10. jún. 2012 - 12:00

Fjárfesting upp á 4,6 milljarða: Ný kersmiðja Fjarðaáls tekin til starfa

Ný 4 þúsund fermetra kersmiðja Fjarðaáls var formlega opnuð á Reyðarfirði í gær að viðstöddum þingmönnum, sveitastjórnarmönnum og starfsmönnum Alcoa. Það var starfandi iðnaðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir og Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls sem opnuðu kersmiðjuna með viðhöfn. Þar með lauk endanlega byggingu álversins sem hófst árið 2004.

Við þetta tækifæri sagði ráðherrann:

 Ég fagna því að hér hefur fjöldi nýrra starfa skapast og ég fagna verksmiðjunni sem fjármálaráðherra og auknum umsvifum og auknum tekjum í ríkiskassann.

Kostnaðurinn við kersmiðjuna nemur 4.6 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi í dag. Fyrsta skóflustungan var tekin að byggingunni í nóvember árið 2010 og var hún eitt og hálft ár í byggingu. Um 100 manns unnu við bygginguna þegar mest var.

Álverið hefur verið mikil lyftistöng fyrir Austurland og hefur íbúum fjölgað um þúsund frá því að álverið tók til starfa.




19.jún. 2013 - 09:15 Kristján Kristjánsson

130.000 manns fluttu frá Þýskalandi 2012 vegna efnahagsástandsins

Þýskaland er fjölmennasta aðildarland Evrópusambandsins og stærsta hagkerfi ESB ríkjanna er það þýska. En nú ber svo við að fólk er farið að flytja frá Þýskalandi vegna vantrúar á að hagkerfið taki við sér og of flókinnar lagalegrar umgjarðar í kringum atvinnulífið.
18.jún. 2013 - 10:39

Rúmlega 100 sóttu um sumarstörf hjá TM Software

Mikill áhugi var fyrir sumarstörfum hjá hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software, en rúmlega 100 umsóknir bárust í TM Software Labs fyrir tölvunarfræðinema. 9 nemendur fengu vinnu í Labs fram í lok ágúst.
14.jún. 2013 - 09:00 Sylvía Rut Sigfúsdóttir

Fyrrverandi kaupsýslumaður skrifar bók: „Ég hef alltaf reynt að horfa fram á við“

Sverrir Berg Steinarsson er fyrrum verslunarrekandi og viðskiptamaður. Nú á dögunum gaf hann út sína fyrstu bók, Drekinn. Sverri hafði lengi gælt við það að reyna að skrifa bók en aldrei haft tíma eða tækifæri til þess.
13.jún. 2013 - 09:00

Lánasafn Dróma renni til Arion og Seðlabankans

Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf. (ESÍ), Drómi hf., (eignasafn SPRON og Frjálsa ) og Arion banki hf. hafa ritað undir viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um kaup og sölu á eignum Dróma hf. til ESÍ og Arion banka hf. Samhliða munu fara fram viðræður um kaup Arion banka á einstaklingslánum Hildu ehf., dótturfélags ESÍ.
13.jún. 2013 - 07:00

Nýherji styrkir unga Íslendinga af erlendum uppruna til náms í Háskóla unga fólksins

Glæsilegur hópur nemenda ásamt Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, og Finni Oddssyni, aðstoðarforstjóra Nýherja. Háskóli unga fólksins stendur nú sem hæst í Háskóla Íslands en skólann sækja nemendur víða af landinu og af fjölbreyttum uppruna. Í hópnum í ár eru meðal annarra ungir Íslendingar af erlendum uppruna sem sækja skólann fyrir tilstyrk Nýherja.
12.jún. 2013 - 19:24

Boða strangt aðhald vegna slæmrar stöðu ríkissjóðs – Fyrri ríkisstjórn eyddi um efni fram

„Þessu verður auðvitað að snúa við,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra en hann og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, kynntu síðdegis endurmetna stöðu ríkisfjármála. Staðan er að þeirra sögn mun verri en allar áætlanir höfðu gert ráð fyrir, meðal annars vegna skuldbindinga sem fyrri ríkisstjórn samþykkti eftir að fjárlög höfðu verið samþykkt.
12.jún. 2013 - 15:00

Lionel Messi grunaður um umfangsmikil skattsvik

Eru feðgarnir á leið í steininn? Lionel Messi, leikmaður Barcelona og argentínska landsliðsins, og faðir hans sæta nú rannsókn spænskra yfirvalda vegna gruns um að þeir hafi skotið 4 milljónum evra undan skatti.
12.jún. 2013 - 14:30

Fréttamenn Stöðvar 2 hótuðu að fara í setuverkfall – ,,Það verður enginn fréttatími ef þessi frétt fer ekki í loftið“

,,Upplifun Árna af þessari atburðarás er önnur en mín og annarra sem komu nálægt þessu máli á sínum tíma“ segir Róbert Marshall, fyrrum formaður Blaðamannafélags Íslands, aðspurður um viðbrögð sín við ummælum Árna Snævarr í grein í nýýtkomnu Tímariti Máls og Menningar (TMM) þar sem hann gerir upp árin sem fréttamaður á Stöð 2.
12.jún. 2013 - 10:06

Handpoint: Einföld og ódýr greiðslulausn fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

Handpoint er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í greiðslulausnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. SNJALLGREIÐSLUR HANDPOINT er glæný, einföld og ódýr greiðslulausn sem veitir einyrkjum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum möguleika á að taka á móti kortagreiðslum án þess að greiða mánaðargjöld, líkt og nú tíðkast með hefðbundnum posum. Lausnin samanstendur af ókeypis Handpoint appi, snjallsíma eða spjaldtölvu og Handpoint snjallposanum, sem er greiðslukortalesari.
12.jún. 2013 - 10:00

Segir Jón Ásgeir og Ingibjörgu hafa krafist tafarlausrar brottvikningar blaðamanns

Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir fóru fram á að blaðamaður Fréttablaðsins yrði rekinn „hið snarasta“ vegna fréttar um að félag Ingibjargar hafði ekki skilað ársreikningi um árabil.
11.jún. 2013 - 19:20

Átti að millifæra 64 evrur en millifærði 222 milljónir

Yfirstjórn bankans brást við með því að reka yfirmann þreytta starfsmannsins. Þýskur bankastarfsmaður var ansi þreyttur einn vinnudaginn. Þegar hann var að vinna að millifærslu fyrir viðskiptavini dottaði hann örlítið með þeim afleiðingum að fingur hans, sem var á tölunni 2 á lyklaborðinu, ýtti lengi á töluna. Þetta varð til þess að í stað þeirra 64,20 evra sem millifærslan átti að vera, margfaldaðist hún og varð 222.222.222,22 evrur.
11.jún. 2013 - 12:00

Verkfall franskra flugumferðarstjóra getur breiðst til fleiri landa

Danir og Svíar hafa nú þegar sameiginlegt loftrými. ESB stefnir á að koma upp sameiginlegu loftrými yfir Evrópu í stað þess að hvert aðildarland reki sína eigin flugumferðarstjórn. Franskir flugumferðarstjórar hófu verkfall í morgun til að mótmæla þessum fyrirætlunum og snúa ekki aftur til starfa fyrr en á fimmtudag. Líkur eru taldar á að verkfall þeirra breiðist út til fleiri landa.
11.jún. 2013 - 11:30

Laun leikmanna í Evrópuboltanum fara hækkandi

Þessi ágæti hópur fær eitthvað af aurum fyrir að spila fótbolta Laun leikmanna í stóru evrópsku deildunum fimm jukust um 8% eða 430 milljónir evra knattspyrnutímabilið 2012 til 2013. Launin voru nákvæmlega 6,1 milljarðar evra. Launin í ensku úrvalsdeildinni halda áfram að vera umtalsvert hærri.
10.jún. 2013 - 21:45

Bjarni boðar lækkun skatta á eldsneyti og barnaföt – Stefnir í 30 milljarða halla án aðgerða

Miðað við núverandi forsendur stefnir í 30 milljarða halla á rekstri ríkisins, segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann stefnir á að leggja fram frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á barnaföt strax í sumar.
09.jún. 2013 - 11:30

Auðmaður fjárfestir af ást og með milljörðum á Íslandi

Vasarnir fullir af gulli, hjarta sem elskar Ísland og velþróað viðskiptanef. Þetta eru þeir þrír hlutir sem íslenskur auðmaður hafði með sér heim til Íslands þegar hann hellti sér út í rekstur fyrir einu ári síðan sem fæstir vilja koma nálægt í dag.
08.jún. 2013 - 10:45

Kínverskir kaupmenn koma alla leið til Íslands til að kaupa frímerki

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setti í gær norrænu frímerkjasýninguna Nordia 2013 á afmælisári íslenska frímerkisins. NORDIA 2013 fer fram í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ og er stærsti viðburður norrænna frímerkjasafnara á  árinu. Reiknað er með á þriðja hundrað erlendra gesta til landsins af þessu tilefni.  Forseti Íslands er verndari NORDIA 2013.
07.jún. 2013 - 16:00

Hvalserfingi: „Mikið vildi ég óska að hann léti af þessari hvalveiðiþrjósku“

„Eins og staðan er í dag er aðeins einn maður sem hefur það í hendi sér hvort þessar langreyðar verða veiddar eða ekki. Mikið vildi ég óska að hann léti af þessari hvalveiðiþrjósku og fyndi kröftum sínum og fjármunum annan farveg,“ segir Birna Björk Árnadóttir, hluthafi í Hval hf.
06.jún. 2013 - 12:11

Grimbergen bjórinn loksins fáanlegur á Íslandi

Munkurinn Erik De Sutter kom hingað til lands og kynnti bjórinn fyrir gestum og gangandi Á dögunum var kynntur nýr belgískur bjór á markaðinum sem heitir Grimbergen. Margar tegundir eru til af bjórnum, en tvær þeirra eru nú komnar í sölu hér á landi. Önnur tegundin er ljós bjór sem kallast Grimbergen Blonde en hinn er dekkri og kallast Grimbergen Double Ambrée. Þeir eru báðir í sterkari kantinum, eða yfir 6% í áfengismagni.
05.jún. 2013 - 21:30

Sigmundur Davíð: Undirbúningur við skuldaleiðréttingu gengur betur en ég þorði að vona

Undirbúningur við skuldaleiðréttingu er þegar farinn á fullt, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og segir hann vinnuna ganga betur en hann þorði að vona. Hann segist ekki hafa trúað sínum eigin eyrum þegar Steingrímur J. Sigfússon sagði á dögunum að mögulega hefði verið betra að samþykkja fyrsta Icesave samninginn.
05.jún. 2013 - 19:15

Fordæmisgildi gengislánadóms skýrt: Ráðherra vill sjá tafarlausan endurútreikning

Umboðsmaður skuldara segir niðurstöðu Hæstaréttar í máli Platsiðjunnar ehf. marka tímamót varðandi réttarstöðu lántaka vegna endurútreiknings ólögmætra gengistryggðra lána. Fordæmisgildi dómsins sé skýrt og hvetur umboðsmaður fjármálafyrirtæki til að hraða endurútreikningi lána í samræmi við það.
04.jún. 2013 - 20:00

Forsætisráðherra vill ljúka samningaviðræðum við kröfuhafa á þessu ári

Íslensk stjórnvöld gætu mögulega náð samkomulagi við kröfuhafa föllnu bankanna fyrir árslok, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Fjármunirnir yrðu þá nýttir til að afskrifa skuldir heimilanna.
04.jún. 2013 - 19:20

Eru Íslendingar að flýja veðrið? 20% aukning í sölu sólarlandaferða

Vorið í apríl og maí var kalt og meðalhiti hefur ekki verið lægri síðan 1989. Frá 1870 hafa einungis 34 vor verið kaldari en nú. Ekkert bólar á sumrinu og engu líkara en að haustið sé komið eða eins og skáldið Andri Snær Magnason sagði á Facebook-síðu sinni nú í morgun: „Veit að það er komið haust, húsin eru orðin gul og rauð, farin að fella bárujárnið.“
04.jún. 2013 - 09:44

Kaflinn eftir Gunnar Andra Þórisson valinn bestur í bók Brian Tracy

Í kaflanum fléttar Gunnar menningu og náttúru Íslands meistaralega inn í lífshlaup sitt en einnig koma náttúruhamfarir fyrir í frásögninni Gunnar Andri Þórisson hefur fengið viðurkenningu frá útgefundum bókarinnar Against the Grain, fyrir að vera með besta kaflann í bókinni, en  hana skrifar Gunnar Andri í samvinnu við heimsþekkta fyrirlesarann og söluráðgjafann, Brian Tracy. Brian Tracy þarf vart að kynna en hann er metsöluhöfundur og einn fremsti fyrirlesari heims þegar kemur að viðskipta- og sjálfsuppbyggingu. 
03.jún. 2013 - 13:30

OECD segir íslenska húsnæðismarkaðinn í jafnvægi – Verðbóla í Noregi

Ísland er eitt fárra landa OECD ríkja þar sem jafnvægi ríkir á húsnæðismarkaði. Verðbóla er hins vegar á húsnæðismarkaði í Noregi.
01.jún. 2013 - 13:00

Kreppunni á fasteignamarkaði í Kaupmannahöfn er lokið

Góðar fréttir berast af fasteignamarkaðnum í Kaupmannahöfn og Friðriksbergi þessa dagana því svo virðist sem kreppunni sem hefur ríkt í íbúðasölu þar sé lokið.
31.maí 2013 - 17:15

WOW air fagnar eins árs flugafmæli sínu: Flogið með 380 þúsund farþega

WOW air fór í jómfrúarflug sitt til Parísar 31. maí í fyrra og fagnar því að hafa boðið upp á áætlunarflug á milli Íslands og Evrópu í eitt ár. 
30.maí 2013 - 22:15

Hver verða áhrif nýja gengislánadómsins? Ráðherra biður um álit umboðsmanns skuldara

Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra segir að það sé ekki bara hlutverk fjármálafyrirtækja að meta niðurstöður dóma sem falla þeim í óhag, stjórnvöld eigi líka að koma þar nærri.
30.maí 2013 - 19:45

Apple fann „hinn heilaga kaleik skattaundanskota“ – Greiðir hvergi skatt af hagnaði

Bandarískir öldungadeildaþingmenn og sérfræðingar saka tölvurisann Apple um stórfelld skattaundanskot með því að færa milljarða hagnað til Írlands þar sem fyrirtækið greiðir lítinn sem engan skatt.  Tim Cook, forstjóri Apple neitar þessu og segir að hagnaður fyrirtækisins sé til kominn vegna sérfræðiþekkingar og frábærrar vinnu sem fjögur þúsund starfsmenn Apple í Cork á Írlandi skila.
28.maí 2013 - 16:00

Uppgjör Regins undir væntingum

Fasteignafélagið Reginn birti árshlutauppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung í gær. Uppgjörið er nokkuð undir væntingum markaðsaðila. Samkvæmt heimildum Eyjunnar er líklegt að uppgjörið geti gert Landsbankanum erfiðara fyrir við sölu á 25% eignarhlut sínum í félaginu.
28.maí 2013 - 15:37

Esprit opnar verslun á Íslandi í ágúst

Esprit hefur verið starfsrækt frá árinu 1968 og á uppruna sinn að rekja til San Francisco Alþjóðlega tískufatakeðjan Esprit opnar verslun í Smáralind þann 8. ágúst næstkomandi. Þar verður fjölbreytt úrval af dömu- og herrafatnaði bæði hversdagslegum og aðeins meira spari. Glæsileg gallabuxnalína, sem Esprit hefur lagt mikið í að undanförnu, og margskonar fylgihlutir verða jafnframt hluti af vöruframboðinu.
28.maí 2013 - 15:00

Er nú komin betri tíð með blóm í haga? Íslendingar fyllast bjartsýni á framtíðina

Svo virðist sem nýafstaðnar kosningar og úrslit þeirra hafi fyllt Íslendinga bjartsýni, því væntingavísitala Gallup tók heldur betur við sér í maímánuði og fer nú í fyrsta sinn yfir 100 stig frá því fyrir hrun, eða síðan í febrúar árið 2008. Geta því íslenskir neytendur þar með talist bjartsýnir á efnahags- og atvinnulíf þjóðarinnar í fyrsta skiptið frá þeim tíma, en þegar vísitalan er yfir 100 stigum eru fleiri neytendur bjartsýnir en svartsýnir.
28.maí 2013 - 08:15

Norðmenn spara sem aldrei fyrr

Norðmenn byrjuðu árið 2013 með að setja met í sparnaði, aðallega með því að greiða niður skuldir sínar en einnig með auknum innistæðum í bönkum. 2012 nam sparnaður Norðmanna 105 milljörðum norskra króna og hafði þá aukist um 18 milljarða frá árinu áður
27.maí 2013 - 15:45

Skilaboð Más til nýrrar ríkisstjórnar: Nú þarf útfærslur og nú þurfa verkin að tala

„Nú erum við held ég komin á þann punkt að nú þarf útfærslur og nú þurfa verkin að tala,“ segir Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sem kallar eftir nýrri áætlun frá nýrri ríkisstjórn um losun gjaldeyrishafta.
27.maí 2013 - 14:15

Önnur kreppa vofir yfir verði ekkert að gert

Finnist ekki lausn á snjóhengjuvandanum er líklegt að gjaldeyrishöft verði á Íslandi til frambúðar. Vegna neikvæðs gjaldeyrisjöfnuðar vofir önnur kreppa yfir, verði ekkert að gert.
26.maí 2013 - 19:00

Star Wars varð næstum því banabiti Lego

Lego og Star Wars hafa átt í samstarfi í 14 ár og hefur þessu samstarfi oft verið þakkað fyrir að Lego varð ekki gjaldþrota en raunar var þetta samstarf nálægt því að keyra Lego í gjaldþrot.
22.maí 2013 - 14:36 Ruth Ásdísardóttir

Gunnar Andri Þórisson skrifar bók með Brian Tracy

Bókin sem Gunnar Andri er að vinna að með Brian Tracy, Against the Grain, er væntanleg í haust Það má með sanni segja að ævintýralegir hlutir séu að gerast í lífi Gunnars Andra og eftir aðeins nokkurra mínútna spjall, er blaðamaður orðinn fullur eldmóðs vegna verkefnanna sem bíða hans. En, skemmst er frá því að segja að hann er að gefa út bók í samvinnu við Brian Tracy, sem þarf að sjálfsögðu ekki að kynna. Bókin er væntanlega í september á þessu ári og heitir Against the Grain.
21.maí 2013 - 18:05

Skattsvik eitt helsta viðfangsefnið á leiðtogafundi ESB

Leiðtogar allra aðildarríkja ESB hittast á morgun á fundi í Brussel.  Á dagskrá fundarins er að komast að samkomulagi um nýjar aðgerðir gegn skattsvikum.
17.maí 2013 - 12:30

Efnahagsráðgjafi Obama sækir einkasamkvæmi Björgólfs

Tugir gesta sækja einkasamkvæmi sem Björgólfur Thor Björgólfsson heldur á Fríkirkjuvegi 11 í dag. Á meðal gesta er efnahagsráðgjafi Baracks Obama, Bandaríkjaforseta.
16.maí 2013 - 23:00

Sigmundur Davíð: Fráfarandi ráðherrar tala með allt öðrum hætti nú en fyrir kosningar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hvetur fjármálaráðuneytið til að birta fyrirliggjandi upplýsingar um stöðu ríkisfjármála. Hann segir ráðherra fráfarandi ríkisstjórnar segja allt annað í dag en þeir gerðu fyrir kosningar.
16.maí 2013 - 12:30

Gífurlegar fjárfestingar í pípunum á Grænlandi: Geta tekið fram úr Íslandi

Útlit er fyrir gríðarlega uppbyggingu í Grænlandi á næstu árum og áratugum og svo gæti farið að landsframleiðsla þessa nágranna okkar í norðri verði orðin meiri en á Íslandi þegar fram líða stundir. Ísland gæti hagnast vel á þessum uppgangi.
16.maí 2013 - 08:00

Ókeypis tölvuleikur frá CCP: DUST 514 gerist í sama heimi og EVE Online

DUST 514 er fjölspilunar-skotleikur DUST 514 sem framleiddur er af íslenska fyrirtækinu CCP fyrir Playstation 3 er kominn út. Um er að ræða skotleik sem gerist í sama sýndarheimi og fjölspilunarleikurinn EVE Online, sem fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Áskrifendur hans í dag rúmlega 500.000. Ljóst er að með tilkomu DUST 514 stækkar EVE heimurinn umtalsvert. Leikurinn er ókeypis.
15.maí 2013 - 08:00

Fyrsta bílaskipið til Íslands eftir hrun

Um helgina kom til landsins bílaflutningaskip með 300 nýjum Chevrolet bílum fyrir Bílabúð Benna.  Mörg ár eru síðan að flutningaskip kom til landsins aðeins hlaðið bílum.  
13.maí 2013 - 17:30

Vandinn vex með hverjum deginum sem líður og verður sífellt óviðráðanlegri

Seðlabanki Íslands hefur miklar áhyggjur af bólumyndun á hlutabréfamarkaði í ljósi gífurlegrar umframeftirspurnar í hlutafjárskráningu VÍS og TM. Forstjóri síðarnefnda fyrirtækisins gagnrýnir aftur á móti vaxtastefnu Seðlabankans.
13.maí 2013 - 09:23

Norvik tekur í notkun umhverfisvænni pretnlausn

Norvik, sem rekur meðal annars fjölmargar smásöluverslanir á Íslandi, hefur tekið í notkun Rent A Prent, sem er umhverfisvæn prentþjónusta frá Nýherja. Einungis fimm prenttæki verða notuð á aðalskrifstofu Norvikur og Kaupáss á Bíldshöfða í stað 30 prentækja áður.
11.maí 2013 - 20:30

Einhversstaðar verða ríkir að búa: Í þessum borgum búa flestir milljónamæringar

Einhversstaðar verða þeir ríku að búa og ef þig langar til að vita í hvaða borgum milljónamæringar vilja helst búa þá hefur Wealt Insight tekið saman lista yfir þær tíu borgir þar sem flestir milljónamæringar búa en auður þeirra er mældur í dollurum.
11.maí 2013 - 19:30

Friðrik Már segir tölur um menntakerfið tala sínu máli. „En kannski er ég bara orðinn ruglaður af Excel notkun“

Friðrik Baldursson, prófessor í hagfræði og forseti Viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, segir það undarlegt að hæst beri í gagnrýni á tillögur Samráðsvettvangs um aukna hagsæld, að þeir sem hafi unnið að þessu kunni á Excel. „Þetta hefur þótt mikill ljóður á ráði manna hin síðari ár og þá sérstaklega hagfræðinga,“ segir Friðrik.
11.maí 2013 - 16:00

Runólfur um verkefni nýrrar ríkisstjórnar: Framkvæmdir í Helguvík og leiðrétting skulda heimilanna

Leiðrétta þarf skuldir heimila, auka erlenda fjárfestingu í landinu, hækka menntunarstig á vinnumarkaði og ná nýrri þjóðarsátt með atvinnurekendum og verkalýðshreyfingunni, að mati Rúnólfs Ágústssonar lögfræðings, formanns stjórnar atvinnuleysistryggingasjóðs  og fyrrverandi rektors. Eyjan hefur beðið hann og fleiri álitsgjafa úr þjóðfélaginu að setja á blað hver þau telja vera brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
11.maí 2013 - 15:46

Seðlabankinn heldur kröfuhöfum í spennitreyju: Vill endursemja um skilmála Landsbankabréfa

Seðlabankinn virðist kominn með kröfuhafa gamla Landsbankans í nokkurs konar spennitreyju með því að svara ekki beiðni slitastjórnar bankans um undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál svo að hægt verði að greiða yfir 200 milljarða í erlendum gjaldeyri til forgangskröfuhafa.
10.maí 2013 - 18:00

Bandaríkjastjórn fær ávísun upp á 6.600 milljarða

Á næstunni mun bandaríska alríkisstjórnin fá ávísun frá húsnæðislánastofnuninni Fannie Mae upp á 59,4 milljarða dollara sem eru um 6.600 milljarðar íslenskra króna. Þetta er greiðsla vegna inngripa alríkisstjórnarinnar í rekstur Fannie Mae í september 2008 þegar yfirstandandi efnahagskreppa hófst.
10.maí 2013 - 12:37

Umhverfissjóður Ergo veitir tveimur verkefnum styrki

Frá afhendingu styrkjanna. Með styrkhöfum er Jón Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri Ergo (lengst til vinstri). Umhverfissjóður Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka, hefur veitt tveimur verkefnum styrki, samtals að fjárhæð 1 milljón króna. Styrkirnir eru veittir árlega til að styðja við frumkvöðlaverkefni á sviði umferðar- og umhverfismála. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum.

Sena - Jeff
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 09.6.2013
Er Jafnréttisstofa nauðsynleg?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 09.6.2013
Merkileg frétt í Ríkisútvarpinu
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 10.6.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 11.6.2013
Stóriðjan borgar verkafólki betur
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar