08. feb. 2010 - 14:25Ólafur Arnarson

Ritstjórinn sér rautt

Jón Ásgeir á ekkert í Samskipum og því hefur ritstjóri Morgunblaðsins engan áhuga á því.

Jón Ásgeir á ekkert í Samskipum og því hefur ritstjóri Morgunblaðsins engan áhuga á því.

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins skammar Arion banka fyrir þá ákvörðun að setja Haga á markað í opnu og gegnsæju ferli. Það sem fer fyrir brjóstið á honum er að Jóhannesi Jónssyni skuli vera boðið að kaupa 10 prósenta hlut í félaginu. Það þolir ritstjóri Morgunblaðsins ekki vegna þess að hann sér rautt í hvert sinn sem nöfn Jóhannesar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar eru nefnd. Stríð Davíðs Oddssonar gegn þeim feðgum hefur staðið í meira en áratug með miklum herkostnaði fyrir land og þjóð.

Ritstjórinn virðist í seinni tíð helst leita í smiðju Páls Vilhjálmssonar blaðamanns er hann leitar röksemda fyrir málflutningi sínum. Það er skondið. Páll er alkunnur vinstri maður. Ritstjórinn og Páll eiga það hins vegar sameiginlegt að vera blindaðir af heift í garð Bónusfeðga.

Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Arion banka kom í Kastljós fyrir helgi og skýrði út hvernig bankinn hefur staðið að málum varðandi Samskip og Haga. Hvað Samskip varðar þurfti bankinn að ná samkomulagi við annan banka, sem átti stóra kröfu á skipafélagið. Lausnin fólst í því að selja félagi, sem Ólafur Ólafsson á að stærstum hluta, ráðandi hlut í Samskipum. En ritstjóri Morgunblaðsins hefur engan áhuga á Samskipum vegna þess að Bónusfeðgar koma þar hvergi að.

Það verður að gera ráð fyrir því að Arion banki hafi fyrst og fremst verið að hugsa um að verja sína hagsmuni með afgreiðslu beggja mála. Það er mjög virðingarvert að bankinn skuli setja í gang opið og gegnsætt ferli um sölu á eignarhlut sínum í Högum. Líkast til mun skráning Haga styrkja mjög Kauphöllina og íslenskan hlutabréfamarkað. Þá verður ekki séð, að neitt óeðlilegt sé við það að Jóhannesi Jónssyni og öðrum stjórnendum sé gefinn kostur á því að kaupa 15 prósenta hlut í félaginu á sömu kjörum og aðrir fá að kaupa. Það er enginn af gefa þeim neitt og aðkoma þeirra að fyrirtækinu er talin styrkja það og þannig auka verðmæti eignar bankans.

Hagar eru nefnilega vel rekið fyrirtæki. Vandi félagsins er skuldavandi, sem stafar af því að íslenska krónan hrundi. Ábyrgð á hruni krónunnar liggur hjá Seðlabankanum, sem rak kolvitlausa peningamálastefnu, sem á endanum stútaði krónunni og setti fyrirtæki og almenning á Íslandi í gríðarlegan vanda.

Ritstjóri Morgunblaðsins er vitanlega ófær um að fjalla um Seðlabanka Íslands og hina vitlausu peningamálastefnu, sem þar var rekin allan þann tíma sem ritstjórinn var seðlabankastjóri. Morgunblaðið er heldur ekki fært um að fjalla um eina seðlabankann í heiminum, sem fór á hausinn vegna ævintýralega glæfralegra útlána gegn haldlausum tryggingum. Gjaldþrot Seðlabankans var upp á 350 milljarða. Þá upphæð er hægt að skrifa á reikning ritstjóra Morgunblaðsins, sem telur sig þess umkominn að gagnrýna aðra.

Það má með sanni segja að við Íslendingar höfum átt lélegasta seðlabankastjóra á byggðu bóli frá 2005 til febrúar 2009. Getuleysið virðist ekki vera bundið við peningamálastjórnun vegna þess að ekki verður betur séð en að Morgunblaðið sé á svipaðri leið og Seðlabankinn undir stjórn Davíðs Oddssonar ef marka má nýlega könnun á lestri dagblaða.

Arion Banki á hrós skilið fyrir að tryggja gegnsæi á sölu hlutar bankans í Högum. Betur væri ef Landsbankinn ástundaði viðlíka gegnsæi í stað þess að byggja laumulega upp stærsta eignarhaldsfélag landsins í Vestia. Hvers vegna skoðar ekki ritstjóri Morgunblaðsins hvað Landsbankinn og Vestia eru að gera með fyrirtæki, sem bankinn sölsar undir sig? Er það kannski óþægilega nálægt Icesave, sem vinir ritstjórans stóðu fyrir? Það eru meira að segja sömu mennirnir og stóðu fyrir Icesave, sem tróna nú yfir stærsta eignarhaldsfélagi landsins.

En ritstjóri Moggans hefur engan áhuga á því af því að þar er enginn Jóhannes eða Jón Ásgeir.



02.sep. 2010 - 18:31 Kaffistofan

Gera kratarnir uppreisn?

Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 17:07

Ögmundur Jónasson skoðar hvort ákvörðun Kristjáns Möllers um ECA bindi hendur hans

Herþotur í Keflavík Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 14:39

DV verður fyrir árás frá vesturströnd Bandaríkjanna: Skannaðu tölvuna þína til öryggis

Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23

Jóhanna segir „ótrúlegan árangur“ hafa náðst: Bjarni sér hins vegar afturhaldsstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 12:18

Guðbjartur tók jakkafötin með til öryggis - Fékk staðfest fyrst í morgun að hann yrði ráðherra

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49

Kristján Möller úr ríkisstjórn: Ekki aðalatriði hver opnar Héðinsfjarðargöng - Hætti stoltur

Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Alþýðubandalagið lifi!

Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 11:34

Jóhanna Sigurðardóttir: Frekari breytinga á ríkisstjórn að vænta - Reynt að þétta raðirnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frekari breytinga sé að vænta á ríkisstjórninni innan tíðar Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:15 Kaffistofan

Dýrar spurningar?

Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
02.sep. 2010 - 09:53

Ný ríkisstjórn: Tveir karlar inn - Tvær konur og tveir karlar út - Almenn ánægja á fundinum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
01.sep. 2010 - 21:26 Kaffistofan

Hún Jóhanna átti að bregða hnífnum

Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 21:03

Þórunn veit ekki hver tillaga Jóhönnu er: Geri ráð fyrir að gætt verði að jafnrétti

Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segist ekki vita hvaða tillögu að ráðherrabreytingum forsætisráðherra muni gera á fundi klukkan níu í fyrramálið. Formaðurinn gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin hafi jafnrétti kynjanna að leiðarljósi.
01.sep. 2010 - 19:20

Dæmdur barnaníðingur vissi hver tók Madeleine: Gengi sem rænir börnum eftir listum

Madeleine McCann. Dæmdur barnaníðingur segist vita nákvæmlega hver tók Madeleine McCann, sem var rænt frá fjölskyldu sinni á sumarleyfisstað. Þeim upplýsingum kom hann fyrir í bréfi til sonar sína, áður en hann lét lífið.
01.sep. 2010 - 18:29

Skyndifundir hjá Samfylkingu vegna yfirvofandi ráðherrakapals: Ólga vegna kvenna

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Boðað hefur verið til skyndifundar bæði í þingflokki og flokksstjórn Samfylkingarinnar vegna breytinga á ríkisstjórninni.
01.sep. 2010 - 18:02

Ríkisráðsfundur boðaður á Bessastöðum á morgun: Ný ríkisstjórn lítur dagsins ljós

Ríkisráðsfundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun, 2. september.
01.sep. 2010 - 12:24

Ráðherrakapall: Guðbjartur fær að stjórna helmingnum af útgjöldum ríkisins - Árni færður

Guðbjartur Hannesson fær að öllum líkindum ráðherrastól. Samkvæmt heimildum Pressunnar verður Guðbjartur Hannesson gerður að ráðherra velferðarmála í nýju ráðuneyti. Árni Páll Árnason verður þá efnahags- og viðskiptaráðherra. Kynjahlutföll gætu valdið ólgu meðal kvenna innan stjórnarflokkanna.
01.sep. 2010 - 09:54

Tilraun til að fá ríkisstjórnina til að virka - Ögmundur verði talsmaður hinna órólegu

Uppstokkun ríkisstjórnarinnar er tilraun leiðtoga stjórnarflokkanna til að fá laskaða ríkisstjórn til að virka, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hluti af áætluninni er að fá Ögmund aftur inn í ríkisstjórn til að friða órólegu deildina svokölluðu.
01.sep. 2010 - 09:32 Kaffistofan

Hver er þessi Oddný?

Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
01.sep. 2010 - 07:31

Jóhanna reynir að hressa upp á laskaða ríkisstjórn: Þessir ráðherrar eru sagðir á leiðinni út

Jóhanna Sigurðardóttir, forsæstisráðherra, átti fund með hinum og þessum ráðherrum fram á nótt. Ástæðan er uppstokkun í ríkisstjórninni. Nýir ráðherrar verða að öllum líkindum kynntir til sögunnar í dag.
31.ágú. 2010 - 19:45 Kaffistofan

Nú er stand á Goddastöðum

Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 19:35

Fréttaskýring: 4-5 ráðherrar úr ríkisstjórn, Kristján og Álfheiður út með Gylfa og Rögnu?

Utanþingsráðherrarnir tveir eru á leið út úr ríkisstjórn. Líklegast þykir að Kristján L. Möller þurfi einnig að víkja sem og Álfheiður Ingadóttir. Ólga er meðal Samfylkingarfólks vegna mannaráðninga Árna Páls Árnasonar.
31.ágú. 2010 - 19:12

Ragna og Gylfi út eftir 19 mánuði: Frekari breytingar væntanlegar á allra næstu dögum

Ragna Árnadóttir. Samkvæmt heimildum Pressunnar eru utanþingsráðherrarnir tveir, Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á leið út úr ríkisstjórn.
31.ágú. 2010 - 15:53 Kaffistofan

Karlinn er helvíti reffilegur

Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 13:47

Ráðherra fagnar „óvanalega vitlausri“ tillögu: Tilbúinn til að leggja ESB umsókn undir

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, óttast ekki að ESB umsókn Íslands verði dregin til baka, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi. Hann fagnar tillögunni, jafnvel þótt hún sé „óvanalega vitlaus“, að hans sögn.
31.ágú. 2010 - 11:20 Kaffistofan

Spaugstofan á Stöð 2?

Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 10:23 Eiríkur Bergmann

Kemur tæplega á óvart

Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 08:56

Haraldur Flosi: Allt tal um uppsagnir vekur upp ótta meðal starfsfólks - Engar tölur á borðinu

Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir ekki enn ljóst hversu mörgum starfsmönnum verður sagt upp í fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum fyrirtækisins. Hann segir allt tal um uppsagnir vekja upp ótta meðal starfsmanna.
31.ágú. 2010 - 08:33 Kaffistofan

Jóhannes... í Bónus... í Færeyjum?

Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum. 
31.ágú. 2010 - 08:00

Íbúðalánasjóður: Nokkrir umsækjendur ætluðu að kæra hefði Ásta verið ráðin forstjóri

Nokkrir umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs ætluðu sér að kæra ráðninguna hefði Ásta H. Bragadóttir verið ráðin. Félagsmálaráðherra ákvað hins vegar að skipa valnefnd eftir að stjórn sjóðsins gat ekki komið sér saman um hvern ætti að ráða.
31.ágú. 2010 - 07:30

Finnst þér rafmagnið dýrt eftir hækkun OR? Verið að skipuleggja rafmagnsverkfall á föstudag

Verið er að skipuleggja rafmagnsverkfall heimilanna til að mótmæla fyrirhugaðri hækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Almenningur er hvattur til að slökkva í fimm mínútur í mótmælaskyni.

Pressupennarnýjast frh.
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit