09. mar. 2010 - 12:30

Þýsku blöðin: Íslendingar storka hinu alþjóðlega fjármálakerfi - Bera samt ábyrgð

Mynd:Getty

Þýskir fjölmiðlar sýna þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave mikinn skilning og má greina vott af lotningu í garð Íslendinga í leiðaraskrifum þeirra. Með atkvæðagreiðslunni storkuðu Íslendingar lögmálum kapítalismans með því að neita að taka á sig byrðar fallinna banka.

Þýsku blöðin fylgdust grannt með þjóðaratkvæðagreiðlunni um helgina og eru henni gerð skil í leiðurum nokkurra dagblaða. Alls staðar er umfjöllunin á þann veg að Íslendingar hafi tekið rétta ákvörðun með því að kjósa um samninginn, en hins vegar komist íslendingar ekki hjá því að bera einhverja ábyrgð á hvernig fór.  

Þannig segir í Süddeutsche Zeitung, sem þykir halla til vinstri í þýskum stjórnmálum:
Íslendingar skella sökinni á hrunið að hluta til á galla evrópska fjármálakerfis. Því er haldið fram að ESB hafi skapað þetta kerfi sjálft. En Ísland valdi að verða hluti af þessu kerfi. Fyrir hrunið voru íslenskir stjórnmálamenn meira en ánægðir að framfylgja reglunum á evrópskum fjármálamörkuðum, og þeir aðstoðuðu bankana. Kannski voru þeir barnalegir - hugsanelga spilltir. Á hvorn veginn sem er, þá voru þeir kjörnir fulltrúar fólksins, þannig að Íslendingar bera nokkra ábyrgð á ógæfunni.

Gagnrýnendur á Íslandi hafa þó rétt fyrir sér um eitt, það er að alþjóðlegar reglur og reglugerðir eru stórgallaðar. Ef þær hefðu ekki verið það, þá hefðu bankamenn í Reykjavík átt mun erfiðara með að ræna litla fjárfesta erlendis, án eftirlits og þar með gert landið sitt nánast gjaldþrota. Evrópska regluverkið stuðlaði ekki að þessari starfsemi, en hún kom heldur ekki í veg fyrir hana. Þess vegna verða ríki ESB einnig að bera einhverja ábyrgð. Nýtt Icesave samkomulag ætti að endurspegla þessar staðreyndir og deila byrðunum á milli þeirra ríkja sem urðu fyrir skaða eftir því.
Hið vinstri sinnaða Die Tageszeitung er á svipuðum nótum.
Íslenskir kjósendur tóku gáfulega ákvörðun. Að öðrum kosti hefðu þeir eyðilagt landið sitt. Það er nógu slæmt að fyrir tveimur árum hafi London og Haag ákveðið að bæta borgurum sínum það tap sem hlaust af hinum fallna Icesave banka. Af hverju skyldi ríki bæta fjárfestum sem lögðu fé sit vísvitandi undir í von um óheyrilegan hagnað? Þeir sem rétta skuggalegum spákaupmönnum peningana sína gera það á eigin ábyrgð. Að heimta tapaða fjármuni frá hverjum einasta Íslendingi gengur gegn hugmyndinni um kapítalisma.

Auðvitað bera Íslendingar ábyrgð á þeirri staðreynd að bankarnir þeirra urðu gjaldþrota. Undanfarinn áratug blundaði það í Íslendingum að verða ríkasta eyja í heimi, Íslendingar studdu við bakið á markaðsvænni stefnu ríkisstjórnar sinnar, sem um leið skemmdi það norræna velferðarríki sem þeir bjuggu við. Þeir eiga nóg með að fást við það.
Viðskiptablaðið Handelsblatt geriri málinu einnig skil:
Frá því að fjármálakreppan hófst hefur það í ríkari mæli komist í tísku að ríki einkavæða hagnað bankanna á meðan þau taka tapið á sig. Íslendingar hafa vogað sér að storka þessari reglu. Að ásaka þá og kvarta er einfaldlega rangt. Hvaða önnur vestræn þjóð myndi hafa ákveðið annað í þjóðaratkvæðagreiðslu?

Íslendingar hafa staðið í lappirnar - og með réttu. Af hverju ættu þeir að standa skil á skuldum sem örfáir fjármálaólígarkar söfnuðu...? Slík atkvæðagreiðsla hefði skilað sömu niðurstöðu í Þýskalandi, Bretlandi og Bandaríkjunum, hefðu þessar þjóðir fengið tækifæri til að segja álit sitt á björgunaraðgerðum fyrir bankana.

Íslendingar hafa komið með skemmtilegt innlegg í umræðuna um hvernig á að fara í gegnum fjármálakreppu. Það sorglega er að þessi aðferð hefur lagt stein í götu þeirra. Móðgunin sem að þessu hlýtur verður til þess að tvö ESB ríki gætu gert inngöngu Íslands í sambandið erfiðari.
Loks er fjallað um atvkæðagreiðsluna í hinu hægri sinnaða Frankfurter Allgemeine Zeitung.
Breskir og Hollenskir viðskiptavinir Icesave sóttu háar vaxtagreiðslur þegar vel gekk, þannig að allir aðilar eru ábyrgir. Í næstu samningaviðræðum ætti hlutlaus milligönguaðili að koma að borðinu. Lög hinna sterku ættu ekki að ráða þegar um vinaþjóðir er að ræða.

Ísland er tilraunastofa fjármálakreppunnar og það vekur upp margar spurningar. Hvað myndi gerast ef þjóðir fengju að kjósa um hvort þær beri kostnaðinn af tapi banka? Eða skuldir sem stjórnmálamenn hafa safnað? Þessi spurning er ekki eins vitlaus og hún hljómar. Einn hornsteinn lýðræðisins er yfirráðin yfir skatttekjum. Bankamenn og stjórnmálamenn hafa mikið að óttast, því að í fortíðinni hafa þeir ekki lagt sig fram um að útskýra fyrir fólki þá kerfisbundnu áhættu sem það felur í sér að ráðstafa peningum annarra og framtíðarkynslóðum. Almenningur og neytendur verða hins vegar að viðurkenna að þeir hafa látið það viðgangast allt of lengi.



02.sep. 2010 - 18:31 Kaffistofan

Gera kratarnir uppreisn?

Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 17:07

Ögmundur Jónasson skoðar hvort ákvörðun Kristjáns Möllers um ECA bindi hendur hans

Herþotur í Keflavík Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 14:39

DV verður fyrir árás frá vesturströnd Bandaríkjanna: Skannaðu tölvuna þína til öryggis

Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23

Jóhanna segir „ótrúlegan árangur“ hafa náðst: Bjarni sér hins vegar afturhaldsstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 12:18

Guðbjartur tók jakkafötin með til öryggis - Fékk staðfest fyrst í morgun að hann yrði ráðherra

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49

Kristján Möller úr ríkisstjórn: Ekki aðalatriði hver opnar Héðinsfjarðargöng - Hætti stoltur

Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Alþýðubandalagið lifi!

Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 11:34

Jóhanna Sigurðardóttir: Frekari breytinga á ríkisstjórn að vænta - Reynt að þétta raðirnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frekari breytinga sé að vænta á ríkisstjórninni innan tíðar Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:15 Kaffistofan

Dýrar spurningar?

Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
02.sep. 2010 - 09:53

Ný ríkisstjórn: Tveir karlar inn - Tvær konur og tveir karlar út - Almenn ánægja á fundinum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
01.sep. 2010 - 21:26 Kaffistofan

Hún Jóhanna átti að bregða hnífnum

Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 21:03

Þórunn veit ekki hver tillaga Jóhönnu er: Geri ráð fyrir að gætt verði að jafnrétti

Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segist ekki vita hvaða tillögu að ráðherrabreytingum forsætisráðherra muni gera á fundi klukkan níu í fyrramálið. Formaðurinn gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin hafi jafnrétti kynjanna að leiðarljósi.
01.sep. 2010 - 19:20

Dæmdur barnaníðingur vissi hver tók Madeleine: Gengi sem rænir börnum eftir listum

Madeleine McCann. Dæmdur barnaníðingur segist vita nákvæmlega hver tók Madeleine McCann, sem var rænt frá fjölskyldu sinni á sumarleyfisstað. Þeim upplýsingum kom hann fyrir í bréfi til sonar sína, áður en hann lét lífið.
01.sep. 2010 - 18:29

Skyndifundir hjá Samfylkingu vegna yfirvofandi ráðherrakapals: Ólga vegna kvenna

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Boðað hefur verið til skyndifundar bæði í þingflokki og flokksstjórn Samfylkingarinnar vegna breytinga á ríkisstjórninni.
01.sep. 2010 - 18:02

Ríkisráðsfundur boðaður á Bessastöðum á morgun: Ný ríkisstjórn lítur dagsins ljós

Ríkisráðsfundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun, 2. september.
01.sep. 2010 - 12:24

Ráðherrakapall: Guðbjartur fær að stjórna helmingnum af útgjöldum ríkisins - Árni færður

Guðbjartur Hannesson fær að öllum líkindum ráðherrastól. Samkvæmt heimildum Pressunnar verður Guðbjartur Hannesson gerður að ráðherra velferðarmála í nýju ráðuneyti. Árni Páll Árnason verður þá efnahags- og viðskiptaráðherra. Kynjahlutföll gætu valdið ólgu meðal kvenna innan stjórnarflokkanna.
01.sep. 2010 - 09:54

Tilraun til að fá ríkisstjórnina til að virka - Ögmundur verði talsmaður hinna órólegu

Uppstokkun ríkisstjórnarinnar er tilraun leiðtoga stjórnarflokkanna til að fá laskaða ríkisstjórn til að virka, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hluti af áætluninni er að fá Ögmund aftur inn í ríkisstjórn til að friða órólegu deildina svokölluðu.
01.sep. 2010 - 09:32 Kaffistofan

Hver er þessi Oddný?

Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
01.sep. 2010 - 07:31

Jóhanna reynir að hressa upp á laskaða ríkisstjórn: Þessir ráðherrar eru sagðir á leiðinni út

Jóhanna Sigurðardóttir, forsæstisráðherra, átti fund með hinum og þessum ráðherrum fram á nótt. Ástæðan er uppstokkun í ríkisstjórninni. Nýir ráðherrar verða að öllum líkindum kynntir til sögunnar í dag.
31.ágú. 2010 - 19:45 Kaffistofan

Nú er stand á Goddastöðum

Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 19:35

Fréttaskýring: 4-5 ráðherrar úr ríkisstjórn, Kristján og Álfheiður út með Gylfa og Rögnu?

Utanþingsráðherrarnir tveir eru á leið út úr ríkisstjórn. Líklegast þykir að Kristján L. Möller þurfi einnig að víkja sem og Álfheiður Ingadóttir. Ólga er meðal Samfylkingarfólks vegna mannaráðninga Árna Páls Árnasonar.
31.ágú. 2010 - 19:12

Ragna og Gylfi út eftir 19 mánuði: Frekari breytingar væntanlegar á allra næstu dögum

Ragna Árnadóttir. Samkvæmt heimildum Pressunnar eru utanþingsráðherrarnir tveir, Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á leið út úr ríkisstjórn.
31.ágú. 2010 - 15:53 Kaffistofan

Karlinn er helvíti reffilegur

Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 13:47

Ráðherra fagnar „óvanalega vitlausri“ tillögu: Tilbúinn til að leggja ESB umsókn undir

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, óttast ekki að ESB umsókn Íslands verði dregin til baka, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi. Hann fagnar tillögunni, jafnvel þótt hún sé „óvanalega vitlaus“, að hans sögn.
31.ágú. 2010 - 11:20 Kaffistofan

Spaugstofan á Stöð 2?

Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 10:23 Eiríkur Bergmann

Kemur tæplega á óvart

Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 08:56

Haraldur Flosi: Allt tal um uppsagnir vekur upp ótta meðal starfsfólks - Engar tölur á borðinu

Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir ekki enn ljóst hversu mörgum starfsmönnum verður sagt upp í fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum fyrirtækisins. Hann segir allt tal um uppsagnir vekja upp ótta meðal starfsmanna.
31.ágú. 2010 - 08:33 Kaffistofan

Jóhannes... í Bónus... í Færeyjum?

Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum. 
31.ágú. 2010 - 08:00

Íbúðalánasjóður: Nokkrir umsækjendur ætluðu að kæra hefði Ásta verið ráðin forstjóri

Nokkrir umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs ætluðu sér að kæra ráðninguna hefði Ásta H. Bragadóttir verið ráðin. Félagsmálaráðherra ákvað hins vegar að skipa valnefnd eftir að stjórn sjóðsins gat ekki komið sér saman um hvern ætti að ráða.
31.ágú. 2010 - 07:30

Finnst þér rafmagnið dýrt eftir hækkun OR? Verið að skipuleggja rafmagnsverkfall á föstudag

Verið er að skipuleggja rafmagnsverkfall heimilanna til að mótmæla fyrirhugaðri hækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Almenningur er hvattur til að slökkva í fimm mínútur í mótmælaskyni.

Pressupennarnýjast frh.
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit