14. ágú. 2010 - 08:00Snæfríður Ingadóttir

Krúttlegasta tjaldsvæði Íslands - MYNDIR

Tjaldsvæðið á Stöðvarfirði er lítið, sætt og rómantískt. Smáatriði eins og lifandi blóm á klósettskúrnum setja mikinn svip á svæðið.

Tjaldsvæðið á Stöðvarfirði er lítið, sætt og rómantískt. Smáatriði eins og lifandi blóm á klósettskúrnum setja mikinn svip á svæðið. Pressan/Snæ

Það eru mörg falleg tjaldsvæði á Íslandi en fá þeirra eru þó jafn krúttleg og tjaldsvæðið á Stöðvarfirði. Þar gista ferðamenn frítt og pissa í salerni skreytt blómum.

Tjaldsvæðið á Stöðvarfirði er í austurenda bæjarins, rammað inn að skógargróðri. Þó tjaldsvæðið sé ekki stórt þá er það afar krúttlegt og vel er hugsað um það.

Það sem gerir tjaldsvæðið sérlega sætt er hversu blómlegt það er. Greinilegt er að sá sem sér um svæðið hefur auga fyrir fegurð og rómantík. Þannig er t.d. salernisskúrinn skreyttur lifandi blómum, sem setur óneitanlega sumarlegan svip á hann. Eins hefur stjúpum verið plantað við girðinguna og við tjaldstæðisskiltið.

Svona smáatriði geta skipt sköpun fyrir upplifun næturgesta af tjaldsvæðinu sem er að öðru leyti frekar látlaust. Ekki spillir heldur fyrir að það kostar ekkert að njóta krúttlegheitanna.

Skoðið þetta sæta tjaldstæði nánar á meðfylgjandi myndum.

Eitt eymdarlegasta tjaldsvæði landsins er á Patreksfirði. Lestu frétt Pressunnar hér.
Left Right



14.feb. 2012 - 13:00

Ný könnun um ferðalög Íslendinga í fyrra - Siglufjörður kemur sterkur inn

Niðurstöður úr könnun sem Ferðamálastofa lét MMR gera í síðasta mánuði liggja fyrir en þar var spurt um ferðalög Íslendinga á árinu 2011 og ferðaáform þeirra í ár. Niðurstöður benda til að álíka margir hafi verið á faraldsfæti innanlands og áður en breytingu má sjá á heimsóknum til einstakra staða. Þá halda utanferðir áfram að færast í aukana.
03.feb. 2012 - 09:45

Erlendir gestir í janúar aldrei verið fleiri

Erlendir gestir í janúar hafa aldrei verið fleiri og í ár, eða frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð fyrir áratug. Um 26 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum janúarmánuði og er um að ræða 3.900 fleiri brottfarir en á árinu 2011. Erlendum gestum fjölgaði því um 17,5% í janúarmánuði á milli ára. 
22.des. 2011 - 10:00

Ítalir dást að landinu okkar - Voru í fylgd með íslenskri stúlku í sumar - MYNDBAND

Íris Ann var að útskrifast úr mastersnámi í ljósmyndun og sjónlist í Mílanó á Ítalíu. Hún vann í sumar að ítölskum sjónvarpsþætti sem heitir "Shuffolato" sem snýst um að ferðast til mismunandi landa og kynna hvert land fyrir sig á öðruvísi hátt en gengur og gerist. 


03.des. 2011 - 19:00 Ásdís Björg Jóhannesdóttir

Ísland í heildarmynd- Sjáðu þessa vefsíðu

Komin er ný vefsíða þar sem hægt er að sjá Íslandi frá öðru sjónarhorni en áður. Maður að nafni Peter Molnár hefur hannað síðuna svo fólk geti skoðað 360 gráðu mynd af nokkrum þekktum ferðamannastöðum á Íslandi.






01.des. 2011 - 07:00 Ásdís Björg Jóhannesdóttir

The Iceland Wiki Guide - Ný handbók á vefnum fyrir ferðamenn

Nýlega var opnuð á svokölluð Wiki síða fyrir erlenda ferðamenn á vefsvæði IcelandTravelBlog.net.

24.nóv. 2011 - 21:30

Frostrósir lofa kakói, pönnsum og konfekti - Syngja á Reykjavíkurflugvelli á morgun

Frostrósir hefja tónleikaferð sína á morgun föstudag í flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. 

Frostrósir munu fljúga af stað með Flugfélagi Íslands frá Flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli föstudaginn 25. nóvember. Þau munu kl. 10:00 taka nokkur vel valin Frostrósalög órafmagnað. 


01.sep. 2011 - 16:00 Ásdís Björg Jóhannesdóttir

Kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli- Góð leið til að byrja haustið

Mynd úr safni frá fyrri hátíðum: Þorsteinn Jónsson, úr hrepparígnum Hin árlega Kjötsúpuhátíð Rangárþings eystra fer fram núna um helgina 3. september á Hvolsvelli. Hátíðin verður með örlítið breyttu sniði frá því í fyrra en dagskráin er frábær og tilvalið að skella sér í bíltúr með fjölskylduna og kíkja á Hvolsvöll. Góð leið til að byrja haustið.
30.ágú. 2011 - 09:00 Ásdís Björg Jóhannesdóttir

Grill og gaman á Básum: Ferð með útivist að gosstöðvum í september

Úr myndasafni utivist.is Ef þú hefur ekki enn séð gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi er tækifæri til þess í september.
27.ágú. 2011 - 07:00 Ásdís Björg Jóhannesdóttir

Opinn skógur að Fossá í Hvalfirði opnaður- Vigdísarlundur vígður

Myndin tengist ekki fréttinni. Laugardaginn 27. ágúst fer fram opnun skógarins að Fossá í Hvalfirði, þar sem hann verður formlega tekinn inn í verkefnið Opinn skóg. Af því tilefni er boðað til hátíðar í skóginum og hefst hún kl. 14:00.
24.ágú. 2011 - 17:00 Ásdís Björg Jóhannesdóttir

Bláberjadagar á Súðavík- Skemmtun fyrir alla fjölskylduna

Berjaspretta á Vestfjörðum er í góðu meðallagi í ár og helgina 26.–28. ágúst efna Súðvíkingar í fyrsta sinn til fjölskyldu- og uppskeruhátíðarinnar Bláberjadaga þar sem fólk er hvatt til að skemmta sér saman, tína ber og njóta þess besta sem náttúran hefur upp á að bjóða.