05. feb. 2010 - 11:03

Ingibjörg Sólrún: Á 255.615 kr í SPRON - leit aldrei á að hlutabréf væru keypt í gróðaskyni

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segist ekki hafa átt stofnbréf í SPRON til að græða á þeim

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segist ekki hafa átt stofnbréf í SPRON til að græða á þeim Getty Images

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, upplýsir í ljósi umræðu um stofnbréf í SPRON, að  hún eigi hlutabréf að nafnvirði 255.615 kr. Hún hafi aldrei litið svo á að þau væru keypt í gróðaskyni.

Mikil umræða hefur verið um stofnbréf í SPRON og sölu einstaklinga á bréfum í sparisjóðnum um það leyti sem þau voru sett á markað.

Þannig hefur Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, lýst því yfir í samtali við Pressuna að hann hafi selt sín bréf þar sem honum þótti ekki við hæfi að eiga bréfin þegar hann var orðinn ráðherra og Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður Vinstri grænna, gerði slíkt hið sama vegna andstöðu við hlutafélagavæðingu SPRON.

Ingibjörg Sólrún, gerir málið upp í færslu á Facebook-síðu sinni og segir þar:

„Vegna umræðunnar sem nú stendur yfir um stofnbréfin í SPRON finnst mér rétt að fram komi að ég á núna hlutabréf í SPRON að nafnvirði 255.615 kr.“

Hún segir þetta vera gömlu stofnbréfin hennar sem hún keypti sem borgarstjóri til að standa við bakið á sparisjóðnum.

„Eins og aðrir stofnfjáreigendur keypti ég þau á nafnverði en ekki á markaðsvirði. Ég leit aldrei svo á að þau væru keypt í gróðaskyni og hef átt þau síðan.“ 



16.mar. 2010 - 11:15

Ekkert gert með tillögu Fall: Vildi aðra banka undir Straum til að tryggja greiðsluflæði við útlönd

William Fall, fv forstjóri Straums. William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, sem í gær var ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland, gerði tillögu til Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í október 2008 um að fella íslenska banka undir Straum í því skyni að komast að samkomulagi við erlenda kröfuhafa og tryggja eðlilegt greiðsluflæði frá Íslandi til útlanda.
16.mar. 2010 - 10:46 Kaffistofan

(Ó)hróður Íslendinga berst víða...

Það er óhætt að segja að það hafi ekki glatt Íslendinginn í Amsterdam þegar allir - og bróðir hans - virtust þekkja Icesave-málið í þaula.
16.mar. 2010 - 10:29

HEKLA selur Bílaleigu Akureyrar tvö hundruð nýjar Skoda og Volkswagen bifreiðir á einu bretti

Forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar-Hölds ehf. og HEKLU innsigla samninginn Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentar verða á vormánuðum.
16.mar. 2010 - 10:23

Opið bréf til Lars Lökke: Skildum heldur aldrei hvernig við gátum keypt danskar þjóðargersemar

Bréf Kristjáns í Börsen í dag Fjölskyldufaðirinn og stjórnarformaðurinn Kristján Gíslason, segir í opnu bréfi til forsætisráðherra Danmerkur í danska fjármálablaðinu Börsen í dag, að Íslendingar skilji ekki af hverju Danir lyfta ekki litla fingri til hjálpar frændþjóð sinni. Íslendingar hafi heldur ekki skilið hvernig Íslendingar eignuðust þjóðargersemar í Danmörku.

 


16.mar. 2010 - 08:04

Fjármálaráðuneytið: Bankahrunið jók skuldir ríkisins um 866 milljarða króna

Heildarskuldir ríkissjóðs næstum fjórfölduðust við bankahrunið. Þær voru 310 milljarðar króna árið 2007 og fóru í 1176 milljarða 2009. Heildarskuldir ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu voru 78% í lok árs 2009.
15.mar. 2010 - 20:02

Félagsmálaráðherra: Auðvelda þarf fólki að sleppa undan skuldum sem það ræður ekki við

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir nauðsynlegt að gera fólki auðveldara að sleppa undan þeim skuldum sem það ræður ekki við að greiða. Hann segir fyrirtækin sem lánuðu almenningi fyrir bílakaupum hafa afgreitt lánaumsóknir á örfáum mínútum og aldrei tekið mið af greiðslugetu lánþegans, því eigi fyrirtækin að axla sína ábyrgð.
15.mar. 2010 - 20:00 Ólafur Arnarson

Hugleiðingar vegna orða Jurshevskis

Það er hörmulegt að einu og hálfu ári eftir hrunið skuli íslensk stjórnvöld og Seðlabanki Íslands enn vera stærsta raunverulega efnahagsvandamál Íslands. Stefna stjórnvalda og Seðlabankans stendur í vegi fyrir endurreisn íslensks atvinnulífs og án endurreisnar atvinnulífsins munu tekjur ríkisins halda áfram að skreppa saman.
15.mar. 2010 - 19:12

