07. mar. 2011 - 13:05Marta María
Stundar þú líkamsrækt en léttist ekki neitt? Fitbook gæti verið málið fyrir þig

Mynd: Fitbook.com
Dagur Eyjólfsson, ÍAK einkaþjálfari frá Keili hefur alltaf haft áhuga á líkamsrækt og hollu mataræði. Hann er fjármálafræðingur frá Coastal Carolina University í Bandaríkjunum og mikill tölvuáhugamaður. Þetta þrennt varð kveikjan að www.fitbook.com sem ætti að geta hjálpað öllum til að ná kjörþyngd og komast í gott líkamlegt form. Vefurinn hefur verið rúmt ári í vinnslu og er og verður í stanslausri þróun.
Stundarðu líkamsrækt en gengur samt ekki allt of vel að léttast? Borðarðu kannski einfaldlega of mikið? Ef svarið er já þá er fundin leið til þess að fylgjast með neyslunni á ótrúlega einfaldan hátt; með því að skrá sig á nýjan, íslenskan matarvef www.fitbook.com.
Það að vera á Fitbook.com er lítið mál. Þú gefur upp kyn, aldur, hæð og þyngd. Þú setur þér markmið og kerfið reiknar samstundis út hversu margar hitaeiningar þarf til þess að ná settu marki.
Eftir það kemur matardagbókin að góðu gagni. Í hana er skráð allt sem viðkomandi borðar og á augabragði kemur í ljós hversu margar hitaeiningar hann hefur innbyrt. Einnig er hægt að velja sér matarplan við hæfi; t.d. auðvelt og fljótlegt, grænmetisfæði eða kolvetnaskert fæði og upp sprettur tillaga að vikuskammti. Vilji fólk ekki allt sem þarna stendur má henda einu út og setja annað inn, en gæta þess aðeins að hitaeiningafjöldinn raskist ekki.
Dagur segir að hér sé án efa á ferðinni stærsti matargagnagrunnur á Íslandi með næringarinnihaldi matvara. Upphafið rekur hann til þess að í Keili voru nemendur látnir vinna næringarfræðiverkefni og nota til þess matarvef frá Matís. Degi fannst vefurinn hefði mátt vera fullkomnari og vildi gjarnan fá betra tæki og tól fyrir sjálfan sig að nota svo að hann fór að hugleiða hvernig það mætti verða.
Dagur hefur bætt þúsundum íslenskra matvæla við grunninn og gerði hann það m.a. með því að afla upplýsinga af umbúðum hinna ýmsu matvara. Þar fyrir utan er fitbook.com tengdur erlendum gagnagrunnum. Fólk fær upplýsingar um allt milli himins og jarðar með því einu að slá inn vöruheitið og upplýsingarnar birtast á skjánum.
Á fitbook.com eru uppskriftir, einfaldar og flóknar, og fer þeim stöðugt fjölgandi. Hægt er að slá inn ósk um einfalda uppskrift með fáum hitaeiningum eða aðra flóknari og síðan er hægt að setja inn tímann sem taka á að búa matinn til. Mikið af uppskriftunum eru erlendar en þeim íslensku fer stöðugt fjölgandi.
Nú geta þeir sem áhuga hafa á að bæta mataræði sitt prófað fitbook.com ókeypis í 30 daga en eftir það kostar 600 krónur á mánuði að vera fastur áskrifandi að vefnum. Dagur opnaði vefinn í janúar og er hann bæði á íslensku og ensku.
Móttökur verið mjög góðar og þegar hafa fjölmargir skráð sig inn þótt vefurinn hafi ekki verið kynntur opinberlega fyrr en nú. Þess má geta að þátttakendur í námskeiðinu: Þinn líkami, þinn lífsstíll, fá ókeypis aðgang á meðan á námskeiðinu stendur.
Þeir sem hafa áhuga á að tengja mataræðið við ákveðið æfingaprógramm geta valið sér prógramm við hæfi á vefnum, allt frá því að ætla bara að æfa sig heima án tækja upp í að vera í þjálfun undir handleiðslu einkaþjálfara á líkamsræktarstöð.
Þjálfarinn getur þá tengst síðu þess sem hann er að þjálfa og fylgst með honum og veitt honum frekari leiðbeiningar í gegnum tölvuna.
Einnig svarar Dagur sjálfur fyrirspurnum fólks á vefnum eftir því sem þær berast og geta þær jafnt tengst mataræði sem líkamsrækt enda er hann eins og áður sagði með einkaþjálfarapróf frá ÍAK. Hér mætti líka minna á að vefurinn gagnast ekki bara þeim sem vilja léttast, fólk getur viljað halda réttri þyngd og sumir þurfa jafnvel að þyngjast.
20.maí 2012 - 20:00
Það var margt um manninn á fræðslu- og smökkunnarheimsókn sem Mekka stóð fyrir á Gyllta salnum á Borginni.
16.maí 2012 - 10:20
Hér eru skemmtilegar breytingar á baðherbergi og myndir af framkvæmdunum. Forsaga málsins er að sturtan sem fyrir var gaf sig og það var komin mygla á bakvið og því þurfti að hreinsa það allt saman.
16.maí 2012 - 09:40
Þúsundþjalasmiðurinn Jón Gunnar Geirdal ljáir okkur að þessu sinni drykk dagsins sem hann byrjar alla morgna á.
14.maí 2012 - 17:00
Þetta syndsamlega gott og þarf enga eldun. Matvinnsluvél og iceberg salat og maturinn klár.
14.maí 2012 - 15:55
Myndin á kortinu er máluð af Hönnu Lilju Valsdóttur en hún var ein af stofnfélögum Lífs. Hanna Lilja lést í ágúst 2011 og er kortið gefið út í minningu hennar og dóttur hennar Valgerðar Lilju Gísladóttur.
14.maí 2012 - 11:19
Eru ekki allir komnir með leið á að vera í hlýjum þykkum skóm eða ullarsokkum eftir veturinn ? Nú þegar sumarið er alveg á næsta leiti getum við sparkað af okkur bomsunum og prófað eitthvað nýtt.
11.maí 2012 - 07:00
Daði Hendricusson og Þóra Margrét unnusta hans sem þjálfa bæði hjá World Class ljá okkur þessa frábæru uppskrift af heilsudrykk dagsins. Þau byrja alla daga á þessari grænu bombu. Enda eru þau í stöðugri þjálfun og útivist.
10.maí 2012 - 10:40
H&M sem nánast allir íslendingar þekkja er með frábæra baðfatalínu fyrir þetta sumar 2012. Heitir litir og munstur er áberandi hjá þeim í sumar. Bleikur, grænn, fjólublátt og hvítt virðist einkenna litina hjá þeim fyrir 2012. Einnig er þeir með frábæra fylgihluti eins og sloppa, armbönd og töskur. Allt sem maður þarf fyrir ströndina og sundferðina.
10.maí 2012 - 10:00
Italiano fer að fagna 2 ára afmæli um þessar mundir. Allir geta séð hvaða kaloríufjöldi er í pizzunni sem þeir panta og það kom okkur virkilega óvart hvað það eru í rauninni fáar í flestum tilfellum. Inná heimasíðu þeirra er hægt að sjá fjöldann í sinni uppáhalds pizzu. Högni eigandi Italiano lét okkur fá þessa girnilegu uppskrift til að gera heima.
09.maí 2012 - 07:00
Belgar deyja ekki ráðalausir og skella sér á ströndina í höfuðborginni þó hún liggi ekki að sjó. Í Brussel er hreinlega búin til baðströnd með hvítum sandi og pálmatrjám á sumrin.
04.maí 2012 - 13:00
Auglýsing með Ashton Kutcher þar sem hann leikur á meðal annars Indverskan mann hefur verið tekin úr umferð eftir kvartanir sem gengu um netheima og kölluðu það kynþáttafordóma.
03.maí 2012 - 09:00
Þykkur banana og mangó bragðbættur drykkur, þessi mun höfða til allra i fjölskyldunni. Drykkur er kjörinn á annarsömum morgni, hann er einnig pakkaður af næringu og mjög fljótur að undirbúa.
17.ágú. 2010 - 11:15
Snæfríður Ingadóttir
Frönsk stjórnvöld hafa bannað fólki að baða sig í nokkrum af strandbæjum frönsku ríverunnar eftir að hákarl sást þar á svamli í sjónum. Hákarlaárásir eru mjög óalgengar í Frakklandi en stjórnvöld vilja ekki taka neina áhættu í þessu máli.
03.maí 2012 - 09:56
Hvernig eigum við að draga úr sykurneyslu barna og ungmenna? Hvernig eigum við að fá þau til að borða heilsusamlegan mat og bæta lífsstílinn?
27.apr. 2012 - 09:40
Fannar Karvel
Hulda er ein sterkasta kona landsins; hún er íslandsmeistari í réttstöðulyftu, bikarmeistari í kraftlyftingum og fer í ágúst á Norðurlandamót auk þess sem hún stefnir á lágmörk fyrir heimsmeistaramót.
02.maí 2012 - 11:00
Nú geta aðdáendur tískurisans D&G glaðst því að hönnuðurnir hafa stigið út fyrir sinn þægindarramma og komið á markaðinn með nýjung, hlébarða tískureiðhjól.
01.maí 2012 - 08:00
Ertu ófrísk og langar til útlanda? Líklegast spyrðu sjálfa þig margra spurninga um hvernig þú átt að haga þér. Spurninga eins og hvenær máttu fara og hvað áttu að taka með þér svo þér líði vel.
02.maí 2012 - 08:00
Sjálfstraust í foreldrahlutverki getur bara komið innanfrá, ekki frá öðrum. En þangað til sjálfstraustið er komið, spyrjið þá bara barnið, það veit ekki hvernig á að gera hlutina vitlaust, það veit bara hvað það vantar og því finnið þið út úr saman.
30.apr. 2012 - 14:00
Flestir byrja að huga að einhverskonar átaki þegar sumarið fer að láta á sér kræla, en þessi æfing er frábær ef að þú ert að reyna að koma þér í form. Ekki skemmir fyrir að þú getur hreinlega gert hana heima hjá þér.
30.apr. 2012 - 11:00
Please Magazine birti nýverði myndaþátt eftir íslenska ljósmyndarann Sögu Sig, myndaþátturinn hefur slegið í gegn eins og allt sem að Saga kemur nálægt enda óaðfinnanlegar myndir.
28.apr. 2012 - 17:42
Þrúgusykur er sykur sem ég hef mikil mæti á, ég hef ekki verið mikill talsmaður fyrir sykuráti hingað til en vissulega er hann nauðsynlegur.
30.apr. 2012 - 09:00
Þessi drykkur dagsins er sérstaklega góður á mánudagsmorgni og kemur þér svo sannarlega í gang fyrir vikuna.
30.apr. 2012 - 07:40
Söngkonan Rihanna hefur fyrir löngu sýnt það og sannað að hún er algjör bikiníbomba, en þessar flottu myndir náðust af skvísunni þar sem að hún sólaði sig á Hawaii um helgina.
29.apr. 2012 - 16:00
Heitasta parið í Hollywood um þessar mundir er án efa Kim Kardashian og Kanye West, en þau sáust kíkja út að borða í New York í gærkvöldi. West náði þó ekki alveg að halda kúlinu og missti buxurnar niður um sig Kim til mikillar ánægju.
29.apr. 2012 - 14:00
Allar stjörnurnar eru að prófa glútenlaust mataræði, en er þetta hollt fyrir þig? Strákarnir hjá Body.is eru með réttu svörin.
01.maí 2012 - 12:00
Fyrirsætan unga Brynja Jónbjarnardóttir hefur notið mikilla vinsælda síðustu misseri enda stórglæsileg fyrirsæta í alla staði.
29.apr. 2012 - 10:18
MPR Design Group sýnir okkur hérna þvílíkt flotta Penthouse íbúð sem væri svosem allveg ljúft að eiga.
Að utan sjáum við gamla byggingu sem svo geymir þessa nútíma paradís á þakinu.
28.apr. 2012 - 12:00
Þessir hafraklattar eru ótrúlega bragðgóðir, en innihald þeirra er einnig mjög vandað og hollt. Hér eru strákarnir hjá Body.is komnir með uppskrift sem að þú getur bakað eftir án þess að fá samviskubit!
28.apr. 2012 - 10:00
Vantar þig eitthvað sumarlegt og flott? Stelpurnar í 3 Smárum voru að enda við að taka upp nýja sendingu af flottum vörum í öllum heitustu sumarlitunum.
27.apr. 2012 - 15:47
Leik -og söngkonan Lindsay Lohan virðist aldrei ætla að taka sig á en nú hefur hún komist í fréttirnar enn á ný útaf slæmri hegðun. Lohan sló heldur betur ekki í gegn á tökustað á dögunum þar sem að hún mætti seint og hvarf í sífellu.
27.apr. 2012 - 13:30
Stundum er hægt að breyta heilu herbergi í aðeins nokkrum handtökum. Hér fékk gamalt herbergi í risi yfirhalningu með frábærri útkomu.
27.apr. 2012 - 11:00
Spurt og Svarað með Body.is er liður á Veröldinni en þar hefur þú kost á því að fá ráðleggingar og svör frá einkaþjálfurum með mikla reynslu. Björn Þór Sigurbjörnsson og Kristján Samúelsson hafa mikla reynslu þegar kemur að matarræði, þjálfun og heilsu og munu þeir svara spurningum lesenda af mikilli gaumgæfni.
27.apr. 2012 - 09:00
Langar þig í eitthvað einstaklega girnilegt svona í morgunsárið? Þessi föstudags smoothie er bara góður og ferskur!
27.apr. 2012 - 07:50
Hjartaknúsarinn Justin Bieber er afskaplega ástfanginn af kærustu sinni, söngkonunni Selenu Gomez en segist þrátt fyrir sögusagnir ekki ætla að giftast henni í allra nánustu framtíð. Bieber segist vera alltof ungur og ætli að bíða í að minnsta kosti 5-10 ár með að bera upp stóru spurninguna.
26.apr. 2012 - 15:34
Þorbjörg Marinósdóttir, einnig þekkt sem Tobba Marinós, segir að sér hafi ofboðið neysluhyggjan sem er allsráðandi og þá ekki síður sitt eigið neyslumynstur. Þess vegna hafi hún ákveðið að eyða aðeins 500 krónum næstu daga til að auka verðvitund sína.
26.apr. 2012 - 13:32
Það er alltaf gaman að gefa gömlum og góðum húsgögnum nýtt líf með smá málningu og pússi. Hér fær gamall stofuskápur andlitslyftingu og útkoman er hreinlega mögnuð.
26.apr. 2012 - 11:19
Söngkonan gullfallega Jennifer Lopez er ekki bara fræg fyrir röddina sína, hún er einnig fræg fyrir afturendan sinn sem hefur vakið mikla athygli síðustu ár. Lopez er greinilega mjög stolt af afturendanum enda spókaði hún sig um í gylltum buxum sem gerðu honum góð skil í gær.
26.apr. 2012 - 09:00
Þessi drykkur dagsins gæti hljómað undarlega, en hann er alveg æðislega bragðgóður og einfaldur.
26.apr. 2012 - 07:00
Ofufyrirsætan og Victoria's Secret engillinn Miranda Kerr er heimsfræg fyrir gullfallegt andlit og vöxt sem að bræðir marga, nú hefur Kerr leyst frá skjóðunni og sagt frá því hvernig hún nær að halda sér í þessu glæsilegu formi.
25.apr. 2012 - 16:19
Nú hefur það verið staðfest að söngkonan stórglæsilega, Beyoncé Knowles er fallegasta kona í heimi árið 2012 samkvæmt tímaritinu fræga People magazine. Leyndarmálið segir hún vera náttúrulegt og einfalt!
25.apr. 2012 - 12:00
Hefur þú heyrt um æfinguna 21? Skemmtileg og fjölbreytileg æfing sem reynir vel á tvíhöfðann og skilar tilsettum árangri!
25.apr. 2012 - 09:00
Þessi drykkur er æðislega góður og ferskur, uppskrift er hér að neðan.
25.apr. 2012 - 07:00
Eitt er alveg víst, það er ekki hægt að kalla ofurfyrirsætuna Heidi Klum feimna en hún sat fyrir á dögunum í ansi litríkri myndatöku þar sem að hún var kviknakin. Þetta er í annað skipti í mánuðinum sem að Heidi situr fyrir án klæða, en fyrirsætan segist vera ótrúlega sátt við líkamann sinn.
24.apr. 2012 - 18:00
Gestir og gangandi ráku upp stór augu í Kringlunni á síðasta vetrardegi, en hvers vegna ætli það hafi verið?
24.apr. 2012 - 16:00
Þessi uppskrift er gjörsamlega ómótstæðileg á alla vegu en hakkabollur með beikoni og lauk í bland við hvítlaukskartöflumús er eitthvað sem að enginn má láta framhjá sér fara!
24.apr. 2012 - 13:30
Nú hefur slúðursíðan E! Online staðfest orðróminn um að kynbomban Megan Fox eigi von á sínu fyrsta barni með eiginmanninum og leikaranum Brian Austin Green, en leikkonan segist vera meira en tilbúin til þess að verða móðir.
24.apr. 2012 - 11:27
Ný námskeið hefjast í Fashion Academy þann 30.apríl næstkomandi, en ljósmyndanámið hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Nemendur segja námið án efa hafa verið frábæran stökkpall út í bransann enda ófá tækifærin sem hafa boðist samhliða náminu.
24.apr. 2012 - 09:00
Stundum er bara gott að fá sér eitthvað einfalt og klassískt á morgnanna en þessi smoothie er æðislega góður með bláberjum og kiwibitum.
24.apr. 2012 - 07:00
Hún er yfirleitt dressuð í hágæðamerki frá toppi til táar en tískumógúllinn Victoria Beckham hefur greinilega viljað leyfa dóttur sinni, Harper Seven að hafa það notalegt þar sem að þær mæðgur þeyttust um Bejing í verslunarleiðangri í gær.
23.apr. 2012 - 16:07
Þau hafa ekki verið mikið fyrir það að staðfesta sambandið sitt opinberlega í fjölmiðlum en hafa þó verið mynduð saman víðsvegar síðasta mánuðinn ásamt því að einhverjar heimildir hafa verið fyrir því að rapparinn hafi verið kynntur fyrir Kardashian fjölskyldunni. Nú hefur parið gengið skrefinu lengra og staðfest samband sitt á ansi óvenjulegan hátt.