess mun Vigdís Finnbogadóttir vera viðstödd vígslu Vigdísarlundar í skóginum.
Flutt verða ávörp, boðið upp á söng og tónlist, skemmtun fyrir yngri kynslóðina og hollar og góðar veitingar.
Dagskráin verður sem hér segir:
Dagskrá:
Lúðrasveit leikur við samkomutjald frá kl. 13:45 en dagskráin hefst þar kl. 14:00.
1. Ávarp. Eiríkur Páll Eiríksson, formaður Fossár, skógræktarfélags.
Gengið frá samkomutjaldi að Vigdísarlundi.
Karlakór Kópavogs syngur.
2. Vigdísarlundur formlega opnaður. Vigdís Finnbogadóttir flytur ávarp.
3. Óður til skógarins. Einleikur á flautu: Brynhildur Ásgeirsdóttir.
4. Ávörp flytja:
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands
Bragi Michaelsson, formaður Skógræktarfélags Kópavogs
Fulltrúi styrktaraðila Opinna skóga 2011 (Arion banka og Skeljungs)
Karlakór Kópavogs syngur.
5. Barnadagskrá við samkomutjald í umsjón Skógræktarfélags Mosfellsbæjar og Skátafélagsins Mosverja.
6. Kaffiveitingar í samkomutjaldinu í umsjón skógræktarfélaganna, auk þess sem boðið verður upp á grænmeti frá garðyrkjubændum.
Harmonikkuleikur á meðan á veitingum stendur.
Skátar úr Skátafélaginu Kópum úr Kópavogi verða í útilegu með tjaldbúðir á Fossá þessa helgi.
Allir velkomnir,
Hvetjum sem flesta til að mæta í Opinn skóg.
Nánari dagskrá á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands er hér: www.skog.is.