01. ágú. 2009 - 19:12Gunnar Gunnarsson
Lögbann á RÚV: Fáum ekki að segja ykkur allar þær fréttir sem við hefðum viljað segja

WikiLeaks
Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti á sjöunda tímanum kröfu Kaupþings um lögbann á umfjöllun Ríkisútvarpsins um upplýsingar um lánveitingar gamla Kaupþings. Gögnin eru aðgengileg á erlendri vefsíðu.
Úrskurðurinn barst fimm mínútur fyrir sjö en á slaginu hófust kvöldfréttir sjónvarpsins. „Nú verða sagðar fréttir, en þó ekki allar þær fréttir sem við hefðum viljað segja ykkur,“ sagði Bogi Ágústsson í upphafi fréttatímans.
Í kjölfarið fylgdi umfjöllun um lögbannsúrskurðinn. Í henni kom meðal annars fram að RÚV hefði barist gegn banninu á þeim forsendum að upplýsingarnar ættu erindi til almennings og þær væru aðgengilegar almenningi á netinu.
Lögbannið gildir í viku en á þeim tíma þarf að höfða dómsmál til að fá bannið staðfest. Fréttastofa RÚV segir lögbannið aðeins á hennar fréttaflutning, aðrir miðlar geti áfram notað gögnin að vild.
„Þetta var helst í þeim fréttum sem við megum segja,“ sagði Bogi við lok fréttatímans.
Kaupþing hefur farið fram á að gögnin verði fjarlægð af vefnum
Wikileaks. Því hafa stjórnendur vefsins alfarið hafnað.
10.mar. 2010 - 21:23
Birkir Jón Jónsson, þingmaður, varaformaður Framsóknarflokksins og Pressupistill segir það undarlegt að framsóknarmenn, sem talað hafa fyrir hvað mestri samstöðu á Alþingi, séu nú sakaðir um að vera ekki heilir í sínum málaflutningi. Birkir segir það umhugsunarefni, í ljósi krafna um breytt vinnubrögð Alþingis, að ekkert hafi breyst eftir fjármálahrunið. Hann býst ekki við breytingum af hálfu Jóhönnu forsætisráðherra og Steingríms fjármálaráðherra sem hafa samtals setið á Alþingi í 60 ár.
10.mar. 2010 - 19:27
Breytingar munu eiga sér stað innan ríkisstjórnarinnar öðru hvoru megin við páska en mikill kapall gæti fylgt þeim í kjölfarið. Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðingur segir að breytingar hljóti að verða á ríkisstjórninni fyrr en seinna áður en hún fer að tapa miklu fylgi sem hann segir að geti verið í spilunum.
10.mar. 2010 - 19:16
Útlit og hönnun forsíða tímarita getur haft gríðarlega mikið um það að segja hvort og í hve stóru upplagi viðkomandi blað selst. Þannig getur sama tímarit selst í mjög mismunandi magni, allt eftir því hvernig forsíðan lítur út. Árið 2009 virðist það hafa verið poppgoðið Michael Jackson sem seldi flest tímarit í Bandaríkjunum sem og sniðugar grafískt-hannaðar forsíður með þekktum aðilum framan á miðað við upplýsingar frá tímaritaútgefandanum Min Online.
10.mar. 2010 - 18:43
Ægir Þór Eysteinsson, fréttamaður á RÚV, segir enga ástæðu til annars en að standa við fréttaflutning sinn af málefnum Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrum stjórnarformanns Byrs. Sérstakur saksóknari hefur lánveitingar sparisjóðsins til stjórnenda hans til skoðunar.
10.mar. 2010 - 18:39
Aðsend grein
Vegna yfirlýsingar Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Byrs, sem birtist hér á vef Pressunnar í dag, finn ég mig knúinn til að koma eftirfarandi á framfæri.
10.mar. 2010 - 15:55
Ólafur Arnarson
Aðeins einn af þessum átján fjárfestum fær að kaupa Securitas. Hinir sautján þurfa að leita sér að öðrum fjárfestingartækifærum. Í íslensku bönkunum liggja nú næstum tvöþúsund milljarðar. Þetta eru gríðarlegir fjármunir, sem hægt er að nýta til uppbyggingar íslensks atvinnulífs. En þeir nýtast ekki til þess fyrr en bankarnir hætta að soga til sín hvert fyrirtækið á fætur öðru í stað þess að selja þau og koma í hendurnar á einkaaðilum, sem vilja fjárfesta í þeim.
10.mar. 2010 - 15:20
Formenn stjórnarflokkanna segjast klára Icesavesamningana upp á eigin spýtur velji stjórnarandstaðan að hlaupast á brott frá þeirri vinnu. Þeim beiska kaleik geti ábyrg ríkisstjórn ekki vikið frá sér.
10.mar. 2010 - 14:41
Fjármálaeftirlitið kannar nú hæfi stjórnarmanna móðurfélags Arion banka en ný stjórn bankans tekur ekki til starfa fyrr en því mati er lokið - og þá hæfi mögulegra stjórnarmanna bankans.
10.mar. 2010 - 14:29
Kaffistofan
Unnið er að því finna mögulega forsetakandídata fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson gefi ekki áfram kost á sér í kosningunum eftir tvö ár. Á kaffistofunni heyrist eitt nafn nefnt oftar en önnur...
10.mar. 2010 - 12:06
Marta María
Myndarskapurinn drýpur af hverju mannsbarni þessa dagana. Ef fólk er ekki að þreifa fyrir sér í eldhúsinu og prófa sig áfram við matreiðslu á framandi réttum, er fólk að sinna handavinnu. Saumaklúbbar eru loksins farnir að standa undir nafni, sem er frábært.
10.mar. 2010 - 12:00
Breska stórblaðið Financial Times segir að forseti Íslands gefi í skyn að Bretar ættu að vingast við Íslendinga, ekki þvinga þá í Icesave-málum í ljósi þess að Kínverjar og Indverjar séu farnir að sýna Íslandi áhuga þar sem siglingaleiðin yfir norðurskautið sé að opnast.
10.mar. 2010 - 10:55
Fyrrverandi stjórnarformaður Byrs segir rangfærslur hafðar uppi um lánveitingar til fyrrum eigenda. Himinn og haf sé milli þess að skulda 3 milljarða eða 418 milljónir. Hann skilji sárindi stofnfjáreigenda hann hafi sjálfur tapað miklu.
10.mar. 2010 - 09:49
Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, segir að Ísland hafi verið komið á svartan lista í september 2007, ári áður en hrunið varð. Erlendir bankar hafi ekki lengur viljað fjármagna íslensk fyrirtæki.
10.mar. 2010 - 08:13
Ríkisstjórnin er svo einbeitt í því að ljúka Icesavemálinu að samstarf við stjórnarandstöðuna er algert aukaatriði. Þetta er mat formanns Sjálfstæðisflokksins og formaður Framsóknarflokksins tekur í sama streng.
10.mar. 2010 - 07:31
Fjögurra klukkustunda verkfall flugumferðarstjóra hófst klukkan sjö, hið fyrsta af fimm sem boðuð hafa verið. Framkvæmdastjóri Icelandair segir sitt félag verða helst fyrir röskun af þessum völdum, þótt það eigi enga aðild að kjaradeilunni.
10.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 22:26
Kaffistofan
Á kaffistofuna berast nú þau stórtíðindi að besti skopmyndateiknari landsins, Halldór Baldursson, hafi nú sagt upp störfum á Morgunblaðinu og ráðið sig á aðalkeppinautinn, Fréttablaðið.
09.mar. 2010 - 21:00
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Pressupenni skýtur föstum skotum á fjármálaráðherra Íslands, Steingrím J. Sigfússon vegna ummæla Steingríms þess efnis að krónan sem gjaldmiðill þjóni Íslendingum vel. Gylfi segir það mikilvægt að stjórnmálamenn landsins átti sig á því að ekki sé hægt að byggja framtíð okkar hagkerfis á sama sem engu.
09.mar. 2010 - 19:40
Björgólfsfeðgar, fyrrum eigendur Samsonar, segja að lán frá Búnaðarbanka til fyrirtækisins hafi verið að full greitt árið 2005. Jafnframt að hlutur Samsonar í Landsbankanum hafi verið að fullu greiddur árið 2003 að stærstum hluta með eigin fé. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgólfi Thor Björgólfssyni og föður hans Björgólfi Guðmundssyni í ljósi rangrar fjölmiðlaumfjöllunar um lánaviðskipti Samsonar að þeirra sögn. Tilkynningu feðganna má lesa í heild sinni hér að neðan.
09.mar. 2010 - 19:35
Gylfi Arnbjörnsson
Þetta var merkileg yfirlýsing. Gerir ráðherrann sér ekki grein fyrir því hvað hann er að segja? Er formaður Vinstri Grænna að hlakka yfir því að samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja hafi verið bætt með því að lækka laun hér á landi um helming mælt í evrum? Er það gott fyrir launafólk að missa fjórðung eigna sinna og kaupmáttar á einu bretti?
09.mar. 2010 - 19:08
Sölvi Tryggvason
Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli:
,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 17:00
Ríflega þrjátíu fyrirtæki hafa þegar tryggt sér sýningarpláss á stórsýningunni Netið 2010 sem verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind um næstu helgi, eða dagana 12. til 14. mars nk.Eru nú aðeins örfá sýningarpláss laus.
09.mar. 2010 - 16:45
Þórólfur Árnason útilokar ekki að sækja um stöðu bankastóra Landsbankans þegar þar að kemur að staðan verður auglýst. Hann segist upptekinn við að vinna að sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf., en segist ekki vita hvað hann tekur sér fyrir hendur að því ferli loknu.
09.mar. 2010 - 16:10
Ólafur Arnarson
Steingrímur J. Sigfússon og Davíð Oddsson, og hirð hans, virðast vera á einu máli um að leiðin út úr vanda þjóðarinnar sé sú, að nota sömu aðferðir og komu okkur í þennan vanda. Munurinn á þessum tveimur mönnum er sá, að fáir sem engir hlusta á Davíð núorðið, en Steingrímur er fjármálaráðherra þjóðarinnar.
09.mar. 2010 - 16:10
Það er óhætt að segja að menn túlki niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave um síðustu helgi með misjöfnum hætti. En hvaða afleiðingar hefur atkvæðagreiðslan?
09.mar. 2010 - 15:45
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, mælti fyrir viðamiklu fjölmiðlafrumvarpi á Alþingi í dag. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir ótækt að hvergi sé vikið að eignarhaldi fjölmiðla sem og umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Þá voru víðtækar valdheimildir Fjölmiðlastofu gagnrýndar.
09.mar. 2010 - 15:45
Skúli Helgason
Ríkisstjórnin hefur þegar gripið til margvíslegra aðgerða í atvinnumálum. Við verðum þó að viðurkenna um það að meðan atvinnuleysi er nærri 10% þá er ekki nóg að gert og meira þarf að koma til svo ástandið verði viðunandi.
09.mar. 2010 - 14:49
Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að aldrei verði sátt í samfélaginu fyrr en komið verði með ítrasta hætti til móts við þá sem beri auknar skuldir eftir efnahagshrunið. Fimmtungur skuldara sé í alvarlegum vanda sem fari vaxandi.
09.mar. 2010 - 14:11
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, er ekki sammála Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, um íslenska króna sé betri en evran. Hann segir ekki bara hægt að horfa á kosti við gengisfellingu því skuggahliðin sé kaupmáttarhrun, hækkun lána og skerðing lífskjara. Krónan sé vandi fortíðar.
09.mar. 2010 - 13:08
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sendi ráðherra átta ráðuneyta af ríkisstjórnarfundi í morgun með tossalista um tuttugu og tvo liði í fjárlögum ársins sem þeir þurfa að gæta sérstaklega að. Ráðherrarnir eiga að svara fyrir mánaðamót um hvernig þeir ætla að sjá til að liðirnir verði innan fjárheimilda í árslok.