03. feb. 2010 - 09:00Snæfríður Ingadóttir

Prjónakonan Ragnheiður Eiríksdóttir skipuleggur prjónaferðir til Íslands ásamt Heléne Magnússon.
Erlendir ferðamenn verða lokkaðir til Íslands með lopa og lykkjum í sumar á vegum Knitting Iceland sem ætlar að bjóða upp á sérstakar prjónaferðir til landsins. Ferðirnar eru stílaðar inn á prjónaáhugafólk og snýst dagskráin að mestu leyti um íslenskar prjónahefðir í bland við náttúruupplifanir, menningu og mat.
Það eru þær Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur, og Heléne Magnússon, lögfræðingur, sem standa á bak við fyrirtækið Knitting Iceland en báðar hafa þær mikinn áhuga á prjónaskap. Þær hafa áður látið til sín taka á því sviði, Ragnheiður gaf út dvd-diskinn “Prjónum saman” fyrir jólin og eftir Heléne liggja nokkrar bækur um prjónaskap. (Sjá nánar um Heléne hér og Ragnheiði hér)
Lúxus prjónaferð
Fyrsti hópurinn á vegum Knitting Iceland kemur til landsins í júní og verður í viku. „Þetta er lúxusferð þar sem allt er innifalið,“ segir Ragnheiður. „Þátttakendur munu sitja námskeið í íslenskum prjónahefðum þar sem þeir verða fræddir um prjón með lopa, rósaleppaprjón og íslensku sjölin.“ Ragnheiður og Heléne munu sjálfar sjá um kennsluna auk þess sem þær fá gestakennarann Evelyn A. Clark til liðs við sig.
„Við verðum með bækistöð í Borgarfirðinum en þaðan verður farið í margskonar dagsferðir. Markmiðið er að þátttakendur fari fróðari tilbaka.“ Meðal þess sem er á dagskránni er heimsókn í íslenskt fjárhús þar sem íslenska kindin verður skoðuð, heimsókn í Álafoss, Ullarselið á Hvanneyri og heimsókn í Textílsetur Íslands.
Prjónaferðir vinsælar erlendisAð sögn Ragnheiðar eru prjónaferðir vel þekkt fyrirbæri í prjónaheiminum og eru í sama flokki og golfferðir eða vínsmökkunarferðir. „Svona ferðir eru t.d. mjög vinsælar í Skotlandi og á Bretlandseyjum enda sterk prjónahefð á þessum svæðum. Þegar fólk er komið á kaf í þetta áhugamál vill það kafa dýpra og skoða prjónahefðir ákveðinna svæða betur.“ Hún segir prjónamenningu Íslands afar heillandi. Hér eigi t.d. allir einhverjar minningar tengdar prjóni en slíkt er ekki sjálfgefið í öðrum löndum. Íslenski lopinn hefur líka mikla sérstöðu og erlendu prjónafólki finnst hann afar áhugaverður. “Þó hann stingi aðeins þá hefur hann eftirsóknarverða eiginleika. Hann er bæði léttur og einangrandi og hefur líka þessi löngu hár svo ekki er nauðsynlegt að spinna hann.”
Pjónaáhugi fer vaxandi í heiminumMarkaðssetning á prjónaferðum Knitting Iceland er nú í fullum gangi erlendis og segir Ragnheiður að áhuginn fyrir fyrstu ferðinni sé mikill. „Prjónaáhugi fer vaxandi í heiminum. Ég held það sé vegna þess að það eru svo margir í skrifstofustörfum sem skilja ekkert áþreifanlegt eftir sig. Mannfólkið hefur hinsvegar þörf fyrir að búa til eitthvað áþreifanlegt og sækir því í prjónana þar sem prjónaskapur er svo auðveldur og takmarkalaus. Breiddin er líka svo mikil, prjónið getur verið mikil heilaleikfimi eða fullkomin afslöppun.“
Ýmislegt fleira er líka í gangi hjá þeim stöllum. Fleiri prjónadiskar og bækur eru að koma út og verið er að þýða diskinn “Prjónum saman” á ensku. Áhugasamir geta fylgst með á
Facebook