08. feb. 2010 - 21:30

Formaður Viðskiptanefndar: Vandamál að vera með ópólitískan viðskiptaráðherra

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og formaður viðskiptanefndar.

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og formaður viðskiptanefndar.

Formaður viðskiptanefndar Alþingis, Lilja Mósesdóttir telur það standa viðskiptaráðherra fyrir þrifum að vera ópólitískur. Lilja segir það standa ákvarðanatöku í ríkisstjórninni fyrir þrifum að viðskiptaráðherra hafi ekki pólitískt umboð frá kjósendum fyrir sín stefnumál.

Lilja og Guðlaugur Þór voru í Síðdegisútvarpi Rásar 2 í dag og ræddu vinnubrögð bankanna við endurskipulagningu fyrirtækja en eins og Pressan greindi frá í dag hefur Guðlaugur Þór farið fram á að fulltrúar Arion banka verði kallaðir fyrir viðskiptanefndar vegna vinnubragða við endurskipulagningu Haga og Samskipa.

Lilja og Guðlaugur voru sammála um að gegnsæið þyrfti að vera meira varðandi afskriftir bankanna en Lilja telur það eitt og sér ekki nóg heldur sé þörf á að ríkisstjórnin viti hvert eigi að stefna og fór hún yfir ástæður þess að ákvarðanir varðandi endurskipulagningu fyrirtækja hafi ekki verið teknar;

,,og kannski er vandamálið líka það að við erum með ópólitískan efnahags- og viðskiptaráðherra, hann hefur náttúrulega ekki fengið umboð frá kjósendum á grundvelli þeirra pólitísku stefnumála sem hann stendur fyrir. Þannig að mér finnst það vera okkar þingmanna að skilgreina hvert við ætlum."

Hægt er að hlusta á samræður þeirra tveggja í heild á vef RÚV.



10.mar. 2010 - 21:23

Birkir Jón: Leiðréttir Ögmund - segir ekkert breytast með núverandi ríkisstjórn

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Birkir Jón Jónsson, þingmaður, varaformaður Framsóknarflokksins og Pressupistill segir það undarlegt að framsóknarmenn, sem talað hafa fyrir hvað mestri samstöðu á Alþingi, séu nú sakaðir um að vera ekki heilir í sínum málaflutningi. Birkir segir það umhugsunarefni, í ljósi krafna um breytt vinnubrögð Alþingis, að ekkert hafi breyst eftir fjármálahrunið. Hann býst ekki við breytingum af hálfu Jóhönnu forsætisráðherra og Steingríms fjármálaráðherra sem hafa samtals setið á Alþingi í 60 ár.
10.mar. 2010 - 19:27

Stjórnmálafræðingur: Breytingar á ríkisstjórn nauðsynlegar ætli hún ekki að hrynja í fylgi

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon. Breytingar munu eiga sér stað innan ríkisstjórnarinnar öðru hvoru megin við páska en mikill kapall gæti fylgt þeim í kjölfarið. Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðingur segir að breytingar hljóti að verða á ríkisstjórninni fyrr en seinna áður en hún fer að tapa miklu fylgi sem hann segir að geti verið í spilunum.
10.mar. 2010 - 19:16

Útlitið skiptir víst máli: Sölutölur fara eftir forsíðum - þær bestu og verstu - MYNDIR

Ein af þeim bestu til vinstri, ein af þeim verstu til hægri.

Útlit og hönnun forsíða tímarita getur haft gríðarlega mikið um það að segja hvort og í hve stóru upplagi viðkomandi blað selst. Þannig getur sama tímarit selst í mjög mismunandi magni, allt eftir því hvernig forsíðan lítur út. Árið 2009 virðist það hafa verið poppgoðið Michael Jackson sem seldi flest tímarit í Bandaríkjunum sem og sniðugar grafískt-hannaðar forsíður með þekktum aðilum framan á miðað við upplýsingar frá tímaritaútgefandanum Min Online.

10.mar. 2010 - 18:43

Fréttamaður RÚV: Stend fyllilega við fréttir af málefnum Jóns Þorsteins og Byrs

Ægir Þór Eysteinsson, fréttamaður á RÚV, segir enga ástæðu til annars en að standa við fréttaflutning sinn af málefnum Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrum stjórnarformanns Byrs. Sérstakur saksóknari hefur lánveitingar sparisjóðsins til stjórnenda hans til skoðunar.
10.mar. 2010 - 18:39 Aðsend grein

Fréttamaður RÚV: Stend við frétt um BYR og Jón Þorstein

Jón Þorsteinn Jónsson, fv. stjórnarformaður Byrs. Vegna yfirlýsingar Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Byrs, sem birtist hér á vef Pressunnar í dag, finn ég mig knúinn til að koma eftirfarandi á framfæri.
10.mar. 2010 - 15:55 Ólafur Arnarson

Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?

Aðeins einn af þessum átján fjárfestum fær að kaupa Securitas. Hinir sautján þurfa að leita sér að öðrum fjárfestingartækifærum. Í íslensku bönkunum liggja nú næstum tvöþúsund milljarðar. Þetta eru gríðarlegir fjármunir, sem hægt er að nýta til uppbyggingar íslensks atvinnulífs. En þeir nýtast ekki til þess fyrr en bankarnir hætta að soga til sín hvert fyrirtækið á fætur öðru í stað þess að selja þau og koma í hendurnar á einkaaðilum, sem vilja fjárfesta í þeim.
10.mar. 2010 - 15:20

Icesave er beiskur kaleikur: Stingi stjórnarandstaðan af enn á ný, klárum við þetta bara sjálf

Icesave er beiskur kaleikur segja Jóhanna og Steingrímur Formenn stjórnarflokkanna segjast klára Icesavesamningana upp á eigin spýtur velji stjórnarandstaðan að hlaupast á brott frá þeirri vinnu. Þeim beiska kaleik geti ábyrg ríkisstjórn ekki vikið frá sér.
10.mar. 2010 - 14:41

Hægt miðar með skipan nýrrar stjórnar Arion: FME athugar hæfi Kaupskila, svo stjórnarmanna

Fjármálaeftirlitið kannar nú hæfi stjórnarmanna móðurfélags Arion banka en ný stjórn bankans tekur ekki til starfa fyrr en því mati er lokið - og þá hæfi mögulegra stjórnarmanna bankans.

10.mar. 2010 - 14:29 Kaffistofan

Nýtt forsetaframboð í bígerð?

Unnið er að því finna mögulega forsetakandídata fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson gefi ekki áfram kost á sér í kosningunum eftir tvö ár. Á kaffistofunni heyrist eitt nafn nefnt oftar en önnur...
10.mar. 2010 - 12:06 Marta María

Finnst ykkur þetta í lagi?

Krummar Ingibjargar Hönnu. Myndarskapurinn drýpur af hverju mannsbarni þessa dagana. Ef fólk er ekki að þreifa fyrir sér í eldhúsinu og prófa sig áfram við matreiðslu á framandi réttum, er fólk að sinna handavinnu. Saumaklúbbar eru loksins farnir að standa undir nafni, sem er frábært.
10.mar. 2010 - 12:00

Financial Times: Ólafur Ragnar varar Breta við og bendir á áhuga Kínverja og Indverja á Íslandi

Breska stórblaðið Financial Times segir að forseti Íslands gefi í skyn að Bretar ættu að vingast við Íslendinga, ekki þvinga þá í Icesave-málum í ljósi þess að Kínverjar og Indverjar séu farnir að sýna Íslandi áhuga þar sem siglingaleiðin yfir norðurskautið sé að opnast.
10.mar. 2010 - 10:55

Fyrrverandi stjórnarformaður Byrs: Skil sárindi stofnfjáreigenda en ég tapaði líka miklu

Jón Þorsteinn segist hafa tapað miklu eins og aðrir Fyrrverandi stjórnarformaður Byrs segir rangfærslur hafðar uppi um lánveitingar til fyrrum eigenda. Himinn og haf sé milli þess að skulda 3 milljarða eða 418 milljónir. Hann skilji sárindi stofnfjáreigenda hann hafi sjálfur tapað miklu.
10.mar. 2010 - 09:49

Karl Wernersson: Ísland var komið á svartan lista 2007, ári áður en allt hrundi hér á landi

Karl segir að íslensk fyrirtæki hafi verið sett á svartan lista í september 2007, ári fyrir hrun Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, segir að Ísland hafi verið komið á svartan lista í september 2007, ári áður en hrunið varð. Erlendir bankar hafi ekki lengur viljað fjármagna íslensk fyrirtæki.
10.mar. 2010 - 08:13

Icesavedeilan: Þverpólitískt samstarf um lausn málsins stendur á brauðfótum

Ríkisstjórnin er svo einbeitt í því að ljúka Icesavemálinu að samstarf við stjórnarandstöðuna er algert aukaatriði. Þetta er mat formanns Sjálfstæðisflokksins og formaður Framsóknarflokksins tekur í sama streng.
10.mar. 2010 - 07:31

Verkfall flugumferðarstjóra hafið: Bitnar mest á okkur, segir framkvæmdastjóri Icelandair

Icelandair verður helst fyrir áhrifum af kjaradeilu flugumferðarstjóra og ríkisins, segir framkvæmdastjórinn Fjögurra klukkustunda verkfall flugumferðarstjóra hófst klukkan sjö, hið fyrsta af fimm sem boðuð hafa verið. Framkvæmdastjóri Icelandair segir sitt félag verða helst fyrir röskun af þessum völdum, þótt það eigi enga aðild að kjaradeilunni.
10.mar. 2010 - 07:30 Sölvi Tryggvason

,,Áttum bara helvítis helling af peningum"

Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Milestone mönnum síðasta sumar var Karl Wernersson spurður um eigið fé sem kom inn í fjármögnun á Invik.
09.mar. 2010 - 22:26 Kaffistofan

Stjörnuteiknari yfirgefur Moggann fyrir Fréttablaðið

Halldór Baldursson flytur sig um set. Á kaffistofuna berast nú þau stórtíðindi að besti skopmyndateiknari landsins, Halldór Baldursson, hafi nú sagt upp störfum á Morgunblaðinu og ráðið sig á aðalkeppinautinn, Fréttablaðið.
09.mar. 2010 - 21:00

Gylfi: Sakar fjármálaráðherra um blinda þjóðernistrú á krónuna - Framtíð ekki byggð á engu

Gylfi Arnbjörnsson. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Pressupenni skýtur föstum skotum á fjármálaráðherra Íslands, Steingrím J. Sigfússon vegna ummæla Steingríms þess efnis að krónan sem gjaldmiðill þjóni Íslendingum vel. Gylfi segir það mikilvægt að stjórnmálamenn landsins átti sig á því að ekki sé hægt að byggja framtíð okkar hagkerfis á sama sem engu.
09.mar. 2010 - 19:40

Björgólfsfeðgar saka fjölmiðla um rangindi: Samson greiddi lán bankanna til 2003 og 2005

Feðgarnir Björgólfur Thor og Björgólfur Guðmundsson. Björgólfsfeðgar, fyrrum eigendur Samsonar, segja að lán frá Búnaðarbanka til fyrirtækisins hafi verið að full greitt árið 2005. Jafnframt að hlutur Samsonar í Landsbankanum hafi verið að fullu greiddur árið 2003 að stærstum hluta með eigin fé. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgólfi Thor Björgólfssyni og föður hans Björgólfi Guðmundssyni í ljósi rangrar fjölmiðlaumfjöllunar um lánaviðskipti Samsonar að þeirra sögn. Tilkynningu feðganna má lesa í heild sinni hér að neðan.
09.mar. 2010 - 19:35 Gylfi Arnbjörnsson

Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?

Þetta var merkileg yfirlýsing. Gerir ráðherrann sér ekki grein fyrir því hvað hann er að segja? Er formaður Vinstri Grænna að hlakka yfir því að samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja hafi verið bætt með því að lækka laun hér á landi um helming mælt í evrum? Er það gott fyrir launafólk að missa fjórðung eigna sinna og kaupmáttar á einu bretti?
09.mar. 2010 - 19:08 Sölvi Tryggvason

,,Hot sex pills"

Hvað er í gangi? Rétt í þessu fékk ég póst með þessum skemmtilega titli: ,,Hot sex pills"
09.mar. 2010 - 17:00

Stórsýningin Netið 2010 í Smáralind um helgina: Nýjungar, þjónusta og möguleikar

Ríflega þrjátíu fyrirtæki hafa þegar tryggt sér sýningarpláss á stórsýningunni Netið 2010 sem verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind um næstu helgi, eða dagana 12. til 14. mars nk.Eru nú aðeins örfá sýningarpláss laus.
09.mar. 2010 - 16:45

Þórólfur útilokar ekki að sækja um stöðu bankastjóra Landsbankans - Laus í apríl

Þórólfur Árnason. Þórólfur Árnason útilokar ekki að sækja um stöðu bankastóra Landsbankans þegar þar að kemur að staðan verður auglýst. Hann segist upptekinn við að vinna að sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf., en segist ekki vita hvað hann tekur sér fyrir hendur að því ferli loknu.
09.mar. 2010 - 16:10 Ólafur Arnarson

Steingrímur afhjúpar bjánaskap

Steingrímur J. Sigfússon og Davíð Oddsson, og hirð hans, virðast vera á einu máli um að leiðin út úr vanda þjóðarinnar sé sú, að nota sömu aðferðir og komu okkur í þennan vanda. Munurinn á þessum tveimur mönnum er sá, að fáir sem engir hlusta á Davíð núorðið, en Steingrímur er fjármálaráðherra þjóðarinnar.
09.mar. 2010 - 16:10

Netkönnun Pressunnar: Á ríkisstjórnin að segja af sér í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar?

Það er óhætt að segja að menn túlki niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave um síðustu helgi með misjöfnum hætti.  En hvaða afleiðingar hefur atkvæðagreiðslan?
09.mar. 2010 - 15:45

Mælt fyrir fjölmiðlafrumvarpi: Af hverju er ekkert fjallað um eignarhaldið, spyr Þorgerður

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, mælti fyrir nýju fjölmiðlafrumvarpi á Alþingi í dag. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, mælti fyrir viðamiklu fjölmiðlafrumvarpi á Alþingi í dag. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir ótækt að hvergi sé vikið að eignarhaldi fjölmiðla sem og umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Þá voru víðtækar valdheimildir Fjölmiðlastofu gagnrýndar.
09.mar. 2010 - 15:45 Skúli Helgason

Icesave tefur atvinnuuppbyggingu

Ríkisstjórnin hefur þegar gripið til margvíslegra aðgerða í atvinnumálum. Við verðum þó að viðurkenna um það að meðan atvinnuleysi er nærri 10% þá er ekki nóg að gert og meira þarf að koma til svo ástandið verði viðunandi. 
09.mar. 2010 - 14:49

Björgvin: Kemur vel til greina að leyfa fólki að skila inn lyklunum ráði það ekki við afborganirnar

Björgvin G. Sigurðsson vill skoða lyklafrumvarpið svokallaða Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að aldrei verði sátt í samfélaginu fyrr en komið verði með ítrasta hætti til móts við þá sem beri auknar skuldir eftir efnahagshrunið. Fimmtungur skuldara sé í alvarlegum vanda sem fari vaxandi. 
09.mar. 2010 - 14:11

Árni Páll ósammála Steingrími: Krónan er hluti vanda fortíðar - ekki lausn til framtíðar

Árni Páll og Steingrímur J. eru allt annað en sammála um krónu eða evru

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, er ekki sammála Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, um íslenska króna sé betri en evran. Hann segir ekki bara hægt að horfa á kosti við gengisfellingu því skuggahliðin sé kaupmáttarhrun, hækkun lána og skerðing lífskjara. Krónan sé vandi fortíðar.

09.mar. 2010 - 13:08

Fjármálaráðherra sendir ráðherra heim með tossalista: Komið böndum á syndgara í ríkisrekstri

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sendi ráðherra átta ráðuneyta af ríkisstjórnarfundi í morgun með tossalista um tuttugu og tvo liði í fjárlögum ársins sem þeir þurfa að gæta sérstaklega að. Ráðherrarnir eiga að svara fyrir mánaðamót um hvernig þeir ætla að sjá til að liðirnir verði innan fjárheimilda í árslok.

Pressupennarnýjast frh.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 10.3.2010
Útvarpsstöð á Jamaíku
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Unnur H. Jóhannsdóttir
Unnur H. Jóhannsdóttir - 10.3.2010
Þeir ræna lífum
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Skúli Helgason
Skúli Helgason - 09.3.2010
Icesave tefur atvinnuuppbyggingu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Klara Arndal
Klara Arndal - 09.3.2010
Buxnaböl
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Róbert Trausti Árnason
Róbert Trausti Árnason - 08.3.2010
Hef ég misst af einhverju?
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Magnús Geir Eyjólfsson
Magnús Geir Eyjólfsson - 08.3.2010
Ginningarfífl flokkanna
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 08.3.2010
Úlfakreppa stjórnmálanna
Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Baldursdóttir - 08.3.2010
Flugfreyjan, draumastarf margra
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 07.3.2010
Þegar mér stóð ekki
Lilja Ósk Sigurðardóttir
Lilja Ósk Sigurðardóttir - 07.3.2010
Á röngum stað á rangri stundu
Ágúst Borgþór Sverrisson
Ágúst Borgþór Sverrisson - 07.3.2010
Smásaga
Hermann Guðmundsson
Hermann Guðmundsson - 06.3.2010
Leiðtogar!
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 07.3.2010
Þegar mér stóð ekki
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 07.3.2010
Stóra blekkingin
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 06.3.2010
Sprengja á síðustu metrunum
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 06.3.2010
Hrunkóngurinn hraunar
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 06.3.2010
Farvel Jóhanna!
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 06.3.2010
Hrunkóngurinn
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit