13. mar. 2010 - 09:20Bubbi Morthens

Davíð Oddsson.
Höldum því til Haga að Jón Ásgeir og Jóhannes í Bónus bera ekki ábyrgð á íslenska hruninu. Þetta veit Hrunameistarinn sjálfur Davíð Oddsson. Þeir sem bera ábyrgð á hruninu eru gjörspillt embættismannakerfi og ríkisstjórn Davíðs Oddssonar sem lagði grunninn með allsherjar spillingu sem og meðreiðarsveinarnir, Framsóknarflokkurinn. Ríkisstjórn Geirs Haarde og meðreiðarsveinar hennar. Jarðvegurinn fyrir hrunið var löngu plægður.
Eftir að hafa gert allt klárt fengu valdir gæðingar sáðkorn og var þeim sagt að sá að vild og allt í nafni frjálshyggju og frelsis.
Þegar þú hefur peningaröfl á bak við þig, sem eru tilbúin að henda milljónum í ónýtan rekstur, til þess eins að manni virðist, að verja kvótann og halda okkur frá Evrópu ,sem og níða skóinn af fólki sem Davíð þolir ekki, þá er ekki Frelsið haft að leiðarljósi. Morgunblaðið er áróðurstæki og svo virðist sem þeir sem eiga Morgunblaðið séu sáttir við fórnarkostnaðinn sem eru örfáir áskrifendur.
Og nú er Davíð og hægri öfgamennirnir byrjaðir eina ferðina enn. Getur það verið þá dreymi um að komast yfir 365 miðla og láta gæðinga sína fá smásölumarkaðinn? Davíð er ekki lengur valdamikill maður líkt og hann var en ef hann kæmist yfir Fréttablaðið og Stöð 2. Þá yrði staðan nú önnur og guð hjálpi Íslandi.
Höldum því til Haga að það er verið að berjast um reiði fólks og sú reiði er geigvænlegt vopn, áhrif Moggans eru þó hverfandi. Þó þú hafir fjölmiðil sem þú getur notað að eigin vild, blygðunarlaust. Ert tilbúinn að beita hvaða drullubragði sem er til þess að klekkja á andstæðingi þínum. Þess á milli sem þú endurskrifar söguna. Ef einhverntímann hefur verið til Baugsmiðill þá er það Morgunblaðið í dag.
Höldum því til Haga að það er verið að berjast um hverjir stjórna Íslandi
Ritstjórar Morgunblaðsins hrópa um siðferði. Annar þeirra setti Viðskiptablaðið í þrot. Skipti um kennitölu og keypti það til baka fyrir krónu.
Arion banki hefur ekki gert neitt ólöglegt né siðlaust. Hann gerir það sem hann á að gera en Davíð í Reykjavíkurbréfi sínu í Baugsmiðli sínum atar æru Finns Sveinbjörnssonar bankastjóra Arion banka drullu til þess eins að komast að Jóhannesi í Bónus.
Bankastjóri Arion banka hefur útskýrt vel þau atriði sem voru þess valdandi að ákveðið var að setja Haga á markað og leyfa núverandi stjórnendum að kaupa 15% hlut á sama verði og aðrir. Vandamál Haga eru ekki tilkomin vegna þess að fyrirtækið sé illa rekið heldur vegna þess að Seðlabanki Íslands rústaði krónunni.
Höldum því til Haga að Davíð setti Seðlabankann á hausinn.
Davíð hamast dag eftir dag. Vitandi það að reiði fólks þarf að fóðra. Hvað er betra en að fela eigin mistök með stærstu smjörklípu sögumnar og benda á Jóhannes í Bónus og alla hina?
Davíð glefsar einnig í hæla starfsmanna 365 miðla. Sennilega vegna þess að Ólafur Stephensen er orðin ritstjóri Fréttablaðsins. Enn og aftur sjáum við vinnubrögð sem Davíð hefur stundað opinberast fyrir augum okkar, þegar hann ætlar að starfsfólk 365 miðla gangi erinda eiganda sinna.
Þannig er það kannski á Mogganum og það er ekki ólíklegt að starfsfólkið þar þurfi að búa við þau kjör. Skuggi Davíðs grúfir sig yfir öll borð þó svo hann sjáist ekki á göngunum.
Skoðanakúgun voru og eru hans ær og kýr. Hann breytti Sjálfstæðisflokknum í einskonar fangelsi skoðana sinna og enn þora menn þar á bæ ekki að gera upp við harðstjórann.
Sjálfstæðisflokkurinn er enn í sárum eftir uppákomuna á Flokksþinginu þar sem Davíð hæddi eigin flokksmenn og ældi yfir allt og alla. Það þarf sérstaka manngerð sem gerir slíka hluti. Nú hrópar hann sjálfur, konungur hrunsins hæðst allra...úlfur...úlfur.
Höldum því til Haga að nánasti ráðgjafi hans og vinur, Kjartan Gunnarsson, var lykilmaður í Landsbankanum.
Bankanum sem ber ábyrgð á Icesave og alveg frá þeim tíma sem Davíð kom bankanum í hendur Björgúlfsfeðga.
Davíð Oddsson hefur skaðað Ísland meira en nokkur annar einstaklingur í íslenskri pólitík frá stríðslokum. Það gerði hann með því að undirbúa jarðveginn fyrir einkavæðingu bankanna og gjaldþroti Seðlabanka Íslands. Og með þeim gjörningi að knýja Glitni í þrot setti hann sig í fyrsta sætið í kepnisgreininni að setja Seðlabanka á hausinn með glans og meira að segja herra Google getur vitnað til um það að Davíð Oddsson er Evrópumestari í Hruni.
Maður spyr sig hvenær fer hann að gera það sem hann er góður í að gera? Skrifa snotrar smásögur og semja dægurlagatexta.
Svo
við höldum því til Haga þá er Davíð snjall textahöfundur og mjög svo frambærilegur rithöfundur
Þetta er maður sem keyrði Glitni í þrot út af blindum hefndarþorsta. Líkt og miðlungs skákmaður sem sá ekki nema einn leik fram í tímann og þar af leiðandi hrönnuðust upp afleikirnir. Sagan segir að menn hafi varað hann við og sagt kerfishrun; það verður kerfishrun og allsherjar upplausn.
Hann á að hafa svarað: Það verður að stoppa þessa menn.
En hvað með fólkið í landinu? var þá spurt. Hann á að hafa svarað: Það reddar sér.
Helgina sem hann keyrði Glitni í þrot felldi hann íslenska hagkerfið.