09. mar. 2010 - 19:40

Björgólfsfeðgar saka fjölmiðla um rangindi: Samson greiddi lán bankanna til 2003 og 2005

Feðgarnir Björgólfur Thor og Björgólfur Guðmundsson.

Feðgarnir Björgólfur Thor og Björgólfur Guðmundsson.

Björgólfsfeðgar, fyrrum eigendur Samsonar, segja að lán frá Búnaðarbanka til fyrirtækisins hafi verið að full greitt árið 2005. Jafnframt að hlutur Samsonar í Landsbankanum hafi verið að fullu greiddur árið 2003 að stærstum hluta með eigin fé.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgólfi Thor Björgólfssyni og föður hans Björgólfi Guðmundssyni í ljósi rangrar fjölmiðlaumfjöllunar um lánaviðskipti Samsonar að þeirra sögn. Tilkynningu feðganna má lesa í heild sinni hér að neðan.

 



Viðskipti Samsonar og Búnaðarbanka Íslands hf. hófust í apríl 2003 með lánssamningi að upphæð 48,3 milljónir bandaríkjadala.  Þá höfðu eigendur félagsins átt áralöng og farsæl viðskipti við bankann.

- Tryggingar voru veittar með veði í hlutabréfum Samsonar í Landsbanka Íslands hf. að
markaðsverðmæti sem nam tvöfaldri lánsfjárhæðinni.   
- Þvert á yfirlýsingar fyrrum bankastjóra Búnaðarbankans þá voru engar sjálfskuldarábyrgðir
gefnar vegna þessa láns.

Lán þetta rann til að greiða aðra greiðslu af þremur fyrir 45,8% eignarhlut í Landsbanka Íslands hf.sem Samson keypti af íslenska ríkinu.  Samson greiddi umrætt bankalán að fullu með áföllnum vöxtum á gjalddaga þann 29.apríl 2005, samtals að fjárhæð 51, 2 milljón bandaríkjadala.

Greiðslan og lánið voru í fullu samræmi við kaupsamning íslenska ríkisins og Samsonar sem undirritaður var 31. desember 2002.  Í þeim samningi setti seljandi , íslenska ríkið, engin skilyrði um hvar kaupandi gæti tekið lán fyrir hluta kaupanna. Hins vegar var gerð krafa um að eigið fé kaupanda væri ekki lægra en 35%. Samson greiddi fyrir 45,8% hlut sinn í Landsbanka Íslands hf. eins og hér segir:

- Í febrúar 2003 greiddu eigendur með eigin fé erlendis frá 48,1 milljónir bandaríkjadala.  
- Í apríl 2003 greiddu eigendur 48,3 milljónir bandaríkjadala með láni frá Búnaðarbanka Íslands hf.
- Í desember 2003 greiddu eigendur með eigin fé erlendis frá 42,7 milljónir bandaríkjadala.

Heildargreiðslur námu samtals 139,0 milljónum bandaríkjadala, þar af voru 90,8 milljónir fjármagnaðar af eigendum eða 65% . Þær voru greiddar að fullu inn á reikning ríkissjóðs Íslands í Seðlabanka Bandaríkjanna í New York í árslok 2003 og átti þá sér stað fullnaðaruppgjör vegna kaupa Samsonar á hlut ríkisins í Landsbankanum.  Það er því rangt að Samson skuldi íslenska ríkinu einhverja fjármuni vegna umræddra kaupa.

Í ljósi ofangreindra staðreynda liggur þvi fyrir eftirfarandi:

- Samson eignarhaldsfélag ehf. greiddi íslenska ríkinu árið 2003 að fullu fyrir 45,8% hlut í
Landsbanka Íslands samtals rúmlega 139,0 milljónir bandaríkjadala.
- Fjárframlag eigenda Samsonar við kaup á 45,8% hlut í Landsbanka Íslands nam 65% af
heildarfjárhæð viðskipta, en aðeins var gerð krafa um 35% eigið fé.  Eiginfjárframlag eigenda var því nærri tvisvar sinnum hærra en íslenska ríkið fór fram á.
- Lán sem Samson fékk frá Búnaðarbanka Íslands hf. vegna kaupa á Landsbanka Íslands hf. var greitt að fullu ásamt áföllnum vöxtum á gjalddaga í apríl árið 2005 eða fyrir nærri 5 árum.

Samson átti í frekari lánaviðskiptum við Kaupþing eftir sameiningu þess og Búnaðarbankans vegna ýmissa annarra fjárfestinga.  Tvö lán voru tekin árin 2004 og 2005 sem voru að fullu greidd fyrir mitt ár 2007.  Í desember 2005 tók Samson lán að fjárhæð 3,8 milljarðar króna.  Tryggingar voru teknar í hlutabréfum félagsins auk sjálfskuldarábyrgðar.  Hluti fjárhæðarinnar var greiddur á gjalddaga í desember 2007 og var þá gerður nýr lánasamningur um eftirstöðvar með hærri vöxtum.  Áfram stóðu veðbönd á hlutabréfum félagsins og sjálfskuldarábyrgð.  Gjalddagi þessa nýja láns var 10.desember 2008 en áður en sá dagur rann upp, eða í október sama ár, hafði ríkið yfirtekið hlut Samsonar í Landsbankanum sem var helsta eign félagsins og Samson hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta.  Það er af þessu seinni tíma láni sem Kaupþing, - nú Arion banki, hefur krafið ábyrgðaraðila um greiðslur og er það alveg óskylt kaupum á hlutabréfum Landsbankanum fyrir sjö árum.  Viðræður standa yfir um uppgjör þeirrar kröfu.



02.sep. 2010 - 18:31 Kaffistofan

Gera kratarnir uppreisn?

Á kaffistofunni fyrr í dag var bent á að Íslandi sé í dag stjórnað af stjórnmálaafli sem margir héldu í raun að væri komið til feðra sinna, nefnilega Alþýðubandalaginu.
02.sep. 2010 - 17:07

Ögmundur Jónasson skoðar hvort ákvörðun Kristjáns Möllers um ECA bindi hendur hans

Herþotur í Keflavík Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 14:39

DV verður fyrir árás frá vesturströnd Bandaríkjanna: Skannaðu tölvuna þína til öryggis

Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23

Jóhanna segir „ótrúlegan árangur“ hafa náðst: Bjarni sér hins vegar afturhaldsstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 12:18

Guðbjartur tók jakkafötin með til öryggis - Fékk staðfest fyrst í morgun að hann yrði ráðherra

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49

Kristján Möller úr ríkisstjórn: Ekki aðalatriði hver opnar Héðinsfjarðargöng - Hætti stoltur

Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:40 Kaffistofan

Alþýðubandalagið lifi!

Alþýðubandalagið er dautt. Lengi lifi Alþýðubandalagið!
02.sep. 2010 - 11:34

Jóhanna Sigurðardóttir: Frekari breytinga á ríkisstjórn að vænta - Reynt að þétta raðirnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frekari breytinga sé að vænta á ríkisstjórninni innan tíðar Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:15 Kaffistofan

Dýrar spurningar?

Gestur með fálka í barmi leit við í morgunte. Hann grúfði sig yfir nýprentað Viðskiptablaðið, sagði svo upp úr eins manns hljóði:
02.sep. 2010 - 09:53

Ný ríkisstjórn: Tveir karlar inn - Tvær konur og tveir karlar út - Almenn ánægja á fundinum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
01.sep. 2010 - 21:26 Kaffistofan

Hún Jóhanna átti að bregða hnífnum

Hún leyfir Kristjáni Möller að sprikla í snörunni. Nú segir fréttastofa RÚV blákalt að gríðarleg óánægja sé á landsbyggðinni með að Kristján eigi að axla sín skinn! Einmitt það?
01.sep. 2010 - 21:03

Þórunn veit ekki hver tillaga Jóhönnu er: Geri ráð fyrir að gætt verði að jafnrétti

Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segist ekki vita hvaða tillögu að ráðherrabreytingum forsætisráðherra muni gera á fundi klukkan níu í fyrramálið. Formaðurinn gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin hafi jafnrétti kynjanna að leiðarljósi.
01.sep. 2010 - 19:20

Dæmdur barnaníðingur vissi hver tók Madeleine: Gengi sem rænir börnum eftir listum

Madeleine McCann. Dæmdur barnaníðingur segist vita nákvæmlega hver tók Madeleine McCann, sem var rænt frá fjölskyldu sinni á sumarleyfisstað. Þeim upplýsingum kom hann fyrir í bréfi til sonar sína, áður en hann lét lífið.
01.sep. 2010 - 18:29

Skyndifundir hjá Samfylkingu vegna yfirvofandi ráðherrakapals: Ólga vegna kvenna

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Boðað hefur verið til skyndifundar bæði í þingflokki og flokksstjórn Samfylkingarinnar vegna breytinga á ríkisstjórninni.
01.sep. 2010 - 18:02

Ríkisráðsfundur boðaður á Bessastöðum á morgun: Ný ríkisstjórn lítur dagsins ljós

Ríkisráðsfundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun, 2. september.
01.sep. 2010 - 12:24

Ráðherrakapall: Guðbjartur fær að stjórna helmingnum af útgjöldum ríkisins - Árni færður

Guðbjartur Hannesson fær að öllum líkindum ráðherrastól. Samkvæmt heimildum Pressunnar verður Guðbjartur Hannesson gerður að ráðherra velferðarmála í nýju ráðuneyti. Árni Páll Árnason verður þá efnahags- og viðskiptaráðherra. Kynjahlutföll gætu valdið ólgu meðal kvenna innan stjórnarflokkanna.
01.sep. 2010 - 09:54

Tilraun til að fá ríkisstjórnina til að virka - Ögmundur verði talsmaður hinna órólegu

Uppstokkun ríkisstjórnarinnar er tilraun leiðtoga stjórnarflokkanna til að fá laskaða ríkisstjórn til að virka, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hluti af áætluninni er að fá Ögmund aftur inn í ríkisstjórn til að friða órólegu deildina svokölluðu.
01.sep. 2010 - 09:32 Kaffistofan

Hver er þessi Oddný?

Hver er þessi Oddný Harðardóttir sem allt í einu er orðin ráðherrakandídat? spurði ungur og fávís gestur á kaffistofunni. Annar eldri og ívið gleggri gestur okkar gat svarað því:
01.sep. 2010 - 07:31

Jóhanna reynir að hressa upp á laskaða ríkisstjórn: Þessir ráðherrar eru sagðir á leiðinni út

Jóhanna Sigurðardóttir, forsæstisráðherra, átti fund með hinum og þessum ráðherrum fram á nótt. Ástæðan er uppstokkun í ríkisstjórninni. Nýir ráðherrar verða að öllum líkindum kynntir til sögunnar í dag.
31.ágú. 2010 - 19:45 Kaffistofan

Nú er stand á Goddastöðum

Sjáandinn var kampakátur á kaffistofunni, enda hefur hann reynst sannspár með afbrigðum síðustu daga.
31.ágú. 2010 - 19:35

Fréttaskýring: 4-5 ráðherrar úr ríkisstjórn, Kristján og Álfheiður út með Gylfa og Rögnu?

Utanþingsráðherrarnir tveir eru á leið út úr ríkisstjórn. Líklegast þykir að Kristján L. Möller þurfi einnig að víkja sem og Álfheiður Ingadóttir. Ólga er meðal Samfylkingarfólks vegna mannaráðninga Árna Páls Árnasonar.
31.ágú. 2010 - 19:12

Ragna og Gylfi út eftir 19 mánuði: Frekari breytingar væntanlegar á allra næstu dögum

Ragna Árnadóttir. Samkvæmt heimildum Pressunnar eru utanþingsráðherrarnir tveir, Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á leið út úr ríkisstjórn.
31.ágú. 2010 - 15:53 Kaffistofan

Karlinn er helvíti reffilegur

Það er kunnara en frá þurfi að segja að æðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi einfaldan smekk þegar kemur að framkomu og klæðaburði og velji aðeins það besta.
31.ágú. 2010 - 13:47

Ráðherra fagnar „óvanalega vitlausri“ tillögu: Tilbúinn til að leggja ESB umsókn undir

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, óttast ekki að ESB umsókn Íslands verði dregin til baka, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi. Hann fagnar tillögunni, jafnvel þótt hún sé „óvanalega vitlaus“, að hans sögn.
31.ágú. 2010 - 11:20 Kaffistofan

Spaugstofan á Stöð 2?

Spaugstofumenn hafa óvænt boðað til blaðamannafundar í sjálfu Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 í dag.
31.ágú. 2010 - 10:23 Eiríkur Bergmann

Kemur tæplega á óvart

Ekki kemur það nú svo óskaplega og mjög á óvart að LÍÚ telji óþarft að festa í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar, eins og fram kemur á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
31.ágú. 2010 - 08:56

Haraldur Flosi: Allt tal um uppsagnir vekur upp ótta meðal starfsfólks - Engar tölur á borðinu

Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir ekki enn ljóst hversu mörgum starfsmönnum verður sagt upp í fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum fyrirtækisins. Hann segir allt tal um uppsagnir vekja upp ótta meðal starfsmanna.
31.ágú. 2010 - 08:33 Kaffistofan

Jóhannes... í Bónus... í Færeyjum?

Menn velta sér nú mikið upp úr þeirri stöðu sem komin er upp í Högum. 
31.ágú. 2010 - 08:00

Íbúðalánasjóður: Nokkrir umsækjendur ætluðu að kæra hefði Ásta verið ráðin forstjóri

Nokkrir umsækjendur um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs ætluðu sér að kæra ráðninguna hefði Ásta H. Bragadóttir verið ráðin. Félagsmálaráðherra ákvað hins vegar að skipa valnefnd eftir að stjórn sjóðsins gat ekki komið sér saman um hvern ætti að ráða.
31.ágú. 2010 - 07:30

Finnst þér rafmagnið dýrt eftir hækkun OR? Verið að skipuleggja rafmagnsverkfall á föstudag

Verið er að skipuleggja rafmagnsverkfall heimilanna til að mótmæla fyrirhugaðri hækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Almenningur er hvattur til að slökkva í fimm mínútur í mótmælaskyni.

Pressupennarnýjast frh.
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 01.9.2010
Of margir háskólar?
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir
Gabriella Unnur Kristjánsdóttir - 30.8.2010
Verjum menntun
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Jón Magnússon
Jón Magnússon - 30.8.2010
Hvað kostar kílóvattstundin?
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 29.8.2010
Venesúela, Kúba... Ísland?
Fleiri pressupennar
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit