04. des. 2009 - 10:00

Viðbjóðsleg lygasaga tengd vestfirsku ungbarni og presti sem kallaður er djöfladýrkandi

Fyrrverandi þjóðminjavörður segist forviða yfir því að íslenskt leiðsögufyrirtæki skáldi upp viðbjóðslega sögu um frænku sína sem lést 6 ára gömul eftir að botnlangi hennar sprakk og tengi hana djöflinum og mannsmorðum meðan látinn prestur þjóðkirkjunnar sé lýstur djöfladýrkandi.  Hann spyr hvaða siðareglur séu í gildi á þessu sviði. 

Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður, skrifar grein í Morgunblaðið í dag undir yfirskriftinni Ljót saga.  Segir hann þar af starfsfólki skóla sem fór í óvissuferð í Reykjavík, svokallaða draugagöngu, sem skipulögð er að fyrirtækinu Draugaferðir.

Sagði leiðsögumaðurinn frá draugi, vofu ungrar stúlku sem væri á sveimi í eða við Ráðhúsið. Erlendur miðill hefði komist að sögu ungu stúlkunnar og segir Þór hana hafa verið sagða svona:

„Stúlkan hafði heitið Fríða og fæðst og átt heima vestur á fjörðum. Þar átti hún að hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi af stjúpföður sínum og átt erfiða ævi. Litla stúlkan var hænd að dýrum og gaf hröfnunum af sínum litla mat. Einhverju sinni komu hrafnarnir og lokkuðu þeir telpuna brott af bænum en þá kviknaði í bænum og brann stjúpfaðir hennar þar inni. Þetta var talin hefnd Drottins.

Móðir hennar fluttist þá á annan bæ. Aftur gerðist svipaður atburður, hrafnar lokkuðu litlu stúlkuna á ný af bænum og einnig í það skiptið brann bærinn og systir litlu stúlkunnar fórst þar. Þá var þetta talið verk djöfulsins.

Skömmu síðar fannst litla stúlkan látin úti á hlaði með molað höfuð og var talið að móðir hennar hefði myrt hana vegna þess að hún gat ekki afborið að eiga barn djöfulsins.

Litla stúlkan átti að hafa gengið aftur og því voru beinin grafin upp og flutt suður og sett í kistu, hún fyllt með steypu og var stúlkan jörðuð í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Sagði leiðsögumaðurinn að allir fyrir vestan þekktu söguna og að enn væri haft að orðtaki vestur á fjörðum ef voveiflegir atburðir gerðust: „Enn er Fríða á ferð.““
Var síðan farið í Hólavallakirkjugarð við Suðurgötu og hópnum sýndur leiði stúlkunnar.

„Í þessum gönguhópi var nákominn ættingi minn. Honum brá í brún er staðnæmzt var þar við leiði forföður hans, séra Richards Torfasonar og Ólafiu I. Ólafsdóttur, síðustu konu hans, og þar hvílir einnig hjá þeim Fríða Magnúsdóttir, sonardóttir séra Richards, sem heitin var eftir fyrstu konu hans, Málfríði, ömmu sinni. Þarna sagði leiðsögumaðurinn að Fríða væri grafin, sú sem hann hafði sagt fólkinu frá. Hann benti sérstaklega á kross á gröfinni sem hann kvað snúa öfugt við það sem væri á gröfum kristins fólks.“

Segir Þór að ættingi sinn hafi gefið sig fram við leiðsögumanninn og sagt honum að stúlka sem þarna væri jarðsett hefði verið sér nákomin og séra Richard forfaðir hans. Leiðsögumaðurinn segir þá að þetta sé sagan sem komin sé frá sjálfum forstöðumanni leiðsögufyrirtækisins.

Þór segir að hann hafi haft samband við fleira fólk sem farið hafi í þessar ferðir og þar hafi einum sem þekkti til verið gefin sú skýring á sögunni að þetta væri samansoðningur af nokkrum sögum og svo sé stoppað hjá undarlegu leiði þar sem allt annað barn sé en sagan segi frá og svo sé haldin hugleiðslu- eða bænastund á staðnum.

„Fríða Magnúsdóttir var hálfsystir mín. Hún var dóttir Magnúsar Richardssonar símstjóra og síðar umdæmisstjóra Landssímans og konu hans Sigríðar Matthíasdóttur Ólafssonar. Fríða fæddist á Borðeyri árið 1932 og var annað barn þeirra hjóna, fyrr eignuðust þau son sem þau misstu mánaðargamlan. Fríða þótti fallegt barn og skýrt, svo hefur fólk sagt mér sem mundi hana, en hún andaðist aðeins sex ára gömul árið 1938 af afleiðingum sprungins botnlanga og var jarðsett hjá afa sínum og síðustu konu hans.

