29. apr. 2012 - 14:00
Pistill: Glútenlaust æði gengur yfir heiminn: Ætlar þú að taka glútenlausa viku? Lestu þér til um málið
Allar stjörnurnar eru að prófa glútenlaust mataræði, en er þetta hollt fyrir þig? Strákarnir hjá Body.is eru með réttu svörin.
Mitt persónulega mat er það að ég er ekki að finna heila brú í því afhverju einhver ætti að taka út allt glúten úr fæðunni ef ekki er óþol fyrir því, heldur til þess eins að grenna sig, það er ekki rétta leiðin. Þú ert að fara á mis við það mikið af kjarngóðum fæðutegundum eins og t.d. höfrum, byggi og öðrum kornvörum sem gefa góð kolvetni og trefjar, hvar ætlarðu með þægilegu móti að sækja þau næringaefni annarsstaðar?
Að vísu eru kostir við það líka að taka út glúten úr fæðunni að takmörkuðu leyti, en þú ert að takmarka neyslu á unnum matvörum sem ég er hvort eð er hlynntur fyrir vegan framleiðsluferlis þeirra matvæla oft á tíðum, m.a. vegan sterkjuefna sem koma úr óvelkomnum E aukaefnum við vinnslu matvæla að mínu mati eins og til að mynda :
E 1404 Oxuð sterkja
E 1410 Mónósterkjufosfat
E 1412 Díssterkjufosfat
E 1413 Asetýletrað Díssterkjufosfat
E 1414 Hýdroxyprópýlsterkja
E 1420 Sterkjuasetat
Svo gott er að vera vakandi fyrir þessum hóp glúten matvæla sem eru unnin sem hafa þessi sterkjukenndu E efni, dextrin sterkjusykrur, þykknir sem eru tilbúnar sósur og súpur t.d. (Extract) og önnur þykkefni, þau mega út mín vegna.
Glúten er falið víða í matvælum, en algengar fæðutegundir sem innihalda glúten eru meðal annars:
Hveiti - Hveitiklíð - Kúskús - Spelt - Bygg - Bankabygg - Rúg og mjöl - Hafrar og haframjöl
Svo þegar heilt er yfir litið og ég spurður að því hvort ráðlagt sé að taka út gúuten úr fæðunni er ekki til þetta algilda svar, sumt má fara út eins og ég lýsti hér að ofan og annað ætti að haldast inni. Það er því eiginlega ekki lausnin á bættu mataræði heldur bara lausn ef að þú ert með óþol.
En ef grunur leikur á því að þú hafir óþol skaltu leita ráðgjafar hjá lækni og/eða næringafræðing til þess að gangast undir rannsókn sem gengur úr skugga um það hvort um er að ræða óþol fyrir glúteni eða ekki, ef svo vill til að óþol er til staðar þá hefur glúteninntaka ekki góðáhrif eðli málsins samkvæmt.
Hjá þeim sem hafa óþol inniheldur glútenið prótinefni sem stífla slímhúð þarma og meltingarinnar svo úr verður mikil lömun á upptöku og frásogi ýmissa nytsamlegra næringaefna svo að úr verður skortur á þessum næringaefnum vegna þess að líkaminn nýtir þau ekki vegna þessa glúteníns sem er próteinefnið er í glúteni, þó svo að um sé að ræða þokkalega fjölbreytta og holla fæðu þá hefur það lítið að segja fyrir manneskju með óþol ef hun inniheldur mikið glúten og getur í raun orðið skaðlegt.
Einkennin eru þreyta, slen, höfuðverkur, blóðleysi, niðurgangur eða hægðartregða og oft á tíðum þaninn kviður. Fyrir nokkru las ég að hér á landi hafi verið talið að einn af hverjum 8000 einstaklingum hafi glútenóþol en í sumum erlendum vestrænum ríkjum sé það einn á móti 1000 til 2000 einstaklingum.
Ekki kann ég nákvæma skýringu á þessum mun, en eitthvað segir mér að þessi tala hafi breyst og fleiri tilfelli séu í gangi en þetta gefur til kynna, það er mín tilfinning einfaldlega vegna þess að einkennin af þessu og mjólkuróþoli eru nokkuð svipuð og dæmin sanna að einkennin hjá fólki eru fleiri en þessar tölur gefa til kynna, nú væri gott að spyrja næringafræðing álits á þessu eða þann sem hefur yfir höndum tölfræðina í þessu, því ekki er hægt að líta fram hjá upplifunum einstaklinga sem til mín hafa leitað sem m.a. hafa haft vott af þessum einkennum hvort sem það snýr að þessu endilega skal ég ekki segja en einhversstaðar er maðkurinn geymdur í mysunni.
Ég ráðlegg einstaklingum að ræða við fagaðila þegar kemur að þessu eins og lækna og eða næringafræðinga og stíga varlega til jarðar þegar kemur að ákvörðunum um val á matvælum ef grunur leikur á að um glútenóþol sé að ræða, ég varð persónulega vitni að slæmum atburði fyrir 4-5 árum þegar ótilgreindur næringaráðgjafi ráðlagði manneskju með glútenóþol að taka út hveiti (sem er gott því það inniheldur glúten) en auka þá inntöku á spelti í staðinn, sem er mjög slæmt því í spelti er jafnvel meira glúten en í hveiti.
Því þegar að þessu er komið að neita eingöngu glútenfrírrar fæðu er mikið vandaverk að fylgjast með umbúðum a.m.k. til að byrja með, ef þær eru óljósar þá þarf einfaldlega að hafa samband við framleiðanda eða innflytjanda vörunnar til að ganga úr skugga um að glúten sé nokkuð fyrir.
Glútenið er útum allt ef svo má segja og það er erfitt við það að eiga að taka það allt út og eins og fyrr segir nauðsynlegt að gera það í samvinnu við næringafræðing t.d. En það að glútenfría fæðið með það eitt í huga að grenna sig og taka til í mataræðinu þá ertu svolítið að sækja langt yfir skammt og gera hlutina erfiðari og torveldari fyrir þig en tilefni er til.
Taktu til í mataræðinu á þeim forsendum að þú sjáir það fyrir þér að þú haldir það út það sem þú átt eftir ólifað, ekki blekkjast af einhverjum tímabundnum “trendum” hér og þar þegar kemur að næringu. Óska ykkur alls hins besta í hollum mat og drykk :)
Björn Þ. Sigurbjörnsson, Body.is
23.maí 2013 - 14:00
Hinn árlega og vinsæla Vorhátíð í og við Langholtskirkju hefst sunnudaginn 26. maí með messu kl. 11:00. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar. Messan er tileinkuð Kvenfélagi Langholtssóknar sem hefur í áratugi unnið ómetanlegt starf fyrir söfnuðinn. Fyrrum félagar úr Kór Langholtskirkju syngja undir stjórn Jóns Stefánssonar organista.
23.maí 2013 - 12:20
Myndir dagsins tók starfsmaður Norðuráls af hrafnapari sem hefur gert sér laup á uppgöngupalli utan á kerskála Norðuráls á Grundartanga.
23.maí 2013 - 11:15
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, var kampakátur þegar þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson skrifuðu undir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar á Laugarvatni.
22.maí 2013 - 14:36
Ruth Ásdísardóttir
Það má með sanni segja að ævintýralegir hlutir séu að gerast í lífi Gunnars Andra og eftir aðeins nokkurra mínútna spjall, er blaðamaður orðinn fullur eldmóðs vegna verkefnanna sem bíða hans. En, skemmst er frá því að segja að hann er að gefa út bók í samvinnu við
Brian Tracy, sem þarf að sjálfsögðu ekki að kynna. Bókin er væntanlega í september á þessu ári og heitir
Against the Grain.
21.maí 2013 - 22:30
18 ára unglingur sem vann hug og hjörtu fólks er hann greindi á einlægan hátt frá baráttu sinni við krabbamein í desember er látinn. Pressan sagði sögu hans á síðasta ári.
21.maí 2013 - 19:20
Það er sérstök upplifun að ferðast með Air Koryo. Flugfreyjurnar ganga um með tuskur til þurrka rakann sem drýpur niður á farþegana, maturinn er viðbjóðslegur og byltingarmarsar eru spilaðir fyrir flugtak og lendingu.
21.maí 2013 - 15:30
Mynd dagsins tók Ágúst G. Atlason af Sveinbirni Hjálmarssyni, eða Simba eins og hann er kallaður í daglegu tali. Simbi er þekktur fyrir að birta skopmyndir af sér á Facebook-síðu sinni en hann birtir eina á dag.
21.maí 2013 - 11:00
„Í gegnum árin hef ég reynt að horfa fram hjá hvernig sumir hafa skrifað um mig á kommentakerfum en nú er nóg komið,“ skrifar tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens í pistli sem birtur var hér á Pressunni í morgun.
20.maí 2013 - 13:15
Íslandsþáttur Simpsons-fjölskyldunnar var frumsýndur vestanhafs í gærkvöldi. Í þættinum ómaði tónlist Sigur Rósar og var sögusviðið Ísland. Þar talaði Hómer m.a. íslensku eins og heyra má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.
20.maí 2013 - 10:00
Leikarinn Stefán Karl Stefánsson gagnrýnir foreldra í Vesturbænum fyrir að grípa ekki í taumana þegar þau urðu vitni að því að tveir ungir drengir, um níu ára gamlir, stóðu úti á miðri götu og öskruðu ókvæðisorðum á annan pilt.
19.maí 2013 - 19:00
Helgi Skúlason hefur á síðustu árum getið sér mjög gott orð fyrir náttúrumyndir sínar og hefur sérhæft sig í fuglamyndum. Hann hefur haldið nokkrar sýningar á myndum sínum, til dæmis í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem vakið hafa mikla athygli. Sérstaka eftirtekt vekur hve persónulegar fuglamyndir Helga eru, enda leggur hann sig fram um að komast í mikið návígi við fuglana.
19.maí 2013 - 18:00
Öll þroskumst við á lífsleiðinni. Við prófum margt og lærum á því sem við gerum. Sumt gengur upp, annað ekki … En, það sem gerir lífið svo skemmtilegt og fallegt er einmitt að horfa til baka og sjá að við prófuðum þó. Hér eru nokkrir hlutir sem allar konur ættu að prófa fyrir þrítugt:
19.maí 2013 - 11:00
Björn Bragi Arnarsson er fæddur árið 1984. Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og þá er hann með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Björn var fyrr í vetur kosinn sjónvarpsmaður ársins fyrir frammistöðu sína sem stjórnandi Týndu kynslóðarinnar og hlaut hann Edduna fyrir.
18.maí 2013 - 23:30
Í kvöld lék David Beckham sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum þegar hann leiddi lið PSG til 3-1 sigurs gegn Brest í franska boltanum. Beckham, sem bar fyrirliðaband PSG í leiknum í kvöld, var tekinn útaf á 83. mínútu og táraðist þá öll stúkan, líkt og Englendingurinn sjálfur.
18.maí 2013 - 22:25
Eins og flestir Íslendingar vita fór Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva fram í kvöld. Eyþór Ingi söng fyrir Íslands hönd og stóð sig frábærlega en það var hinsvegar Emelie de Forrest sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa með framlagi Danmerkur
Only Tearsdrop.
18.maí 2013 - 22:00
Samskiptasíðurnar Twitter og Facebook loguðu á meðan söngvarar stigu á svið í Eurovision-keppninni. Líflegar umræður fóru fram um lögin og á báðum samskiptasíðunum mátti finna skemmtilega gullmola um hina ýmsu listamenn í keppninni.
18.maí 2013 - 18:30
Eyþór Ingi sem í kvöld flytur lagið Ég á líf í Eurovision-keppninni spjallaði á léttu nótunum við Davíð Lúther Sigurðarson. Þá sýndi hann skartið sem hann ber og ræddi um fataval fyrir stóru stundina.
17.maí 2013 - 21:34
Hér er á ferðinni bráðskemmtilegt myndskeið þar sem í aðalhlutverki eru persónur úr hinum vinsæla uppvakningaþætti Walking Dead. Við getum lofað því að þú hefur aldrei séð þessa útgáfu áður.
17.maí 2013 - 18:30
Það er ekki óalgengt að verðmætustu vörumerkjum heims sé stolið og þau seld undir breyttum nöfnum. Hér eru nokkur áhugaverð dæmi:
17.maí 2013 - 15:30
Eyþór Ingi sem í gær söng sig inn í hug og hjörtu margra Evrópubúa þakkaði Íslendingum og þá sérstaklega fólkinu í heimabæ sínum á Dalvík fyrir stuðninginn í gærkvöldi. Þá sagðist hann hafa orðið meyr í miðju lagi þegar honum varð hugsað til dætra sinna og eiginkonu.
17.maí 2013 - 14:30
Víking sumaröl er nýi sumarbjórinn sem Vífilfell framleiðir. Hreiðar Þór Jónsson, markaðsstjóri hjá Vífilfelli, segir að fyrst var farið af stað með söluna á Sumarölinu árið 2011, en þá var það til sölu á nokkrum veitingastöðum eins og Rósenberg og Kex. Skemmst er frá því að segja að bjórinn sló algjörlega í gegn.
17.maí 2013 - 11:30
Hljómsveitin Sigur Rós bregður fyrir í Simpsons þættinum The Saga of Carl Carlsson sem sýndur verður í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Nú hefur fyrsta myndskeiðið verið sett á netið og það má sjá hér fyrir neðan.
17.maí 2013 - 08:00
Tæknin mun bjarga þeim sem ekki komast í miðbæinn í dag til að sjá einstakt átta mínútna skipaflautuverk Lilju Birgisdóttur. Lilja lofar tilkomumikilli sjón þegar hún stýrir verki sínu, Vessel Orchestra, í höfninni á Listahátíð í Reykjavík, en það er opnunarverk hátíðarinnar.
16.maí 2013 - 22:17
Enginn á að þurfa að missa af Eurovision - hvorki leikarar né leikhúsgestir. Englar alheimsins gerðu stutt hlé á sýningu kvöldsins og sungu ,,Ég á líf" með Eyþóri og áhorfendum í beinni útsendingu á stóra sviðinu
16.maí 2013 - 15:50
Hvað eiga Eyþór og brúðan Terry Vision sameiginlegt? Jú, þeir hafa báðir leikið í Rocky Horror. Eyþór lék Riff Raff en Terry var sögumaður. Hér má sjá skemmtilegt myndskeið með þeim félögum.
16.maí 2013 - 14:02
Lagið
Önnur sjónarmið sem Edda Heiðrún Bachmann leikkona söng svo eftirminnilega var kveikjan að styrktartónleikum sem þrír kórar á Seltjarnarnesi stóðu fyrir á Uppstigningardag en þar söfnuðust 130.000 krónur. Ákveðið var að ágóðinn skyldi renna til Endurhæfingardeildar Grensás.
16.maí 2013 - 13:55
David Beckham hefur gefið það út að hann sé hættur allri knattspyrnuiðkun. Sportsmail greindi fyrst frá þessu um klukkan tvö í dag en nú hefur Beckham sjálfur staðfest þessar sögusagnir. Þessi 38 ára gamli Englendingur hefur því spilað sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum.
16.maí 2013 - 11:00
Mynd dagins birti Örlygur Smári á Facebook-síðu Nýherja en þar segir:
15.maí 2013 - 20:10
Í tilefni þess að Eurovision söngkeppnin fer fram í þessari viku í Malmö í Svíþjóð, ákváðum við að spyrja nokkra þjóðþekkta Íslendinga um álit sitt á framlagi Íslendinga til keppninnar í ár, en eins og allir Íslendingar vita keppir Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson fyrir hönd Íslendinga með lagið „Ég á Líf“ eftir þá Örlyg Smára og Pétur Örn Guðmundsson
15.maí 2013 - 16:48
Caine Smith er 11 ára strákur búsettur í Bandaríkjunum. Hann mátti þola grimmilegt einelti af hendi skólafélaga sinna. Á hverju degi var hann barinn og kallaður öllum illum nöfnum. Ástæðan? Jú, Caine litli er síðhærður og á tvær mömmur.
15.maí 2013 - 12:38
Dalvíkingar eru afar stoltir af Eyþóri Inga sem syngur fyrir Íslands hönd í Eurovision-keppninni. Í myndskeiðinu hér fyrir neðan má hlusta á kveðjur frá kennurum, vinum og börnum.
15.maí 2013 - 11:52
Gillian Flynn er einn flottasti rithöfundur samtímans. Þessi þriðja skáldsaga höfundar kom út sumarið 2012 og hefur setið á metsölulista New York Times síðan þá. Bókin kom út á Bretlandi í vor og rauk beint á topp metsölulistans – og sömuleiðis í Noregi.
15.maí 2013 - 10:05
15.maí 2013 - 07:00
Skráning í hina árlegu hjólreiðakeppni WOW Cyclothon, þar sem hjólað er 1332 kílómetra hringinn í kringum Ísland með boðsveitarformi, hefur gengið framar björtustu vonum. Nú þegar hafa 25 lið staðfest þátttöku en liðsfjöldi verður takmarkaður við 30 lið. Áheitasöfnun mun fara fram í kringum keppnina og mun allur ágóði renna til Barnaheilla.
14.maí 2013 - 17:00
„Ég steig mín fyrstu skref sem viðskiptavinur í líkamsræktarheiminum í
Hreyfingu og mér leið alltaf mjög vel þar. Ég sló síðan til og fór í prufu í apríl árið 2011.“ Karen segir hópatímana í
Hreyfingu frábæra. „Kennararnir voru í raun það sem dreif mig áfram og á endanum lét ég slag standa. Þegar tækifærið kom til þess að vera hluti af þessum flotta hópi fagmanna gat ég ekki annað en freistað gæfunnar.“
14.maí 2013 - 14:00
Einar Ágúst Víðisson sem söng lagið Tell me ásamt Telmu Ágústsdóttur í Eurovision keppninni fyrir þrettán árum síðan segir að það hafi verið virkilega ánægjulegt en taugatrekkjandi að taka þátt í keppninni. Í skemmtilegu myndskeiði sem birt var á heimasíðu Vodafone segir hann frá sögunni á bak við pilsið fræga og af hverju hann valdi að klæðast því á úrslitakvöldinu.
14.maí 2013 - 09:15
Angelina Jolie hefur látið fjarlægja bæði brjóst sín af ótta við fá krabbamein. Frá þessu greinir leikkonan heimsþekkta pistli í New York Times. Móðir Angelinu lést úr brjóstakrabbameini einungis 56 ára.
12.maí 2013 - 20:50
Tveir írskir bræður, 13 og 14 ára, stigu á stokk í Britains Got Talent í gærkvöldi og fluttu lagið Little Talks með Of Monsters and Men. Óhætt er að segja að þeir hafi slegið í gegn með flutningi sínum á laginu.
11.maí 2013 - 08:40
Mannsaugað er eins og svo mörg önnur líffæri búið til úr mismunandi vefjum. Augað sjálft er knöttur úr þremur lögum og er um 2,5 cm í þvermál. Hér fyrir neðan eru átta myndir sem armenski ljósmyndarinn Suren Manvelyan hefur tekið af augum hinna ýmsu dýra. Í þeim hópi eru m.a. maður, tígrisdýr, slanga, hundur og lemúr.
10.maí 2013 - 19:00
Mjög áhrifaríkt myndband sem nemendur í kynjafræði í háskóla í Kanada gerðu. Hvernig myndu auglýsingar líta út ef karlmenn myndu vera í hlutverkum sem konur eru látnar vera í? Á milli auglýsinga eru sláandi staðreyndir sem koma öllum við! Deilið þessu myndbandi á dætur ykkar og syni, vini og vinkonur…
10.maí 2013 - 12:30
Dionne Warwick er ein skærasta stjarna poptónlistarsögunnar. Hún hefur unnið til 5 Grammy verðlauna, gefið út 35 breiðskífur sem selst hafa í yfir 100 milljón eintökum og hefur átt 85 lög á topp 100 í Bandaríkjunum, fleiri en nokkur önnur söngkona. Dionne Warwick hefur notið meiri velgengni á vinsældalistum en nokkur önnur söngkona í sögunni að Arethu Franklin undanskilinni.
09.maí 2013 - 11:40
Nú er Komið að því að velja Gyllta glasið 2013. Vínþjónasamtökin hafa staðið fyrir valinu ár hvert og hafa verðlaunin verið veitt síðan 2005. Valin eru tíu bestu tegundirnar af bæði rauðvíni og hvítvíni.
07.maí 2013 - 20:40
Á hverjum degi sjáum við myndir af frekar mjóum módelum í fjölmiðlum. Það er svo sem ekkert að því en þar sem að módel í „yfirstærð“ hafa verið í auknum mæli að koma fram á forsíðum alþjóðlegra tímarita, fannst okkur sniðugt að sýna nokkrar gullfallegar og glæsilegar konur sem eru með meiri „raunverulegri“ tölur þegar kemur að meðalstærð kvenna út um allan heim.
07.maí 2013 - 15:27
Ruth Ásdísardóttir
Keep Calm and Carry on var slagorð sem bresk stjórnvöld létu prenta á veggspjald árið 1939, stuttu eftir að seinni heimstyrjöldin hófst. Veggspjaldinu var ætlað að stappa stálinu í íbúa landsins sem stóðu frammi fyrir miklum hörmungum.
07.maí 2013 - 13:30
Grammy verðlaunahafinn fyrrverandi, Lauryn Hill, var nýverið dæmt í fangelsi vegna skattaskuldar. Söngkonan sem eitt sinn gerði garðinn frægan með sveitinni Fugees, játaði í fyrra að hafa ekki greitt skatt af tæplega 2 milljónum dollara sem hún hafði í tekjur á árunum 2005 til 2007.
06.maí 2013 - 18:00
Stormurinn er ný plata frá Bubba en kappinn er hér á gamalkunnum slóðum, en á plötunni er hann að miklu leyti einn á ferð með kassagítarinn einan að vopni. Stormurinn er að sögn Bubba ljúf plata en einnig pólítísk. Hún er beitt og einföld í senn og kemur í verslanir á morgun, þriðjudaginn 7. maí.
06.maí 2013 - 15:57
Nú er árleg álfasala að hefjast til styrktar SÁÁ. Sjálfboðaliðar um land allt eru nú að fara af stað og ætla að heimsækja Íslendinga og bjóða þeim SÁÁ álfinn til sölu.
05.maí 2013 - 15:00
Það tekur aðeins um tíu daga að verða kynþokkafyllri í augum kvenna og það er aðeins eitt sem þú mátt alls ekki gera, og það er að raka þig. Samkvæmt nýrri ástralskri rannsókn finnst konum karlmenn kynþokkafyllri ef þeir hafa ekki rakað sig í um viku tíma og kjósa þá framyfir þá sem eru nýrakaðir.
05.maí 2013 - 10:15
Poppstjörnurnar í íslensku hljómsveitinni Of Monsters and Men komu fram í gamanþættinum vinsæla Saturday Night Live (SNL) í gærkvöldi og uppskáru góðar viðtökur áhorfenda.
04.maí 2013 - 22:00
Árið 1975 tók ljósmyndarinn Nicholas Nixon mynd af Bebe eiginkonu sinni og þrem systrum hennar. Þá kviknaði sú hugmynd að gera það að árlegum viðburði og ákváðu þau að taka mynd af systrum fjórum saman allt til ársins 2010.