30. nóv. 2009 - 15:24Sturla Böðvarsson

Umhverfisvottað Ísland

Drápuhlíðarfjall

Drápuhlíðarfjall Daníel Bergmann

Sunnudaginn 8. júní árið 2008 var efnt til  hátíðar á Snæfellsnesi. Tilefnið var  að sveitarfélögin á Snæfellsnesi höfðu fengið svokallaða Green Globe-vottun. Við þetta tækifæri flutti ég ræðu sem má lesa á heimasíðu minni http://www.sturla.is    Í þessari ræðu rifjaði ég  upp aðdraganda þess að Snæfellingar gengu til þess stórvirkis að fá umhverfisvottun.

Umhverfisvottað Snæfellsnes

Green Globe vottunarkerfið byggir á hugmyndafræði Dagskrár 21 og var sett á fót með stuðningi Alþjóðaferðamálaráðsins og Alþjóðaferðamálasamtakanna árið 1994.

Ástæður þess að sveitarfélögin á Snæfellsnesi völdu þessa leið, að fá vottun fyrir starfsemi sína, var hin mikla áhersla sem þar er á uppbyggingu ferðaþjónustu. Til þess að ná árangri í ferðaþjónustu er lykilatriði að leggja ríka áherslu á umhverfismálin. Forsvarsmenn annarra atvinnugreina á Snæfellsnesi hafa einnig sýnt verkefninu mikinn áhuga sem og íbúarnir sem taka þátt í því með beinum hætti, svo sem með því að úrgangur frá heimilum er flokkaður.

„Af hverju vottun?“ er spurt. Svarið, sem ég hef fengið, er að það skapi trúverðugleika, það skapi aðhald og eftirfylgni, það skapi góð skilyrði til gæðastjórnunar auk þess sem vottun gefur mikið forskot í markaðssetningu og kynningaraðgerðum. Það er rétt að taka það fram, áður en lengra er haldið, að Sjálfstæðismenn ráða för í meirihluta í bæjarstjórnunum á Snæfellsnesi og hafa leitt þessa þróun með því öfluga fólki sem vinnur á þessum vettvangi á vegum stofnana og atvinnugreinanna, svo sem ferðaþjónustu.

Tillaga um nýtt risastórt skref í umhverfisvottun

Sérfræðingar Náttúrustofu Vesturlands hafa vakið athygli fyrir vönduð vinnubrögð og öfluga framgöngu á því fræðasviði sem þar er fengist við. Starfsmenn Náttúrurstofu Vesturlands hafa nú vakið mikla athygli með nýjum tillögum á sviði umhverfisvottunar.

Í mjög vandaðri skýrslu hafa þau líffræðingarnir Menja von Schmalensee og Róbert Arnar Stefánsson forstöðumaður sett fram tillögur um Umhverfisvottað Ísland. Þau hafa fylgst með og unnið að vottuninni fyrir Snæfellsnes og þekkja því þær kröfur sem gerðar eru til sveitarfélaganna svo þau haldi þau skilyrði sem sett eru af hálfu vottunaraðila. Vissulega er hér um að ræða mjög róttækar tillögur. Þegar litið er til þess að öll sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafa fengið þessa vottun og leggja ríka áherslu á að halda henni er þess að vænta að önnur sveitarfélög í landinu ættu að geta fallið inn í þann ramma sem reglur vottunar Green Globe-kerfisins setja. Ekkert í þessari vottun ætti að þurfa að takmarka atvinnuuppbyggingu í landinu ef rétt er á spilunum haldið.  Ég hvet lesendur Pressunar, sem áhuga hafa á atvinnuuppbyggingu og umhverfismálum, að kynna sér tillögurnar og veita þessum tillögum stuðning. Þær má lesa á heimasíðu Náttúrustofu Vesturlands.

Lífeyrissjóðir fjármagni verkefnið

Í skýrslu Náttúrustofu Vesturlands um Umhverfisvottað Ísland er kostnaður við verkefnið metinn. Við núverandi árferði hjá ríkissjóði er ekki líklegt að ráðuneytin hafi kjark til þess að forgangsraða í þágu slíkra nýrra verkefni. Því tel ég einsýnt að leitað verði til Lífeyrissjóðanna sem eru um þessar mundir að leggja á ráðin um að fjárfesta í langtíma fjárfestingu, svo sem hátæknisjúkrahúsi og samgöngumannvirkjum. Tölur um kostnað við að fá vottun á öllum sveitarfélögum á  Íslandi eru smáaurar fyrir lífeyrissjóðina miðað við það sem þeir eru að taka að sér fyrir ríkisvaldið í heilbrigðiskerfinu. Það er sannfæring mín að slík vottun mundi skila sér fljótt fyrir samfélagið með auknum tekjum af ferðaþjónustunni og auðveldari markaðssetningu annarra atvinnugreina sem selja framleiðslu sína á markað og gætu kynnt að hún kæmi frá svæðum sem hefðu hlotið alþjóðlega umhverfisvottun. Það væri glæsilegt verkefni fyrir sjóðina sem eiga að tryggja lífeyri landsmanna að geta kynnt aðild að slíku verkefni þegar þeir leita til sjóða sem taka að sér að ávaxta eignir lífeyrissjóðanna.

Þurfum djarfar tillögur

Við þurfum djarfar tillögur og markvissar aðgerðir til þess að skapa traust á starfi okkar við atvinnuuppbygginu á Íslandi. Við eigum að nýta og jafnframt vernda náttúru okkar með trúverðugum hætti og skapa þannig betri lífsskilyrði fyrir börnin okkar í framtíðinni. Fordómar einstakra stjórnmálamanna og öfgasamtaka mega ekki skemma fyrir okkur Íslendingum sem viljum búa á þessu fagra, ísakalda landi.





02.sep. 2010 - 18:31 Kaffistofan

Gera kratarnir uppreisn?

Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 17:07

Ögmundur Jónasson skoðar hvort ákvörðun Kristjáns Möllers um ECA bindi hendur hans

Herþotur í Keflavík Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 14:39

DV verður fyrir árás frá vesturströnd Bandaríkjanna: Skannaðu tölvuna þína til öryggis

Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23

Jóhanna segir „ótrúlegan árangur“ hafa náðst: Bjarni sér hins vegar afturhaldsstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 12:18

Guðbjartur tók jakkafötin með til öryggis - Fékk staðfest fyrst í morgun að hann yrði ráðherra

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49

Kristján Möller úr ríkisstjórn: Ekki aðalatriði hver opnar Héðinsfjarðargöng - Hætti stoltur

Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Alþýðubandalagið lifi!

Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 11:34

Jóhanna Sigurðardóttir: Frekari breytinga á ríkisstjórn að vænta - Reynt að þétta raðirnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frekari breytinga sé að vænta á ríkisstjórninni innan tíðar Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:15 Kaffistofan

Dýrar spurningar?

Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
02.sep. 2010 - 09:53

Ný ríkisstjórn: Tveir karlar inn - Tvær konur og tveir karlar út - Almenn ánægja á fundinum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
01.sep. 2010 - 21:26 Kaffistofan

Hún Jóhanna átti að bregða hnífnum

Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 21:03

Þórunn veit ekki hver tillaga Jóhönnu er: Geri ráð fyrir að gætt verði að jafnrétti

Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segist ekki vita hvaða tillögu að ráðherrabreytingum forsætisráðherra muni gera á fundi klukkan níu í fyrramálið. Formaðurinn gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin hafi jafnrétti kynjanna að leiðarljósi.
01.sep. 2010 - 19:20

Dæmdur barnaníðingur vissi hver tók Madeleine: Gengi sem rænir börnum eftir listum

Madeleine McCann. Dæmdur barnaníðingur segist vita nákvæmlega hver tók Madeleine McCann, sem var rænt frá fjölskyldu sinni á sumarleyfisstað. Þeim upplýsingum kom hann fyrir í bréfi til sonar sína, áður en hann lét lífið.
01.sep. 2010 - 18:29

Skyndifundir hjá Samfylkingu vegna yfirvofandi ráðherrakapals: Ólga vegna kvenna

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Boðað hefur verið til skyndifundar bæði í þingflokki og flokksstjórn Samfylkingarinnar vegna breytinga á ríkisstjórninni.
01.sep. 2010 - 18:02

Ríkisráðsfundur boðaður á Bessastöðum á morgun: Ný ríkisstjórn lítur dagsins ljós

Ríkisráðsfundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun, 2. september.
01.sep. 2010 - 12:24

Ráðherrakapall: Guðbjartur fær að stjórna helmingnum af útgjöldum ríkisins - Árni færður

Guðbjartur Hannesson fær að öllum líkindum ráðherrastól. Samkvæmt heimildum Pressunnar verður Guðbjartur Hannesson gerður að ráðherra velferðarmála í nýju ráðuneyti. Árni Páll Árnason verður þá efnahags- og viðskiptaráðherra. Kynjahlutföll gætu valdið ólgu meðal kvenna innan stjórnarflokkanna.
01.sep. 2010 - 09:54

Tilraun til að fá ríkisstjórnina til að virka - Ögmundur verði talsmaður hinna órólegu

Uppstokkun ríkisstjórnarinnar er tilraun leiðtoga stjórnarflokkanna til að fá laskaða ríkisstjórn til að virka, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hluti af áætluninni er að fá Ögmund aftur inn í ríkisstjórn til að friða órólegu deildina svokölluðu.
01.sep. 2010 - 09:32 Kaffistofan

Hver er þessi Oddný?

Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
01.sep. 2010 - 07:31

Jóhanna reynir að hressa upp á laskaða ríkisstjórn: Þessir ráðherrar eru sagðir á leiðinni út

Jóhanna Sigurðardóttir, forsæstisráðherra, átti fund með hinum og þessum ráðherrum fram á nótt. Ástæðan er uppstokkun í ríkisstjórninni. Nýir ráðherrar verða að öllum líkindum kynntir til sögunnar í dag.
31.ágú. 2010 - 19:45 Kaffistofan

Nú er stand á Goddastöðum

Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 19:35

Fréttaskýring: 4-5 ráðherrar úr ríkisstjórn, Kristján og Álfheiður út með Gylfa og Rögnu?

Utanþingsráðherrarnir tveir eru á leið út úr ríkisstjórn. Líklegast þykir að Kristján L. Möller þurfi einnig að víkja sem og Álfheiður Ingadóttir. Ólga er meðal Samfylkingarfólks vegna mannaráðninga Árna Páls Árnasonar.
31.ágú. 2010 - 19:12

Ragna og Gylfi út eftir 19 mánuði: Frekari breytingar væntanlegar á allra næstu dögum

Ragna Árnadóttir. Samkvæmt heimildum Pressunnar eru utanþingsráðherrarnir tveir, Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á leið út úr ríkisstjórn.
31.ágú. 2010 - 15:53 Kaffistofan

Karlinn er helvíti reffilegur

Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 13:47

Ráðherra fagnar „óvanalega vitlausri“ tillögu: Tilbúinn til að leggja ESB umsókn undir

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, óttast ekki að ESB umsókn Íslands verði dregin til baka, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi. Hann fagnar tillögunni, jafnvel þótt hún sé „óvanalega vitlaus“, að hans sögn.
31.ágú. 2010 - 11:20 Kaffistofan

Spaugstofan á Stöð 2?

Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 10:23 Eiríkur Bergmann

Kemur tæplega á óvart

Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 08:56

Haraldur Flosi: Allt tal um uppsagnir vekur upp ótta meðal starfsfólks - Engar tölur á borðinu

Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir ekki enn ljóst hversu mörgum starfsmönnum verður sagt upp í fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum fyrirtækisins. Hann segir allt tal um uppsagnir vekja upp ótta meðal starfsmanna.
31.ágú. 2010 - 08:33 Kaffistofan

Jóhannes... í Bónus... í Færeyjum?

Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum. 
31.ágú. 2010 - 08:00

Íbúðalánasjóður: Nokkrir umsækjendur ætluðu að kæra hefði Ásta verið ráðin forstjóri

Nokkrir umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs ætluðu sér að kæra ráðninguna hefði Ásta H. Bragadóttir verið ráðin. Félagsmálaráðherra ákvað hins vegar að skipa valnefnd eftir að stjórn sjóðsins gat ekki komið sér saman um hvern ætti að ráða.
31.ágú. 2010 - 07:30

Finnst þér rafmagnið dýrt eftir hækkun OR? Verið að skipuleggja rafmagnsverkfall á föstudag

Verið er að skipuleggja rafmagnsverkfall heimilanna til að mótmæla fyrirhugaðri hækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Almenningur er hvattur til að slökkva í fimm mínútur í mótmælaskyni.

Pressupennarnýjast frh.
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit