13. ágú. 2010 - 15:39
Fyrrverandi organisti um Ólaf Skúlason: Haldinn kynferðislegri löngun sem kom fram í óeðli
Fyrrverandi organisti Bústaðakirkju, þar sem Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup gegndi prestsembætti, segist hafa gengið inn á Ólaf þar sem hann lá ofan á ungri stúlku sem augljóslega var útgrátin. Hann segist hafa orðið sálusorgari Ólafs sem hafi verið haldinn mikilli kynferðislegri þrá eða löngun sem komið hafi fram í óeðli.
Þetta kemur fram í bréfi sem Birgir Ás Guðmundsson, organisti í Bústaðakirkju um fjögurra ára skeið, bað um að yrði komið í hendur kirkjuráðs. Pressan hefur bréfið undir höndum og hefst þá á þeim orðum að frásögn sín sé sannleikanum samkvæm. Hann vitnar um að hafa verið nánasti samstarfsmaður séra Ólafs, sem hafi haft skrifstofu í kirkjunni, hvert Birgir átti oft erindi vegna ýmissa mála. Oft fyrirvaralaust. Í eitt slíkt skipti hafi skrifstofan þó ekki verið mannlaus.
Þegar ég kem inn sé [ég] hvar liggur ung og falleg stúlka milli tvítugs og þrítugs á bedda, sem þar, var og Ólafur ofan á henni. Þó var vinstri fótur hans ofan á gólfi. Stúlkan var fremur klæðlítil í brúnleitum stuttum kjól. Háralitur var dökkur, þá ekki svartur.Hún var útgrátin. Ólafur reis snöggt upp við innkomu mina og var lausgirtur. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, en prestur brást hinn versti við og vandað mér ekki kveðjunar fyrir að ryðjast svona inn.
Birgir segir í bréfi sínu til kirkjuráðs að Ólafur hafi oft átt mjög erfitt með að hemja skap sitt.
En hann gat mjög fljótt og áreynslulaust brugðið sér í auðmjúkan prest og veitt hlutaðeigandi huggun eins og góður leikari. Ég varð oft vitni að því. Mér hefur allar götur síðar þótt þetta mjög undarlegt,svo ekki sé nú meira sagt.
Hann segir að hann hafi talið sjálfum sér trú um að Ólafur hefði verið að hugga stúlkuna, til dæmis eftir dauðsfall.
Mörgum árum síðar,eða þegar kvennamál Ólafs komust í hámæli, kom hann til mín næstum daglega í meðferð. Gerðist ég nokkurs konar sálusorgari hans.
Hann var mjög tættur og augnráðið ógnvekjandi og kannski ekki undarlegt eftir þær miklu ásakanir sem á hann voru bornar.
Birgir segist bundinn trúnði um það sem þeim fór á milli, en hann viti þó ýmislegt.
Eitt get ég þó sagt hann að hann var haldinn mikilli kynferðislegri þrá eða löngun sem kom fram í óeðli.
Samkvæmt heimildum Pressunnar hefur kirkjuráð þetta bréf undir höndum, en þetta varðar ekki þau fjögur kynferðismál sem þegar hafa komið fram í dagsljósið, heldur er hér um nýtt mál að ræða, enn eldra en fjögur hin fyrri.
23.maí 2012 - 10:10
Arion banki hagnaðist um 4,5 milljarða króna fyrstu þrjá mánuði ársins eftir skatta samanborið við þriggja milljarða kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans er því 1,5 milljarður kr. á mánuði það sem af er ári.
23.maí 2012 - 07:00
Fimmta hvert mál sem FME sendi sérstökum saksóknara eftir bankahrun hefur nú þegar verið fellt niður. Óvíst er um niðurstöðu í 76% málanna. Ákært hefur verið í 4 málum af 83 alls eða 5%.
22.maí 2012 - 20:00
Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 15:00
Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.
22.maí 2012 - 14:10
Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.
22.maí 2012 - 12:11
„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29
Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.
22.maí 2012 - 07:45
Ríkisolíufélag Noregs, Statoil, leggur nú mesta áherslu á aukna nýtingu úr þeim olíusvæðum þar sem vinnsla fer fram. Frá árinu 2010 til 2011 jókst nýtingin úr 49% í 50%. Þetta virðist lítil aukning en hún skilaði samt gríðarlegum verðmætum í ríkiskassann norska.
21.maí 2012 - 18:43
Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 15:00
Verð á hlutabréfum í Facebook féll um 12% frá upphaflegu sölugengi þegar Nasdaq markaðurinn opnaði í dag. Upphaflegt gengi var 38 dollarar á hlut en strax við upphaf viðskipta féll það niður í 33,28 dollara.
21.maí 2012 - 11:30
Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.
21.maí 2012 - 10:33
Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.
20.maí 2012 - 19:27
Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.
20.maí 2012 - 11:39
Tölvufyrirtækið Google hefur tilkynnt um nýja breytingu á hinni geysivinsælu leitarvél sinni. Með aukinni gervigreind og nýjungum í forritun er hugmyndin að koma með leitarvél sem muni geta hugsað meira eins og manneskja.
20.maí 2012 - 10:36
Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
19.maí 2012 - 15:30
Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45
Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
18.maí 2012 - 18:00
Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth.
18.maí 2012 - 16:00
Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.
18.maí 2012 - 12:00
Nýr efnisþáttur, Bílapressan, hefur göngu sína á Pressunni á hádegi í dag. Eins og nafnið gefur til kynna verður þar fjallað um bíla og bílatengt efni út frá sjónarmiðum bíleigenda og bílkaupenda.
18.maí 2012 - 09:05
Það sem af er máímánuði er álagning olíufélaganna á bensín 6-7 krónum yfir meðalálagningu síðustu ára aðteknu tilliti til vísitölu neysluverðs og gengis dollars gagnvart krónunni.
18.maí 2012 - 07:55
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, hringir bjöllunni þegar Nasdaq markaðurinn opnar í. Ástæðan er sú að Facebook er loks að fara á markað og það fyrir metfé. Zuckerberg og félagar meta fyrirtækið á 104 milljarða dollara, 13 þúsund milljarða króna.
17.maí 2012 - 19:46
Evrópa er á barmi efnahagshruns sem kann að hafa víðtækar afleiðingar um allan heim, svo sannarlega líka hér á landi. Forsætisráðherra segir dómsdag nálgast; Grikkland er stjórnlaust og þar líkt og á Spáni óttast menn víðtæk áhlaup á banka næstu daga þar sem landsmenn vilja fremur geyma reiðufé undir koddanum en á ótraustum bankabókum fjármálastofnana sem óvíst er hvort lifa næstu daga af.
17.maí 2012 - 16:00
Svo virðist sem brandarar um óstundvísi Iceland Express eigi ekki lengur við, því ferðum félagsins til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar.
17.maí 2012 - 08:52
Fyrstu niðurstöður íslenskrar rannsóknar sem staðið hefur yfir í þrjú ár leiða í ljós tengsl útblásturs frá jarðvarmavirkjunum.
15.maí 2012 - 20:36
Róbert Wessman, stjórnarformaður bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen, leggur til að farin verði „íslensk leið“ til að örva hagvöxt í landinu og fjölga atvinnutækifærum. Jafnframt myndi losna mjög um krónustöðu erlendra aðila og ríkið spara gífurlegar fjárhæðir í vaxtagjöldum.
13.maí 2012 - 14:00
Embætti sérstaks saksóknara vinnur nú að rannsókn mála er tengjast meintri fölsun á gengi hlutabréfa í Kaupþingi. Til að fylla út í myndina hefur embættið kallað til yfirheyrslu íslenska blaðamenn sem skrifuðu um málefni bankans rétt fyrir hrunið.
12.maí 2012 - 09:00
Nýr búningur enska knattspyrnuliðsins Liverpool virðist ætla að slá öllu met. Hann fæst nú í sérstakri forsölu hér á landi fyrir stuðningsmenn liðsins.
10.maí 2012 - 16:20
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað mikið að undanförnu og það nú svipað og það var í febrúar. Lækkunin er um 12% en lækkun á bensínlítranum hérlendis frá byrjun apríl þar til nú er ekki nema um 4%.
10.maí 2012 - 14:58
Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, einn af umdeildari mönnum á Íslandi, gefur lítið fyrir gagnrýni Egils Helgasonar fjölmiðlamanns, sem segir Jóhannes hafa verið vonda gerð af kapítalista sem hafi haft kverkatak á framleiðendum og birgjum. Egill segir að það sé þjóðsaga að Jóhannes hafi verið sérstakur vildarvinur íslenskrar alþýðu. Jóhannes er hins vegar ekki af baki dottinn og opnar í sumar verslanir undir Iceland merkinu í samstarfi við Malcolm Walker.
10.maí 2012 - 13:35
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason, segir að ein sérkennilegasta þjóðsaga á Íslandi sé að Jóhannes kaupmaður sem eitt sinn var kenndur við Bónus hafi verið sérstakur vildarvinur alþýðu. Jóhannes hafi verið kapítalisti sem hafði kverkatak á framleiðendum og birgjum.
09.maí 2012 - 17:30
Fjármálaeftirlitið hefur kært 53 mál til embættis sérstaks saksóknara og vísað 33 málum til embættisins frá hruni og fram til mars 2012. Samkvæmt upplýsingum frá FME liggur ekki fyrir í hve mörgum tilvikum er um að ræða lán til tengdra aðila. Þau eru þó fjölmörg eins og upplýst hefur verið um í fjölmiðlum allt frá hruni.
09.maí 2012 - 15:35
Meðal bóka á vefuppboði Gallerí Foldar er fyrsta útgáfa af Bréfi til Láru og er bókin árituð af höfundinum, Þórbergi Þórðarsyni. Bókin er verðmetin á 180.000 krónur en viðbúið er að hún fari á enn hærra verði.
09.maí 2012 - 10:47
Rannsókn á meintu peningaþvætti íslenskra fjórmenninga er tengdust sænska félaginu Aserta AB er enn ekki lokið, 29 mánuðum eftir að rannsókn hófst, en sérstakur saksóknari segir rannsókn langt komna.
09.maí 2012 - 07:50
Jón Ásgeir Jóhannesson segist ekki vita hver standi á bak við félag í Lúxemborg sem á tæplega helmings hlut í 365 miðlum. Blaðamaður segir hlutinn tengjast fjölskyldu Jóns Ásgeirs.
08.maí 2012 - 13:16
Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður, segir slitastjórnir fjármálafyrirtækjanna eins og ræningjaflokka og löngu sé tímabært að skipta þeim út fyrir bankastjórnir sem fylgi eftir uppgjörum föllnu bankanna. Enginn hvati sé í kerfinu til að ljúka málum og hagsmunir slitastjórnanna sé að draga þau sem mest á langinn.
08.maí 2012 - 11:50
Nokkrir fyrrverandi blaðamenn af Morgunblaðinu hafa velt fyrir stofnun nýs vefmiðils í samvinnu við Brynjólf Helgason, fyrrum bankastjóra Landsbanka Íslands.
07.maí 2012 - 14:25
Um 100 þúsund Íslendingar fóru til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins sem er 6% aukning frá fyrra ári. Það er því næstum þriðja hvert mannsbarn sem hefur farið til útlanda á þessu tímabili og líklegt að um heimsmet í ferðagleði sé að ræða.
05.maí 2012 - 12:00
Verslunin Bauhaus opnaði formlega hér á landi klukkan átta í morgun, en mikill fjöldi fólks var þar saman kominn fyrir opnunarhátíð.
04.maí 2012 - 17:10
Þeir sem bíða spenntir eftir ákærum frá sérstökum saksóknara vegna lánveitinga banka til tengdra aðila gætu þurft að láta af biðinni því slík mál eru samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki afgreidd með stjórnvaldssekt sem getur numið 500.000 kr. til 50.000 kr. til lögaðila. Slíkar lánveitingar munu því ekki leiða til ákæru.