Leiði þeirra er fáa metra norðaustan við klukknaportið, næst leiði Sveinbjörns Sveinbjörnssonar tónskálds, fast austan við götu. Steyptir veggir eru umhverfis leiðið sem fyrrum var nokkuð algengt og hella steypt yfir, sem einnig má sjá sums staðar á leiðum, og hækkaður reitur er á hellunni miðri. Við höfðalag er mótaður kross á helluna. Efri hluti krossins, styttri hluti stofnsins, snýr að þeim sem á götunni stendur og er yfir höfðalagi hinna jarðsettu, höfuðið snýr í vestur því að menn skyldu snúa ásjónu til austurs við upprisuna á efsta degi. Málmplata með nöfnum þeirra þriggja er fest á fótagafl grafarinnar. Því gætu þeir, sem ekki þekkja kristna greftrunarsiði og horfa á krossinn, haldið að hann snúi öfugt en hann snýr sem eðlilegt er eftir legu líkamanna í gröfinni.

Það er hreint með ólíkindum að spinna upp slíka lygasögu til að skemmta ferðamönnum, um litla stúlku af Vestfjörðum og bæjarbruna og slysfarir og svipleg örlög stúlkunnar og benda síðan á gröf barns, sem ekki komst nema rétt til vits, en eigi að vera stúlkan í sögunni um vestfirzku stúlkuna og látast með því sanna söguna.“
Þór segir að þegar hann hafi fundið leiðsögufyrirtækið á netinu hafi honum brugðið nokkur er hann las það sem þar stóð.
„The journey ended appropriately in the cemetery on Sudurgata, where Jónas Freydal gleefully showed us the grave of a devil worshiper (the cross is upside down and the coffin itself is encased in cement), and the unmarked tombes of abandoned children.“ - Þetta er lauslega þýtt: „Ferðinni lauk eins og vel við átti í kirkjugarðinum við Suðurgötu, þar sem Jónas Freydal sýndi okkur með kátínubragði gröf djöfladýrkanda (krossinn stendur á höfði og kistan sjálf er lukt með steinsteypu), og einnig ómerktar grafir munaðarleysingja.“

Ég veit varla hvaða orð á að hafa um frásagnir sem þessar en ég lýsi megnustu fyrirlitningu á slíkri „leiðsögn“ og „ferðamannafræðslu“ sem hér var lýst og fyrirtækið Draugaferðir (Haunted Walks) stendur að. Það þarf meira en litla ófyrirleitni til að skálda upp viðbjóðslega sögu og tengja hana síðan ungbarni, sem vart gat hafa átt flekkaðan æviferil, og lýsa jafnframt látinn prest þjóðkirkjunnar djöfladýrkanda.“
Hann spyr hvaða siðareglur gildi í Félagi leiðsögumanna og hvort félagsstjórnin telji að frásagnir sem þessi séu til þess fallnar að styrkja og auka traust á ferðaþjónustu á Íslandi.
„Jafnframt vildi ég óska eftir því að kirkjuyfirvöld, biskup og kirkjugarðastjórnir taki fyrir slíkar „draugagöngur“ í kirkjugarða, helga reiti þar sem við skyldum ætla að hinir liðnu fengju að njóta friðar óáreittir af lygaþvættingi.“



02.sep. 2010 - 18:31 Kaffistofan

Gera kratarnir uppreisn?

Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 17:07

Ögmundur Jónasson skoðar hvort ákvörðun Kristjáns Möllers um ECA bindi hendur hans

Herþotur í Keflavík Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 14:39

DV verður fyrir árás frá vesturströnd Bandaríkjanna: Skannaðu tölvuna þína til öryggis

Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23

Jóhanna segir „ótrúlegan árangur“ hafa náðst: Bjarni sér hins vegar afturhaldsstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 12:18

Guðbjartur tók jakkafötin með til öryggis - Fékk staðfest fyrst í morgun að hann yrði ráðherra

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49

Kristján Möller úr ríkisstjórn: Ekki aðalatriði hver opnar Héðinsfjarðargöng - Hætti stoltur

Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Alþýðubandalagið lifi!

Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 11:34

Jóhanna Sigurðardóttir: Frekari breytinga á ríkisstjórn að vænta - Reynt að þétta raðirnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frekari breytinga sé að vænta á ríkisstjórninni innan tíðar Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:15 Kaffistofan

Dýrar spurningar?

Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
02.sep. 2010 - 09:53

Ný ríkisstjórn: Tveir karlar inn - Tvær konur og tveir karlar út - Almenn ánægja á fundinum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
01.sep. 2010 - 21:26 Kaffistofan

Hún Jóhanna átti að bregða hnífnum

Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 21:03

Þórunn veit ekki hver tillaga Jóhönnu er: Geri ráð fyrir að gætt verði að jafnrétti

Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segist ekki vita hvaða tillögu að ráðherrabreytingum forsætisráðherra muni gera á fundi klukkan níu í fyrramálið. Formaðurinn gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin hafi jafnrétti kynjanna að leiðarljósi.
01.sep. 2010 - 19:20

Dæmdur barnaníðingur vissi hver tók Madeleine: Gengi sem rænir börnum eftir listum

Madeleine McCann. Dæmdur barnaníðingur segist vita nákvæmlega hver tók Madeleine McCann, sem var rænt frá fjölskyldu sinni á sumarleyfisstað. Þeim upplýsingum kom hann fyrir í bréfi til sonar sína, áður en hann lét lífið.
01.sep. 2010 - 18:29

Skyndifundir hjá Samfylkingu vegna yfirvofandi ráðherrakapals: Ólga vegna kvenna

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Boðað hefur verið til skyndifundar bæði í þingflokki og flokksstjórn Samfylkingarinnar vegna breytinga á ríkisstjórninni.
01.sep. 2010 - 18:02

Ríkisráðsfundur boðaður á Bessastöðum á morgun: Ný ríkisstjórn lítur dagsins ljós

Ríkisráðsfundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun, 2. september.
01.sep. 2010 - 12:24

Ráðherrakapall: Guðbjartur fær að stjórna helmingnum af útgjöldum ríkisins - Árni færður

Guðbjartur Hannesson fær að öllum líkindum ráðherrastól. Samkvæmt heimildum Pressunnar verður Guðbjartur Hannesson gerður að ráðherra velferðarmála í nýju ráðuneyti. Árni Páll Árnason verður þá efnahags- og viðskiptaráðherra. Kynjahlutföll gætu valdið ólgu meðal kvenna innan stjórnarflokkanna.
01.sep. 2010 - 09:54

Tilraun til að fá ríkisstjórnina til að virka - Ögmundur verði talsmaður hinna órólegu

Uppstokkun ríkisstjórnarinnar er tilraun leiðtoga stjórnarflokkanna til að fá laskaða ríkisstjórn til að virka, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hluti af áætluninni er að fá Ögmund aftur inn í ríkisstjórn til að friða órólegu deildina svokölluðu.
01.sep. 2010 - 09:32 Kaffistofan

Hver er þessi Oddný?

Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
01.sep. 2010 - 07:31

Jóhanna reynir að hressa upp á laskaða ríkisstjórn: Þessir ráðherrar eru sagðir á leiðinni út

Jóhanna Sigurðardóttir, forsæstisráðherra, átti fund með hinum og þessum ráðherrum fram á nótt. Ástæðan er uppstokkun í ríkisstjórninni. Nýir ráðherrar verða að öllum líkindum kynntir til sögunnar í dag.
31.ágú. 2010 - 19:45 Kaffistofan

Nú er stand á Goddastöðum

Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 19:35

Fréttaskýring: 4-5 ráðherrar úr ríkisstjórn, Kristján og Álfheiður út með Gylfa og Rögnu?

Utanþingsráðherrarnir tveir eru á leið út úr ríkisstjórn. Líklegast þykir að Kristján L. Möller þurfi einnig að víkja sem og Álfheiður Ingadóttir. Ólga er meðal Samfylkingarfólks vegna mannaráðninga Árna Páls Árnasonar.
31.ágú. 2010 - 19:12

Ragna og Gylfi út eftir 19 mánuði: Frekari breytingar væntanlegar á allra næstu dögum

Ragna Árnadóttir. Samkvæmt heimildum Pressunnar eru utanþingsráðherrarnir tveir, Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á leið út úr ríkisstjórn.
31.ágú. 2010 - 15:53 Kaffistofan

Karlinn er helvíti reffilegur

Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 13:47

Ráðherra fagnar „óvanalega vitlausri“ tillögu: Tilbúinn til að leggja ESB umsókn undir

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, óttast ekki að ESB umsókn Íslands verði dregin til baka, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi. Hann fagnar tillögunni, jafnvel þótt hún sé „óvanalega vitlaus“, að hans sögn.
31.ágú. 2010 - 11:20 Kaffistofan

Spaugstofan á Stöð 2?

Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 10:23 Eiríkur Bergmann

Kemur tæplega á óvart

Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 08:56

Haraldur Flosi: Allt tal um uppsagnir vekur upp ótta meðal starfsfólks - Engar tölur á borðinu

Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir ekki enn ljóst hversu mörgum starfsmönnum verður sagt upp í fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum fyrirtækisins. Hann segir allt tal um uppsagnir vekja upp ótta meðal starfsmanna.
31.ágú. 2010 - 08:33 Kaffistofan

Jóhannes... í Bónus... í Færeyjum?

Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum. 
31.ágú. 2010 - 08:00

Íbúðalánasjóður: Nokkrir umsækjendur ætluðu að kæra hefði Ásta verið ráðin forstjóri

Nokkrir umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs ætluðu sér að kæra ráðninguna hefði Ásta H. Bragadóttir verið ráðin. Félagsmálaráðherra ákvað hins vegar að skipa valnefnd eftir að stjórn sjóðsins gat ekki komið sér saman um hvern ætti að ráða.
31.ágú. 2010 - 07:30

Finnst þér rafmagnið dýrt eftir hækkun OR? Verið að skipuleggja rafmagnsverkfall á föstudag

Verið er að skipuleggja rafmagnsverkfall heimilanna til að mótmæla fyrirhugaðri hækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Almenningur er hvattur til að slökkva í fimm mínútur í mótmælaskyni.

Pressupennarnýjast frh.
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit