19.jún. 2013 - 21:40
Eva Gunnbjörnsdóttir
Jóhanna Vala Höskuldsdóttir, kölluð Vala, er nýútskrifuð sviðslistakona frá Listaháskóla Íslands. Síðustu daga hefur gjörningur hennar, sem gengur út á að eyða engum peningum í 30 daga, vakið mikla athygli. Þá hefur hún komið fram í fjölmiðlum og lýst því hvernig hún hafi komist af án peninga m.a. með því að nýta mat úr gámum.
19.jún. 2013 - 21:00
Eva Gunnbjörnsdóttir
Flestir foreldrar reyna að stuðla að sem bestri sjálfsmynd barna sinna. Í gegnum tíðina hafa margar aðferðir verið notaðar í uppeldi barna og nú um mundir er mikið rætt um „jákvæðan aga“. Það hefur verið rannsakað og sannað að jákvæður agi hafi góð áhrif á börn. Eðlileg örvun og verðskulduð hrós spila þar stór hlutverk.
18.jún. 2013 - 21:05
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir létti sig um 40 kíló á síðastliðnum 2 árum. Hún segir á einlægan og opinskáan hátt frá baráttu sinni við aukakílóin en hún prófaði marga mismundandi megrunarkúra áður en hún náði þeim árangri sem hún stefndi að.
18.jún. 2013 - 11:45
Mynd dagsins er af fjölmiðlamanninum Sigmari Vilhjálmssyni, betur þekktur sem Simmi Vill, en hann var fluttur með sjúkrabíl á 8 ára brúðkaupsafmæli sínu eftir að hafa fengið þursabit í ræktinni. Simmi sem er annar eigandi Hamborgarafabrikkunnar greinir frá þessu á Facebook-síðu.
18.jún. 2013 - 11:03
Það er löngum þekkt að rithöfundar hafi notað önnur nöfn til að merkja meistaraverk sín. Menningarpressan tók saman nokkur nöfn rithöfunda sem hafa notað listamannsnöfn. Ástæðurnar eru margvíslegar eins og fram kemur hér:
17.jún. 2013 - 22:30
Rania Al Abdullah, drottning Jórdaníu, skrifaði stúlkum í heiminum opið bréf í tengslum við verkefni á vegum CNN
Girl Rising. Í bréfi sínu spyr hún hvort allar stúlkur kannist ekki við að vera settar í ákveðin hlutverk bara fyrir það að vera kvenkyns. Hún hvetur þær til að vera sjáfstæðar, finna sína rödd og láta í sér heyra.
17.jún. 2013 - 18:40
Breskur karlmaður lifði í gær af fall af 15. hæð í fjölbýlishúsi í Auckland á Nýja Sjálandi. Tom Stilwell heitir maðurinn og féll hann af svölum nágranna síns sem býr á 15. hæð, en sjálfur er Tom með íbúð á 14. hæð.
17.jún. 2013 - 11:38
Það eru skiptar skoðanir hjá fólki hvort það sé meira fyrir ketti eða hunda. Hvort dýrið er skemmtilegra, gáfaðra og svo framvegis. Nú hafa háskólanemar Bandaríkjunum komist að því að kettir eru betri í því að drekka.
17.jún. 2013 - 10:10
Stjörnukokkurinn Nigella Lawson fór að heiman í nótt, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að myndir birtust af ofbeldi eiginmanns á hendur henni á veitingastaðnum Mayfair í London.
16.jún. 2013 - 12:05
Þrátt fyrir ungan aldur er óhætt að kalla hinn 4 ára gamla Hannes svokallaðan fótboltasérfræðing. Eins og sjá má í myndböndunum hér að neðan veit Hannes eitt og annað um enska boltann þar sem hann þylur upp hvert nafnið á fætur öðru.
15.jún. 2013 - 19:33
„Ég hef alltaf átt þann draum að opna veitingastað, nú kom til þess tækifæri og ég lét verða af því,“ segir Þorsteinn Sæþór Guðmundsson kerfisfræðingur og matreiðslumaður úr Reykjavík, sem rekur nú Veitingastaðinn Þorpið á Patreksfirði, sem slegið hefur í gegn meðal heimamanna og ferðamanna nú í sumar.
15.jún. 2013 - 08:00
Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður og annar ritstjóri kvikmyndavefsins Svarthöfða, réðist í hressilega vorhreingerningu í geymslunni hjá sér og ætlar nú um helgina að selja ýmsar merkar minjar tengdar kvikmyndasögunni.
14.jún. 2013 - 20:45
Leikkonan Edda Björgvinsdóttir var stöðvuð tvisvar af lögreglu í sömu ferðinni á leið sinni frá Reykjavík vestur til Bolungarvíkur. Ástæðan var þó ekki sú að Edda væri að keyra of hratt miðað við aðstæður, hún fór svo hægt að laganna verðir töldu að ökutækið væri bilað.
14.jún. 2013 - 19:30
Sarina Hans er 9 ára hálfíslensk stúlka sem býr í Southampton á Englandi. Hún er Street dansari og er best í danstegundinni Popping. Þykir það mjög einstakt þar sem ekki margar stúlkur dansa þennan stíl og er hún mjög efnileg. Sarina varð nýlega Englandsmeistari í dansi í keppni þar sem aðeins færustu í hennar aldursflokki fengu að taka þátt.
14.jún. 2013 - 17:15
Mynd dagsins er af þessum fimm fallegu kettlingum sem voru skildir eftir í kassa
14.jún. 2013 - 15:14
Þær Árný Davíðsdóttir, Írina Linda Óskarsdóttir, Steinunn Linda Jónsdóttir og Þórunn Björk Guðlaugsdóttir ætla að hjóla í kringum landið þ. 19-22. júní, til styrktar Barnaheillum. Við urðum forvitnar og vildum vita aðeins meira um verkefnið og höfðum því samband við Steinunni Lindu Jónsdóttur, einn meðlim hópsins og spurðum hana aðeins út í verkefnið.
14.jún. 2013 - 10:51
Dagana 14. – 18. júní mun Flugfélag Íslands bjóða öll fargjöld innanlands án skatta og gjalda sé bókað á netinu. Eina sem þarf að gera er að fara inná vef félagsins og slá inn flugsláttinn SUMAR. Þetta er gert til að koma til móts við landsmenn sem vilja nýta sér flugið innanlands í sumar.
13.jún. 2013 - 21:24
Photoshop forritið er mikið notað á myndir sem birtast í auglýsingum og fjölmiðlum. Myndvinnsluforritið getur fjarlægt allar misfellur og galla á fólki þannig að það virðist fullkomið í alla staði. Mjög algengt er að frægir einstaklingar séu lagaðir til í forritinu og hér eru nokkur mjög skemmtileg dæmi um myndir fyrir og eftir Photoshop breytingar.
13.jún. 2013 - 18:30
Í dag verður nýtt skemmtiferðaskip nefnt með pompi og prakt og mun Kate Middleton, hertogaynjan af Cambridge sjá um að skýra nýjasta skip Princess cruises. Mun skipið hljóta nafnið Royal princess eða konunglega prinsessan og samkvæmt myndum stendur skipið fyllilega undir því nafni.
13.jún. 2013 - 14:15
Handknattleikssnillingurinn og stórskyttan Ólafur Stefánsson leikur sinn síðasta leik fyrir Íslands hönd á sunnudaginn kemur. Inná vefsíðunni
www.takkoli.is getur þú þakkað Óla Stef fyrir allar gleðistundirnar en nú þegar hafa tæplega 19 þúsund manns hent í kveðju.
13.jún. 2013 - 12:00
Hefur þú lent í Pop up Partíi? En, gestum 10/11 var aldeilis komið á óvart á dögunum þegar slegið var til smá Carlsberg gleðskapar á miðju kvöldi í versluninni. Um níu leytið voru ljósin slökkt, kveikt var á diskóljósum og rauður dregill dreginn fram. Blaz Roca og Bent úr Rottweiler mættu síðan á svæðið og tóku tvö lög. Frábær stemning myndaðist og gestir skemmtu sér konunglega.
13.jún. 2013 - 11:18
Pepsi er nú komið í verslanir í 33cl plastflöskum sem kallaðar eru kríli, en með þeim er ekki aðeins komið til móts við þarfir neytenda um minni umbúðir, heldur er þetta jafnramt hluti af samfélagsábyrgð Ölgerðarinnar.
13.jún. 2013 - 10:10
Biðstöð strætisvagna, myndavél og góður tæknimaður. Þetta er það sem þarf til að blekkja fólk og gleðja um leið.
13.jún. 2013 - 09:51
Hjartnæm, sár og sprenghlægileg saga um hallarbyltingu í hverfissamtökum, grimma æsku, djúpa ást og myrka sorg. Og Saab.
Maður sem heitir Ove sló rækilega í gegn þegar hún kom út í Svíþjóð árið 2012 og fer nú sannkallaða sigurför um heiminn.
12.jún. 2013 - 17:00
Ný safnplata Botnleðju, „Þegar öllu er á botninn hvolft“, er tvískipt safnplata sem inniheldur tvo geisladiska. Fyrri diskurinn inniheldur átján lög og þar af eru sextán bestu lög þeirra af breiðskífum sveitarinnar, sem eru fimm talsins. Einnig inniheldur fyrri diskurinn tvö glæný lög, „Slóði“ og „Panikkast“ sem er þegar farið að hljóma á öldum ljósvakans. Seinni diskurinn innheldur áður óútgefnar upptökur, ábreiður sveitarinnar á lögum tónlistarmanna eins og Devo og Megas, enskar útgáfur laga, endurhljóðblandanir og tónleikaupptökur með Botnleðju sem ávallt hefur þótt frábær tónleikasveit.
12.jún. 2013 - 16:10
Þannig kemst indverska prinsessan að orði en hún hefur nú skorað á Bubba Morthens í tónlistareinvígi í Bandaríkjunum. Fyrr í morgun birti Bubbi pistil á Pressunni sem vakið hefur mikla athygli. Þar bað Bubbi Leoncie um að hafa sig hæga, nóg væri komið af svívirðingum í garð íslenskra tónlistarmanna.
12.jún. 2013 - 14:09
Út eru komnar hjá Veröld bækurnar Icelandic Ghost Stories og Icelandic Literature of the Vikings. Í bókinni Icelandic Ghost Stories er að finna þekktustu og áhrifaríkustu draugasögurnar úr íslenskum þjóðsagnasöfnum. Pétur Már Ólafsson valdi sögurnar og Philip Roughton þýddi yfir á ensku. Í annarri bókinni Icelandic Literature of the Vikings er fjallað á aðgengilegan og lifandi hátt um magnað texta, Íslendingasögurnar, eddukvæðin og ýmis önnur ritverk miðalda.
11.jún. 2013 - 20:15
Dómharður en duglegur, áhrifagjarn en hugmyndaríkur, hvatvís en geðgóður, fórnfús og móðgunargjarn. Með þessum orðum lýsir leikarinn Rúnar Freyr Gíslason kostum sínum og löstum.
10.jún. 2013 - 15:50
Aron Hinriksson, grunnskólakennari á Selfossi, kvaddi bekk sinn til fjögurra ára á föstudaginn síðastliðinn þegar 10. AH útskrifaðist úr grunnskóla. Þessari útskrift fylgir falleg saga sem sýnir okkar hversu vel innrættir unglingar þessa lands geta verið nú til dags.
10.jún. 2013 - 11:43
Framleiðslufyrirtækið Ljósband leitar nú að ungum leikurum fyrir Sumarbörn, sem er ný íslensk fantasíumynd fyrir alla fjölskylduna í leikstjórn Guðrúnar Ragnarsdóttur.
09.jún. 2013 - 21:30
Að eiga í erfiðleikum með að sofna er vandamál sem margir kannast við og hafa flestir einhvern tímann lent í því að liggja andvaka á kvöldin. Svefnleysi getur haft neikvæðar afleiðingar og heilsufarsleg vandamál í för með sér, sérstaklega ef það er viðvarandi ástand.
09.jún. 2013 - 21:00
Hér er afar fallegt en skemmtilegt myndskeið af hundinum Rev að hlusta á lag sem hefur verið í uppáhaldi frá því að hann var hvolpur. Rev var bjargað þegar hann var einungis nokkurra vikna.
09.jún. 2013 - 20:33
Hér fyrir neðan má sjá afskaplega fallegt myndskeið af heldri hjónum. Þessi hjón hafa verið gift í 66 ár og hafa aldrei verið jafn ástfangin!
09.jún. 2013 - 17:15
Bítlalögin virðast búa yfir galdramætti. Vinsældir þessara laga ganga milli kynslóða en þann dag í dag. Hinn tæplega tveggja ára gutti, Diogo Mello, kann vel að meta tóna drengjanna fjögurra frá Liverpool. Þetta myndskeið hefur farið eins og eldur í sinu um netheima og fengið yfir milljón áhorf.
09.jún. 2013 - 14:45
Nú er sumarið gengið í garð og margir farnir að huga að gönguferðum. Við hjá Pressunni vildum kanna hverjar tíu skemmtilegustu gönguferðir á Íslandi væru. Nefnd álitsgjafa var sett saman og hún beðin um að telja upp þær tíu sem þeim finnst skemmtilegastar. Athugið að leiðirnar eru ekki í neinni sérstakri röð.
09.jún. 2013 - 13:00
Þreyta og orkuskortur eru vandamál sem margir kannast við. Afleiðingin er í mörgum tilvikum langur svefn í eftirmiðdaginn sem síðan veldur svefnleysi að kvöldi til. Rannsóknir sýna að það tekur eldra fólk oft meira en 30 mínútur að sofna á kvöldin. Þeir hinir sömu sofa auk þess ekki jafn djúpt og best væri á kosið og vakna oftar upp um miðja nætur.
09.jún. 2013 - 10:34
Natalie Holt sem æddi upp á svið í lokaþætti hæfileikakeppninnar Britains Got Talent og grýtti eggjum í Simon Cowell í beinni útsendingu hefur beðist afsökunar. Holt tók þátt í keppninni í fyrra en komst ekki áfram.
08.jún. 2013 - 13:29
Kristján Kristjánsson
Facebook og aðrir samfélagsmiðlar geta verið gagnlegir fyrir félagslíf fólks en þeir geta verið til óþurftar þegar kemur að ástarsamböndum þeirra.
08.jún. 2013 - 11:45
Elstu systkinin fá hærri einkunir í greindarvísitöluprófum en þau yngri. Sennilega eru foreldrar duglegri að örva heilastarfsemi fyrsta barnsins en þeirra sem á eftir koma. Hvert aukastig á greindarvísitöluprófi gefur að meðaltali um 3,5 milljónir í aukatekjur á lífsleiðinni.
07.jún. 2013 - 08:00
Flóa og götumarkaði sem haldinn er í Hafnarfirði hefur verið vel tekið en markaðurinn er staðsettur í Dalshrauni 5, beint á móti Fjarðarkaup. Alma Geirdal er annar skipuleggjanda en hún segir að úrvalið sé fjölbreytt og hægt að gera góð kaup á nýjum og notuðum flíkum, bókum og skarti svo fátt eitt sé nefnt.
06.jún. 2013 - 22:00
Gríðarlegt uppnám varð í klámiðnaðinum í Los Angeles í Kaliforníu í ágúst á síðasta ári þegar níu klámmyndaleikarar greindust á skömmum tíma með sárasótt. Þúsundir leikara voru sendir í skoðun og var framleiðsla á bláum kvikmyndum stöðvum um tíma.
06.jún. 2013 - 12:11
Á dögunum var kynntur nýr belgískur bjór á markaðinum sem heitir Grimbergen. Margar tegundir eru til af bjórnum, en tvær þeirra eru nú komnar í sölu hér á landi. Önnur tegundin er ljós bjór sem kallast
Grimbergen Blonde en hinn er dekkri og kallast
Grimbergen Double Ambrée. Þeir eru báðir í sterkari kantinum, eða yfir 6% í áfengismagni.
06.jún. 2013 - 11:30
Hvaða konur eru fyrirmyndir annarra kvenna? Við fengum nokkrar þjóðþekktar konur til að segja okkur hvaða konur þær telja hvað flottastar, áhrifamestar og hverjar hafi einhverja merkingu í lífi þeirra. Hlín Agnarsdóttir leikstjóri og leikskáld með meiru fékkst til að segja okkur hvaða 10 konur eru hennar fyrirmyndir:
06.jún. 2013 - 09:29
Víðistaðaskóli hlaut í vikunni viðurkenningu fræðsluráðs árið 2013 fyrir skapandi starf, leiklistarsýningar og söngleiki í 10. bekk.
05.jún. 2013 - 18:00
Heimiliskettir nútímans eru komnir af hinum svonefnda afríska villiketti, en hann er einn af nokkrum tegundum villikatta sem hafa frá fornu fari búið í flestum heimshlutum. Áður fyrr var gjarnan talið að kettir hefðu þróast frá hinum ýmsu villikattategundum hér og þar um heiminn, en nú munu DNA-rannsóknir hafa gefið ótvírætt til kynna að allar okkar kisur er komnar frá þeim afríska villiketti, og engum öðrum. Sá köttur bjó fyrst og fremst í Norður-Afríku en hélt sig líka á hinum hrjóstrugri svæðum Arabíu og Miðausturlanda.
05.jún. 2013 - 17:00
Ótrúleg saga Óskar og Greg: Fyrst tvíburar, svo þríburar! Fyrir tæpum fimm árum síðan fluttist Ósk Stefánsdóttir til Bandaríkjanna til að hefja sitt líf með ástinni sinni, Greg. Ást þeirra bar ávöxt og ári síðar eignuðust þau tvíbura, heilbrigðar og fallegar stelpur, þær Maggie Maríu og Emmu Líf sem nú eru orðnar 3ja ára gamlar.
05.jún. 2013 - 11:20
Það getur verið meiriháttar mál að ganga í gegnum sambandsslit, þá sérstaklega ef sambandið hefur staðið yfir lengi. Flestir hjónabandsráðgjafar mæla með því að fólk ræði saman og geri upp sambandið augliti til auglitis.
04.jún. 2013 - 19:20
Vorið í apríl og maí var kalt og meðalhiti hefur ekki verið lægri síðan 1989. Frá 1870 hafa einungis 34 vor verið kaldari en nú. Ekkert bólar á sumrinu og engu líkara en að haustið sé komið eða eins og skáldið Andri Snær Magnason sagði á Facebook-síðu sinni nú í morgun: „Veit að það er komið haust, húsin eru orðin gul og rauð, farin að fella bárujárnið.“
04.jún. 2013 - 15:00
Vala Höskuldsdóttir er nýútskrifuð listakona, atvinnulaus og mjög kjörkuð. Hún á ekki rétt á atvinnuleysisbótum og ákvað því að gera rannsókn á því hversu háð hún væri neyslu daglegs lífs. Í 30 daga ætlar hún ekki að eyða krónu og vídeóbloggar hún daglega um árangurinn. Myndböndin eru stórskemmtileg og mun hún taka þau saman í lok mánaðarins og búa til einhverskonar sýningu.
04.jún. 2013 - 09:44
Gunnar Andri Þórisson hefur fengið viðurkenningu frá útgefundum bókarinnar
Against the Grain, fyrir að vera með besta kaflann í bókinni, en hana skrifar Gunnar Andri í samvinnu við heimsþekkta fyrirlesarann og söluráðgjafann, Brian Tracy. Brian Tracy þarf vart að kynna en hann er metsöluhöfundur og einn fremsti fyrirlesari heims þegar kemur að viðskipta- og sjálfsuppbyggingu.