03. jún. 2012 - 09:38

Eigandi flugfélagsins flugþjónn um borð í fyrsta flugi: Skúli Mogensen lét drauminn rætast

Skúli Mogensen, aðaleigandi og stjórnarformaður Wow Air.

Skúli Mogensen, aðaleigandi og stjórnarformaður Wow Air.

„Það var óneitanlega stórkostlegt að sjá drauminn rætast á fimmtudaginn þegar við fórum í loftið í jómfrúarflugið eftir botnlausa vinnu allra sem koma að þessu ævintýri okkar undanfarna mánuði,“ segir Skúli Mogensen athafnamaður glaðbeittur, en Wow air, nýtt flugfélag þar sem hann er aðaleigandi og stjórnarformaður, hóf starfsemi sína með formlegum hætti nú um helgina eftir fyrsta flug til Parísar á fimmtudag.
 
Skúli hefur verið áberandi í aðdraganda þess að vélar Wow fari í loftið og greinilegt er að hann ætlar að blanda sér persónulega inn í reksturinn frá fyrsta degi. Í jólmfrúarfluginu vakti þannig athygli að Skúli var sjálfur í að rífa af brottfararspjöldum farþega og bjóða þá velkomna um borð, auk þess sem hann tók þátt í starfi flugþjóna á leiðinni til Parísar ásamt Baldri Baldurssyni forstjóra og Matthíasi Imsland rekstrarstjóra.

Áhöfn gerir sig klára fyrir fyrsta flug frá Leifsstöð til Parísar á fimmtudag.
 
En hvers vegna að fara út í svo áhættusaman rekstur og stofna flugfélag á þessum tímum?
 
„Þetta er stórt og verðugt verkefni sem snýr ekki eingöngu að flugi heldur að því að efla ferðaþjónustu til og frá Íslandi í heild sinni,“ svarar Skúli glaðbeittur. Hann bendir á að ferðaþjónustan hafi skilað um 158 milljörðum í gjaldeyri í fyrra og því sé ljóst að um mikið hagsmunamál fyrir land og þjóð sé að ræða.
Það skiptir þess vegna gríðarlega miklu að við vinnum í sameiningu að því að tryggja að öll þjónusta og aðstæða hér á landi sé til fyrirmyndar.
 
Áætlunarflug hefst í dag

Á fimmtudaginn var jómfrúarflug WOW air og var ferðinni heitið til Parísar en félagið mun hefja formlegt áætlunarflug til 13 áfangastaða í Evrópu í dag,  sunnudaginn 3. júní.

Flugfloti WOW air samanstendur af tveimur Airbus A320, 168 sæta flugvélum, með auknu sætarými og fótaplássi fyrir farþega. Vélarnar eru leigðar frá félaginu Avion Express og eru merktar WOW Force One og WOW Force Two með fjólubláum stöfum sem er einkennislitur WOW air. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á einstaka þjónustu sem mun skila sér í mun léttari og skemmtilegri ferðaupplifun en Íslendingum hefur áður staðið til boða en félagið vill samsvara sér með flugfélögum eins og Virgin, South West og Kulula.

Félagið boðar aukna samkeppni á markaði en eitt af megin markmiðum er að gera flugferðir til og frá landinu ódýrari en áður hefur sést.  

Í dag starfa um 80 manns hjá félaginu en ráðningar á fjölmörgum starfsmönnum í viðbót standa nú yfir en um 450 manns sóttu um stöðugildi sem félagið auglýsti laus nýlega.  Félagið starfrækið einnig ferðaskrifstofuna WOW ferðir sem sérhæfir sig í ferðum á helstu áfangastaði móðurfélagsins og mun auka framboð sitt verulega á komandi misserum.
 
Sameiginlegt átak
 
Að sögn Skúla hafa forsvarsmenn Wow air sett sér það markmið að horfa fram á veg og vinna að því að stækka markaðinn enn frekar. Hann segist sannfærður um að það eigi hagsmunaaðilar almennt að gera, enda sé hægt með samstilltu átaki allra aðila hæglega að tvöfalda árlegan ferðamannafjölda til Íslands á næstu 5-6 árum.
 
Og hvernig gekk svo fyrsta flugið?
Það gekk vel og ótrúlega gaman að upplifa slíka drauma verða að veruleika. Þetta er mjög skemmtilegur og dýnamiskur iðnaður þar sem maður er í nánu sambandi við fjölda fólks út um allan heim og alltaf jafn ánægjulegt að heyra hvað erlendum ferðamönnum finnst landið okkar magnað.
Skúli segir að gaman hafi verið að prófa sig í hlutverki flugþjónsins um borð:
Það var líka virkilega gaman að vera í flugþjónahlutverkinu um borð í fyrstu ferðinni og fá að taka þátt í að þjóna gestum okkar.  Ég skemmti mér konunglega og það er alveg ljóst að ég mun taka að mér flugþjónahlutverkið reglulega í sumar,  það jafnast fátt við það að fá að heyra beint í okkar farþegum um hvernig við getum haldið áfram að gera betur.  Það var óneitanlega líka mjög skemmtilegt að labba með glæsilegum hóp flugfreyja og þjóna í Paris og sjá viðbrögðin, þetta er frábær hópur og ég er mjög stoltur yfir þeirra frammistöðu.
Skúli undirstrikar að margir komi að því að hrinda slíkri hugmynd í framkvæmd. Hann vill nota tækifærið til að þakka fyrir sig í þeim efnum:
Ég vil þakka öllum þeim frábæru samstarfsaðilum sem eru búin að leggja mikið á sig undanfarið við að hjálpa okkur að koma WOW air af stað svo sem Ísavia, KFS,Flugmálastjórn, Avion Express, Rikku og Steingrími Sigurgeirssyni með frábæran mat og vín um borð svo eitthvað sé nefnt.  Síðast en ekki síst vil ég þakka öllu því góða fólki sem nú þegar er búið að tryggja sér miða með WOW í sumar,  ég hlakka til að sjá ykkur öll um borð!

Það var tilkomumikið að sjá flugvél Wow fara í loftið fyrsta sinni.




22.maí 2013 - 14:36 Ruth Ásdísardóttir

Gunnar Andri Þórisson skrifar bók með Brian Tracy

Bókin sem Gunnar Andri er að vinna að með Brian Tracy, Against the Grain, er væntanleg í haust Það má með sanni segja að ævintýralegir hlutir séu að gerast í lífi Gunnars Andra og eftir aðeins nokkurra mínútna spjall, er blaðamaður orðinn fullur eldmóðs vegna verkefnanna sem bíða hans. En, skemmst er frá því að segja að hann er að gefa út bók í samvinnu við Brian Tracy, sem þarf að sjálfsögðu ekki að kynna. Bókin er væntanlega í september á þessu ári og heitir Against the Grain.
21.maí 2013 - 18:05

Skattsvik eitt helsta viðfangsefnið á leiðtogafundi ESB

Leiðtogar allra aðildarríkja ESB hittast á morgun á fundi í Brussel.  Á dagskrá fundarins er að komast að samkomulagi um nýjar aðgerðir gegn skattsvikum.
17.maí 2013 - 12:30

Efnahagsráðgjafi Obama sækir einkasamkvæmi Björgólfs

Tugir gesta sækja einkasamkvæmi sem Björgólfur Thor Björgólfsson heldur á Fríkirkjuvegi 11 í dag. Á meðal gesta er efnahagsráðgjafi Baracks Obama, Bandaríkjaforseta.
16.maí 2013 - 23:00

Sigmundur Davíð: Fráfarandi ráðherrar tala með allt öðrum hætti nú en fyrir kosningar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hvetur fjármálaráðuneytið til að birta fyrirliggjandi upplýsingar um stöðu ríkisfjármála. Hann segir ráðherra fráfarandi ríkisstjórnar segja allt annað í dag en þeir gerðu fyrir kosningar.
16.maí 2013 - 12:30

Gífurlegar fjárfestingar í pípunum á Grænlandi: Geta tekið fram úr Íslandi

Útlit er fyrir gríðarlega uppbyggingu í Grænlandi á næstu árum og áratugum og svo gæti farið að landsframleiðsla þessa nágranna okkar í norðri verði orðin meiri en á Íslandi þegar fram líða stundir. Ísland gæti hagnast vel á þessum uppgangi.
16.maí 2013 - 08:00

Ókeypis tölvuleikur frá CCP: DUST 514 gerist í sama heimi og EVE Online

DUST 514 er fjölspilunar-skotleikur DUST 514 sem framleiddur er af íslenska fyrirtækinu CCP fyrir Playstation 3 er kominn út. Um er að ræða skotleik sem gerist í sama sýndarheimi og fjölspilunarleikurinn EVE Online, sem fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Áskrifendur hans í dag rúmlega 500.000. Ljóst er að með tilkomu DUST 514 stækkar EVE heimurinn umtalsvert. Leikurinn er ókeypis.
15.maí 2013 - 08:00

Fyrsta bílaskipið til Íslands eftir hrun

Um helgina kom til landsins bílaflutningaskip með 300 nýjum Chevrolet bílum fyrir Bílabúð Benna.  Mörg ár eru síðan að flutningaskip kom til landsins aðeins hlaðið bílum.  
13.maí 2013 - 17:30

Vandinn vex með hverjum deginum sem líður og verður sífellt óviðráðanlegri

Seðlabanki Íslands hefur miklar áhyggjur af bólumyndun á hlutabréfamarkaði í ljósi gífurlegrar umframeftirspurnar í hlutafjárskráningu VÍS og TM. Forstjóri síðarnefnda fyrirtækisins gagnrýnir aftur á móti vaxtastefnu Seðlabankans.
13.maí 2013 - 09:23

Norvik tekur í notkun umhverfisvænni pretnlausn

Norvik, sem rekur meðal annars fjölmargar smásöluverslanir á Íslandi, hefur tekið í notkun Rent A Prent, sem er umhverfisvæn prentþjónusta frá Nýherja. Einungis fimm prenttæki verða notuð á aðalskrifstofu Norvikur og Kaupáss á Bíldshöfða í stað 30 prentækja áður.
11.maí 2013 - 20:30

Einhversstaðar verða ríkir að búa: Í þessum borgum búa flestir milljónamæringar

Einhversstaðar verða þeir ríku að búa og ef þig langar til að vita í hvaða borgum milljónamæringar vilja helst búa þá hefur Wealt Insight tekið saman lista yfir þær tíu borgir þar sem flestir milljónamæringar búa en auður þeirra er mældur í dollurum.
11.maí 2013 - 19:30

Friðrik Már segir tölur um menntakerfið tala sínu máli. „En kannski er ég bara orðinn ruglaður af Excel notkun“

Friðrik Baldursson, prófessor í hagfræði og forseti Viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, segir það undarlegt að hæst beri í gagnrýni á tillögur Samráðsvettvangs um aukna hagsæld, að þeir sem hafi unnið að þessu kunni á Excel. „Þetta hefur þótt mikill ljóður á ráði manna hin síðari ár og þá sérstaklega hagfræðinga,“ segir Friðrik.
11.maí 2013 - 16:00

Runólfur um verkefni nýrrar ríkisstjórnar: Framkvæmdir í Helguvík og leiðrétting skulda heimilanna

Leiðrétta þarf skuldir heimila, auka erlenda fjárfestingu í landinu, hækka menntunarstig á vinnumarkaði og ná nýrri þjóðarsátt með atvinnurekendum og verkalýðshreyfingunni, að mati Rúnólfs Ágústssonar lögfræðings, formanns stjórnar atvinnuleysistryggingasjóðs  og fyrrverandi rektors. Eyjan hefur beðið hann og fleiri álitsgjafa úr þjóðfélaginu að setja á blað hver þau telja vera brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
11.maí 2013 - 15:46

Seðlabankinn heldur kröfuhöfum í spennitreyju: Vill endursemja um skilmála Landsbankabréfa

Seðlabankinn virðist kominn með kröfuhafa gamla Landsbankans í nokkurs konar spennitreyju með því að svara ekki beiðni slitastjórnar bankans um undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál svo að hægt verði að greiða yfir 200 milljarða í erlendum gjaldeyri til forgangskröfuhafa.
10.maí 2013 - 18:00

Bandaríkjastjórn fær ávísun upp á 6.600 milljarða

Á næstunni mun bandaríska alríkisstjórnin fá ávísun frá húsnæðislánastofnuninni Fannie Mae upp á 59,4 milljarða dollara sem eru um 6.600 milljarðar íslenskra króna. Þetta er greiðsla vegna inngripa alríkisstjórnarinnar í rekstur Fannie Mae í september 2008 þegar yfirstandandi efnahagskreppa hófst.
10.maí 2013 - 12:37

Umhverfissjóður Ergo veitir tveimur verkefnum styrki

Frá afhendingu styrkjanna. Með styrkhöfum er Jón Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri Ergo (lengst til vinstri). Umhverfissjóður Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka, hefur veitt tveimur verkefnum styrki, samtals að fjárhæð 1 milljón króna. Styrkirnir eru veittir árlega til að styðja við frumkvöðlaverkefni á sviði umferðar- og umhverfismála. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum.
10.maí 2013 - 09:00

Glæpagengi sveik 5,1 milljarð út úr hraðbönkum

Elvis Rafael Rodriguez, t.v og Emir Yasser Yej sem ákærðir hafa verið í málinu, tóku myndu af sér með 40 þúsund dollara. Hópur glæpamanna náði að svíkja stórar fjárhæðir út úr hraðbönkum víða um heim í tveimur vel skipulögðum aðgerðum í desember og febrúar síðastliðnum.
08.maí 2013 - 15:30

Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður kærður

Sverrir S. Sverrisson með kæruna. Mynd: pressphotos.biz Sverrir S. Sverrisson hefur kært Ólaf Helga Kjartansson til lögreglu fyrir brot í starfi. Sverrir segir að þann 4. apríl hafi hjá embætti sýslumannsins á Selfossi verið tekin fyrir beiðni um nauðungarsölu sem hafði borist frá Arion banka og beindist gegn eign Sverris í Grímsnesinu þar sem hann hefur búsetu.
08.maí 2013 - 14:15

Fjórði hver starfsmaður óvirkur: Stór hluti vill skipta um starfsvettvang

25% prósent starfsmanna íslenskra fyrirtækja eru óvirkir í starfi. Slíkir starfsmenn eru óánægðir, sjá fyrirtækið ekki fyrir sér sem framtíðar vinnustað, skapa úlfúð og finna sig ekki í starfi.
08.maí 2013 - 10:00

Kínverskir athafnamenn vilja jörð í Reykjadal

Hópur Kínverja leitar leiða til að fá aðgang að jörð í Reykjadal í Þingeyjarsveit til 33 ára. Þar ætla þeir að byggja fjölda húsa og stunda Norðurslóðarannsóknir.
08.maí 2013 - 08:45

Ferguson staðfestir orðróminn: Hættir sem stjóri Man Utd eftir tímabilið

Ferguson á einungis tvo leiki eftir á ferlinum. Alex Ferguson, stjóri Manchester United og sigursælasti knattspyrnustjóri í sögu ensku knattspyrnunnar,  mun láta af störfum eftir leikinn gegn WBA þann 19. maí nk. Þá mun hann taka sæti í stjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnufélaginu.
08.maí 2013 - 07:00

Íslenskur verkfræðingur spáði fyrir um internetið árið 1971: Hvernig verður Ísland árið 2000?

Það var fyrir rétt rúmum 40 árum, árið 1971, sem hópur spámanna hittist og sat á rökstólum tvö kvöld og velti fyrir sér hvernig yrði umhorfs hér á landi árið 2000. Niðurstaðan birtist síðar í blaðinu Samvinnu. Einn þátttakenda var Steingrímur Hermannsson en þar voru líka Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Svava Jakobsdóttir skáldkona.
07.maí 2013 - 21:30

Styttist í fríverslunarsamning milli Kanada og ESB

Fríverslunarsamningur Kanada og Evrópusambandsins er á lokastigum og er embættismenn í Brussel þegar farnir að beina athygli sinni að fyrirhuguðum viðræðum við Bandaríkin.
07.maí 2013 - 17:00

Raungengi krónunnar ekki hærra frá hruni

Í apríl síðastliðnum hækkaði raungengi íslensku krónunnar um 5,3% frá fyrri mánuði á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Er þetta þriðji mánuðurinn í röð sem raungengi krónunnar þróast í þessa átt og stendur það nú í 81 stigi, sem er hæsta gildi þess frá því í september árið 2008.
07.maí 2013 - 12:00

Ungir sjálfstæðismenn biðla til forystunnar: Látið af stóriðjustefnunni

„Hvernig stendur á því, í ljósi alls þess sem að ofan greinir, að það hafa verið hægrimenn sem hafa barist fyrir stóriðju en vinstrimenn gegn henni? Er þetta ekki allt saman einn stór misskilningur? “ spyr formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna sem hvetur forystunna til að láta af stóriðjustefnunni.
06.maí 2013 - 19:30

Hagfræðingur: Verstu spár um raunástand íslenska hagkerfisins nærri lagi – Efnahagsbatinn ofmetinn

„Ef eitthvað verður æ skýrar og liggur ljósar fyrir þá er það að því miður eru verstu svartsýnisspár um undirliggjandi raunástand íslenska hagkerfisins ansi nærri lagi,“ segir hagfræðingur sem segir að efnahagsbatinn á Íslandi hafi verið stórlega ofmetinn. Þörf sé á róttækum aðgerðum sem fela meðal annars í sér að gengi krónunnar verði látið falla.
05.maí 2013 - 23:13

Missti húsið á uppboði en Arionbanki eltir hann með eftirstöðvarnar til Noregs

Hefur einhver gott ráð hvernig ég get endað þessa vitleysu núna, þarf ég að láta gera mig gjaldþrota á Íslandi eða er eitthvað annað hægt að gera?
05.maí 2013 - 17:00

Dregur úr atvinnuleysi í Danmörku

Fjöldi atvinnulausra í Danmörku hefur verið á niðurleið undanfarna mánuði og í tölum sem voru birtar í morgun kemur fram að enn hafi dregið úr atvinnuleysi og hefur það ekki verið minna síðan í desember 2009.
04.maí 2013 - 12:30

Sjö eigulegustu eignirnar á Íslandi sem eru til sölu

Nóg er til af lúxushúsnæði í landinu og þeir sem eiga frá 100 til 200 milljónir aflögu til fasteignakaupa eru í góðum málum. Sala á dýrari fasteignum er komið á svipað ról og var fyrir bankahrun og þá virðist ríkja nokkur bjartsýni hjá hluta þjóðarinnar eftir kosningarnar.
03.maí 2013 - 09:15

Nýr 7 manna Kia Carens kynntur í Fífunni

Kia Motors mun kynna nýjan Kia Carens á Bílasýningunni í Fífunni um næstu helgi. Þetta er þriðja kynslóð bílsins en bíllinn er mikið breyttur og raunar byggður á nýjum grunni miðað við forverana. Suður-kóreski bílaframleiðandinn hefur á undanförnum tveimur árum sent frá sér hvern endurhannaðan bílinn á fætur öðrum sem hannaðir eru af Þjóðverjanum Peter Schreyer og tekist vel til.

 

02.maí 2013 - 17:48

Sigmundur Davíð rýfur þögnina: Þarf viðræðugrundvöll varðandi skuldamálin áður en lengra er haldið

Sigmundur Davíð fékk sem kunnugt er, umboð til stjórnarmyndunar frá forseta Íslands sl. þriðjudag. Hann hefur ekkert tjáð sig um stöðu mála fyrr en nú, að hann greinir Eyjunni frá stöðu mála.
02.maí 2013 - 16:00

Erlendir gestir eyddu yfir 400 milljónum á Fanfest CCP

Rúmlega 280 þúsund manns fylgdust með í beinni útsendingu úr Hörpu  þegar tíu ára afmæli EVE tölvuleiksins var fagnað í Reykjavík sl. helgi. Hátíðin vakti mikla athygli og hinir fjölmörgu gestir eyddu meira en 400 milljónum í ferðir og dvöl hér á landi.  Rúmlega hálf milljón manna spilar tölvuleikinn EVE Online.
02.maí 2013 - 12:00

Spáir endalokum spjaldtölva innan fimm ára

Eftir fimm ár munu spjaldtölvur eins og iPad og Samsung Galaxy Note ekki lengur vera að finna í hillum verslana því notendurnir munu í auknum mæli nota snjallsíma í stað spjaldtölva og fartölva.
02.maí 2013 - 08:00

Z/28 - magnaðasti Camaro sögunnar kynntur - myndskeið

Chevrolet Camaro Z/28 árgerð 2014 olli talsverðu uppnámi á bílasýningunni í New York á dögunum þar sem bíllinn var frumsýndur. Camaro kom upphaflega á markaðinn 1967 og var sérstaklega hannaður til hraðaksturs á vegum. Hann var léttbyggður og lipur og einstaklega aflmikill bíll. Nýr Camaro býr yfir öllum sömu eiginleikunum og hvert smáatriði er hannað til að skapa honum sess sem magnaðasta Camaro sögunnar.   


01.maí 2013 - 11:30

Bandarískir landamæraverðir til starfa á Kastrup: Mun flýta fyrir þeim sem taka tengiflug í Bandaríkjunum

Margir þeirra sem hafa ferðast til Bandaríkjanna kannast við langar raðir í flugstöðvunum þar sem afgreiðsla innflytjendaeftirlitsins þar í landi getur tekið langan tíma. Þó að allt gangi samkvæmt áætlun og flugið sé á áætlun til Bandaríkjanna og jafnvel þrír tímar í brottför tengiflugsins er ekki öruggt að það dugi fólki til að ná tengifluginu þar sem svo langur tími getur farið í að bíða eftir afgreiðslu innflytjendaeftirlitsins.
01.maí 2013 - 09:46

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið CLARA selt til Kísildalsins; Kaupverðið meira en milljarður króna

Forseti Íslands sótti höfuðstöðvar fyrirtækisins heim fyrir skemmstu. Við það tækifæri var þessi ljósmynd tekin. CLARA ehf. íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur verið selt til bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Jive Software Inc. Kaupverðið er meira en milljarður íslenskra króna. Jive framleiðir hugbúnað sem heldur utan um netsamfélög fyrirtækja, fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.  Helstu samkeppnisaðilar þess eru IBM og Microsoft. Verðmæti Jive er rétt um 1 milljarður bandaríkjadala.
30.apr. 2013 - 18:00

Vörukarfan hækkar hjá níu verslunum en lækkar hjá sex

Vörukarfan hefur hækkað milli mælinga samkvæmt athugun verðlagseftirlits ASÍ. Síðasta mæling var framkvæmd um miðjan mars og við athugun um miðjan mánuðinn kom í ljós að verð hafði hækkað hjá níu verslunum en lækkað hjá sex. Þá bendir ASÍ að gengi krónunnar hafi styrkst umtalsvert en það virðist ekki skila sér í miklum mæli til neytenda.  
30.apr. 2013 - 08:25

Vulcano - 950 hestafla kínverskur ofursportbíll

Icona er fyrirtæki í Shanghæ sem fyrst og fremst sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir hinn vaxandi bílaiðnað í Kína. Fyrirtækið ákvað að taka þátt í sjálfri bílaframleiðslunni og leitaði til bílahönnuðarins Samuel Chuffart sem áður hefur starfað fyrir Jaguar og Nissan. Markmiðið var að skapa bíl þar sem færu saman fagurfræðileg nálgun og mikið afl.

 


29.apr. 2013 - 08:00

295 hestafla tengiltvinnbíll og lúxusjeppi frá Citroen

Citroen hefur sent frá sér fyrstu myndirnar af stórglæsilegum jeppa, DS Wild Rubis, sem nú er einnig sýndur í hugmyndabílsformi á bílasýningunni í Sjanghæ í Kína.


25.apr. 2013 - 13:15

Norwegian flytur skráningu hluta flugflotans til Írlands

Norska flugfélagið Norwegian hefur í hyggju að flytja skráningu hluta flugflotans frá Noregi til Írlands til að lækka launakostnað fyrirtækisins. Með því að skrá flugvélarnar á Írlandi getur Norwegian ráðið starfsfólk á svipuðum kjörum og tíðkast í Asíu og lækkar það launakostnað flugfélagsins mikið.
24.apr. 2013 - 16:29 Ruth Ásdísardóttir

Sænska verslunin Indiska opnar loks á Íslandi

Hinn einstaki stíll Indiska birtist í litadýrð, mynstrum og áferð. Fjölskyldufyrirtækið Indiska hefur nýjan kafla í 112 ára viðskiptasögu sinni með því að opna sína fyrstu verslun á Íslandi, í Kringlunni, 8. maí næstkomandi. Indiska er sænskt fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1901 og rekur nú 90 verslanir í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Indiska býður uppá fjölbreytt vöruúrval af fatnaði, skartgripum, margskonar húsbúnaði og húsgögnum í sínum eigin stíl - Bohemian Modern.
22.apr. 2013 - 12:25

CCP kostar nýja stöðu við Háskólann í Reykjavík: Stórefla rannsóknir í tölvuleikjagerð

CCP hf. og Háskólinn í Reyjavík hafa undirritað samstarfsamning um að stórefla kennslu og rannsóknir í tölvuleikjagerð á Íslandi. Samkvæmt samningnum kostar CCP nýja stöðu prófessors við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík sem mun sinna bæði rannsóknum og kennslu í faginu. Samningurinn er til fimm ára.
22.apr. 2013 - 10:23 Ruth Ásdísardóttir

Nóta býður nýja lausn í reikningagerð - vill m.a. koma í veg fyrir ólöglega reikninga

Atli Rafn Viðarsson framkvæmdastjóri, einn eiganda Nótu ásamt Önnu Margréti Kristjánsdóttur ráðgjafa Nóta er nýtt fyrirtæki sem var stofnað í lok árs 2012. Fyrirtækið var stofnað, með lítil og meðalstór fyrirtæki í huga sem vilja senda út löglega reikninga á hraðan og þægilegan hátt, fá þá greidda hratt og vel og hafa betri yfirsýn og skipulag á fjármálunum. Atli Rafn Viðarsson, framkvæmdastjóri Nótu var áður markaðsstjóri hjá Tali og stofnaði Nótu ásamt VIRTUS í lok síðasta árs. Heimasíðan Nóta.is fór síðan í loftið í byrjun febrúar og hafa viðtökurnar verið mjög góðar. Pressan tók Atla tali og spurði hann aðeins út í þessa nýjung.
21.apr. 2013 - 20:46

Okkar samningstaða er sterk. Allt annað er eftirgjöf af hálfu Íslendinga

Mikilvægt er að semja um aflandskrónueign erlendra aðila, svonefnda snjóhengju, á sama tíma og þrotabú gömlu bankanna verða gerð upp. Þetta sagði Róbert Wessman, forstjóri bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen í Silfri Egils í dag, en hann sat þar fyrir svörum hjá Agli Helgasyni í tilefni þess að Róbert hefur ásamt um fimmtíu manna hópi fólks úr ýmsum áttum sett á laggirnar vefsíðuna snjohengjan.is, þar sem stjórnmálamenn eru hvattir til að setja úrlausn þessara mála í forgang strax eftir kosningar.
17.apr. 2013 - 14:03

Sveitarfélagið Fjarðabyggð og Nýherji skrifa undir áframhaldandi samstarf

Finnur Oddsson aðstoðarforstjóri Nýherja og Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar Sveitarfélagið Fjarðabyggð og Nýherji hafa skrifað undir áframhaldandi samstarf til þriggja ára um rekstur upplýsingatæknikerfa bæjarfélagsins. Í því felst að Nýherji mun áfram reka öll miðlæg tölvukerfi Fjarðabyggðar og sinna notendaþjónustu við starfsfólk bæjarfélagsins. Samhliða þessu hafa flest lykiltölvukerfi Fjarðabyggðar verið endurnýjuð og breidd þeirrar þjónustu sem Nýherji veitir bæjarfélaginu verið aukin. 
17.apr. 2013 - 12:08

Fjárfestar verja 300 milljónum í sjónvarp framtíðarinnar: OZ lausnin komin í tölvur

OZ ehf. er nýtt sprota- og hugbúnaðarfyrirtæki sem mun brátt bjóða Íslendingum að upplifa sjónvarp á nýjan máta á öflugu dreifikerfi fyrirtækisins.
17.apr. 2013 - 08:00

Elko hellir sér út í sölu á nýjum bílum og tekur notaða upp í

Í auglýsingablaði Elko sem barst í póstkassa á höfuðborgarsvæðinu fyrir skömmu kemur fram að Elko hefur hafið sölu á rafbílnum Nissan Leaf. Þetta er í fyrsta sinn á Íslandi sem verslunarkeðja hefur sölu á bílum.
16.apr. 2013 - 15:10

15 milljarða skattur á ofsagróða bankanna í fimm ár: Hvað finnst þér um það, Sigmundur Davíð?

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, leggur til að bankarnir verði látnir borga 15 milljarða króna í árlegan skatt á hagnað sinn í fimm ár. Þannig megi leiðrétta skuldir heimila, lækka skuldir ríkissjóðs og afnema gjaldeyrishöft. Tilboðið leggur hann í hendur formanns Framsóknarflokksins.
16.apr. 2013 - 10:18

Kjölfesta, félag í eigu lífeyrissjóða, kaupir 30% hlutafjár í afþreyingarfyrirtækinu Senu

Á myndinni eru frá vinstri Tómas Kristjánsson frá Siglu, Kolbrún Jónsdóttir frá Kjölfestu, Jón Diðrik Jónsson stjórnarformaður Senu og Björn Sigurðsson framkvæmdastjóri Senu. Kjölfesta hefur keypt 30% hlutafjár í afþreyingarfyrirtækinu Senu ehf., ásamt dótturfélögum Senu.
15.apr. 2013 - 08:56

6 hjúkrunarheimili taka Sögu sjúkraskrá í notkun

6 hjúkrunarheimili hafa að undanförnu tekið í notkun Sögu sjúkraskrárkerfi, hugbúnaðarlausn frá TM Software. Þau eru Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Droplaugarstaðir, Seljahlíð, Fellsendi og Ísafold í Garðabæ. Fjögur fyrstu hafa lokið innleiðingu en unnið er að innleiðingu hjá hinum.
13.apr. 2013 - 14:00

Carlsberg í óvæntu mótlæti á heimavelli

Carlsberg samsteypan er ein af stærstu fyrirtækjasamteypunum í Danmörku og margir hafa talið að í krafti stærðarinnar hafi Carlsberg haft góð tök á verslunum í heimalandinu. En nú mætir Carlsberg óvæntu mótlæti í samskiptum sínum við Coop sem rekur um 1.200 verslanir í Danmörku undir nöfnunum Kvickly, SuperBrugsen, Dagli‘Brugsen, Fakta og Irma.

Sena - Frank
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 22.5.2013
Umsátrinu um heimilin er lokið
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.5.2013
Árni Vilhjálmsson: Minningarorð
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2013
Pétur Pétursson
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 20.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 6. hola - Myndband
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 22.5.2013
Umsátrinu um heimilin er lokið
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 20.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 6. hola - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 18.5.2013
Ógleymanleg heimsókn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 20.5.2013
Myndband af mér í Brasilíu
Fleiri pressupennar