11. mar. 2010 - 21:00Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Sverðaglamur innan stjórnarinnar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ræddi í vikunni um að hún hlustaði á hvatningu til samstöðu. En þá væri líka ágætt að sýna að það sé hlustað.
Við sjálfstæðismenn höfum lengi kallað eftir þverpólitískri nálgun og samstöðu til lausnar skuldavanda heimilanna en það verkefni er gríðarlega stórt og varðar fjölbreytta hagsmuni. Gerðum það í síðustu viku, lok janúar og allt síðastliðið haust. Ekkert svar hefur borist frá ríkisstjórninni, sjálfum verkstjórnaraðilanum eins og þau vilja stundum láta kalla sig, ekki frekar en atvinnulífið fær nokkur svör um hvenær og hvernig haldið skuli af stað í uppbygginguna sem allir eru að spyrja um.
Það eina sem heyrist frá ríkisstjórninni er innbyrðis sverðaglamur, litlu er áorkað vegna innbyrðis ágreinings. Meira að segja forseti ASÍ sagði á fjölmennum fundi í Garðinum í síðustu viku um atvinnumál að það ríkti pólitísk kreppa í landinu.
Stopp eða óvissa
Í þeim fáu málum sem snerta atvinnulífið og ríkisstjórnin kemur frá sér, eru skilaboðin annaðhvort stopp eða óvissa hvort sem litið er til orkunýtingarmála eða til okkar helstu atvinnugreinar, sjávarútvegsins. Vegna þessarar óvissu hafa menn, frá því að ríkisstjórnin komst til valda, haldið að sér höndum innan sjávarútvegsins með þeim afleiðingum m.a. að störfum fækkar og uppbygging stöðvast. Forsætisráðherra vill hlusta eftir samstöðu um stóru málin og fjármálaráðherra hefur sagt að nú séu ekki tímar pólitískra landvinninga. Samt sem áður leggur ríkisstjórnin upp með afdankaða hugmyndafræði sem fer langt með að eyðileggja mikilvægustu atvinnugrein okkar.
Ætlun stjórnarflokkanna er að auka pólitíska úthlutun á fyrndum aflaheimildum sem við vitum að mun kalla á offjárfestingar, minnkandi arðsemi og vinna gegn þeirri uppbyggingu í sjávarútvegi sem litið hefur verið til af hálfu annarra landa. Af orðum þingmanna stjórnarflokkanna og ráðherra má ráða að sú stefna skuli keyrð í gegn hvað sem tautar og raular. Um það verður ekki samstaða svo það sé sagt skýrt.
Vonbrigði verkalýðsfélaga
Að undanförnu hafa dunið yfir okkur yfirlýsingar frá félögum eins og Samiðn en þau lýsa yfir miklum vonbrigðum með þróun efnahagsmála, aðgerðarleysi stjórnvalda og þá stöðnun sem blasir við íslensku samfélagi.
Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, tekur í gær undir þessi orð Samiðnar og segir ráðaleysið hafa verið viðvarandi allt frá því að stöðugleikasáttmálinn var gerður. Að atvinnuleysið sé fyrir löngu orðið óbærilegt. Það sama segja Samtök atvinnulífsins. Sköpun nýrra starfa verður að vera forgangsmál við uppbyggingu atvinnulífsins.
Verðmæta- og atvinnusköpun kemur hins vegar ekki af sjálfu sér. Til þess þarf verkstjórn en verra er að hafa verkstjóra sem þvælist óendanlega fyrir. Það þýðir ekki lengur að halda fólki upp á snakkinu um að allir í ríkisstjórninni séu svo svakalega uppteknir við að vinna þegar öll þjóðin upplifir annan veruleika. Ríkisstjórnin verður að fara að koma sér að verki.
Að réttlæta aðgerðarleysið með Icesave er fyrir löngu orðin hallærisleg fjarvistarsönnun til að fela getuleysi og ákvörðunarfælni ráðherra fyrstu vinstri ríkisstjórnar Íslands.
02.sep. 2010 - 18:31
Kaffistofan
Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 17:07
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 14:39
Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 12:18
Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49
Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:40
Kaffistofan
Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 11:34
Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:15
Kaffistofan
Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
02.sep. 2010 - 09:53
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
01.sep. 2010 - 21:26
Kaffistofan
Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 21:03
Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segist ekki vita hvaða tillögu að ráðherrabreytingum forsætisráðherra muni gera á fundi klukkan níu í fyrramálið. Formaðurinn gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin hafi jafnrétti kynjanna að leiðarljósi.
01.sep. 2010 - 19:20
Dæmdur barnaníðingur segist vita nákvæmlega hver tók Madeleine McCann, sem var rænt frá fjölskyldu sinni á sumarleyfisstað. Þeim upplýsingum kom hann fyrir í bréfi til sonar sína, áður en hann lét lífið.
01.sep. 2010 - 18:29
Boðað hefur verið til skyndifundar bæði í þingflokki og flokksstjórn Samfylkingarinnar vegna breytinga á ríkisstjórninni.
01.sep. 2010 - 18:02
Ríkisráðsfundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun, 2. september.
01.sep. 2010 - 12:24
Samkvæmt heimildum Pressunnar verður Guðbjartur Hannesson gerður að ráðherra velferðarmála í nýju ráðuneyti. Árni Páll Árnason verður þá efnahags- og viðskiptaráðherra. Kynjahlutföll gætu valdið ólgu meðal kvenna innan stjórnarflokkanna.
01.sep. 2010 - 09:54
Uppstokkun ríkisstjórnarinnar er tilraun leiðtoga stjórnarflokkanna til að fá laskaða ríkisstjórn til að virka, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hluti af áætluninni er að fá Ögmund aftur inn í ríkisstjórn til að friða órólegu deildina svokölluðu.
01.sep. 2010 - 09:32
Kaffistofan
Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
01.sep. 2010 - 07:31
Jóhanna Sigurðardóttir, forsæstisráðherra, átti fund með hinum og þessum ráðherrum fram á nótt. Ástæðan er uppstokkun í ríkisstjórninni. Nýir ráðherrar verða að öllum líkindum kynntir til sögunnar í dag.
31.ágú. 2010 - 19:45
Kaffistofan
Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 19:35
Utanþingsráðherrarnir tveir eru á leið út úr ríkisstjórn. Líklegast þykir að Kristján L. Möller þurfi einnig að víkja sem og Álfheiður Ingadóttir. Ólga er meðal Samfylkingarfólks vegna mannaráðninga Árna Páls Árnasonar.
31.ágú. 2010 - 19:12
Samkvæmt heimildum Pressunnar eru utanþingsráðherrarnir tveir, Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á leið út úr ríkisstjórn.
31.ágú. 2010 - 15:53
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 13:47
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, óttast ekki að ESB umsókn Íslands verði dregin til baka, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi. Hann fagnar tillögunni, jafnvel þótt hún sé „óvanalega vitlaus“, að hans sögn.
31.ágú. 2010 - 11:20
Kaffistofan
Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 10:23
Eiríkur Bergmann
Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 08:56
Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir ekki enn ljóst hversu mörgum starfsmönnum verður sagt upp í fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum fyrirtækisins. Hann segir allt tal um uppsagnir vekja upp ótta meðal starfsmanna.
31.ágú. 2010 - 08:33
Kaffistofan
Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum.
31.ágú. 2010 - 08:00
Nokkrir umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs ætluðu sér að kæra ráðninguna hefði Ásta H. Bragadóttir verið ráðin. Félagsmálaráðherra ákvað hins vegar að skipa valnefnd eftir að stjórn sjóðsins gat ekki komið sér saman um hvern ætti að ráða.
31.ágú. 2010 - 07:30
Verið er að skipuleggja rafmagnsverkfall heimilanna til að mótmæla fyrirhugaðri hækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Almenningur er hvattur til að slökkva í fimm mínútur í mótmælaskyni.