11. mar. 2010 - 12:30Jón Steinsson

Íslenska krónan: Er sveigjanleikinn of dýru verði keyptur?

Í þeirri miklu fjármálakreppu sem riðið hefur yfir heimsbyggðina síðustu misseri upplifði ekkert ríki hrun sem var neitt í líkingu við það sem við Íslendingar upplifðum. Á ýmsa mælikvarða er hrun bankakerfisins Íslandi árið 2008 langstærsta fjármálakreppa allra tíma hvar sem er í heiminum. Núverandi upplýsingar benta til dæmis til þess að eignarýrnun í bankakerfinu frá því fyrir hrun sé um 4.200 ma.kr. eða um 280% af VLF. Á þennan mælikvarða er hrunið á Íslandi fimm sinnum stærra en næststærsta hrun allra tíma (Indónesía, 1998).

Þegar hrun af þessari stærðargráðu ríður yfir er nánast óumflýjanlegt að landsframleiðsla dragist saman og atvinnuleysi aukist tímabundið. En ef mið er tekið af hinu gríðarlega umfangi hrunsins er samdráttur landsframleiðslu og aukning atvinnuleysis á Íslandi í raun ótrúlega lítil. Núverandi kreppa hefur valdið dýpri kreppum í öðrum ríkjum sem þó upplifðu vandamál í fjármálakerfinu sem voru aðeins brotabrot af því sem við upplifðum.

Það að kreppan á Íslandi hefur ekki verið verri en raun ber vitni á sér fleiri en eina skýringu. Það tókst að halda innlenda greiðslukerfinu gangandi í gegnum allt hrunið. Allir gátu notað greiðslukortin sín innanlands og allir sem héldu vinnunni fengu greidd laun á tilsettum tíma. Ríkisvaldið beitti ríkisfjármálum með öflugum hætti til þess að milda sveifluna.

Stöðugleikasáttmáli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins tryggði frið á vinnumarkaði þrátt fyrir mikla kaupmáttarrýrnun. Frysting gengistryggðra lána, frestun nauðungaruppboða og tímabundinn sveigjanleiki gagnvart tæknilega gjaldþrota fyrirtækjum innan bankakerfisins kom í veg fyrir holskeflu gjaldþrota með tilheyrandi öngþveiti. Og skynsöm útfærsla á endurreisn bankanna hefur lagt grunninn að aukinni nýsköpun og endurskipulagningu hagkerfisins.

Allt var þetta mikilvægt. En mikilvægast af öllu var líklega sú stefna stjórnvalda að leyfa gengi krónunnar að lækka um ríflega helming á árinu 2008. Sú stefna hefur framkallað „launalækkun án blóðsúthellinga" og þannig snarbreytt samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Það er engum blöðum um það að fletta að þegar allt var komið í óefni var sveigjanleikinn sem fylgdi því að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil dýrmætur.

En hádegisverðurinn er aldrei ókeypis.

Sveigjanleikinn sem fylgir því að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil - og nýtist svo vel þegar allt er komið í óefni - er dýru verði keyptur. Verðið sem við greiðum fyrir sveigjanleikann eru himinháir vextir ár eftir ár.

Frá árinu 1995 og til ársloka 2007 var vaxtamunur við útlönd að meðaltali um 5%. Gengi krónunnar var nánast hið sama í lok þessa tímabils og það var í upphafi. Lántökukostnaður í krónum var því að meðaltali um 5% á ári hærri en í viðskiptaveginni myntkörfu á þessu 12 ára tímabili. Það segir sig sjálft að það er verulegur baggi fyrir íslenskt atvinnulíf að búa við 5% hærri fjármagnskostnað en fyrirtæki í öðrum löndum.

Á árinu 2008 hrundi síðan gengið um helming. En jafnvel þegar hrunið er tekið með í reikninginn var lántökukostnaður í krónum frá 1995 til loka ársins 2008 um 1% á ári hærri en í viðskiptaveginni myntkörfu. Vaxtamunurinn sem við búum við að staðaldri er svo mikill að það þarf að eiga sér stað hrun á stærð við hrunið 2008 á tíu ára fresti til þess að vega það upp.

En hvernig fæ ég það út að beint samband sé milli sveigjanleikans sem hjálpar okkur þegar við klúðrum hlutunum og þeirra háu vaxta sem gera okkur erfitt fyrir að staðaldri? Þetta kemur til af því að fjármagnseigendur gera sér grein fyrir því að einmitt þegar kreppir að mun krónan lækka í verði. Þessi hegðun krónunnar - að lækka í verði þegar kreppir að - gerir krónueignir minna aðlaðandi en ella.

Eignir sem gefa vel af sér þegar kreppir að eru sérstaklega aðlaðandi fyrir fjárfesta þar sem það er einmitt þegar kreppir að sem fjármagn er mest virði. Það felst í því ákveðin trygging að eiga slíkar eignir og fjárfestar eru tilbúnir til þess að borga hátt verð fyrir þær. Eignir sem á hinn bóginn gefa illa af sér þegar kreppir að eru af sömu ástæðu sérstaklega óaðlaðandi fyrir fjárfesta. Slíkar eignir magna niðursveifluna fyrir eigendur sína í stað þess að dempa hana. Fjárfestar vilja því fá sérstaklega háa ávöxtun fyrir að eiga slíkar eignir.

Eins og fyrr segir veldur sjálfstæð peningamálastjórn okkar Íslendinga því að krónan lækkar í verði þegar kreppir að. Þetta hjálpar íslenskri framleiðslu þegar allt er í rugli. En þessi hegðun krónunnar gerir það einnig að verkum að krónueignir eru sérstaklega óaðlaðandi fyrir fjárfesta.

Með öðrum orðum, sveigjanleiki krónunnar fælir fjármagn frá Íslandi. Íslenska krónan hækkar því fjármagnskostnað íslenskra fyrirtækja að staðaldri. Yfir tímabilið 1995 til 2007 var þetta krónuálag 5% á ári að meðaltali.

Lykilspurningin þegar kemur að því að velja á milli þess að halda krónunni til frambúðar eða að taka í staðinn upp aðra mynt er því: Er möguleikinn á því að geta fellt gengið í niðursveiflu nægilega mikils virði til þess að hann réttlæti það að íslenskt atvinnulíf þurfi að búa við 5% hærri fjármagnskostnað en samkeppnisaðilar í öðrum löndum ár eftir ár?

Margir kvarta sáran yfir okurvöxtum og vísitölutengingu lána á Íslandi. En sömu aðilar eru oft svarnir andstæðingar þess að krónunni sé kastað og annar gjaldmiðill tekinn upp í staðinn. Þessir aðilar vilja borða kökuna og eiga hana. Í rauninni er eini raunhæfi möguleikinn til þess að losna við okurvexti og vísitölutengingu lána að við köstum krónunni. En þá mættum við heldur ekki lengur koma okkur í ógöngur með reglulegu millibili því gengisfelling yrði ekki lengur möguleiki í stöðunni.



23.maí 2012 - 10:10

Arion banki hefur hagnast um 1,5 milljarð á mánuði: Óvissa um gengislán tefur

Arion banki hagnaðist um 4,5 milljarða króna fyrstu þrjá mánuði ársins eftir skatta samanborið við þriggja milljarða kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans er því 1,5 milljarður kr. á mánuði það sem af er ári.


23.maí 2012 - 07:00

Sérstakur saksóknari: 20% mála frá FME felld niður – Óvíst um niðurstöðu í 76% málanna

Ólafur Þór Hauksson er sérstakur saksóknari. Fimmta hvert mál sem FME sendi sérstökum saksóknara eftir bankahrun hefur nú þegar verið fellt niður. Óvíst er um niðurstöðu í 76% málanna. Ákært hefur verið í 4 málum af 83 alls eða 5%.
22.maí 2012 - 20:00

Miðstýrður áætlunarbúskapur: Frjálsum markaði er hafnað og marxískri miðstýringu hampað

Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 15:00

Sala hafin á aflögðum kirkjum: Mikill áhugi að setja upp veitingastaði og næturklúbba í þeim

Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.

 

22.maí 2012 - 14:10

Skákgripir úr einvígi aldarinnar metnir á allt að 40 milljónir króna

Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi  bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.


22.maí 2012 - 12:11

Árni Páll: Getum gert Vigdísi Hauks að forsætisráðherra og hvar er pláss fyrir Hall Hallsson?

„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29

Kaupmáttur launa 7,6% lægri en hann var fyrir hrun - stefnir í enn meiri kaupmáttarrýrnun

Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.

22.maí 2012 - 07:45

Norðmenn vaða í seðlum: Betri nýting í olíuvinnslu skilar tæpum 17.000 milljörðum króna

Ríkisolíufélag Noregs, Statoil, leggur nú mesta áherslu á aukna nýtingu úr þeim olíusvæðum þar sem vinnsla fer fram. Frá árinu 2010 til 2011 jókst nýtingin úr 49% í 50%. Þetta virðist lítil aukning en hún skilaði samt gríðarlegum verðmætum í ríkiskassann norska.

 



21.maí 2012 - 18:43

Ólafur og Lilja fjalla um íslensku leiðina: Erlend krónueign veldur stöðugum þrýstingi á gengið

Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 15:00

Facebook veldur miklum vonbrigðum á markaði: Gengið lækkað um 12%

Verð á hlutabréfum í Facebook féll um 12% frá upphaflegu sölugengi þegar Nasdaq markaðurinn opnaði í dag. Upphaflegt gengi var 38 dollarar á hlut en strax við upphaf viðskipta féll það niður í 33,28 dollara.


21.maí 2012 - 11:30

Veiking krónunnar gerir okkur erfitt fyrir: Nú er meira að segja tippið orðið dýrara

Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.  
21.maí 2012 - 10:33

Flug til London tvöfaldast í verði hjá Icelandair : WOW hefur hækkað minnst

Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.

20.maí 2012 - 19:27

Útlánaæði í Noregi: Fjármálaráðherra landsins varar landsmenn við

Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.

20.maí 2012 - 11:39

Vinsælustu leitarvélinni á Netinu breytt: Google vill hugsa eins og manneskja

Svona verður nýtt viðmót Google leitarvélarinnar. Tölvufyrirtækið Google hefur tilkynnt um nýja breytingu á hinni geysivinsælu leitarvél sinni. Með aukinni gervigreind og nýjungum í forritun er hugmyndin að koma með leitarvél sem muni geta hugsað meira eins og manneskja.
20.maí 2012 - 10:36

Fjárfestingaáætlun á að fjármagna með einkavæðingu, sölu eigna og veiðigjaldi í sjávarútvegi

Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
19.maí 2012 - 15:30

Gríðarstór ráðstefna Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu: Á fimmta hundrað hingað til lands

Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45

Tveir mikilvægir leiðtogafundir haldnir í Bandaríkjunum um helgina: Jóhanna og Össur til Chicago

Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
18.maí 2012 - 18:00

Vill reisa verksmiðju og framleiða viskí á Austurlandi úr íslensku byggi

Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth. 
 

18.maí 2012 - 16:00

Höfnuðu rannsókn vegna meintra innherjasvika: Tífalt atkvæðavægi atvinnurekenda

Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.


18.maí 2012 - 12:00

Bílapressan - nýr vefur um bíla, fylgihluti, vélhjól og samgöngur á Pressunni

Nýr efnisþáttur, Bílapressan, hefur göngu sína á Pressunni á hádegi í dag. Eins og nafnið gefur til kynna verður þar fjallað um bíla og bílatengt efni út frá sjónarmiðum bíleigenda og bílkaupenda.


18.maí 2012 - 09:05

Segja olíufélögin hafa hækkað álagninguna verulega: Eldsneytisverð hefur lækkað en of lítið

Það sem af er máímánuði er álagning olíufélaganna á bensín 6-7 krónum yfir meðalálagningu síðustu ára aðteknu tilliti til vísitölu neysluverðs og gengis dollars gagnvart krónunni.
18.maí 2012 - 07:55

Viðskipti að hefjast með bréf í Facebook: Metið á 13.000 milljarða króna - Zuckerberg hringir inn

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, hringir bjöllunni þegar Nasdaq markaðurinn opnar í. Ástæðan er sú að Facebook er loks að fara á markað og það fyrir metfé. Zuckerberg og félagar meta fyrirtækið á 104 milljarða dollara, 13 þúsund milljarða króna.


17.maí 2012 - 19:46

Evrópa er á barmi efnahagshruns: Varað við evrugeddon og afleiðingum um allan heim

Evrópa er á barmi efnahagshruns sem kann að hafa víðtækar afleiðingar um allan heim, svo sannarlega líka hér á landi. Forsætisráðherra segir dómsdag nálgast; Grikkland er stjórnlaust og þar líkt og á Spáni óttast menn víðtæk áhlaup á banka næstu daga þar sem landsmenn vilja fremur geyma reiðufé undir koddanum en á ótraustum bankabókum fjármálastofnana sem óvíst er hvort lifa næstu daga af.
17.maí 2012 - 16:00

Öðruvísi mér áður brá: Iceland Express alltaf á réttum tíma með tékknesku leiðinni

Svo virðist sem brandarar um óstundvísi Iceland Express eigi ekki lengur við, því ferðum félagsins til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar.
17.maí 2012 - 08:52

Tengsl milli astma og útblásturs frá jarðgufuvirkjunum rannsökuð: Fleiri þurfa astmalyf

Fyrstu niðurstöður íslenskrar rannsóknar sem staðið hefur yfir í þrjú ár leiða í ljós tengsl útblásturs frá jarðvarmavirkjunum.
15.maí 2012 - 20:36

Komum okkur út úr kreppunni: Spörum vaxtakostnað, aukum hagvöxt og komum til móts við heimilin

Róbert Wessman, stjórnarformaður bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen, leggur til að farin verði „íslensk leið“ til að örva hagvöxt í landinu og fjölga atvinnutækifærum. Jafnframt myndi losna mjög um krónustöðu erlendra aðila og ríkið spara gífurlegar fjárhæðir í vaxtagjöldum.
13.maí 2012 - 14:00

Íslenskir viðskiptablaðamenn í yfirheyrslur hjá Sérstökum saksóknara: Verið að rannsaka meint afbrot Kaupþings

Embætti sérstaks saksóknara vinnur nú að rannsókn mála er tengjast meintri fölsun á gengi hlutabréfa í Kaupþingi. Til að fylla út í myndina hefur embættið kallað til yfirheyrslu íslenska blaðamenn sem skrifuðu um málefni bankans rétt fyrir hrunið.


12.maí 2012 - 09:00

Þessi virðist ætla að slá öll met: Sérstök forsala á Íslandi á umdeildum en eftirsóttum búningi

Nýr búningur enska knattspyrnuliðsins Liverpool virðist ætla að slá öllu met. Hann fæst nú í sérstakri forsölu hér á landi fyrir stuðningsmenn liðsins.
10.maí 2012 - 16:20

Bensínið lækkað minna en ætla mætti: Telja talsverða lækkun á bensínlítranum framundan

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað mikið að undanförnu og það nú svipað og það var í febrúar. Lækkunin er um 12% en lækkun á bensínlítranum hérlendis frá byrjun apríl þar til nú er ekki nema um 4%.


10.maí 2012 - 14:58

Jóhannes í Bónus: Stefnir í slag - Gefur lítið fyrir gagnrýni Egils - Elti ekki ólar við hann -

Jóhannes Jónsson,  kenndur við Bónus, einn af umdeildari mönnum á Íslandi, gefur lítið fyrir gagnrýni Egils Helgasonar fjölmiðlamanns, sem segir Jóhannes hafa verið vonda gerð af kapítalista sem hafi haft kverkatak á framleiðendum og birgjum. Egill segir að það sé þjóðsaga að Jóhannes hafi verið sérstakur vildarvinur íslenskrar alþýðu. Jóhannes er hins vegar ekki af baki dottinn og opnar í sumar verslanir undir Iceland merkinu í samstarfi við Malcolm Walker.


10.maí 2012 - 13:35

Egill: Þjóðsaga að Jóhannes í Bónus hafi verið vinur fólksins - Kverkatak á framleiðendum og birgjum

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason, segir að ein sérkennilegasta þjóðsaga á Íslandi sé að Jóhannes kaupmaður sem eitt sinn var kenndur við Bónus hafi verið sérstakur vildarvinur alþýðu. Jóhannes hafi verið kapítalisti sem hafði kverkatak á framleiðendum og birgjum.
09.maí 2012 - 17:30

Lán banka til tengdra aðila: FME aðeins lokið einu máli með stjórnvaldssekt

Fjármálaeftirlitið hefur kært 53 mál til embættis sérstaks saksóknara og vísað 33 málum til embættisins frá hruni og fram til mars 2012. Samkvæmt upplýsingum frá FME liggur ekki fyrir í hve mörgum tilvikum er um að ræða lán til tengdra aðila. Þau eru þó fjölmörg eins og upplýst hefur verið um í fjölmiðlum allt frá hruni.


09.maí 2012 - 15:35

Vefuppboð á fágætum íslenskum bókum: Fyrsta útgáfa af Bréfi til Láru verðmetin á 180,000 kr,

Meðal bóka á vefuppboði Gallerí Foldar er fyrsta útgáfa af Bréfi til Láru og er bókin árituð af höfundinum, Þórbergi Þórðarsyni. Bókin er verðmetin á 180.000 krónur en viðbúið er að hún fari á enn hærra verði.


09.maí 2012 - 10:47

Rannsókn á Aserta-málinu: Hefur verið 29 mánuði í rannsókn - Áhersla á að ljúka málinu sem fyrst

Rannsókn á meintu peningaþvætti íslenskra fjórmenninga er tengdust sænska félaginu Aserta AB er enn ekki lokið, 29 mánuðum eftir að rannsókn hófst, en sérstakur saksóknari segir rannsókn langt komna.
09.maí 2012 - 07:50

Ingimar: Jón Ásgeir segist ekki vita hver á langstærsta hlutann í 365 miðlum - Hver veit það þá?

Jón Ásgeir og Ingibjörg ásamt leikaranum Sir Roger Moore

Jón Ásgeir Jóhannesson segist ekki vita hver standi á bak við félag í Lúxemborg sem á tæplega helmings hlut í 365 miðlum. Blaðamaður segir hlutinn tengjast fjölskyldu Jóns Ásgeirs.

08.maí 2012 - 13:16

Segir slitastjórnirnar vera ræningjaflokka: Skuldirðu skatta færðu vargana á þig

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður, segir slitastjórnir fjármálafyrirtækjanna eins og ræningjaflokka og löngu sé tímabært að skipta þeim út fyrir bankastjórnir sem fylgi eftir uppgjörum föllnu bankanna. Enginn hvati sé í kerfinu til að ljúka málum og hagsmunir slitastjórnanna sé að draga þau sem mest á langinn.


08.maí 2012 - 11:50

Hafa skoðað stofnun nýs vefmiðils: Fyrrverandi Morgunblaðsmenn og fyrrverandi Landsbankastjóri í hópnum

Nokkrir fyrrverandi blaðamenn af Morgunblaðinu hafa velt fyrir stofnun nýs vefmiðils í samvinnu við Brynjólf Helgason, fyrrum bankastjóra Landsbanka Íslands.


07.maí 2012 - 14:25

Heimsmet í ferðagleði?: Nærri þriðjungur þjóðarinnar fór til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins

Um 100 þúsund Íslendingar fóru til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins sem er 6% aukning frá fyrra ári. Það er því næstum þriðja hvert mannsbarn sem hefur farið til útlanda á þessu tímabili og líklegt að um heimsmet í ferðagleði sé að ræða.

05.maí 2012 - 12:00

Mikill erill í Bauhaus - Þúsundir Íslendinga mættu á opnunarhátíð í dag

Verslunin Bauhaus opnaði formlega hér á landi klukkan átta í morgun, en mikill fjöldi fólks var þar saman kominn fyrir opnunarhátíð.
04.maí 2012 - 17:10

Eigendur bankanna lánuðu sjálfum sér milljarðatugi: Mun ekki leiða til ákæra - afgreitt með sektum

Þeir sem bíða spenntir eftir ákærum frá sérstökum saksóknara vegna lánveitinga banka til tengdra aðila gætu þurft að láta af biðinni því slík mál eru samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki afgreidd með stjórnvaldssekt sem getur numið 500.000 kr. til 50.000 kr. til lögaðila. Slíkar lánveitingar munu því ekki leiða til ákæru.



Pressupennarnýjast frh.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Ólafur Margeirsson
Ólafur Margeirsson - 15.5.2012
Er vaxtahækkun svarið?
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2012
Dómur yfir hælisleitendum
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.5.2012
Stoltir af steranotkun
Aðsend grein
Aðsend grein - 09.5.2012
Af hverju eru skilnaðir svo tíðir?
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Fleiri pressupennar