Breska fjármálaeftirlitið kærir hjón fyrir innherjasvik: Eftirlitið aukið til mikilla muna

Breska fjármálaeftirlitið hefur eflt starfsemi sína til muna undanfarna mánuði. Breska fjármálaeftirlitið hefur ákært hjón fyrir innherjasvik sem áttu sér stað á árunum 2000 - 2009. Eiginmaðurinn starfaði í breskum fjárfestingarbönkum á þessum árum og er grunaður um að hafa nýtt sér upplýsingar sem hann fékk vegna starfs síns til að hagnast á hlutabréfakaupum. Maðurinn vann í nokkur ár hjá Dresdner Capital en síðasta árið hjá fjárfestingarbankanum Shore Capital.
15.mar. 2010 - 17:33

Hollendingar bíða eftir Íslendingum í Icesave: Við erum tilbúnir - hvar eru tillögurnar?

Jan Kees de Jager og Steingrímur J. eru sammála um að boltinn sé hjá Íslandi Ekki stendur á Hollendingum og Bretum að hefja viðræður að nýju við Íslendinga um lausn á Icesave-málinu. Hins vegar sé enn beðið eftir tillögum frá Íslandi.
15.mar. 2010 - 16:44

William Fall fyrrverandi forstjóri Straums: Ráðinn í lykilstöðu hjá Royal Bank of Scotland

William Fall, fv. forstjóri Straums. William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, hefur verið ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland. Er Fall ætlað að æðsti yfirmaður alþjóðasviðs samsteypunnar (e. Global Head of Financial Institutions Group).
15.mar. 2010 - 16:21

Bensínhækkanir: Engin mótmælir nú en allt varð vitlaust þegar lítrinn fór yfir 150 kr

Dropinn þykir dýr og þykir mörgum nóg um. Það hefur varla farið framhjá neinum manni að bensínlítrinn er í dag kominn yfir 200 krónur á flestum bensínstöðvum landsins. Öfugt við það sem gerðist árið 2000, þegar lítrinn fór fyrst yfir 100 krónur, hefur lítið örlað á kröfum um lækkaðar álögur. Meðal þeirra sem létu hæst heyra í sér á þeim tíma var núverandi forsætisráðherra.
15.mar. 2010 - 15:37 Kaffistofan

Innanhúsnýting í Rétti

Það þarf oft ekki að leita langt yfir skammt og stundum er styttra í tengingarnar en menn halda.  Það kemur vel fram í sjónvarpsþættinum Rétti.
15.mar. 2010 - 15:09

Wikileaks: Birtir kröfuhafaskrá Kaupþings í heild sinni - boðar frekari birtingu trúnaðargagna

Upplýsingaveitan Wikileaks birtir í dag 512 blaðsíðna kröfuhafalista Kaupþings og boðar um leið að frekari birting trúnaðargagna sé væntanleg.
15.mar. 2010 - 12:55

Stendur hrunskýrslan ekki undir væntingum? Stjórnsýsluúttekt en ekki neinn Stóridómur

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.
15.mar. 2010 - 11:47

Stjórnmálafræðingur: Heitir það ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsað af fólki í skjóli nætur?

Eiríkur Bergmann stjórmálafræðingur, segir að hann sjái ekki betur en að skuldir almennings hafi átt að lækka við niðurfærslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Féð sé hins vegar notað til að fella niður skuldir óreiðumanna. Hann spyr hvort það heiti ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsa af fólki nánast í skjóli nætur.
15.mar. 2010 - 10:08

Félagsmálaráðherra: Græði skuldari meira á dómi um bílalán en lögum, þá gildir dómurinn

Félagsmálaráðherra segir stjórnvöld gæta hagsmuna skuldara í landinu Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra vísar á bug ásökunum Samtaka lánþega um að hann gangi erinda fjármögnunarfyrirtækja. Stjórnvöld láti hvorki lánþega njóta lakari kjara en þeir geti fengið með hjálp dómstóla né ívilni eignaleigum á nokkurn hátt.
15.mar. 2010 - 09:58 Kaffistofan

Eva María vill bænaskjal gegn auglýsingum

Hátt hlutfall tekna Ríkisútvarpsins kemur af sölu og birtingu auglýsinga og er óhætt að segja að auglýsingarnar standi undir launakostnaði ófárra starfsmanna stofnunarinnar. Samt virðist talað gegn auglýsingum...
15.mar. 2010 - 08:53

Sýngin Netið 2010: Vísir að árshátíð netfyrirtækja að ári sem verður enn stærri í sniðum

Liðsmenn Allra átta fengu verðlaun fyrir glæsilegasta básinn á sýningunni. Stórsýningin Netið 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind varð upptakturinn að árshátíð fyrirtækja á íslenskum netmarkaði sem haldin verður að ári liðnu. Þúsundir gesta lögðu leið sína á sýninguna um helgina.
15.mar. 2010 - 07:50

Samtök lánþega: Lánardrottnar hagnast á hugmyndum ráðherra um niðurfærslu bílalána

Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40

Hrunskýrsla Alþingis ekki svo svört: Þeir sem þola mig ekki eiga eftir að verða svekktir

Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.
15.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"

Nú styttist óðum í að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði birt. Talsmenn nefndarinnar hafa látið í veðri vaka að skýrslan verði ansi svakaleg og mikill áfellisdómur yfir mörgum.
14.mar. 2010 - 22:08

Þrotabú Fons: Bankarnir leggi fram tryggingu til endurgreiðslu á milljarði króna til Jóns Ásgeirs

Skiptastjóri Fons vill rifta milljarðsgreiðslu frá félaginu til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22

Sigurður G.: Réttast að skoða lögmæti starfshátta og gerninga skiptastjóra Fons

Sigurður G. Guðjónsson skýtur föstum skotum að skiptastjóra í þrotabúi Fons Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02

Alþjóðlegt hagsmunasamsæri gegn þeim sem benda á að hlýnun jarðar sé staðreynd

„Ég veit það eru stór orð að tala um samsæri en ég endurtek þau þar til menn opna augun.“ Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.
14.mar. 2010 - 19:36 Sigurður G. Guðjónsson

Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund

Mogginn veitti mér þann óvænta heiður að prýða forsíðu laugardagsblaðsins – tilefnið, kaup mín á kröfu Skeljungs á hendur þrotabúi Fons. Það skal upplýst hér að þessa liðlega 200 þúsund króna kröfu  Skeljungs keypti ég á tuttugu þúsund krónur.
14.mar. 2010 - 19:26

Breytingar á skilmálum bílalána: Félagsmálaráðherra lætur hótun um lögsókn ekki aftra sér

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra Félagsmálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármögnunarfyrirtækin fari í þrot vegna tillagna hans um afskriftir bílalána. Mestu skipti að skuldurum sé gert kleift að borga af lánum sínum. Þá óttast hann ekki lögsókn.
14.mar. 2010 - 15:17

Ögmundur Jónasson: Íslendingum hjálpað á fætur en Svíar eiginhagsmunaseggir

Ögmundur Jónasson fagnar því að óréttmætri gagnrýni að utan sé svarað Ólafur Ragnar Grímsson, Össur Skarphéðinsson og Eva Joly hafa hjálpað íslensku þjóðinni af hnjánum upp á fæturna. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og sakar Svía um að hugsa um eigin hag í Icesave-deilunni.
14.mar. 2010 - 14:37

Jóhann Hauksson, blaðamaður ársins, vill verða fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðherra

Jóhann Hauksson, blaðamaður á DV, sækir um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðuneytisins Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Þrjár leiðir út úr vandanum

Finnbjörn Hermannson, formaður Samiðnar, hlýtur að eiga ummæli vikunnar.
14.mar. 2010 - 11:21

Formaður Samiðnar vill veita 80% lán til íbúðakaupa til að rétta af byggingariðnaðinn

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins átelur stjórnvöld fyrir andvaraleysi gagnvart samdrætti í byggingariðnaði. Þekking hverfi úr landi. Formaður Samiðnar vill koma hjólunum af stað með því að veita 80% lán til íbúðakaupa.

Pressupennarnýjast frh.
Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Baldursdóttir - 15.3.2010
Stam, máltruflun sem getur skaðað sjálfsmyndina
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Unnur H. Jóhannsdóttir
Unnur H. Jóhannsdóttir - 14.3.2010
Er verkfallsvopnið orðið úrelt baráttutæki?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.3.2010
Kosningasprengja Stefáns 2007
Ágúst Borgþór Sverrisson
Ágúst Borgþór Sverrisson - 14.3.2010
Eiginkona þýskukennarans
Magnús Orri Schram
Magnús Orri Schram - 13.3.2010
Uppstokkun í ríkisstjórn
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Sverðaglamur innan stjórnarinnar
Róbert Trausti Árnason
Róbert Trausti Árnason - 11.3.2010
Land bókarinnar
Þóra Helgadóttir
Þóra Helgadóttir - 11.3.2010
Breytt neyslumynstur
Birkir Jón Jónsson
Birkir Jón Jónsson - 10.3.2010
Ögmundi svarað
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit