10. mar. 2010 - 12:06Marta María

Finnst ykkur þetta í lagi?

Krummar Ingibjargar Hönnu.

Krummar Ingibjargar Hönnu. Mynd: Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir

Myndarskapurinn drýpur af hverju mannsbarni þessa dagana. Ef fólk er ekki að þreifa fyrir sér í eldhúsinu og prófa sig áfram við matreiðslu á framandi réttum, er fólk að sinna handavinnu. Saumaklúbbar eru loksins farnir að standa undir nafni, sem er frábært.

Auk þess að prjóna í klúbbum er kvenpeningurinn iðinn við að rotta sig saman til að læra meira og hafa prjóna-og saumanámskeið sjaldan verið vinsælli. Þetta er auðvitað allt gott og blessað. Margar konur eru mjög sniðugar þegar kemur að prjónaskap og setja saman eigin munstur og njóta þess að skapa og búa til fallegar flíkur. Sá hópur er hinsvegar stærri sem hefur lítið sem ekkert hugmyndaflug og apar eftir öðrum.

Hugmyndasnauðir hönnuðir

Lopapeysur frá íslenska hönnunarfyrirtækinu Farmers Market eru eitt besta dæmið. Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður  fyrirtækisins, bjó til fantaflott lopapeysumunstur og lét framleiða úr því lafþunnar og elegant lopapeysur. Ekki leið á löngu þar til peysurnar urðu að tískuvöru. Hugmyndasnauði hópurinn var ekki lengi að kveikja og í dag má sjá lopapeysumunstur Farmers Market í mörgum og misjöfnum myndum. Sumir ganga jafnvel svo langt að selja afurðir sínar á netinu og fer ekkert í felur með að þetta séu eftirlíkingar af Farmers Market peysunum. Finnst ykkur þetta í lagi?

Farmers Market er ekki eina íslenska hönnunarfyrirtækið sem hefur lent í þessu. Spaksmannsspjarir hafa einnig orðið fyrir barðinu á hugmyndasnauðu „hönnuðunum“. Á sýningunni Handverki og hönnun sem fram fór í Ráðhúsinu í haust var kona með fulla slá af „eigin hönnun“ en þegar betur var að gáð voru peysurnar nákvæmlega eins og Spaksmannsspjarapeysurnar sem eru vélprjónaðar úr einbandi. Finnst ykkur þetta í lagi?

 

Krummi Ingibjargar Hönnu hefur algerlega slegið í gegn en þá kveikti ákveðinn hópur á perunni og fór annað hvort að teikna eftir upprunalega fuglinum og saga út heima hjá sér eða láta gera fyrir sig í plexígleri. Finnst ykkur þetta í lagi?

Emami kjóllinn er annað dæmi. Kjóllinn var hannaður af íslenskum systrum og ekki leið á löngu þar til konur voru farnar að sauma hann sjálfar. Það heyrðist meira að segja af heilu saumaklúbbunum sem ákváðu að hafa „Emami þema“. Þær hittust með saumavélarnar og hjálpuðust að við að klambra kjólnum saman. Eigendur vefnaðarvöruverslana fengu dollaramerki í augun, og það í miðri kreppu, og sáu fram á að geta mokað út viskosi. Eftirlíking af kjólnum var sett á gínu og hvort sniðið var ekki fáanlegt líka. Ef mig misminnir ekki þá auglýstu einhverjar vefnaðarvöruverslanir að Emami kjólaefnið væri komið. Finnst ykkur þetta í lagi?

Mýmörg dæmi

Dæmin um íslenskan hönnunarstuld eru mýmörg og er þetta bara brot af þeim. Eftirlíkingafólkið virðist ekki gera sér grein fyrir því að það býr mikill auður í íslensku hugviti. Þessi hópur virðist heldur ekki gera sér grein fyrir því að tískuiðnaðurinn gæti velt stórum upphæðum á hverju ári líkt og hann gerir í Danmörku. Með því að kópíera allt sem hannað er á Íslandi er verið að eyðileggja fyrir íslenskum hönnuðum og gera lítið úr verkum þeirra. Af hverju ætti ekki að vera hægt að flytja út íslenska ull, kjóla og Krumma  í tonnatali eins og fiskafurðir?

Í næstu viku verður hönnunarveisla í Reykjavík þegar HönnunarMars hefur göngu sína. Ég hvet alla til að drekka í sig íslenska hönnun. Ekki bara til að dekra við fegrunarskynið heldur til að skilja út á hvað þetta gengur. Íslensk hönnun og heimaföndur eru ekki það sama.




23.maí 2012 - 10:10

Arion banki hefur hagnast um 1,5 milljarð á mánuði: Óvissa um gengislán tefur

Arion banki hagnaðist um 4,5 milljarða króna fyrstu þrjá mánuði ársins eftir skatta samanborið við þriggja milljarða kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans er því 1,5 milljarður kr. á mánuði það sem af er ári.


23.maí 2012 - 07:00

Sérstakur saksóknari: 20% mála frá FME felld niður – Óvíst um niðurstöðu í 76% málanna

Ólafur Þór Hauksson er sérstakur saksóknari. Fimmta hvert mál sem FME sendi sérstökum saksóknara eftir bankahrun hefur nú þegar verið fellt niður. Óvíst er um niðurstöðu í 76% málanna. Ákært hefur verið í 4 málum af 83 alls eða 5%.
22.maí 2012 - 20:00

Miðstýrður áætlunarbúskapur: Frjálsum markaði er hafnað og marxískri miðstýringu hampað

Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 15:00

Sala hafin á aflögðum kirkjum: Mikill áhugi að setja upp veitingastaði og næturklúbba í þeim

Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.

 

22.maí 2012 - 14:10

Skákgripir úr einvígi aldarinnar metnir á allt að 40 milljónir króna

Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi  bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.


22.maí 2012 - 12:11

Árni Páll: Getum gert Vigdísi Hauks að forsætisráðherra og hvar er pláss fyrir Hall Hallsson?

„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29

Kaupmáttur launa 7,6% lægri en hann var fyrir hrun - stefnir í enn meiri kaupmáttarrýrnun

Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.

22.maí 2012 - 07:45

Norðmenn vaða í seðlum: Betri nýting í olíuvinnslu skilar tæpum 17.000 milljörðum króna

Ríkisolíufélag Noregs, Statoil, leggur nú mesta áherslu á aukna nýtingu úr þeim olíusvæðum þar sem vinnsla fer fram. Frá árinu 2010 til 2011 jókst nýtingin úr 49% í 50%. Þetta virðist lítil aukning en hún skilaði samt gríðarlegum verðmætum í ríkiskassann norska.

 



21.maí 2012 - 18:43

Ólafur og Lilja fjalla um íslensku leiðina: Erlend krónueign veldur stöðugum þrýstingi á gengið

Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 15:00

Facebook veldur miklum vonbrigðum á markaði: Gengið lækkað um 12%

Verð á hlutabréfum í Facebook féll um 12% frá upphaflegu sölugengi þegar Nasdaq markaðurinn opnaði í dag. Upphaflegt gengi var 38 dollarar á hlut en strax við upphaf viðskipta féll það niður í 33,28 dollara.


21.maí 2012 - 11:30

Veiking krónunnar gerir okkur erfitt fyrir: Nú er meira að segja tippið orðið dýrara

Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.  
21.maí 2012 - 10:33

Flug til London tvöfaldast í verði hjá Icelandair : WOW hefur hækkað minnst

Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.

20.maí 2012 - 19:27

Útlánaæði í Noregi: Fjármálaráðherra landsins varar landsmenn við

Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.

20.maí 2012 - 11:39

Vinsælustu leitarvélinni á Netinu breytt: Google vill hugsa eins og manneskja

Svona verður nýtt viðmót Google leitarvélarinnar. Tölvufyrirtækið Google hefur tilkynnt um nýja breytingu á hinni geysivinsælu leitarvél sinni. Með aukinni gervigreind og nýjungum í forritun er hugmyndin að koma með leitarvél sem muni geta hugsað meira eins og manneskja.
20.maí 2012 - 10:36

Fjárfestingaáætlun á að fjármagna með einkavæðingu, sölu eigna og veiðigjaldi í sjávarútvegi

Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
19.maí 2012 - 15:30

Gríðarstór ráðstefna Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu: Á fimmta hundrað hingað til lands

Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45

Tveir mikilvægir leiðtogafundir haldnir í Bandaríkjunum um helgina: Jóhanna og Össur til Chicago

Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
18.maí 2012 - 18:00

Vill reisa verksmiðju og framleiða viskí á Austurlandi úr íslensku byggi

Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth. 
 

18.maí 2012 - 16:00

Höfnuðu rannsókn vegna meintra innherjasvika: Tífalt atkvæðavægi atvinnurekenda

Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.


18.maí 2012 - 12:00

Bílapressan - nýr vefur um bíla, fylgihluti, vélhjól og samgöngur á Pressunni

Nýr efnisþáttur, Bílapressan, hefur göngu sína á Pressunni á hádegi í dag. Eins og nafnið gefur til kynna verður þar fjallað um bíla og bílatengt efni út frá sjónarmiðum bíleigenda og bílkaupenda.


18.maí 2012 - 09:05

Segja olíufélögin hafa hækkað álagninguna verulega: Eldsneytisverð hefur lækkað en of lítið

Það sem af er máímánuði er álagning olíufélaganna á bensín 6-7 krónum yfir meðalálagningu síðustu ára aðteknu tilliti til vísitölu neysluverðs og gengis dollars gagnvart krónunni.
18.maí 2012 - 07:55

Viðskipti að hefjast með bréf í Facebook: Metið á 13.000 milljarða króna - Zuckerberg hringir inn

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, hringir bjöllunni þegar Nasdaq markaðurinn opnar í. Ástæðan er sú að Facebook er loks að fara á markað og það fyrir metfé. Zuckerberg og félagar meta fyrirtækið á 104 milljarða dollara, 13 þúsund milljarða króna.


17.maí 2012 - 19:46

Evrópa er á barmi efnahagshruns: Varað við evrugeddon og afleiðingum um allan heim

Evrópa er á barmi efnahagshruns sem kann að hafa víðtækar afleiðingar um allan heim, svo sannarlega líka hér á landi. Forsætisráðherra segir dómsdag nálgast; Grikkland er stjórnlaust og þar líkt og á Spáni óttast menn víðtæk áhlaup á banka næstu daga þar sem landsmenn vilja fremur geyma reiðufé undir koddanum en á ótraustum bankabókum fjármálastofnana sem óvíst er hvort lifa næstu daga af.
17.maí 2012 - 16:00

Öðruvísi mér áður brá: Iceland Express alltaf á réttum tíma með tékknesku leiðinni

Svo virðist sem brandarar um óstundvísi Iceland Express eigi ekki lengur við, því ferðum félagsins til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar.
17.maí 2012 - 08:52

Tengsl milli astma og útblásturs frá jarðgufuvirkjunum rannsökuð: Fleiri þurfa astmalyf

Fyrstu niðurstöður íslenskrar rannsóknar sem staðið hefur yfir í þrjú ár leiða í ljós tengsl útblásturs frá jarðvarmavirkjunum.
15.maí 2012 - 20:36

Komum okkur út úr kreppunni: Spörum vaxtakostnað, aukum hagvöxt og komum til móts við heimilin

Róbert Wessman, stjórnarformaður bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen, leggur til að farin verði „íslensk leið“ til að örva hagvöxt í landinu og fjölga atvinnutækifærum. Jafnframt myndi losna mjög um krónustöðu erlendra aðila og ríkið spara gífurlegar fjárhæðir í vaxtagjöldum.
13.maí 2012 - 14:00

Íslenskir viðskiptablaðamenn í yfirheyrslur hjá Sérstökum saksóknara: Verið að rannsaka meint afbrot Kaupþings

Embætti sérstaks saksóknara vinnur nú að rannsókn mála er tengjast meintri fölsun á gengi hlutabréfa í Kaupþingi. Til að fylla út í myndina hefur embættið kallað til yfirheyrslu íslenska blaðamenn sem skrifuðu um málefni bankans rétt fyrir hrunið.


12.maí 2012 - 09:00

Þessi virðist ætla að slá öll met: Sérstök forsala á Íslandi á umdeildum en eftirsóttum búningi

Nýr búningur enska knattspyrnuliðsins Liverpool virðist ætla að slá öllu met. Hann fæst nú í sérstakri forsölu hér á landi fyrir stuðningsmenn liðsins.
10.maí 2012 - 16:20

Bensínið lækkað minna en ætla mætti: Telja talsverða lækkun á bensínlítranum framundan

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað mikið að undanförnu og það nú svipað og það var í febrúar. Lækkunin er um 12% en lækkun á bensínlítranum hérlendis frá byrjun apríl þar til nú er ekki nema um 4%.


10.maí 2012 - 14:58

Jóhannes í Bónus: Stefnir í slag - Gefur lítið fyrir gagnrýni Egils - Elti ekki ólar við hann -

Jóhannes Jónsson,  kenndur við Bónus, einn af umdeildari mönnum á Íslandi, gefur lítið fyrir gagnrýni Egils Helgasonar fjölmiðlamanns, sem segir Jóhannes hafa verið vonda gerð af kapítalista sem hafi haft kverkatak á framleiðendum og birgjum. Egill segir að það sé þjóðsaga að Jóhannes hafi verið sérstakur vildarvinur íslenskrar alþýðu. Jóhannes er hins vegar ekki af baki dottinn og opnar í sumar verslanir undir Iceland merkinu í samstarfi við Malcolm Walker.


10.maí 2012 - 13:35

Egill: Þjóðsaga að Jóhannes í Bónus hafi verið vinur fólksins - Kverkatak á framleiðendum og birgjum

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason, segir að ein sérkennilegasta þjóðsaga á Íslandi sé að Jóhannes kaupmaður sem eitt sinn var kenndur við Bónus hafi verið sérstakur vildarvinur alþýðu. Jóhannes hafi verið kapítalisti sem hafði kverkatak á framleiðendum og birgjum.
09.maí 2012 - 17:30

Lán banka til tengdra aðila: FME aðeins lokið einu máli með stjórnvaldssekt

Fjármálaeftirlitið hefur kært 53 mál til embættis sérstaks saksóknara og vísað 33 málum til embættisins frá hruni og fram til mars 2012. Samkvæmt upplýsingum frá FME liggur ekki fyrir í hve mörgum tilvikum er um að ræða lán til tengdra aðila. Þau eru þó fjölmörg eins og upplýst hefur verið um í fjölmiðlum allt frá hruni.


09.maí 2012 - 15:35

Vefuppboð á fágætum íslenskum bókum: Fyrsta útgáfa af Bréfi til Láru verðmetin á 180,000 kr,

Meðal bóka á vefuppboði Gallerí Foldar er fyrsta útgáfa af Bréfi til Láru og er bókin árituð af höfundinum, Þórbergi Þórðarsyni. Bókin er verðmetin á 180.000 krónur en viðbúið er að hún fari á enn hærra verði.


09.maí 2012 - 10:47

Rannsókn á Aserta-málinu: Hefur verið 29 mánuði í rannsókn - Áhersla á að ljúka málinu sem fyrst

Rannsókn á meintu peningaþvætti íslenskra fjórmenninga er tengdust sænska félaginu Aserta AB er enn ekki lokið, 29 mánuðum eftir að rannsókn hófst, en sérstakur saksóknari segir rannsókn langt komna.
09.maí 2012 - 07:50

Ingimar: Jón Ásgeir segist ekki vita hver á langstærsta hlutann í 365 miðlum - Hver veit það þá?

Jón Ásgeir og Ingibjörg ásamt leikaranum Sir Roger Moore

Jón Ásgeir Jóhannesson segist ekki vita hver standi á bak við félag í Lúxemborg sem á tæplega helmings hlut í 365 miðlum. Blaðamaður segir hlutinn tengjast fjölskyldu Jóns Ásgeirs.

08.maí 2012 - 13:16

Segir slitastjórnirnar vera ræningjaflokka: Skuldirðu skatta færðu vargana á þig

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður, segir slitastjórnir fjármálafyrirtækjanna eins og ræningjaflokka og löngu sé tímabært að skipta þeim út fyrir bankastjórnir sem fylgi eftir uppgjörum föllnu bankanna. Enginn hvati sé í kerfinu til að ljúka málum og hagsmunir slitastjórnanna sé að draga þau sem mest á langinn.


08.maí 2012 - 11:50

Hafa skoðað stofnun nýs vefmiðils: Fyrrverandi Morgunblaðsmenn og fyrrverandi Landsbankastjóri í hópnum

Nokkrir fyrrverandi blaðamenn af Morgunblaðinu hafa velt fyrir stofnun nýs vefmiðils í samvinnu við Brynjólf Helgason, fyrrum bankastjóra Landsbanka Íslands.


07.maí 2012 - 14:25

Heimsmet í ferðagleði?: Nærri þriðjungur þjóðarinnar fór til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins

Um 100 þúsund Íslendingar fóru til útlanda fyrstu fjóra mánuði ársins sem er 6% aukning frá fyrra ári. Það er því næstum þriðja hvert mannsbarn sem hefur farið til útlanda á þessu tímabili og líklegt að um heimsmet í ferðagleði sé að ræða.

05.maí 2012 - 12:00

Mikill erill í Bauhaus - Þúsundir Íslendinga mættu á opnunarhátíð í dag

Verslunin Bauhaus opnaði formlega hér á landi klukkan átta í morgun, en mikill fjöldi fólks var þar saman kominn fyrir opnunarhátíð.
04.maí 2012 - 17:10

Eigendur bankanna lánuðu sjálfum sér milljarðatugi: Mun ekki leiða til ákæra - afgreitt með sektum

Þeir sem bíða spenntir eftir ákærum frá sérstökum saksóknara vegna lánveitinga banka til tengdra aðila gætu þurft að láta af biðinni því slík mál eru samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki afgreidd með stjórnvaldssekt sem getur numið 500.000 kr. til 50.000 kr. til lögaðila. Slíkar lánveitingar munu því ekki leiða til ákæru.



Pressupennarnýjast frh.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Ólafur Margeirsson
Ólafur Margeirsson - 15.5.2012
Er vaxtahækkun svarið?
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2012
Dómur yfir hælisleitendum
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.5.2012
Stoltir af steranotkun
Aðsend grein
Aðsend grein - 09.5.2012
Af hverju eru skilnaðir svo tíðir?
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Fleiri pressupennar