30. júl. 2010 - 17:36
Forstöðumaður Fornleifaverndar: Veitti Octopus enga heimild til þess að skoða skipsflök

Snekkjan er í eigu Pauls Allen.
Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins segir leiðangursstjóra á
snekkjunni Octopus enga heimild hafa fengið hjá stofnuninni til að kanna skipsflök við Íslandsstrendur. Áhöfn snekkjunnar hefur yfir að ráða kafbátum til þess að kanna flök neðansjávar. Í
frétt Vísis í dag kom ranglega fram að áhöfnin hafi fengið leyfi frá Fornleifavernd.
Í samtali við Pressuna sagðist Kristín Huld ekki hafa fengið að vita af þessum leiðangri og því ekki hvaða skipsflak um væri að ræða en samkvæmt fréttum í dag mun utanríkisráðuneytið hafa gefið leyfi til að kanna tiltekið skipsflak. Ráðuneytið hefur hins vegar ekki svarað því hvaða skipsflak um sé að ræða, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, né hvort ekki sé nauðsynlegt að afla fyrst leyfis Fornleifaverndar.
Segir Kristín Huld lögin skýr hvað varði skipsflök sem eldri séu en eitt hundrað ára; engum nema fornleifafræðingum sé heimilt að snerta þau og alls ekki nema með leyfi Fornleifanefndar ríkisins.
Það er alveg sama hver á í hlut, hvort sem hann heitir Paul Allen eða ekki. Í Bandaríkjunum geta menn jafnan kafað niður að skipsflökum og tekið það sem þeir vilja en ekki á Íslandi.
Benti hún á að aðeins mætti skoða flök og taka myndir af þeim en ekki snerta né taka úr þeim muni.
Það virðist alveg hafa gleymst að tala við okkur hjá Fornleifavernd. Þetta er mjög furðulegt, þetta er svo leynilegt að það gleymist að tala við yfirvöld sem hafa með málið að gera.
Pressan hafði samband við Kristínu Huld undir kvöld til að forvitnast um hvort málin hefðu skýrst en hún hafði engar frekari upplýsingar og vísaði á utanríkisráðuneytið.
Utanríkisráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum Pressunnar, svo sem áður segir. Í kvöldfréttum RÚV kom fram að flökin, sem kafbátarnir hyggjast kanna, séu yngri en 100 ára, þannig að ekki hafi þurft leyfi frá Fornleifavernd.
02.sep. 2010 - 18:31
Kaffistofan
Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 17:07
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 14:39
Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 12:18
Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49
Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:40
Kaffistofan
Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 11:34
Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:15
Kaffistofan
Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
02.sep. 2010 - 09:53
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
01.sep. 2010 - 21:26
Kaffistofan
Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 21:03
Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segist ekki vita hvaða tillögu að ráðherrabreytingum forsætisráðherra muni gera á fundi klukkan níu í fyrramálið. Formaðurinn gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin hafi jafnrétti kynjanna að leiðarljósi.
01.sep. 2010 - 19:20
Dæmdur barnaníðingur segist vita nákvæmlega hver tók Madeleine McCann, sem var rænt frá fjölskyldu sinni á sumarleyfisstað. Þeim upplýsingum kom hann fyrir í bréfi til sonar sína, áður en hann lét lífið.
01.sep. 2010 - 18:29
Boðað hefur verið til skyndifundar bæði í þingflokki og flokksstjórn Samfylkingarinnar vegna breytinga á ríkisstjórninni.
01.sep. 2010 - 18:02
Ríkisráðsfundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun, 2. september.
01.sep. 2010 - 12:24
Samkvæmt heimildum Pressunnar verður Guðbjartur Hannesson gerður að ráðherra velferðarmála í nýju ráðuneyti. Árni Páll Árnason verður þá efnahags- og viðskiptaráðherra. Kynjahlutföll gætu valdið ólgu meðal kvenna innan stjórnarflokkanna.
01.sep. 2010 - 09:54
Uppstokkun ríkisstjórnarinnar er tilraun leiðtoga stjórnarflokkanna til að fá laskaða ríkisstjórn til að virka, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hluti af áætluninni er að fá Ögmund aftur inn í ríkisstjórn til að friða órólegu deildina svokölluðu.
01.sep. 2010 - 09:32
Kaffistofan
Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
01.sep. 2010 - 07:31
Jóhanna Sigurðardóttir, forsæstisráðherra, átti fund með hinum og þessum ráðherrum fram á nótt. Ástæðan er uppstokkun í ríkisstjórninni. Nýir ráðherrar verða að öllum líkindum kynntir til sögunnar í dag.
31.ágú. 2010 - 19:45
Kaffistofan
Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 19:35
Utanþingsráðherrarnir tveir eru á leið út úr ríkisstjórn. Líklegast þykir að Kristján L. Möller þurfi einnig að víkja sem og Álfheiður Ingadóttir. Ólga er meðal Samfylkingarfólks vegna mannaráðninga Árna Páls Árnasonar.
31.ágú. 2010 - 19:12
Samkvæmt heimildum Pressunnar eru utanþingsráðherrarnir tveir, Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á leið út úr ríkisstjórn.
31.ágú. 2010 - 15:53
Kaffistofan
Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 13:47
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, óttast ekki að ESB umsókn Íslands verði dregin til baka, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi. Hann fagnar tillögunni, jafnvel þótt hún sé „óvanalega vitlaus“, að hans sögn.
31.ágú. 2010 - 11:20
Kaffistofan
Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 10:23
Eiríkur Bergmann
Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 08:56
Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir ekki enn ljóst hversu mörgum starfsmönnum verður sagt upp í fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum fyrirtækisins. Hann segir allt tal um uppsagnir vekja upp ótta meðal starfsmanna.
31.ágú. 2010 - 08:33
Kaffistofan
Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum.
31.ágú. 2010 - 08:00
Nokkrir umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs ætluðu sér að kæra ráðninguna hefði Ásta H. Bragadóttir verið ráðin. Félagsmálaráðherra ákvað hins vegar að skipa valnefnd eftir að stjórn sjóðsins gat ekki komið sér saman um hvern ætti að ráða.
31.ágú. 2010 - 07:30
Verið er að skipuleggja rafmagnsverkfall heimilanna til að mótmæla fyrirhugaðri hækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Almenningur er hvattur til að slökkva í fimm mínútur í mótmælaskyni.