30. maí 2012 - 16:43
Icelandair Group bætir við rúmlega eitt þúsund starfsmönnum í sumar: Fleiri en nokkru sinni
Alls eru rúmlega eitt þúsund starfsmenn að koma til starfa hjá fyrirtækjum innan Icelandair Group samstæðunnar um þessar mundir, meiri fjöldi en nokkru sinni fyrr á vormánuðum. Í heild verða starfandi innan raða Icelandair Group um 3.300 starfsmenn yfir háannatímann. Langflestir, eða um 3.100 munu starfa á Íslandi, en um 200 eru hjá starfsstöðvum félagsins erlendis. Mjög stór hluti þeirra starfsmanna sem hefja störf nú á vormánuðum eru nemendur í skólum landsins og allstór hópur hefur unnið hjá félaginu áður. Stöðugildi á ársgrundvelli eru um 2500.
“Starfsemi innan félagsins hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum þremur árum og er nú umfangsmeiri en áður í 75 ára sögu félagsins. Sú atvinnugrein sem við erum í, flugið og ferðaþjónustan, er mjög atvinnuskapandi. Starfsmennirnir munu hafa mikið að gera í sumar. Margir hafa starfað hjá okkur áður yfir háannatímann og koma með þekkingu og reynslu með sér. Aðrir eru að byrja. Þeir fá mikla þjálfun og fræðslu áður en þeir hefja störf og síðan starfsreynslu sem er mikilvæg fyrir framtíðaruppbyggingu greinarinnar”, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Innan Icelandair Group eru Icelandair, IGS, Icelandair Hotels, Icelandair Cargo, Flugfélag Íslands, Vita, Iceland Travel, Fjárvakur og Loftleiðir.
Af heildarfjölda starfsmanna Icelandair Group starfa flestir hjá Icelandair, alls um 1600 í sumar og eru fjölmennustu stéttirnar flugfreyjur og- þjónar, flugvirkjar og flugmenn. Í vor bætast við um 350 starfsmenn hjá Icelandair.
Hjá flugþjónustunni á Keflavíkurflugvelli, IGS, starfa í sumar 620 starfsmenn og eru um 240 þeirra sumarstarfsmenn. Hjá tækniþjónustu félagsins á Keflavíkurflugvelli, sem heyrir undir Icelandair, starfa í sumar um 350 manns. Einnig eru starfandi á Keflavíkurflugvelli starfsmenn í stjórnstöð Icelandair, auk annarra fyrirtækja samstæðunnar, s.s. Icelandair Cargo. Þannig starfa tæplega eitt þúsund starfsmenn Icelandair Group á Keflavíkurflugvelli í sumar.
Starfsmannafjöldi í hótelrekstri samstæðunnar tvöfaldast næstum yfir sumarið. Nýlega var opnað nýtt miðbæjarhótel í Reykjavík, Icelandair Hotel Reykjavik Marina, og Edduhótelin eru að opna allt í kringum landið um þessar mundir. Á heilsárshótelum í Reykjavík, Akureyri og á Héraði eru um 370 starfsmenn allt árið og þar fjölgar um 150 nú á vormánuðum. Um 200 manns eru síðan að koma til starfa á Edduhótelunum, þannig að heildarstarfsmannafjöldi hótelanna í sumar verður rúmlega 700 manns
Hjá Flugfélagi Íslands starfa tæplega 240 manns og fjölgar um 40 nú í vor. Þetta er meiri fjöldi en á undanförnum árum og skýrist það einkum af miklum vexti í Grænlandsflugi félagsins.
Hjá Icelandair Cargo, Fjárvakri, Iceland Travel, Vita og Loftleiðum starfa samtals 200 manns og er tiltölulega lítil árstíðabundin aukning í starfsemi þessara félaga þó þar fjölgi samtals um nokkra tugi.
Þessi aukna starfsemi Icelandair Group hefur í för með sér aukin umsvif í greininni um allt land. Í niðursstöðum rannsóknarfyrirtækisins Oxford Economics á efnahagslegu mikilvægi flugsamgangna á Íslandi frá síðasta vetri kom fram að árleg verðmætasköpun hvers starfsmanns í flugþjónustu á Íslandi er 16 milljónir króna. Það er u.þ.b. 1,7 sinnum meira en meðaltalið á Íslandi, sem er 9,2 milljónir króna. Þá kom fram í sömu könnun, sem kynnt var í vetur, að flugreksturinn hefur mikil áhrif á efnahagslífið í landinu og stendur undir tæplega 13% landsframleiðslu, ef reiknað er með framlagi greinarinnar til ferðaþjónustunnar og við hana starfar 12,3% af heildarvinnuafli landsins.
22.maí 2013 - 14:36
Ruth Ásdísardóttir
Það má með sanni segja að ævintýralegir hlutir séu að gerast í lífi Gunnars Andra og eftir aðeins nokkurra mínútna spjall, er blaðamaður orðinn fullur eldmóðs vegna verkefnanna sem bíða hans. En, skemmst er frá því að segja að hann er að gefa út bók í samvinnu við
Brian Tracy, sem þarf að sjálfsögðu ekki að kynna. Bókin er væntanlega í september á þessu ári og heitir
Against the Grain.
21.maí 2013 - 18:05
Leiðtogar allra aðildarríkja ESB hittast á morgun á fundi í Brussel. Á dagskrá fundarins er að komast að samkomulagi um nýjar aðgerðir gegn skattsvikum.
17.maí 2013 - 12:30
Tugir gesta sækja einkasamkvæmi sem Björgólfur Thor Björgólfsson heldur á Fríkirkjuvegi 11 í dag. Á meðal gesta er efnahagsráðgjafi Baracks Obama, Bandaríkjaforseta.
16.maí 2013 - 23:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hvetur fjármálaráðuneytið til að birta fyrirliggjandi upplýsingar um stöðu ríkisfjármála. Hann segir ráðherra fráfarandi ríkisstjórnar segja allt annað í dag en þeir gerðu fyrir kosningar.
16.maí 2013 - 12:30
Útlit er fyrir gríðarlega uppbyggingu í Grænlandi á næstu árum og áratugum og svo gæti farið að landsframleiðsla þessa nágranna okkar í norðri verði orðin meiri en á Íslandi þegar fram líða stundir. Ísland gæti hagnast vel á þessum uppgangi.
16.maí 2013 - 08:00
DUST 514 sem framleiddur er af íslenska fyrirtækinu CCP fyrir Playstation 3 er kominn út. Um er að ræða skotleik sem gerist í sama sýndarheimi og fjölspilunarleikurinn EVE Online, sem fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Áskrifendur hans í dag rúmlega 500.000. Ljóst er að með tilkomu DUST 514 stækkar EVE heimurinn umtalsvert. Leikurinn er ókeypis.
15.maí 2013 - 08:00
Um helgina kom til landsins bílaflutningaskip með 300 nýjum Chevrolet bílum fyrir Bílabúð Benna. Mörg ár eru síðan að flutningaskip kom til landsins aðeins hlaðið bílum.
13.maí 2013 - 17:30
Seðlabanki Íslands hefur miklar áhyggjur af bólumyndun á hlutabréfamarkaði í ljósi gífurlegrar umframeftirspurnar í hlutafjárskráningu VÍS og TM. Forstjóri síðarnefnda fyrirtækisins gagnrýnir aftur á móti vaxtastefnu Seðlabankans.
13.maí 2013 - 09:23
Norvik, sem rekur meðal annars fjölmargar smásöluverslanir á Íslandi, hefur tekið í notkun Rent A Prent, sem er umhverfisvæn prentþjónusta frá Nýherja. Einungis fimm prenttæki verða notuð á aðalskrifstofu Norvikur og Kaupáss á Bíldshöfða í stað 30 prentækja áður.
11.maí 2013 - 20:30
Einhversstaðar verða þeir ríku að búa og ef þig langar til að vita í hvaða borgum milljónamæringar vilja helst búa þá hefur Wealt Insight tekið saman lista yfir þær tíu borgir þar sem flestir milljónamæringar búa en auður þeirra er mældur í dollurum.
11.maí 2013 - 19:30
Friðrik Baldursson, prófessor í hagfræði og forseti Viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, segir það undarlegt að hæst beri í gagnrýni á tillögur Samráðsvettvangs um aukna hagsæld, að þeir sem hafi unnið að þessu kunni á Excel. „Þetta hefur þótt mikill ljóður á ráði manna hin síðari ár og þá sérstaklega hagfræðinga,“ segir Friðrik.
11.maí 2013 - 16:00
Leiðrétta þarf skuldir heimila, auka erlenda fjárfestingu í landinu, hækka menntunarstig á vinnumarkaði og ná nýrri þjóðarsátt með atvinnurekendum og verkalýðshreyfingunni, að mati Rúnólfs Ágústssonar lögfræðings, formanns stjórnar atvinnuleysistryggingasjóðs og fyrrverandi rektors. Eyjan hefur beðið hann og fleiri álitsgjafa úr þjóðfélaginu að setja á blað hver þau telja vera brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
11.maí 2013 - 15:46
Seðlabankinn virðist kominn með kröfuhafa gamla Landsbankans í nokkurs konar spennitreyju með því að svara ekki beiðni slitastjórnar bankans um undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál svo að hægt verði að greiða yfir 200 milljarða í erlendum gjaldeyri til forgangskröfuhafa.
10.maí 2013 - 18:00
Á næstunni mun bandaríska alríkisstjórnin fá ávísun frá húsnæðislánastofnuninni Fannie Mae upp á 59,4 milljarða dollara sem eru um 6.600 milljarðar íslenskra króna. Þetta er greiðsla vegna inngripa alríkisstjórnarinnar í rekstur Fannie Mae í september 2008 þegar yfirstandandi efnahagskreppa hófst.
10.maí 2013 - 12:37
Umhverfissjóður Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka, hefur veitt tveimur verkefnum styrki, samtals að fjárhæð 1 milljón króna. Styrkirnir eru veittir árlega til að styðja við frumkvöðlaverkefni á sviði umferðar- og umhverfismála. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum.
10.maí 2013 - 09:00
Hópur glæpamanna náði að svíkja stórar fjárhæðir út úr hraðbönkum víða um heim í tveimur vel skipulögðum aðgerðum í desember og febrúar síðastliðnum.
08.maí 2013 - 15:30
Sverrir S. Sverrisson hefur kært Ólaf Helga Kjartansson til lögreglu fyrir brot í starfi. Sverrir segir að þann 4. apríl hafi hjá embætti sýslumannsins á Selfossi verið tekin fyrir beiðni um nauðungarsölu sem hafði borist frá Arion banka og beindist gegn eign Sverris í Grímsnesinu þar sem hann hefur búsetu.
08.maí 2013 - 14:15
25% prósent starfsmanna íslenskra fyrirtækja eru óvirkir í starfi. Slíkir starfsmenn eru óánægðir, sjá fyrirtækið ekki fyrir sér sem framtíðar vinnustað, skapa úlfúð og finna sig ekki í starfi.
08.maí 2013 - 10:00
Hópur Kínverja leitar leiða til að fá aðgang að jörð í Reykjadal í Þingeyjarsveit til 33 ára. Þar ætla þeir að byggja fjölda húsa og stunda Norðurslóðarannsóknir.
08.maí 2013 - 08:45
Alex Ferguson, stjóri Manchester United og sigursælasti knattspyrnustjóri í sögu ensku knattspyrnunnar, mun láta af störfum eftir leikinn gegn WBA þann 19. maí nk. Þá mun hann taka sæti í stjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnufélaginu.
08.maí 2013 - 07:00
Það var fyrir rétt rúmum 40 árum, árið 1971, sem hópur spámanna hittist og sat á rökstólum tvö kvöld og velti fyrir sér hvernig yrði umhorfs hér á landi árið 2000. Niðurstaðan birtist síðar í blaðinu Samvinnu. Einn þátttakenda var Steingrímur Hermannsson en þar voru líka Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Svava Jakobsdóttir skáldkona.
07.maí 2013 - 21:30
Fríverslunarsamningur Kanada og Evrópusambandsins er á lokastigum og er embættismenn í Brussel þegar farnir að beina athygli sinni að fyrirhuguðum viðræðum við Bandaríkin.
07.maí 2013 - 17:00
Í apríl síðastliðnum hækkaði raungengi íslensku krónunnar um 5,3% frá fyrri mánuði á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Er þetta þriðji mánuðurinn í röð sem raungengi krónunnar þróast í þessa átt og stendur það nú í 81 stigi, sem er hæsta gildi þess frá því í september árið 2008.
07.maí 2013 - 12:00
„Hvernig stendur á því, í ljósi alls þess sem að ofan greinir, að það hafa verið hægrimenn sem hafa barist fyrir stóriðju en vinstrimenn gegn henni? Er þetta ekki allt saman einn stór misskilningur? “ spyr formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna sem hvetur forystunna til að láta af stóriðjustefnunni.
06.maí 2013 - 19:30
„Ef eitthvað verður æ skýrar og liggur ljósar fyrir þá er það að því miður eru verstu svartsýnisspár um undirliggjandi raunástand íslenska hagkerfisins ansi nærri lagi,“ segir hagfræðingur sem segir að efnahagsbatinn á Íslandi hafi verið stórlega ofmetinn. Þörf sé á róttækum aðgerðum sem fela meðal annars í sér að gengi krónunnar verði látið falla.
05.maí 2013 - 23:13
Hefur einhver gott ráð hvernig ég get endað þessa vitleysu núna, þarf ég að láta gera mig gjaldþrota á Íslandi eða er eitthvað annað hægt að gera?
05.maí 2013 - 17:00
Fjöldi atvinnulausra í Danmörku hefur verið á niðurleið undanfarna mánuði og í tölum sem voru birtar í morgun kemur fram að enn hafi dregið úr atvinnuleysi og hefur það ekki verið minna síðan í desember 2009.
04.maí 2013 - 12:30
Nóg er til af lúxushúsnæði í landinu og þeir sem eiga frá 100 til 200 milljónir aflögu til fasteignakaupa eru í góðum málum. Sala á dýrari fasteignum er komið á svipað ról og var fyrir bankahrun og þá virðist ríkja nokkur bjartsýni hjá hluta þjóðarinnar eftir kosningarnar.
03.maí 2013 - 09:15
Kia Motors mun kynna nýjan Kia Carens á Bílasýningunni í Fífunni um næstu helgi. Þetta er þriðja kynslóð bílsins en bíllinn er mikið breyttur og raunar byggður á nýjum grunni miðað við forverana. Suður-kóreski bílaframleiðandinn hefur á undanförnum tveimur árum sent frá sér hvern endurhannaðan bílinn á fætur öðrum sem hannaðir eru af Þjóðverjanum Peter Schreyer og tekist vel til.
02.maí 2013 - 17:48
Sigmundur Davíð fékk sem kunnugt er, umboð til stjórnarmyndunar frá forseta Íslands sl. þriðjudag. Hann hefur ekkert tjáð sig um stöðu mála fyrr en nú, að hann greinir Eyjunni frá stöðu mála.
02.maí 2013 - 16:00
Rúmlega 280 þúsund manns fylgdust með í beinni útsendingu úr Hörpu þegar tíu ára afmæli EVE tölvuleiksins var fagnað í Reykjavík sl. helgi. Hátíðin vakti mikla athygli og hinir fjölmörgu gestir eyddu meira en 400 milljónum í ferðir og dvöl hér á landi. Rúmlega hálf milljón manna spilar tölvuleikinn EVE Online.
02.maí 2013 - 12:00
Eftir fimm ár munu spjaldtölvur eins og iPad og Samsung Galaxy Note ekki lengur vera að finna í hillum verslana því notendurnir munu í auknum mæli nota snjallsíma í stað spjaldtölva og fartölva.
02.maí 2013 - 08:00
Chevrolet Camaro Z/28 árgerð 2014 olli talsverðu uppnámi á bílasýningunni í New York á dögunum þar sem bíllinn var frumsýndur. Camaro kom upphaflega á markaðinn 1967 og var sérstaklega hannaður til hraðaksturs á vegum. Hann var léttbyggður og lipur og einstaklega aflmikill bíll. Nýr Camaro býr yfir öllum sömu eiginleikunum og hvert smáatriði er hannað til að skapa honum sess sem magnaðasta Camaro sögunnar.
01.maí 2013 - 11:30
Margir þeirra sem hafa ferðast til Bandaríkjanna kannast við langar raðir í flugstöðvunum þar sem afgreiðsla innflytjendaeftirlitsins þar í landi getur tekið langan tíma. Þó að allt gangi samkvæmt áætlun og flugið sé á áætlun til Bandaríkjanna og jafnvel þrír tímar í brottför tengiflugsins er ekki öruggt að það dugi fólki til að ná tengifluginu þar sem svo langur tími getur farið í að bíða eftir afgreiðslu innflytjendaeftirlitsins.
01.maí 2013 - 09:46
CLARA ehf. íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur verið selt til bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Jive Software Inc. Kaupverðið er meira en milljarður íslenskra króna. Jive framleiðir hugbúnað sem heldur utan um netsamfélög fyrirtækja, fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini. Helstu samkeppnisaðilar þess eru IBM og Microsoft. Verðmæti Jive er rétt um 1 milljarður bandaríkjadala.
30.apr. 2013 - 18:00
Vörukarfan hefur hækkað milli mælinga samkvæmt athugun verðlagseftirlits ASÍ. Síðasta mæling var framkvæmd um miðjan mars og við athugun um miðjan mánuðinn kom í ljós að verð hafði hækkað hjá níu verslunum en lækkað hjá sex. Þá bendir ASÍ að gengi krónunnar hafi styrkst umtalsvert en það virðist ekki skila sér í miklum mæli til neytenda.
30.apr. 2013 - 08:25
Icona er fyrirtæki í Shanghæ sem fyrst og fremst sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir hinn vaxandi bílaiðnað í Kína. Fyrirtækið ákvað að taka þátt í sjálfri bílaframleiðslunni og leitaði til bílahönnuðarins Samuel Chuffart sem áður hefur starfað fyrir Jaguar og Nissan. Markmiðið var að skapa bíl þar sem færu saman fagurfræðileg nálgun og mikið afl.
29.apr. 2013 - 08:00
Citroen hefur sent frá sér fyrstu myndirnar af stórglæsilegum jeppa, DS Wild Rubis, sem nú er einnig sýndur í hugmyndabílsformi á bílasýningunni í Sjanghæ í Kína.
25.apr. 2013 - 13:15
Norska flugfélagið Norwegian hefur í hyggju að flytja skráningu hluta flugflotans frá Noregi til Írlands til að lækka launakostnað fyrirtækisins. Með því að skrá flugvélarnar á Írlandi getur Norwegian ráðið starfsfólk á svipuðum kjörum og tíðkast í Asíu og lækkar það launakostnað flugfélagsins mikið.
24.apr. 2013 - 16:29
Ruth Ásdísardóttir
Fjölskyldufyrirtækið Indiska hefur nýjan kafla í 112 ára viðskiptasögu sinni með því að opna sína fyrstu verslun á Íslandi, í Kringlunni, 8. maí næstkomandi. Indiska er sænskt fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1901 og rekur nú 90 verslanir í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Indiska býður uppá fjölbreytt vöruúrval af fatnaði, skartgripum, margskonar húsbúnaði og húsgögnum í sínum eigin stíl - Bohemian Modern.
22.apr. 2013 - 12:25
CCP hf. og Háskólinn í Reyjavík hafa undirritað samstarfsamning um að stórefla kennslu og rannsóknir í tölvuleikjagerð á Íslandi. Samkvæmt samningnum kostar CCP nýja stöðu prófessors við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík sem mun sinna bæði rannsóknum og kennslu í faginu. Samningurinn er til fimm ára.
22.apr. 2013 - 10:23
Ruth Ásdísardóttir
Nóta er nýtt fyrirtæki sem var stofnað í lok árs 2012. Fyrirtækið var stofnað, með lítil og meðalstór fyrirtæki í huga sem vilja senda út löglega reikninga á hraðan og þægilegan hátt, fá þá greidda hratt og vel og hafa betri yfirsýn og skipulag á fjármálunum. Atli Rafn Viðarsson, framkvæmdastjóri Nótu var áður markaðsstjóri hjá Tali og stofnaði Nótu ásamt VIRTUS í lok síðasta árs. Heimasíðan Nóta.is fór síðan í loftið í byrjun febrúar og hafa viðtökurnar verið mjög góðar. Pressan tók Atla tali og spurði hann aðeins út í þessa nýjung.
21.apr. 2013 - 20:46
Mikilvægt er að semja um aflandskrónueign erlendra aðila, svonefnda snjóhengju, á sama tíma og þrotabú gömlu bankanna verða gerð upp. Þetta sagði Róbert Wessman, forstjóri bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen í Silfri Egils í dag, en hann sat þar fyrir svörum hjá Agli Helgasyni í tilefni þess að Róbert hefur ásamt um fimmtíu manna hópi fólks úr ýmsum áttum sett á laggirnar vefsíðuna snjohengjan.is, þar sem stjórnmálamenn eru hvattir til að setja úrlausn þessara mála í forgang strax eftir kosningar.
17.apr. 2013 - 14:03
Sveitarfélagið Fjarðabyggð og Nýherji hafa skrifað undir áframhaldandi samstarf til þriggja ára um rekstur upplýsingatæknikerfa bæjarfélagsins. Í því felst að Nýherji mun áfram reka öll miðlæg tölvukerfi Fjarðabyggðar og sinna notendaþjónustu við starfsfólk bæjarfélagsins. Samhliða þessu hafa flest lykiltölvukerfi Fjarðabyggðar verið endurnýjuð og breidd þeirrar þjónustu sem Nýherji veitir bæjarfélaginu verið aukin.
17.apr. 2013 - 12:08
OZ ehf. er nýtt sprota- og hugbúnaðarfyrirtæki sem mun brátt bjóða Íslendingum að upplifa sjónvarp á nýjan máta á öflugu dreifikerfi fyrirtækisins.
17.apr. 2013 - 08:00
Í auglýsingablaði Elko sem barst í póstkassa á höfuðborgarsvæðinu fyrir skömmu kemur fram að Elko hefur hafið sölu á rafbílnum Nissan Leaf. Þetta er í fyrsta sinn á Íslandi sem verslunarkeðja hefur sölu á bílum.
16.apr. 2013 - 15:10
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, leggur til að bankarnir verði látnir borga 15 milljarða króna í árlegan skatt á hagnað sinn í fimm ár. Þannig megi leiðrétta skuldir heimila, lækka skuldir ríkissjóðs og afnema gjaldeyrishöft. Tilboðið leggur hann í hendur formanns Framsóknarflokksins.
16.apr. 2013 - 10:18
Kjölfesta hefur keypt 30% hlutafjár í afþreyingarfyrirtækinu Senu ehf., ásamt dótturfélögum Senu.
15.apr. 2013 - 08:56
6 hjúkrunarheimili hafa að undanförnu tekið í notkun Sögu sjúkraskrárkerfi, hugbúnaðarlausn frá TM Software. Þau eru Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Droplaugarstaðir, Seljahlíð, Fellsendi og Ísafold í Garðabæ. Fjögur fyrstu hafa lokið innleiðingu en unnið er að innleiðingu hjá hinum.
13.apr. 2013 - 14:00
Carlsberg samsteypan er ein af stærstu fyrirtækjasamteypunum í Danmörku og margir hafa talið að í krafti stærðarinnar hafi Carlsberg haft góð tök á verslunum í heimalandinu. En nú mætir Carlsberg óvæntu mótlæti í samskiptum sínum við Coop sem rekur um 1.200 verslanir í Danmörku undir nöfnunum Kvickly, SuperBrugsen, Dagli‘Brugsen, Fakta og Irma.