14.mar. 2010 - 22:08
Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02
Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.
14.mar. 2010 - 19:36
Sigurður G. Guðjónsson
Mogginn veitti mér þann óvænta heiður að prýða forsíðu laugardagsblaðsins – tilefnið, kaup mín á kröfu Skeljungs á hendur þrotabúi Fons. Það skal upplýst hér að þessa liðlega 200 þúsund króna kröfu Skeljungs keypti ég á tuttugu þúsund krónur.
14.mar. 2010 - 19:26
Félagsmálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármögnunarfyrirtækin fari í þrot vegna tillagna hans um afskriftir bílalána. Mestu skipti að skuldurum sé gert kleift að borga af lánum sínum. Þá óttast hann ekki lögsókn.
14.mar. 2010 - 15:17
Ólafur Ragnar Grímsson, Össur Skarphéðinsson og Eva Joly hafa hjálpað íslensku þjóðinni af hnjánum upp á fæturna. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og sakar Svía um að hugsa um eigin hag í Icesave-deilunni.
14.mar. 2010 - 14:37
Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 11:40
Kaffistofan
Finnbjörn Hermannson, formaður Samiðnar, hlýtur að eiga ummæli vikunnar.
14.mar. 2010 - 11:21
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins átelur stjórnvöld fyrir andvaraleysi gagnvart samdrætti í byggingariðnaði. Þekking hverfi úr landi. Formaður Samiðnar vill koma hjólunum af stað með því að veita 80% lán til íbúðakaupa.
14.mar. 2010 - 07:30
Sölvi Tryggvason
Það er jákvætt að allir fjölmiðlarnir í landinu og fleiri en einn Alþingismaður séu byrjuð að skoða það sem ég hef bent á hér á síðunni ítrekað síðan í janúar.
13.mar. 2010 - 20:29
Aðsend grein
Vegna fréttar í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 13. mars tel ég rétt að undirstrika að í þeirri umsögn eldri samtaka um vaxtalögin sem vísað er til í fréttinni, er kallað eftir breytingum á frumvarpinu til að auka skýrleika laganna. Komið er á daginn að þar hafa eldri samtök haft nokkuð til síns máls. Ljóst er þó að löggjafinn deildi ekki áhyggjum samtakanna af þessu á sínum tíma.
13.mar. 2010 - 18:48
Svo gæti farið að Deutsche Bank höfði mál gegn íslenska ríkinu láti ríkisstjórnin verða að afskriftartillögum félagsmálaráðherra um bílalán. Fjármögnunarfyrirtæki segja tillögurnar vanhugsaðar og gætu orðið til þess að þau fari í þrot.
13.mar. 2010 - 14:40
Ólafur Arnarson
Gylfi, lán eignarhaldsfélaganna sitja inni í gömlu bönkunum. Þetta virðast allir vita nema þú og aðstoðarmaður forsætisráðherra. Viltu gera aðra tilraun til að skýra út hvers vegna nýju bankarnir draga lappirnar við að leysa vanda heimila og atvinnulífs?
13.mar. 2010 - 14:30
Einar Skúlason, sem leiðir lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor, segir að Reykjavík beri skylda til þess að skoða kosti og galla sameiningar við Álftanes. Jafnvel gæti verið hagkvæmt fyrir Reykjavík að sameinast Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ.
13.mar. 2010 - 13:00
Magnús Orri Schram
Fjölmiðlar ræða nú „uppstokkun“ í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna og eitthvað er rætt um breytingu í ráðherraliði.
13.mar. 2010 - 10:40
Kjartan Broddi Bragaon, hagfræðingur, segir afskriftir á skuldum eignarhaldsfélaga engin áhrif hafa á svigrúm bankanna til að afskrifa skuldir heimila og fyrirtækja. Þingmaður segir gæði lánasafnanna bankanna batna með auknum afskriftum.
13.mar. 2010 - 09:50
Ólíklegt er að lykla- og kröfufrumvörp Lilju Mósesdóttur verði að lögum, segja ráðherrar. Hins vegar verða þessi frumvörp, að einhverju leyti, fléttuð inn í aðgerðir ríkisstjórnarinnar fyrir skuldsett heimili og einstaklinga sem kynntar verða fljótlega.
13.mar. 2010 - 09:30
Kaffistofan
Á kaffistofunni er nú fullyrt að margboðuð skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis sé loksins að verða tilbúin og nú séu prentvélarnar byrjaðar að rúlla.
13.mar. 2010 - 09:20
Bubbi Morthens
Höldum því til Haga að Jón Ásgeir og Jóhannes í Bónus bera ekki ábyrgð á íslenska hruninu. Þetta veit Hrunameistarinn sjálfur Davíð Oddsson. Þeir sem bera ábyrgð á hruninu eru gjörspillt embættismannakerfi og ríkisstjórn Davíðs Oddssonar sem lagði grunninn með allsherjar spilling sem og meðreiðarsveinarnir Framsóknarflokkurinn. Ríkisstjórn Geirs Haarde og meðreiðarsveinar hennar. Jarðvegurinn fyrir hrunið var löngu plægður.
13.mar. 2010 - 09:02
„Vonlaust er hins vegar að við náum sambærilegum lífskjörum á við hin velferðarhagkerfi Norðurlandanna ef þessari fátæktarstefnu VG í peningamálum verður ekki hrundið,“ segir Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra.
13.mar. 2010 - 08:30
Sölvi Tryggvason
Í yfirheyrslum saksóknara yfir Milestone mönnum eru þeir allir spurðir um hvernig fjárhagsstaða þeirra sé eftir hrunið.
12.mar. 2010 - 18:45
„Við lesum bara blöðin eins og aðrir og fáum ýmsar fréttir þaðan, en könnumst nú ekki mikið við þær,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, um fyrirhugaða uppstokkun í ráðherraliðinu. Hann gefur lítið uppi um breytingar á ráðherraliðinu.
12.mar. 2010 - 17:57
Sölvi Tryggvason
ég held að þessi ákvörðun forsetans hafi skapað ákveðna nýja stöðu,
segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Í Spjallinu síðasta miðvikudag viðurkenndi hún jafnframt að undanfarnir mánuðir hefðu tekið á innan raða
12.mar. 2010 - 16:35
Gjaldþrota eignarhaldsfélög éta upp mest af þeim afskriftum sem fóru milli gömlu og nýju bankanna, segir efnahags- og viðskiptaráðherra. Bankarnir þurfa að afskrifa stórar fjárhæðir hjá þessum félögum og því skapast ekki svigrúm til afskrifta annars staðar.
12.mar. 2010 - 15:00
Ólafur Arnarson
Landsbankinn fór með þessum hætti kerfisbundið framhjá reglum FME til að hygla félögum í eigu aðaleigenda Landsbankans og tengdra aðila. Það kveikir spurningar um það hvers vegna sérstakur saksóknari bankahrunsins hefur ekki séð ástæðu til að rannsaka þessi mál. Nógu duglegur hefur hann verið við að rannsaka mál, sem tengjast Kaupþingi og félögum tengdum þeim banka. Ekki er vitað til þess að ein einasta húsrannsókn eða yfirheyrsla hafi farið fram vegna kerfisbundinna brota í Landsbankanum. Að ekki sé minnst á Icesave.
12.mar. 2010 - 14:45
Kaffistofan
Margir eru um hituna í kapphlaupinu um starf dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins, eins og sést á listanum yfir umsækjendurna 37 sem Pressan birti í dag.
12.mar. 2010 - 14:28
Alls sóttu 37 manns um stöðu dagskrárstjóra RÚV sem auglýst var eftir að Þórhallur Gunnarsson lét af störfum. Meðal umsækjanda eru þekkt nöfn á borð við Felix Bergsson, Sigurjón Kjartansson, Þorfinn Ómarsson, Davíð Þór Jónsson og Ágúst Héðinsson.
12.mar. 2010 - 13:40
Fjármálaráðherra útilokar ekki að Alþingi setji lög á verkfall flugumferðarstjóra í næstu viku, eins og til stóð að gera í gær. Hann vonast þó að til þess þurfi ekki að koma. Hann segir kröfur flugumferðarstjóra háar og ekki í takti við efnahagslegan veruleika.
12.mar. 2010 - 13:00
Ólafur Arnarson
Þetta er gott og blessað hjá Lilju, og ánægjulegt að hún skuli ekki taka þátt í þeirri herferð gegn Jóhannesi Jónssyni, sem Morgunblaðið hefur lagt upp í, en það stenst engan veginn að útiloka grunaða menn frá því að eignast fyrirtæki. Í 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands segir:
„Hver sá sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.“ Af þessu leiðir, að ekki er hægt að mismuna mönnum á grundvelli þess, að þeir hafa stöðu grunaðs manns. slíkt er brot á stjórnarskránni.
12.mar. 2010 - 11:57
Samningaviðræður um Icesave hafa enn ekki hafist og vonast ríkisstjórnin til að af því verði í næstu viku. Engar tímasetningar hafa verið ákveðnar. Fjármálaráðherra segir óraunhæft að hafa ætlað að hefja viðræður í þessari viku eins og vonir stóðu til.