20. nóv. 2010 - 08:00Snæfríður Ingadóttir

Finnsku Jopo reiðhjólin komu fyrst á markað árið 1965. Þau voru endurhönnuð árið 2000 og eru hrikalega vinsæl í heimalandinu enda fyrirtaks borgarhjól. Hér er greinahöfundur á einu slíku í Helsinki. Pressan/Snæ
Margar stórborgir hvetja gesti sína til hjólreiða og lána þeim hjól. Helsinki tekur sérstaklega vel á móti gestum sínum hvað þetta varðar því mörg hótel borgarinnar lána gestum sínum töff finnsk reiðhjól þeim að kostnaðarlausu.
Eins og svo margar borgir prófaði Helsinki að bjóða gestum sínum upp á ókeypis borgarhjól. Ókosturinn við slík hjól er hinsvegar sá að það er misvel gengið um hjólin og þau skilin eftir hvar sem er. Borgin gafst því upp á þessu en styður við hjólreiðar á annan hátt.
Til að mynda skaffa flest stærri hótel borgarinnar gestum sínum frí reiðhjól. Reiðhjólin eru finnsk, flest af gerðinni Jopo. Þessi reiðhjólin eru ekki bara hrikalega töff heldur einnig ótrúlega góð þó gíralaus séu og henta öllum, óháð stærð og aldri.
Ferðamenn sem eru á leið til Helsinki ættu að athuga hvort hótelið þeirra sé með svona ókeypis reiðhjól áður en þeir panta, því það er æðislegt að ferðast á þessum flottu sixtís reiðhjólum um borgina.
Fljótlegt og auðvelt að hjóla um borgina
Borgaryfirvöld í Helsinki búa að öðru leyti vel að hjólafólki. Það er til að mynda um 1200 km af hjólastígum í borginni, þar af er helmingurinn malbikaður. Afar auðvelt er að hjóla á milli helstu kennileita þar sem miðborgin er tiltölulega flöt og það kom greinahöfundi á óvart hversu fljótlegur slíkur hringur var.
Þó vel sé búið að hjólafólki í Helsinki er hjólamenningin þar ekki eins sterk og t.d. í Kaupmannahöfn, það er að segja þú getur hjólað nokkuð áhyggjulaust um götur og torg án þess að þurfa huga of mikið að öðru hjólreiðafólki.
Ferðamálayfirvöld hafa útbúið sérstakt kort með hjólaleiðum sem hægt er að fara eftir en þar er stungið upp á 27 hjólaleiðum um borgina sem eru frá 12-25 km langar. Sjá HÉR. Vilji fólk hjóla ennþá lengra má finna ágætis hugmyndir inn á heimasíðu reiðhjólaleigunnar Greenbike, sem leigir út hjól af ýmsum gerðum.