08. feb. 2010 - 09:02Unnur H. Jóhannsdóttir
Skatturinn rannsakar smábókhald í 5 ár
Unnur telur enga von til þess að hún verði á lífi þegar dómur fellur um fjárglæfrastarfssemi, skattsvik og aðra plógsstarfssemi þeirra sem voru á toppnum í Hruninu. Það er einfaldlega kalt mat. Unnur lenti nefnilega í skattinum, réttara sagt tók Skattstjórinn í Reykjavík bókhald Unnar til rannsóknar fyrir fimm árum. Til þess að gera langa sögu stutta vann Unnur þá sem verktaki í fjölmiðlageiranum. Það var tvennt sem Skattstjórinn í Reykjavík taldi vert að rannsaka almennt í geiranum, annars vegar hvort að þeir sem væru í raun og veru að vinna sem fastir starfsmenn og ættu að vera launþegar samkvæmt lögum væru að vinna sem verktakar hjá fyrirtækjum og hins vegar var verið að kanna hvort fjölmiðlamenn í verktöku væru að telja rétt fram. Já, jafnvel hjá starfsmönnum fjórða valdsins gætu fundist skattsvikarar.
Árið 2005 vildi Skattstjórinn í Reykjavík fá bókhald Unnar frá árinu 2003. Það var auðvelt að leggja það fram enda ekki mikið að vöxtum, rúmaðist í þunnri Egla möppu en með fylgdi hálf A4 síða þar sem Unnur gerði grein fyrir því helsta í því. Líður nú og bíður og ekkert heyrist frá Skattstjóranum í Reykjavík árið 2005. Ekki heldur árið 2006. Ekki heldur árið 2007, 2008 eða 2009. Snemma árs 2010 átti Unnur afmæli og tveimur dögum síðar fær hún seðil frá Póstinum um að hún eigi þar pakka. Með tilhlökkun í brjósti keyrði hún á Appelsínunni sinni upp á pósthús, framvísar miðanum og stígur fram á tærnar af eftirvæntingi. Tilhlökkunin hins vegar snarminnkaði þegar hún fékk pakkann, innpakkaðan í brúnan pappír, merktan Skattstjóranum í Reykjavík.
Unnur reif umbúðirnar utan af pakkann og viti konur og menn – þarna var Egla mappann. Það var þó afmælisgjöf! En þó. Límd við möppuna var orðsending:
„Kallað var eftir meðfylgjandi gögnum í framhaldi af skoðun skattstjóra á málefnum yðar. Ríkisskattstjóri hefur lokið skoðun á meðfylgjandi gögnum.“
Unni finnst vitaskuld tær snilld að geta sagt jafn mikið án þess að segja nokkuð. Unnur hefur ekki hugmynd um hvort Skattstjórinn í Reykjavík muni árið 2015 rukka hana um endurgreiðslu eða hvort málinu sé lokið. En það sem Unnur vill benda á er þetta: Taki það embætti skatttstjóra fimm ára að rannsaka bókhald í lítill Egla möppu, er þá nokkur von til þess að það taki minna en 100 ár að rannsaka bókhald allra þeirra hrunfyrirtækja, hvers bókhald nær áreiðanlega samfellt allan þjóðveg hringveg 1?
Unnur ætlar samt að fylgjast vel með af himnum, þar verður stofnaður sérstakur áhugahópur um að ljúka málinu. Það eru áreiðanlega fleiri en hún sem vilja sjá öll kurl koma til grafar.
02.sep. 2010 - 18:31
Kaffistofan
Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 17:07
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 14:39
Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 12:18
Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49
Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:40
Kaffistofan
Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 11:34
Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:15
Kaffistofan
Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
02.sep. 2010 - 09:53
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
01.sep. 2010 - 21:26
Kaffistofan
Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 21:03
Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segist ekki vita hvaða tillögu að ráðherrabreytingum forsætisráðherra muni gera á fundi klukkan níu í fyrramálið. Formaðurinn gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin hafi jafnrétti kynjanna að leiðarljósi.
01.sep. 2010 - 19:20
Dæmdur barnaníðingur segist vita nákvæmlega hver tók Madeleine McCann, sem var rænt frá fjölskyldu sinni á sumarleyfisstað. Þeim upplýsingum kom hann fyrir í bréfi til sonar sína, áður en hann lét lífið.
01.sep. 2010 - 18:29
Boðað hefur verið til skyndifundar bæði í þingflokki og flokksstjórn Samfylkingarinnar vegna breytinga á ríkisstjórninni.
01.sep. 2010 - 18:02
Ríkisráðsfundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun, 2. september.
01.sep. 2010 - 12:24
Samkvæmt heimildum Pressunnar verður Guðbjartur Hannesson gerður að ráðherra velferðarmála í nýju ráðuneyti. Árni Páll Árnason verður þá efnahags- og viðskiptaráðherra. Kynjahlutföll gætu valdið ólgu meðal kvenna innan stjórnarflokkanna.
01.sep. 2010 - 09:54
Uppstokkun ríkisstjórnarinnar er tilraun leiðtoga stjórnarflokkanna til að fá laskaða ríkisstjórn til að virka, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hluti af áætluninni er að fá Ögmund aftur inn í ríkisstjórn til að friða órólegu deildina svokölluðu.
01.sep. 2010 - 09:32
Kaffistofan
Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
01.sep. 2010 - 07:31
Jóhanna Sigurðardóttir, forsæstisráðherra, átti fund með hinum og þessum ráðherrum fram á nótt. Ástæðan er uppstokkun í ríkisstjórninni. Nýir ráðherrar verða að öllum líkindum kynntir til sögunnar í dag.
31.ágú. 2010 - 19:45
Kaffistofan
Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 19:35
Utanþingsráðherrarnir tveir eru á leið út úr ríkisstjórn. Líklegast þykir að Kristján L. Möller þurfi einnig að víkja sem og Álfheiður Ingadóttir. Ólga er meðal Samfylkingarfólks vegna mannaráðninga Árna Páls Árnasonar.
31.ágú. 2010 - 19:12
Samkvæmt heimildum Pressunnar eru utanþingsráðherrarnir tveir, Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á leið út úr ríkisstjórn.
31.ágú. 2010 - 15:53
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 13:47
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, óttast ekki að ESB umsókn Íslands verði dregin til baka, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi. Hann fagnar tillögunni, jafnvel þótt hún sé „óvanalega vitlaus“, að hans sögn.
31.ágú. 2010 - 11:20
Kaffistofan
Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 10:23
Eiríkur Bergmann
Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 08:56
Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir ekki enn ljóst hversu mörgum starfsmönnum verður sagt upp í fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum fyrirtækisins. Hann segir allt tal um uppsagnir vekja upp ótta meðal starfsmanna.
31.ágú. 2010 - 08:33
Kaffistofan
Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum.
31.ágú. 2010 - 08:00
Nokkrir umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs ætluðu sér að kæra ráðninguna hefði Ásta H. Bragadóttir verið ráðin. Félagsmálaráðherra ákvað hins vegar að skipa valnefnd eftir að stjórn sjóðsins gat ekki komið sér saman um hvern ætti að ráða.
31.ágú. 2010 - 07:30
Verið er að skipuleggja rafmagnsverkfall heimilanna til að mótmæla fyrirhugaðri hækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Almenningur er hvattur til að slökkva í fimm mínútur í mótmælaskyni.