11. sep. 2010 - 09:00Snæfríður Ingadóttir

Heimferð í þessum bíl gæti orðið dýr, sérstaklega ef taka þarf auka rúnt til þess að klára lagið. Diskókúla er í loftinu og gott lagaúrval.
Ef þú hefur gaman af karaókí þá er Helsinki rétta borgin fyrir þig. Ekki nóg með að karaókíbarir séu þar á hverju horni heldur er líka hægt að rúnta um á sérstökum karaókí-leigubílum þar sem farþegar geta sungið alla leiðina heim.
Karaókí-leigubílarnir taka 9-13 manns og eru því tilvaldir fyrir litla hópa á leið á djammið sem vilja hita upp fyrir tjútt næturinnar á eftirminnalegan hátt eða fyrir þá sem ekki eru tilbúnir að fara beint heim að sofa þegar skemmtistaðirnir loka.
Erlendir ferðamenn sem fá sér far með bílunum syngja gjarnan vinningslag Lordi úr Eurovisionsöngvakeppninni en annars er lagaúrvalið í bílunum breytt.
Þeir sem vilja reyna enn frekar á sönghæfileika sína í Helsinki fara svo á alvöru karaókí-bar. Prófið til dæmis
Pata-ässä, Mariankatu 9. Sá staður er mjög vinsæll meðal heimamanna og sjást innlendar poppstjörnur stundum grípa þar míkrófóninn.